Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bestu skólamjólkurmyndirnar verðlaunaðar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, tilkynnti fyrir skömmu hvaða tíu teiknarar hlutu verðlaun fyrir bekkinn sinn í teiknimyndasamkeppni Alþjóðlega skólamjólkurdagsins. Alls bárust hátt í eitt þúsund myndir frá 4. bekkingum í grunnskólum landsins í keppnina um verðlaunasætin tíu. 12.6.2007 13:36
Dæmdir í 30 mánaða fangelsi fyrir fólskulega líkamsárás Tveir karlmenn á fertugsaldri voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir í samanlagt 30 mánaða fangelsi fyrir grófa líkamsárás. Mennirnir réðust á annan mann í ágústmánuði í fyrra og spörkuðu meðal annars í hann liggjandi og lömdu með billjardkjuða í andlitið. Þá var annar maðurinn sviptur ökuleyfi fyrir að hafa ekið bifhjóli á 112 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 60 kílómetrar á klukkustund. 12.6.2007 13:29
Fangar opna vef AFSTAÐA, félag fanga, hefur opnað nýjan vef á slóðinni timamot.is Á vefnum má finna ýmsar upplýsingar er varða fanga og aðstandendur þeirra. 12.6.2007 13:19
Miklar breytingar á Norræna húsinu Miklar breytingar standa til á innviðum Norræna hússins en húsið verður lokað í sumar. Forstjóri hússins segir að samráð sé haft við Alvar Aalto stofnunina um breytingarnar. 12.6.2007 13:03
Stendur ekki til að einkavæða Íbúðalánasjóð Árni Mathiesen, fjármálaráðherra segir að ekki standi til að einkavæða Íbúðalánasjóð eins og sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur lagt til. Ráðherra segist almennt ánægður með niðurstöður nefndarinnar en er sammála því að nauðsynlegt sé að sýna aðhald í komandi kjaraviðræðum. 12.6.2007 12:51
Komu í veg fyrir vantrauststillögu Öldungadeildaþingmenn repúblikana komu í gærkvöldi í veg fyrir að vantrauststilltaga á hendur Alberto Gonzales, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, yrði borin upp á þingi. Ráðherann hefur legið undir ámæli síðan í fyrra þegar hann rak átta ríkissaksóknara. Demókratar segja það hafa verið gert af pólitískum ástæðum en því hafna Repúblíkanar. 12.6.2007 12:32
Launahækkanir bankastjóra senda fráleit skilaboð Þingmenn Samfylkingarinnar gagnrýndu launahækkanir bankastjórnar Seðlabankans á Alþingi í dag. Þeir sögðu bankaráð vera með hækkununum að senda út fráleit skilaboð á tímum þegar óstöðugleiki á vinnumarkaði væri mikill. 12.6.2007 12:26
35 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi Milan Martic, fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna Króatíu-Serba, var í morgun dæmdur í 35 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi í Króatíu á tíunda áratug síðustu aldar. Hann var sakaður um að hafa skipulagt þjóðernishreinsanir og önnur óhæfuverk. 12.6.2007 12:26
Þjóðstjórnin hugsanlega fallin Leiðtogar Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, ákveða það á næstu klukkustundum hvort gengið verði út úr þjóðstjórn landsins aðeins þremur mánuðum eftir að hún var skipuð. Það var í mars síðastliðnum sem stjórn Fatah og Hamas tók við völdum og var með henni ætlunin að binda enda á átök fylkinganna. Síðan þá hefur komið til bardaga millið liðsmanna hreyfinganna og margir fallið. 12.6.2007 12:17
Landspítali fær loftdýnur að gjöf Lionsklúbburinn Freyr hefur fært deild R-2 á Landspítala Grensási tvær loftdýnur til sértækra sáravarna að gjöf. Dýnurnar eru af gerðinni Auta Logic 200. 12.6.2007 12:16
Hirðingjar í Namibíu fá vatnsból Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur samþykkt að ráðast í að bora fyrir 33 nýjum vatnsbólum í heimkynnum Himba í norðvesturhluta Afríku. Himbar eru hirðingjar sem eru mikið á faraldsfæti með nautgripahjarðir sínar að leita uppi vatn og beitilönd og munu vatnsbólin auka lífsgæðin og gera hirðingjum fært að hafa lengur fasta búsetu en nú tíðkast. 12.6.2007 12:00
