Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Correa vill skipa konu sem varnarmálaráðherra Rafael Correa, forseti Ekvador, ætlar sér að skipa aðra konu í embætti varnarmálaráðherra landsins. Konan sem hann skipaði í embætti í byrjun janúar, Guadalupe Larriva, lést í voveiflegu þyrluslysi rúmri viku eftir að hún tók við embætti. 27.1.2007 20:53
Ástargarður opnar á Ítalíu Á Ítalíu, í landi heitra ástríðna, á ungt fólk nú til dags í erfiðleikum með að finna næði til þess að vera innilegt við hvort annað. Einn þessara ungu manna ákvað því að opna ástargarð. Í ástargarðinu má fólk haga sér eins og það vill og þar er beinlínis ætlast til þess að það sé innilegt við hvort annað. 27.1.2007 20:26
Trúboðar myrtir í Kenía Bílræningjar vopnaðir AK-47 árásarrifflum skutu tvær konur til bana í Næróbí, höfuðborg Kenía, í morgun. Þær voru í bíl sem var eign bandaríska sendiráðsins. Lögregla skaut tvo af ræningjunum til bana eftir skotbardaga milli lögreglu og ræningjanna. Tveir lögreglumenn særðust í bardaganum. 27.1.2007 19:58
Fleiri vilja Hillary Fleiri demókratar í Bandaríkjunum vilja fá öldungardeildarþingmanninn Hillary Clinton í forsetaframboð fyrir flokkinn á næsta ári en Barack Obama, helsta andstæðing hennar. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem bandaríska tímaritið Time lét gera. 27.1.2007 19:45
Beckham leikur prinsinn Knattspyrnugoðið David Beckham hefur lagt fótboltaskó sína til hliðar um stund og tekið upp sverðið. Með því bjargar hann Þyrnirós líkt og í ævintýrinu forðum. 27.1.2007 19:30
Hætti að reykja eftir heilablóðfall Svo virðist sem vægar heilaskemmdir geti drepið löngun í sígarettur. Um er að ræða svæði í heilanum á stærð við tíukrónupening. Læknar í Bandaríkjunum þróa nú lyf sem getur haft áhrif á þennan hluta mannsheilans. 27.1.2007 19:15
Hitafundur hjá Framsókn á Selfossi Skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins, Helga Sigrún Harðardóttir, verður í þriðja sæti lista flokksins í Suðurkjördæmi. Það var samþykkt á fjölmennum hitafundi á Hótel Selfossi í dag. 27.1.2007 18:49
Blóðug átök á heimastjórnarsvæðunum Til blóðugra átaka hefur komið á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna síðustu tvo sólahringa og hafa þau kostað á annan tug manna lífið, þar á meðal tveggja ára dreng. Viðræðum um myndun þjóðstjórnar hefur enn verið frestað. 27.1.2007 18:45
Segir Baugsmálið hneyksli Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir Baugsmálið réttarfarslegt hneyksli og að Sjálfstæðisflokkurinn hafi att ákæruvaldinu á Baug. Hún segir ástæðuna fyrir lélegu fylgi Samfylkingarinnar í könnunum vera að flokkurinn sé of pólitískur. 27.1.2007 18:42
Íslendingar báru sigurorð af Slóvenum Íslendingar báru sigurorð af Slóvenum, 32-31, í viðureign liðanna á HM sem var að ljúka rétt í þessu og tryggðu sér þar með öruggt sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Íslenska liðið er nú komið með sex stig í milliriðli 1 og er í efsta sæti riðilsins þegar aðeins einn leikur er eftir. 27.1.2007 18:27
Eþíópíumenn hefja brotthvarf frá Sómalíu Forsætisráðherra Eþíópíu, Meles Zenawi, sagði í dag að þriðjungur hersveita Eþíópíu yrði farinn frá Sómalíu á morgun. „Við erum að fækka í herliðinu í Sómalíu um þriðjung... því ferli ætti að vera lokið í dag eða á morgun.“ 27.1.2007 18:15
Framsóknarmenn í Árborg samþykkja framboðslista Á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi sem haldið var í dag á Hótel Selfoss var samþykktur framboðslisti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna alþingiskosninganna nú í vor. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra skipar fyrsta sætið, Bjarni Harðarson er í öðru sæti og Helga S. Harðardóttir í því þriðja. 27.1.2007 18:00
