Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fleiri en 50 talibanar felldir í Afganistan í dag Bandarískar hersveitir, með stuðningi flughersins, drápu fleiri en 50 uppreisnarmenn talibana í bardögum í suðurhluta Afganistan í dag. Ekkert mannfall varð hjá bandaríska hernum í átökunum sem stóðu yfir í tólf tíma. 26.7.2007 14:46
Dæmdur fyrir tilraun til manndráps Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í dag Ólaf Þór Guðmundsson í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps með því að hafa skotið að eiginkonu sinni úr haglabyssu á Hnífsdal þann 8. júní síðastliðinn. Að auki var hann dæmdur til að greiða konunni skaðabætur að upphæð 1 milljón króna. Skotið fór í gegnum peysu konunnar við hægri öxl, auk þess sem hún hlaut tvær rispur í andliti. 26.7.2007 14:45
Gefa út bækling til að stuðla gegn hrað- og ölvunarakstri útlendinga Vátryggingarfélag Íslands hefur gefið út bækling fyrir útlenda ökumenn á Íslandi til að stuðla gegn vaxandi hrað- og ölvunarakstri í þeirra hópi. Um 20 prósent þeirra sem kærðir vorur fyrir ölvunarakstur á fyrri hluta þessa árs eru erlendir ríkisborgarar. Bæklingurinn kemur út á fimm tungumálum. 26.7.2007 14:45
Einn æðsti stjórnendi ETA handtekinn Alfredo Perez, innanríkisráðherra Spánar, skýrði frá því í dag að franska lögreglan hefði handtekið einn af æðstu yfirmönnum ETA. aðskilnaðarhreyfingar Baska, Juan Cruz Maiza Artola. Hann og tveir aðrir meðlimir ETA voru handteknir í bænum Rodez. Perez sagði Artola hafa stjórnað flutningum og aðföngum hjá ETA og því augljóst að handtaka hans sé mjög mikilvægur atburður. 26.7.2007 14:16
Esjan brátt snjólaus sjöunda sumarið í röð Allt bendir til þess að snjór hverfi alveg úr suðurhlíðum Esjunnar í sumar og verður það sjöunda árið í röð sem slíkt gerist. Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, segir þetta mjög óvenjulegt og aldrei áður hafi snjór horfið úr hlíðum fjallsins svona mörg ár í röð. 26.7.2007 14:12
Hættulegasta vika ársins Sú vika sem nú líður þ.e. 30. vika (22. - 28. júli) er hættulegasta vika ársins. Að meðaltali urðu 35,2 slys í þessari viku á síðustu fimm árum. Sú næst hættulegasta er jólavikan, 52 vika ársins, en þá hafa 34,5 slys orðið. 26.7.2007 14:05
Nakin vændiskona í hásæti Danadrottningar Dönsk vændiskona komst með einhverjum furðulegum hætti inn í hásætissalinn í Kristjánsborgarhöll. Þar svipti hún sig klæðum, stillti upp myndavél og tók 29 mynda syrpu af sjálfri sér. Meðal annars tók hún myndir af sér í hásæti Margrétar Danadrottningar. Og þar sem hún sat klofvega á sætisörmunum á hásæti drottningarinnar og Hinriks prins. 26.7.2007 14:01
Sex ökumenn teknir undir áhrifum í nótt Sex ökumenn voru teknir fyrir aka undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Fjórir voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Þetta voru fimm karlar og ein kona. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. 26.7.2007 13:36
Prinsessan er útsendari helvítis Þekktur norskur prestur hefur ráðst heiftarlega á Mörtu Lovísu prinsessu eftir að hún upplýsti að hún gæti talað við engla og dýr, og stofnaði nýaldar-skóla ásamt vinkonu sinni. Jan Hanvold sem er frægur sjónvarpsprestur segir að prinsessan sé útsendari frá helvíti. 26.7.2007 13:30
Á 110 kílómetra hraða á Strandvegi Piltur um tvítugt var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða eftir að bíll hans mældist á 110 km hraða á Strandvegi í Grafarvogi í gærkvöld. Sami piltur var einnig tekinn fyrir hraðakstur á öðrum stað í borginni í fyrrakvöld. Sautján ára stúlka var sömuleiðis svipt ökuleyfi til bráðabirgða í gærkvöld. 26.7.2007 13:20
