Fleiri fréttir

Conscriptor ritar sjúkraskrár sem boðnar voru út

Eignarhaldsfélagið Conscriptor átti lægsta tilboð í ritun sjúkraskráa fyrir slysa- og bráðasvið Landspítalans sem boðin var út nýverið. Fram kemur í tilkynningu á vef spítalans að ákveðið hafi verið að ganga til samninga við fyrirtækið en það hefur reynslu af ritun sjúkraskráa í Svíþjóð.

Ekkert bóluefni gegn HIV

Vísindamenn eru engu nær því að finna bóluefni fyrir HIV veiruna en þeir voru fyrir tuttugu árum.

Útspil ríkisstjórnarinnar hugsanlega klárt um helgina

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að útspil ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarsamninga á almennum vinnumarkaði líti dagsins ljós í fyrsta lagi um helgina en gæti allt eins dregist fram yfir helgi.

Öskureiðir hvalavinir vilja láta kæra sig

Bresk feðgin eru öskureið yfir því að yfirvöld hafa fallið frá málshöfðun á hendur þeim fyrir að hlekkja sig við stigahandrið í japanska sendiráðinu í Lundúnum.

Alvöru neðansjávarbíll

Nú verður James Bond væntanlega glaður. Bond aðdáendur muna allir eftir því þegar hann kom keyrandi upp úr sjónum í glæsilegri sportbifreið sem jafnframt var kafbátur (kafbíll ?).

Raðnauðgari á leigubíl

Lögreglan í Lundúnum hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa raðnauðgað konum sem hann plataði upp í leigubíl sinni.

Rafiðnaðarsambandið greiddi 600 þúsund króna skaðabætur fyrir Guðmund

Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins var dæmdur til þess að greiða 250 þúsund krónur í skaðabætur vegna tiltekinna ummæla í Hæstarétti fyrir skömmu. Einnig þurfti hann að greiða lögfræðikostnað. Upphæðin sem er rúmlega 600 þúsund krónur var greidd af Rafiðnaðarsambandi Íslands.

Tilbúinn í stríð við Ísrael

Leiðtogi Hizbollah-hreyfingarinnar í Líbanon segist reiðubúinn í stríð við Ísraela kjósi þeir átök. Einn af máttarstólpum Hizbollah féll í árás í vikunni. Hreyfingin segir Ísraela hafa myrt hann en því hafna Ísraelsmenn.

Tilgangslaus fundur með ríkisstjórninni

„Ráðherrarnir létu eins og þeir hefðu aldrei fengið þessar tillögur okkar,“ segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, eftir fund með ríkisstjórninni í morgun.

Olían yfir 96 dollara

Olíufatið fór yfir 96 dollara í dag þegar spákaupmenn hengdu sig í þann ólíklega möguleika að Venesúela láti verða af þeirri hótun sinni að stöðva alla olíusölu til Bandaríkjanna.

Kópavogsbær tekur við leikskólanum Hvarfi

Á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær var ákveðið að bæjaryfirvöld tækju við rekstri leikskólans Hvarfs þegar þjónustusamningur við einkaaðila rennur út 1. Maí. Óvissa hafði ríkt í Hvarfi frá því í október og var þjónustusamningi við ÓB Ráðgjöf sem rekur leikskólann sagt upp um áramót.

8 þúsund fyrirtæki skila ekki ársreikningi

Átta þúsund fyrirtæki skila ekki ársreikningum til Ársreikningaskráar samkvæmt heimildum Vísis. Fons, félag athafnamannsins Pálma Haraldssonar, er eitt þeirra en það hefur ekki skilað ársreikningi undanfarin þrjú ár eins og fram kom í blaðinu 24 stundum í morgun.

Annþór hoppaði niður af annarri hæð og strauk

„Hann braut öryggisgler í glugga á ganginum og hoppaði niður af annarri hæð,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn um flótta handrukkarans Annþórs Kristjáns Karlssonar. Annþór átti að koma fyrir dómara seinna í dag þar sem gæsluvarðhald yfir honum rennur út í dag.

Krefjast þess að ráðherrar standi við orð sín

Náttúruverndarsamtök Íslands fara fram á það að ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar og forsætisráðherra standi við orð sín í tengslum við byggingu álvera á suðvesturhorninu.

Einkaneysla dregst ekki saman

Einkaneysla virðist ekki vera að dragast saman þrátt fyrir lækkandi gengi hlutabréfa og horfur á minnkandi vexti í hagkerfinu. Þetta kemur fram í mælingu á smásöluvísitölu sem Rannsóknarsetur verslunarinnar stendur fyrir.