Tugir þúsunda mótmæla í Bandaríkjunum Tugir þúsunda mótmæltu í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, í dag. Fólkið var að mótmæla stríðsrekstrinum í Írak og krafðist þess að hersveitirnar yrðu sendar heim á leið. Mótmælendur báru slagorð gegn George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, og friðarorð. Ættingjar og vinir hermanna sem létust í Írak tóku einnig þátt í mótmælunum. 27.1.2007 17:42
Magnús Þór kosinn varaformaður Frjálslyndra Magnús Þór Hafsteinsson sigraði í varaformannskjöri Frjálslynda flokksins í dag. Mjótt varð á munum í kosningunni en Margrét Sverrisdóttir sóttist einnig eftir embættinu. Atkvæðin féllu þannig að Magnús fékk 369 atkvæði, eða 54% þeirra, en Margrét fékk 314, eða 46%. Alls kusu 686 manns. Þrír seðlar voru ógildir. 27.1.2007 17:23
Ísland og Slóvenía eigast við Ísland og Slóvenía eigast nú við á heimsmeistaramótinu í handbolta. Staðan er 7 - 4 fyrir Íslandi eftir tíu mínútna leik. Lið Íslendinga er óbreytt frá leiknum á móti Slóvenum og því sitja Hreiðar Levý Guðmundsson og Einar Jónsson sem fastast á meðal áhorfenda. 27.1.2007 17:01
YouTube að deila auglýsingatekjum með notendum Chad Hurkley, annars stofnenda YouTube, skýrði frá því í dag að þeir ætli að gefa notendum sem setja sínar eigin bíómyndir á vefinn hluta af auglýsingatekjum sínum. Framtakið á að ýta undir sköpunargleði notenda og stendur til boða þeim notendum sem eiga höfundarréttin á því sem þeir setja á vefinn. 27.1.2007 16:53
15 látnir og 55 slasaðir Að minnsta kosti 15 manns létu lífið og 55 slösuðust í tveimur sjálfsmorðsárásum í austurhluta Bagdad í Írak í morgun. Árásin átti sér stað í hverfi sjía múslima og eins og undanfarnar sprengjur, nálægt markaði. 27.1.2007 16:40
Öngþveiti á landsfundi Frjálslyndra Töluvert öngþveiti ríkir á landsfundi Frjálslynda flokksins sem nú stendur yfir á Hótel Loftleiðum en um eitt þúsund manns eru á fundinum. Guðjón Arnar Kristjánsson var sjálfkjörinn í embætti formanns þar sem hann var einn í framboði. Enn er verið að kjósa í varaformannsembætti og til ritara. 27.1.2007 15:51
Blair vill fleiri lönd í öryggisráðið Breski forsætisráðherran Tony Blair sagði í dag að það ætti að hleypa Þýskalandi, Japan, Brasilíu og Indlandi inn í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Hann sagði einnig að það ætti að opna ráðið fyrir afrískum og múslimskum löndum til þess að auka lögmæti þess og virkni. 27.1.2007 15:46
Samfylkingin mun ekki þegja um Evrópumál Samfylkingin ætlar sér ekki að taka þátt í hinu ólýðræðislega þagnarbandalagi Sjálfstæðismanna um Evrópumál. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á aðalfundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík í dag. 27.1.2007 15:17
Lítið af hafís fyrir utan Galtarvita „Það er nærri allt autt hérna fyrir utan og ísspangirnar, þrjár eða fjórar, virðast að mestu komnar inn í djúp.“ sagði Jón Pétursson, skipstjóri á Þorláki ÍS í viðtali við fréttastofu Vísis í dag. Jón sagði ísspangirnar ekki hafa haft áhrif á ferðir þeirra. Þorlákur ÍS var staddur norður af Galtarvita. 27.1.2007 14:54
Ban Ki-moon í Kongó Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, er nú í sinni fyrstu heimsókn til Afríku og hóf hann ferð sína í Kongó. Ban talaði við nýkjörið þing landsins og sagði þar að Kongó gæti treyst á stuðning Sameinuðu þjóðanna við uppbyggingu landsins. 27.1.2007 14:30