Fatah íhugar stjórnarslit Talsmaður Fatah sagði fyrir nokkrum mínútum síðan að hreyfingin muni ákveða innan nokkurra klukkustunda hvort að ríkisstjórnarsamstarfi með Fatah verði hætt. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sakaði fyrr í morgun Hamas um að reyna að taka völdin á Gaza með hervaldi. 12.6.2007 11:49
Nýr framkvæmdastjóri OR Jakob Sigurður Friðriksson verkfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Framleiðslu og sölu hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Undir hann heyra einnig framkvæmdir Orkuveitunnar. 12.6.2007 11:48
Vara við afnámi auglýsingaskyldu starfa innan Stjórnarráðsins Varhugavert er að fella niður auglýsingaskyldu starfa innan Stjórnarráðs Íslands að mati Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Bandalags háskólamanna. Þetta kemur fram umsögn bandalaganna á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands. Telja þau hætt við að þetta dragi úr gagnsæi við ráðningu opinberra starfsmanna og komi jafnvel í veg fyrir að hæfasti maður sé ráðinn hverju sinni. 12.6.2007 11:37
Líðan mótorhjólamanns óbreytt Líðan mannsins sem slasaðist í mótorhjólaslysi á Sunnudagskvöld er óbreytt en manninum er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans að sögn vakthafandi læknis. Slysið átti sér stað á Breiðholtsbrautinni eftir að tveir menn höfðu ekið mótorhjólum sínum á ofsahraða yfir Hellisheiði og sinnt í engu tilmælum lögreglu um að hægja ferðina. 12.6.2007 11:32
Tekur Blair kaþólska trú ? Tony Blair mun fara í kveðjuheimsókn í Páfagarð hinn 23. þessa mánaðar, til þess að kveðja Benedikt sextánda páfa. Vangaveltur eru um að hann muni við það tækifæri taka kaþólska trú. Forsætisráðherrann tilheyrir nú ensku biskupakirkjunni. 12.6.2007 11:27
Krefjast svara um stuðning við stríð í Írak Stríðið í Írak var rætt í umræðu um störf þingsins á Alþingi í morgun. Valgerður Sverrisdóttir, þingkona Framsóknarflokksins og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Visntri grænna segja augljóst að engin stefnubreyting hafi orðið í málinu þrátt fyrir yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar þess efnis að hún harmi stríðið í Írak. 12.6.2007 11:10
Fyrsta skemmtiferðarskipið kemur til Grundarfjarðar Fyrsta skemmtiferðarskip sumarsins kom til Grundarfjarðar í morgun en um borð eru 943 farþegar og 412 manna áhöfn. Hluti farþeganna fór hringferð um Snæfellsnes í morgun á 6 rútubílum. 12.6.2007 11:02
Kynslóðir mætast í trjárækt Leikskólabörn í Hraunborg og eldri borgarar í félagsstarfi í Gerðubergi ætla í dag að gróðursetja saman í svokölluðum Gæðareit við Hraunberg/Keilufell (bak við menningarmiðstöðina Gerðuberg). Um samvinnuverkefni á milli Gerðubergs og leikskólans er að ræða sem ráðist hefur verið í á hverju sumri sl. sjö ár. 12.6.2007 11:01
Hamas hóta árásum á höfuðstöðvar Fatah Vopnaður armur Hamas samtakanna hótaði því í dag að ráðast á öryggismiðstöðvar sem lúta stjórn Fatah hreyfingarinnar ef hún rýmir þær ekki samstundis. Aldrei áður hefur þvílíkur úrslitakostur verið settur fram í deilu fylkinganna tveggja. Hótunin var gerð í yfirlýsingu sem útvarpað var á útvarpsstöð undir stjórn Hamas. 12.6.2007 11:00
Leita enn að skemmdarvörgum Engar upplýsingar hafa borist vegna skemmdarverka sem unnin voru í nýbyggingu á Akranesi í síðasta mánuði. Verktakafyrirtækið hét hverjum þeim sem gæti gefið upplýsingar um málið 100 þúsund krónum í verðlaun. 12.6.2007 10:55
50 ára ónotaður bíll grafinn upp Þann 15. júní árið 1957 fagnaði borgin Tulsa í Oklahoma 50 ára afmæli sínu. Í tilefni dagsins var ákveðið að grafa ekta amerískt tímahylki í jörðu. Það skyldi grafið upp aftur þegar borgin ætti 100 ára afmæli. Ekta ameríska tímahylkið var náttúrlega bíll. Glænýr Plymouth Belvedere. Átta gata tryllitæki. 12.6.2007 10:52
Tíu ára fangelsi fyrir að þiggja munnmök Dómari í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur ógilt dóm yfir 17 ára ungling sem var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að þiggja munnmök af 15 ára stúlku. Saksóknari ríkisins hefur hins vegar áfrýjað niðurstöðu dómarans og vill halda drengnum í fangelsi. 12.6.2007 10:25