Fundu eftirlýsta konu á stolnum bíl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt par á stolnum bíl og reyndist konan vera eftirlýtst af lögreglu vegna annarra afbrota. Parið gistir nú fangageymslur.

Mitt Romney styður John McCain

Mitt Romney, frambjóðandi í forkosningum repúblikana í Bandaríkjunum, sem dró sig út úr keppninni á dögunum hefur lýst því yfir að hann styðji John McCain í baráttunni fyrir útnefningu.

Enn ólga í Danmörku

Enn eru óeirðir í Danmörku í kjölfar þess að fjölmiðlar ákváðu að endurbirta skopmynd af Múhameð spámanni. Óróinn hefur breiðst út um landið átti lögregla átökum við ungmenni í Kaupmannahöfn, Árósum og á nokkrum stöðum á Norður Sjálandi.

Varað við fljúgandi hálku - lögreglubíll valt á Sandskeiði

Lögregla varar við fljúgandi hálku á Reykjanesbraut og á Suðurlandsvegi. Nokkrir bílar hafa þegar hafnað utan vegar og tveir hafa oltið á Suðurnesjum. Á Suðurlandsvegi valt bíll við Sandskeið og þegar lögregla og sjúkralið mætti á vettvangs óhapps sem varð á Sandskeiði vildi ekki betur til en svo að lögreglubíllinn ók á sjúkrabílinn og valt út af veginum.

Fimm féllu í skotárás í háskóla í Illinois

Fimm féllu í árás byssumanns í Northern Illinois háskólanum í Bandaríkjunum í gærkvöld. Nemendur reyndu að koma sér í skjól þegar hvítur karlmaður vopnaður tveimur skammbyssum og haglabyssu hóf skothríð í fyrirlestrasal skólans. Lögregla segir að maðurinn hafi skotið sjálfan sig áður en þeir komu á vettvang og enn veit enginn hvað manninum gekk til.

Fóður og fjör framundan

Hátíðin Fóður og fjör eða Food & Fun verður haldin um allt land helgina 21. til 24. febrúar næstkomandi. Hótel og veitingahús í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman með þetta skemmtilega verkefni á landsbyggðinni, verða með sérstök tilboð á mat og gistingu og lofa frábærri lífsstílshátíð og ætla að kynna íslenskt hráefni til matargerða sem lífgar mun upp á skammdegið.

Fóður og fjör á Vesturlandi

Hátíðin Fóður og fjör eða Food & Fun verður haldin um allt land helgina 21. til 24. febrúar næstkomandi. Hótel og veitingahús í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman með þetta skemmtilega verkefni á landsbyggðinni, verða með sérstök tilboð á mat og gistingu og lofa frábærri lífsstílshátíð sem lífga mun upp á skammdegið. Vestlendingar eru engir eftirbáta

Hátt í 20 manns urðu fyrir árás byssumanns

Byssumaður myrti að minnsta kosti tvo og særði fjölda annarra í kennslustofu í DeKalb nærri Chicago í Bandaríkjunum í kvöld. Byssumaðurinn lést eftir skotárásina. Samkvæmt lýsingum vitna var hann grannvaxinn hvítur karlmaður. Ekki er ljóst hvernig hann lést.

Ingibjörg Sólrún setti Bridgehátíðina 2008

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra setti Bridgehátíðina 2008, Icelandair Open, á Hótel Loftleiðum klukkan 19 í kvöld, fimmtudagskvöldið 14. febrúar.

Reykur í potti á Rauðarárstíg

Slökkviliðið var kallað að Rauðarárstígur klukkan hálfsjö í kvöld þegar tilkynnt var um reykjalykt í stigagangi í fjölbýslishúsi á þremur hæðum. Við nánari athugun kom í ljós að einstaklingur í einni íbúðinni hafði sofnað út frá potti á eldavél.

100 kíló af stolnum verkfærum fundust í Þýskalandi

Lögreglan í Þýskalandi stöðvaði í dag póstsendingu með rúmum hundrað kílóum af verkfærum sem talið er að hafi verið stolið hér á landi. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er talið að ætlunin hafi verið að senda verkfærin til Póllands. Ekki er vitað hvort einhverjir hafi verið handteknir í tengslum við þetta tiltekna mál. Samkvæmt heimildum Vísis hefur töluvert verið stolið af verkfærum á undanförnum mánuðum, sem flest eru flutt til Austur - Evrópu.

Sjá næstu 50 fréttir