Beckham til bjargar Beyonce, Scarlett Johansson og David Beckham eru ný andlit Disney fyrirtækisins í herferð þess „Ár hinna milljón drauma.“ Stjörnurnar tóku að sér hlutverk frægra sögupersóna úr Disney sögum og ljósmyndarinn heimsfrægi, Anne Leibovitz, tók myndirnar. 27.1.2007 14:15
Settu hvolpinn inn í ofn Tveir bræður frá Atlanta í Bandaríkjunum sem voru sakaðir um að setja málningarlímband á lappir og trýni þriggja mánaða gamals hvolps og ofnbaka hann síðan lifandi játuðu sekt sína í gær. 27.1.2007 13:45
Eitrað te dró Litvinenko til dauða Breskir embættismenn hafa skýrt frá því að það hafi verið eitrað te sem hafi banað Alexander Litvinenko. Þetta kom í ljós þegar tekanna sem hafði verið í herbergi Litvinenkos var rannsökuð. 27.1.2007 13:30
Tannheilsu Íslendinga hrakar Tannheilsu Íslendinga hrakar mjög. Tuttugu og tvö þúsund börn fara á mis við tannlæknaþjónustu, segir tannlæknir sem gefur heilbrigðiskerfinu falleinkunn. 27.1.2007 13:15
Ford: Versta afkoma í 103 ár Bandaríski bílarisinn Ford tapaði tæpum 890 milljörðum króna í fyrra. Afkoma síðasta árs er sú versta í 103 ára sögu fyrirtækisins. Minnkandi spurn eftir jeppum og öðrum eldsneytisfrekum ökutækjum er ein aðalástæða tapsins, svo og harðnandi samkeppni við aðra bílaframleiðendur. Búist er við áframhaldandi taprekstri næstu 2 árin. 27.1.2007 13:08
Ályktað gegn efasemdarmönnum Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi ályktun þess efnis að þeir sem afneiti Helför gyðinga verði fordæmdir. Bandaríkjamenn lögðu fram drög að ályktuninni. Hún er sögð svar við ráðstefnu í Íran fyrir áramót þar sem dregið var í efa að Helförin hefði átt sér stað. Það voru rúmlega hundrað þjóðir sem studdu ályktunina. 27.1.2007 13:06
Taka harðar á Írönum George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið hersveitum sínum í Írak heimild til að taka útsendara írönsku klerkastjórnarinnar í landinu fastari tökum en áður. Íranskir flugumenn eru grunaðir um að þjálfa herflokka sjía sem berjast gegn hernámsliðinu en fram til þessa hefur þeim yfirleitt verið sleppt eftir nokkurra daga varðhald. 27.1.2007 13:05
16 fallið á Gaza Að minnsta kosti 16 hafa týnt lífi og fjölmargir særst í átökum milli Hamas og Fatah-liða á Gaza-svæðinu síðasta sólahring. Meðal látinna er tveggja ára drengur. Þetta eru einhver verstu átök sem blossað hafa upp milli fylkinganna í marga mánuði. 27.1.2007 13:04
Fornleifafræðingar hafna stefnu ríkisins Bæði fagfélög fornleifafræðinga hafna alfarið stefnumörkun stjórnvalda í fornleifavernd eins og hún birtist í stefnudrögum. Félögin segja að í stefnunni birtist það sjónarmið að fornleifauppgreftir séu eyðilegging og því eigi að fækka þeim til muna. 27.1.2007 13:00
Baugsmálið kostað sakborninga yfir milljarð Hreinn kostnaður sakborninga í Baugsmálinu er kominn á annan milljarð króna, að sögn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs. Hann segir engar horfur á sameiningu Skjás eins og 365 en viðræður um það hefðu þó áttu sér stað milli fyrirtækjanna. 27.1.2007 12:05
Kosið um varaformann í dag Kosið verður um varaformann Frjálslynda flokksins í dag á landsþingi flokksins. Tveir bjóða sig fram í embætti varaformanns, þau Margrét Sverrisdóttir og Magnús Þór Hafsteinsson. 27.1.2007 12:01
Flutningavél Icelandair í erfiðleikum Flutningaflugvél Icelandair varð að lenda á Egilsstaðaflugvelli í morgun vegna gruns um eld í flutningarými vélarinnar. Viðvörunarljós gáfu það til kynna en eftir að vélin lenti kom í ljós að enginn eldur var í henni. Mikill viðbúnaður var á flugvellinum vegna atviksins. 27.1.2007 11:36