Sautjánþúsundasti Akureyringurinn kemur í heiminn Akureyringar urðu formlega 17 þúsund talsins í byrjun mánaðarins þegar hjónunum Krzysztof Dziubinski og Beatu Mieczyzlawa Dziubinski fæddist sonur á Fjórðungssjúkrahúsinu þar í bæ. Hefur pilturinn fengið nafnið Gabríel Óskar Dziubinski. Bæjarstjóri Akureyrar færði foreldrunum af þessu tilefni blómvönd og bókina Barnið okkar. 26.7.2007 12:57
Sjálfsmorðshrina skekur franskan kjarnorkuiðnað Allt að 400 Frakkar fremja sjálfsmorð á ári hverju sökum mikils álags í vinnunni samkvæmt opinberum tölum. Verst er ástandið í kjarnorkuiðnaðinum en þar hafa kröfur og álag á starfsmenn aukist gríðarlega á síðastliðnum áratug. Í einu kjarnorkuveri í Mið-Frakklandi hafa þrír starfsmenn framið sjálfsmorð frá síðustu áramótum. 26.7.2007 12:29
Tveir látnir í flóðunum í Bretlandi Tveir létust í flóðunum í Bretlandi þegar þeir reyndu að dæla vatni úr íþróttahúsi í Gloucesterskíri og eins er saknað síðan á laugardag. Enn eru 340 þúsund manns án neysluvatns og óttast er að skítugt flóðvatnið geti stofnað heilsu fólks í hættu. 26.7.2007 12:25
Mannrán borga sig Hópur háttsettra Suður-kóreskra embættismanna hélt í dag til Kabul til að reyna að fá 22 Suður-Kóreumenn leysta úr haldi talibana. Mannræningjarnir myrtu einn úr hópnum í gær. Talsmaður talibana segir það reynast afar vel að ræna erlendum ríkisborgurum. 26.7.2007 12:21
Göngumaðurinn á batavegi Maðurinn sem féll í Laxárgljúfur er kominn úr öndunarvél og er á batavegi, að sögn sérfræðings á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss. Hann gekkst undir aðgerð í nótt og þótti hún heppnast vel. 26.7.2007 12:13
Líknardeild Landspítalans verði á sama stað og áður Starfandi forstjóri Landspítalans vísar því alfarið á bug að ekki sé gert ráð fyrir öldruðum á nýju háskólasjúkrahúsi. Bráðadeild fyrir aldraða verði í fyrsta áfanga byggingarinnar en langtíma endurhæfiingardeild verði að öllum líkindum byggð seinna. Ákveðið hafi verið að hafa líknardeildina ekki í nýju byggingunnni og því verði hún á sama stað og áður. 26.7.2007 12:02
Aðild að ESB besta kjarabótin Viðskiptaráðherra segir að stærsta skrefið sem hægt væri að stíga til lækkunar matvælaverðs á Íslandi, væri að Ísland gengi í Evrópusambandið. Þá segir hann að krónan muni ekki gagnast sem gjaldmiðill til langframa, þegar myntkerfum í heiminum fækki, sem einnig mæli með Evrópusambandsaðild Íslendinga. 26.7.2007 11:43
Rússar segja að kjarnorkuver hefji starfsemi snemma á næsta ári Aðstoðarutanríkisráðherra Rússa tilkynnti í morgun að kjarnorkuverið sem þeir séu að byggja í Íran hefji starfsemi sína á fyrri hluta næsta árs. Rússar hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að byggja kjarnorkuverið og höfðu því tafið framkvæmdir við það. 26.7.2007 11:10
Bloomberg opnar vefsíðun Mike2008.com Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, hefur opnað vefsvæðið Mike2008.com en margir telja það benda til þess að hann ætli sér að bjóða sig fram sem óháður frambjóðandi í forsetakosningunum á næsta ári. Á nýju heimasíðu sína skrifar Bloomberg að þar fái fólk tækifæri til þess að kynnast honum og stefnumálum hans. 26.7.2007 10:37
Enn unnið að lausn 22 Suður-Kóreumanna Stjórnvöld í Suður-Kóreu vinna enn að því að reyna að tryggja lausn 22 Suður-Kóreumanna sem talibanar halda í gíslingu. Talibanar hafa þegar tekið einn gísl af lífi en þeir krefjast þess að Suður-Kórea dragi alla hermenn sína frá Afganistan og láti lausa talibana í haldi bandamanna. 26.7.2007 10:00
Þjóðverjar hatast við Tom Cruise Tom Cruise hefur orðið fyrir heiftarlegum árásum opinberra aðila í Þýskalandi. Þar hefur hann verið við tökur á kvikmynd um tilræðið við Adolf Hitler í júlí árið 1944. Cruise hefur meðal annars verið líkt við Jósef Göbbels, áróðursmeistara Hitlers. Óánægja Þjóðverja virðist eiga sér trúarlegar rætur. 26.7.2007 09:52