Tveir menn dæmdir fyrir innbrot í Norðlenska hf. Tveir karlmenn voru í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað. Annar fékk tveggja ára dóm en hinn hafði hlotið þriggja ára skilorðsbundinn dóm í maí slíðastliðinn og var sá dómur ekki þyngdur. 12.6.2007 10:19
Átta mánaða fangelsi fyrir margvísleg brot Tveir piltar í kringum tvítugt voru dæmdir Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær í annars vegar 8 mánaða fangelsi og 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir margvísleg brot. Piltarnir voru meðal annars fundnir sekir um þjófnað, vörslu ólöglegs fíkniefnis og fyrir fjársvik. 12.6.2007 10:05
Hæstiréttur Suður Karólínu hafnar vörn unglingspilts Hæstiréttur Suður Karólínu í Bandaríkjunum hefur hafnað vörn hins 18 ára gamla Christopher Pittman sem að skaut ömmu sína og afa til bana áður en hann kveikti í húsi þeirra. Pittman framdi ódæðið árið 2001, þegar hann var aðeins 12 ára gamall. 11.6.2007 23:23
Paris Hilton segir að guð hafi gefið henni nýtt tækifæri Hótelerfinginn Paris Hilton hefur sagt að guð hafi gefið henni nýtt tækifæri og nú ætli hún að hætta að haga sér heimskulega, og nota frægð sína til að láta gott af sér leiða. 11.6.2007 22:41
Þjóðaröryggismál að útrýma fátækt Samtökin One, sem eru baráttusamtök gegn fátækt, vilja að næsti forseti Bandaríkjanna skuldbindi sig til þess að stíga ákveðin skref til þess að draga úr hungri og sjúkdómum og bæta aðgang að menntun og vatni alls staðar í heiminum. Samtökin hafa ákveðið að eyða 30 milljörðum dala til þess að þrýsta á frambjóðendur fyrir bandarísku forsetakosningarnar að einbeita sér að gegn fátækt í heiminum. 11.6.2007 20:56
Fyrrverandi hermaður fær greiddar bætur Breskur fyrrverandi hermaður sem lamaðist frá mitti eftir að hafa lent í bílslysi við skyldustörf hefur verið verið dæmdar fjórar milljónir punda í bætur. Maðurinn sem var í Land Rover bifreið sem valt fór í mál við varnarmálaráðuneytið. 11.6.2007 20:51
Heitt í Pakistan Það er erfitt að lifa í Pakistan þessa dagana. Ekki vegna átaka heldur hita. Hitabylgja hefur gengið yfir landið og hiti mælst mestur fimmtíu og tvær gráður. Tugir manna háfa dáið af völdum hitans. Áætlað er að heitt verði víða um Pakistan fram eftir vikunni. 11.6.2007 19:30
Milosevic á yfir höfði sér ákæru fyrir smygl Ekkja og sonur Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Serbíu, eiga yfir höfði sér ákæru fyrir sígarettusmygl á tíunda áratug síðustu aldar. Mirjana Markovic og Marko Milosevic eru talin hafa hagnast um milljónir dala fyrir að hafa stjórnað smygli á sígarettum. 11.6.2007 19:21
Háskaakstur segir formaður Sniglanna Formaður Sniglanna segir að um háskaakstur hafi verið að ræða hjá tveimur félagsmönnum í Sniglunum í nótt. Annar ökumananna berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi eftir alvarlegt slys á Breiðholtsbraut. Honum er nú haldið sofandi en hann er á leið í aðgerð. Maðurinn hálsbrotnaði í slysinu. Hinn ökumaðurinn er hins vegar kominn heim af sjúkrahúsi og slasaðist hann ekki alvarlega. Lögreglan telur að meðalhraði bifhjólanna hafi farið á þriðja hundraðið. 11.6.2007 19:16
2 starfsmenn Rauða krossins týndu lífi Tveir líbanskir starfsmenn Rauða krossins týndu lífi í átökum við Nahr al-Bared flóttamannabúðir Palestínumanna í norðurhluta Líbanons í dag. Líbanski herinn hefur barist þar við liðsmenn herskáu samtakanna Fatah al-Islam sem halda til í búðunum. Almennir borgarar hafa orðið illa úti í átökunum en herinn hefur skotið stíft á búðirnar. 11.6.2007 19:15
Meira en tvöfaldur löglegur hraði á þjóðvegunum Ökumenn hafa orðið uppvísir af því að aka á meira en tvöföldum hámarkshraða á þjóðvegum landsins síðustu dagana. Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í höfuðborginni, segir að lögreglan hafi þungar áhyggjur af þessu. 11.6.2007 19:14