Friðargæsluliðar í átökum á Haiti Í það minnsta fimm létu lífið og sex særðust þegar friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna réðust inn í róstusamt fátækrahverfi á Haiti. Friðargæsluliðar reyna nú að hreinsa burt glæpagengi úr höfuðborginni Port-au-Prince til þess að fólk geti sinnt daglegum störfum óáreitt, að sögn yfirmanns friðargæslunnar. 26.1.2007 20:14
Hungursneyð yfirvofandi í Simbabve Hungursneyð vofir yfir Simbabve þar sem 850 þúsund tonn af maís vantar upp á að náist að næra þjóðina. Í desember var maísuppskeran aðeins 152.600 tonn, þannig að mikið vantar upp á. Ekki hjálpar til að gjaldeyrir er af skornum skammti í landinu sem er eitt fátækasta land heims. 26.1.2007 20:00
Sturtaði evruseðlum yfir mannfjöldann Vegfarendum í Kaiserslautern í Þýskalandi varð nokkuð hverft við í morgun þegar ský dró fyrir sólu og peningaseðlum tók að rigna. Ekki voru örlátir veðurguðir þarna á ferðinni heldur maður sem unnið hafði 100.000 evrur, jafnvirði níu milljóna króna, í útvarpshappdrætti. 26.1.2007 19:30
Geimhetjan komin heim Stokkhólmur var á öðrum endanum í dag þegar "geimkóngurinn" Christer Fuglesang kom til baka eftir að hafa farið lengra frá heimalandinu en nokkur annar Svíi hefur gert. Borgarstjórinn og hann skiptust síðan á gjöfum á ráðhúströppunum, Christer fékk lykil að borginni í skiptum fyrir fána sem hann ferðaðist með 203 hringi á sporbaug um jörðu. 26.1.2007 19:06
Mettap á rekstri Ford Það er af sem áður var hjá bandaríska bílarisanum Ford því afkoma síðasta árs var sú versta í 103 ára sögu fyrirtækisins . Ársuppgjör þess var kynnt í gær en samkvæmt því nam tapið á árinu tæpum 890 milljörðum króna, sem er litlu minna en verg þjóðarframleiðsla Íslendinga á ári. 26.1.2007 19:00
Ríkisstyrkir til sauðfjárræktar hækka um 300 milljónir króna Ríkisstyrkir til sauðfjárbænda verða um tvær milljónir króna að meðaltali á hvert býli á næsta ári, samkvæmt nýjum búvörusamningi. Árleg framlög ríkisins til búgreinarinnar hækka um þrjúhundruð milljónir króna. 26.1.2007 18:57
Væntingar um matarverðslækkun of miklar Fjármálaráðherra hótar hertum samkeppnisreglum ef matarverð lækkar ekki um allt að sextán prósent eftir fyrsta mars. Hagar hyggjast lækka álagningu í sumum vöruflokkum til að mæta hækkunum frá heildsölum. Framkvæmdastjóri Kaupáss segir stjórnvöld hafa byggt upp of miklar væntingar um lækkun á matarverði. 26.1.2007 18:53
Landsþing Frjálslynda flokksins sett Landsþing Frjálslynda flokksins hófst nú síðdegis. Mikil spenna ríkir vegna varaformannsslags Magnúsar Þórs Hafsteinssonar og Margrétar Sverrisdóttur en kosið verður á milli þeirra síðdegis á morgun. 26.1.2007 18:53
Vill taka Kína og Indland í hóp stærstu iðnríkja Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands sagði í dag að G8, hópur stærstu iðnríkja heims, yrði að taka við vaxandi stórveldunum Kína og Indlandi ef félagsskapurinn ætlaði að halda áhrifahlutverki sínu í heiminum. 26.1.2007 18:48
Útilokar sakfellingu í helmingi ákæruliða Baugsmáls hins síðara Settur saksóknari í Baugsmálinu og Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eru á öndverðum meiði um túlkun á sýknudómi Hæstaréttar í gær. Gestur segir dóminn útiloka sakfellingu í átta af þeim átján liðum sem teknir verða fyrir í Héraðsdómi í febrúar. 26.1.2007 18:46
Hyggst herja á Írana George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið hersveitum sínum í Írak heimild til að taka útsendara írönsku klerkastjórnarinnar í landinu fastari tökum en áður. 26.1.2007 18:45