Putin ætlar að halda völdum yfir leyniþjónustunni Aðstoðarmenn Vladimir Putin, forseta Rússlands, hafa ákveðið að auka völd sérstaks öryggisráðs og gera það nærri jafn valdamikið og ríkisstjórnina. Putin hefur ítrekað sagt að hann ætli sér að halda pólitískum áhrifum þegar að hann yfirgefur embætti forseta á næsta ári og talið er að öryggisráðið geti orðið valdastöð hans. 26.7.2007 09:36
Átta mótmælendur handteknir við Hellisheiðarvirkjun Lögreglan hefur handtekið átta mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland við Hellisheiðarvirkjun. Fólkið hafði stöðvað alla umferð að virkjuninni með því að hlekkja sig við bíla á báðum afleggjurum. Mótmælum er að mestu lokið að sögn lögreglu. 26.7.2007 09:21
Öflugur jarðskjálfti í Indónesíu Öflugur neðansjávarjarðskjálfti skók Norð-austur Indónesíu laust fyrir sex í morgun. Skjálftinn, sem var 6.6 stig á Richter varð á 45 kílómetra dýpi um 200 kílómetra norður af Ternate borg. Þar þusti fólk í örvæntingu út úr húsum sínum, en ekki virðast hafa orðið alvarleg slys á fólki eða skemmdir á mannvirkjum. 26.7.2007 08:36
Offita er smitandi Svo virðist sem offita sé smitandi. En það að eiga vini, systkyni eða maka sem er feitur stóreykur líkurnar á því að maður verði það sjálfur. 26.7.2007 08:03
Talibanar taka suður-kóreskan gísl af lífi Talibanar hafa tekið af lífi einn af þeim 23 suður-kóresku gíslum sem þeir hafa haft í haldi síðustu daga. Þetta hefur fréttastofan Reuters eftir Qari Mohammad Yousuf talsmanni Talibana. 25.7.2007 22:32
Bandarískir læknar útskrifast frá kúbverskum skóla Átta bandarískir nemendur útskrifuðust fyrir skömmu sem læknar frá kúbanska læknaskólanum, Latin American School of Medicine in Havana, eftir sex ára gjaldfrjálst nám. Læknarnir hyggjast allir snúa aftur heim til Bandaríkjanna og sækja um starfsréttindi til að geta starfað sem læknar á þarlendum sjúkrahúsum. 25.7.2007 21:45
Dönskum blaðamanni rænt en sleppt sólarhring síðar Talibanar í Afganistan tóku danskan blaðamann og túlk hans sem gísl og héldu þeim föngum í sólarhring. Þeim var báðum sleppt þegar Talibanarnir komust að því að Daninn var múslimi. 25.7.2007 21:09
Kviknaði í potti í Grafarvogi Eldur kom upp í potti í íúð í Grafarvogi í kvöld. Kallað var á slökkviliðið sem slökkti eldinn og reykræsti íbúðina. Ekki urðu miklar skemmdir á íbúðinni né slys á fólki að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 25.7.2007 21:00
Fimmtán umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í gær Fimmtán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og telst það lítið. Þrjú óhappanna má rekja til aksturs undir áhrifum fíkniefna en þar áttu í hlut fertugur karlmaður og tveir piltar um tvítugt. 25.7.2007 20:31
Fylgst með eftirvögnum bíla Ökumaður með óskoðaðan eftirvagn án hemlunarbúnaðar var stöðvaður á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þyngd vagnsins var einnig umfram dráttargetu bílsins sem maðurinn var á og var kerran kyrrsett. 25.7.2007 20:19
Bremsulaus vinnubíll hafnaði á umferðarljósum Sautján ára piltur slapp með skrekkinn í gær þegar vinnubíll sem hann ók hafnaði á umferðarljósum í Kópavogi. Pilturinn hugðist nema staðar við gatnamót en uppgötvaði þá að bremsurnar virkuðu ekki. 25.7.2007 20:09
Mestu viðskipti íslandssögunnar 182 milljarðar króna voru millifærðir í Landsbankanum í dag frá Novator til fyrrverandi hluthafa í Actavis. Greiðslurnar til hluthafa Actavis eru einsdæmi í heiminum, því líklega hefur aldrei jafnstórt hlutfall af fjárlögum eins ríkis verið greiddur út í reiðufé á einum og sama deginum. 25.7.2007 20:05