Eitrað fyrir lúpínum Búið er að eitra innan þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum, með fram veginum við Ásbyrgi, þó ekki fyrir skordýrum eða öðrum meindýrum heldur á eitrið að eyða plöntutegund einni sem mörgum þykir mikill skaðvaldur. 11.6.2007 19:02
Sósíalistar hvattir til að kjósa Sósíalistar hvetja stuðningsmenn sína til að fjölmenna á kjörstað í seinni umferð þingkosninganna í Frakklandi um næstu helgi. Nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir að UNP flokkur Sarkozys Frakklandsforseta fái jafn afgerandi meirihluta á þingi og niðurstaða fyrri umferðar í gær bendi til. 11.6.2007 19:00
Hljóðupptökur frá yfirheyrslum í Guantanamo opinberaðar Ráðamenn í Pentagon opinberuðu í dag hljóðupptökur af yfirheyrslum í Guantanamo flóa af tveimur varðhaldsföngum. Annar þeirra yfirheyrðu var Hambali, leiðtogi í öfgahópnum Jemaah Islamiya, sem varð 187 manns að bana í sprengjuárás á næturklúbb í Balí árið 2002. 11.6.2007 18:58
Hátt í 300 manns komu að leitinni Leitin að kajakræðurunum var gríðarlega umfangsmikil. Á þriðja hundrað manns úr tuttugu björgunarsveitum, skip og bátar frá slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og þyrla Landhelgisgæslunnar auk lögreglu á Vesturlandi tóku þátt í leitinni. 11.6.2007 18:58
Víða rignir mikið Miklar rigningar hafa kostað rúmlega hundrað og þrjátíu mannslíf í Bangladess, Kína og Kólumbíu síðustu daga. Regntímabil stendur nú sem hæst þar. Íbúar í Mið-Evrópu þekkja ekki slík tímabil en hafa samt þurft að vaða elginn síðasta sólahring í Þýskalandi og Hollandi vegna skyndilegrar hellirigningar. Engin týndi lífi þar. 11.6.2007 18:53
Skotið á skrifstofu Haniyehs Byssumenn gerðu í dag skotárás á skrifstofu Ismails Haniyehs, forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, meðan hann sat þar á fundi ásamt öðrum ráðherrum. Haniyeh sakaði ekki. Fjórar klukkustundir voru þá liðnar frá því samið var um enn eitt vopnahléð á milli Hamas og Fatah samtakanna. 11.6.2007 18:45
Dómstóll í Georgíu náðar ungan mann Dómstóll í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað að 21 árs karlmanni verði umsvifalaust sleppt úr fangelsi. Íþróttahetjan og heiðursnemandinn, Genarlow Wilson, hafði fengið 10 ára dóm fyrir að hafa þegið munnmök frá 15 ára stelpu þegar hann sjálfur var 17 ára. 11.6.2007 18:39
Ákvörðun um ákæru hefur ekki verið tekin Lögreglan á Vestfjörðum vísar því á bug að maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi á Ísafirði vegna atburðar sem átti sér stað í Hnífsdal að kvöldi föstudagsins síðasta, muni verða ákærður fyrir tilraun til manndráps. Lögreglan segir að málið sé enn á rannsóknarstigi og það því ekki komið til meðferðar hjá þeim aðila sem muni taka ákvörðun um ákæru. Maðurinn skaut af haglabyssu að eiginkonu sinni í Hnífsdal í fyrrakvöld. Hann hefur verið úrskurður í gæsluvarðhald fram á næsta föstudag. 11.6.2007 18:26
Meintum Al-Qaida liða sleppt Yfirréttur í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að ríkisstjórninni í Bandaríkjunum sé óheimilt að halda bandarískum ríkisborgara, Ali al-Marri, sem grunaður er um aðild að Al-Qaida, án þess að kæra hann. Hann skyldi því látinn laus. Í dómsorðum sagði að með því að beita slíku valdi gegn borgurum væri verið að stefna stjórnarskránni og bandarísku þjóðinni í hættu. Ali al-Marri er um þessar stundir eini bandaríski ríkisborgarinn sem er í haldi þar í landi vegna tengsla við al-Qaida. 11.6.2007 18:14
Aurskriða verður 79 manns að bana Að minnsta kosti 79 manns hafa látið lífið í bænum Chittagong í Bangladesh eftir að aurskriða féll á bæinn. Margra er enn saknað og björgunarsveitarmenn hafa unnið dag og nótt í von um að finna fólk á lífi. 11.6.2007 17:16
Það skjóta bara allir á alla Vopnahlé sem Palestínumenn sömdu um sín á milli í mogun er runnið út í sandinn. Átta manns hafa fallið í skotbardögum milli byssumanna Hamas og Fatah samtakanna. Meðal annars börðust liðsmenn fylkinganna á sjúkrahúsi þar sem einn var drepinn og nítján særðir. "Það skjóta bara allir á alla," sagði læknir við sjúkrahúsið. 11.6.2007 16:47