Fimmtíu fótboltaunnendur látnir í bílsprengjum í Bagdad Tvær bílsprengjur urðu fimmtíu manns að bana í Bagdad í dag og særðu 135. Sprengjunum var beint að fólki sem var að fagna sigri írakska landsliðsins í knattspyrnu í undanúrslitum Asíukeppninnar, en liðið vann Suður-Kóreu í vítaspyrnukeppni. 25.7.2007 19:28
Gervigreindarfræðingar HR í fremstu röð Íslendingar urðu í gær heimsmeistarar í gervigreind þegar hugbúnaður frá Háskólanum í Reykjavík hafði betur í úrslitaviðureign við Háskólann í Kaliforníu. Keppt var í einfaldri útgáfu af skák. Sigurinn er mikil viðurkenning fyrir gervigreindarsetur háskólans, segir annar sigurvegaranna. 25.7.2007 19:00
Margt í boði um verslunarmannahelgi Búið er að skipuleggja fjölda skemmtana um Verslunarmannahelgina. Hægt verður að fara á furðubátakeppni á Flúðun, nú eða skella sér á hagyrðingamót á Borgarfirði Eystri. Stærstu hátíðirnar eru þó eins og síðustu ár Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og Ein með öllu á Akureyri. 25.7.2007 18:59
Fasteignir þjóðarinnar minna virði en eignir Kaupþings Eignir Kaupþings banka eru nú tæplega þrjátíu prósent meiri en verðmæti allra fasteigna á Íslandi. Metafkoma var á nær öllum sviðum hjá Kaupþingi á fyrri hluta ársins, en sex mánaða uppgjör var kynnt í dag. 25.7.2007 18:56
Klámráðstefnugestir í partýi feminista Nokkrir einstaklingar sem ætluðu að koma hingað á klámráðstefnuna svokölluðu dvöldu á Íslandi fyrir skemmstu, þótt ráðstefnan hefði verið flautuð af. Meðan á dvöl þeirra stóð, heimsóttu þeir hefðbundna ferðamannastaði og skemmtu sér í höfuðborginni. Þeim var alls staðar vel tekið nema í lokuðu teiti feminista, en þangað rötuðu þeir inn fyrir slysni. 25.7.2007 18:54
Ellefu starfsmenn Brunavarna á Egilsstöðum segja upp Ellefu hlutastarfandi starfsmenn á starfsstöð Brunavarna á Egilsstöðum hafa greint frá því að þeir muni hætta störfum frá og með 1. september næstkomandi komi ekki til frekari kjarabóta. 25.7.2007 18:51
Óumdeildur forystu- og samningamaður Einar Oddur Kristjánsson var forystumaður í íslensku atvinnulífi um áratugaskeið. Hann leiddi samtök atvinnurekenda í þjóðarsáttarsamningunum svo kölluðu árið 1990 og átti traust samverkamanna sinna jafnt sem mótherja. 25.7.2007 18:48
Einar Oddur kvaddur Um þúsund manns voru við minningarathöfn um Einar Odd Kristjánsson alþingismann í Hallgrímskirkju í dag. Þeirra á meðal voru forseti Íslands, forsætisráðherra og ríkisstjórn. 25.7.2007 18:45
Samskipti Líbýu og Evrópu batna Samskipti Líbýu og Evrópu snarbatna nú eftir að búlgörsku heilbrigðisstarfsmennirnir sex, sem dæmdir voru til dauða fyrir að smita um 400 börn af HIV veirunni, voru náðaðir. Samningur um bætt samskipti Líbýu og Evrópusambandsins var undirritaður í gær, en þess var krafist af Líbýu fyrir lausn fanganna. 25.7.2007 18:32
Víða uppskerubrestur vegna hitabylgju Ekkert lát er á hitabylgjunni í Evrópu sem fór vel yfir fjörtíu gráður víða í dag. 500 manns hafa látist af þeirra völdum í Ungverjalandi og Í Rúmeníu var tilkynnt um 27 dauðsföll af völdum hitanna í þessari viku. Búist er við áframhaldandi hitum í suður- og austurhluta landsins á morgun, en í vesturhluta Rúmeníu varð úrhellisrigning í dag. 25.7.2007 18:26
Beita gervitunglum gegn skógarþjófum Rússnesk yfirvöld ætla byrja að nota gervitungl til að koma upp um skógarhöggsmenn við iðju sína í skógum Síberíu. Skógarnir eru friðaðir samkvæmt rússneskum lögum. 25.7.2007 18:21
Óttast um heilsufar fólks vegna flóðanna í Bretlandi Óttast er um heilsufar fólks í Bretlandi vegna skólps og eiturefna sem blandast hafa flóðavatninu þar. Eignatjón vegna flóðanna undanfarnar vikur er talið nema tæplega fjögur hundruð milljörðum króna. Þá hafa tugir farist vegna flóða í Kína. 25.7.2007 18:19