Fleiri fréttir Skótauinu er kastað Síðasti dagur vetrarþings Taívans leystist upp í slagsmál eftir að stjórnarþingmaður henti skónum sínum í ræðumann. Þingmenn fóru þá að hrinda, ýta og slá frá sér. Í byrjun réðist hópur stjórnarþingmanna að ræðumanni til þess að koma í veg fyrir kosningu um mannabreytingar í raforkunefnd þingsins. Stjórnarandstöðuþingmenn hlupu þá allir sem einn að verja sinn mann og von bráðar var skónum kastað. 19.1.2007 11:24 Kínverjar í stjörnustríð Bandaríkin, Ástralía og Kanada hafa öll gagnrýnt nýjustu viðbótina við vopnabúr Kínverja, sem virðast vera að búa sig undir stjörnustríð. Tilraun sem Kínverjar gerðu í vikunni gekk út á það að skjóta niður gamlan veðurathugunargervihnött úti í geimnum. 18.1.2007 22:54 3,8 milljarðar og 340 kíló af gulli fyrir kókaín Kólumbíska lögreglan telur sig hafa fundið stærsta kókaínsjóð sem nokkurn tímann hefur verið gerður upptækur í heiminum. Lögreglumenn fundu peninga að jafnvirði 3,8 milljarða íslenskra króna og 340 kíló af hreinu, 24 karata gulli. Peningarnir tilheyra höfuðpaur Norte del Valle-fíkniefnahringsins sem var upprættur í vikunni. 18.1.2007 22:18 Kannað hvort Vogaperrinn tengist eldri málum Kynferðisafbrotadeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins kannar nú hvort maður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna áreitis við börn tengist ef til vill eldri óupplýstum málum. Þetta kom fram í 10-fréttum Ríkissjónvarpsins. Maðurinn var handtekinn á þriðjudagskvöld grunaður um að hafa áreitt fjórar barnungar stúlkur í Vogahverfinu í Reykjavík. 18.1.2007 22:07 Hermaður játaði á sig morð Bandarískur landgönguliði sem skaut 10 byssukúlum í gamlan, íraskan mann og dró hann út úr húsi sínu um miðja nótt játaði í kvöld á sig morð og aðrar ákærur á hendur honum. Atvikið átti sér stað í apríl 2006 í Hamdania í Írak. Fórnarlambið var nágranni manns sem hermenn ætluðu að ná vegna gruns um hryðjuverk. 18.1.2007 21:53 Fann dóttur sína eftir 19 ár í frumskóginum Kambódískur faðir segist þekkja aftur dóttur sína í ungri konu sem nýlega fannst í frumskóginum. Dóttir mannsins var talin af, þar sem hún hvarf inn í frumskóginn fyrir 19 árum, þá átta ára gömul. Frumskógarkonan talar ekkert skiljanlegt tungumál en faðir hennar segist þekkja aftur ör á bakinu á henni. 18.1.2007 21:25 Mælendalistinn lengist Ögmundur Jónasson stendur nú í pontu Alþingis í þriðju umræðu um frumvarpið um Rúv ohf. Mælendalistinn telur nú 14 Alþingismenn, sem er tæpur fjórðungur þingmanna. Aðeins einn af þeim 14 sem bíða þess að taka til máls, 15 ef við teljum Ögmund með, er aðeins einn þingmaður úr ríkisstjórnarflokkunum. 18.1.2007 20:47 Besta tækifæri til friðar í 16 ár Erindreki Sameinuðu þjóðanna í Sómalíu skorar á ríkisstjórn landsins til að sóa ekki "besta tækifæri í 16 ár til að koma á friði" í landinu. Erindrekinn Francois Fall hvatti í dag forseta Sómalíu, Abdullahi Yusuf, til að stofna fjölflokka ríkisstjórn. 18.1.2007 20:12 16 látnir í óveðri í Norður-Evrópu Í það minnsta 16 hafa látist í miklu óveðri sem lemur nú á Norður-Evrópu. Bretar hafa orðið verst úti þar sem vindhviður hafa náð 32 m/s. Fólk er varað við að vera á ferðinni þar sem tré hafa víða fallið á vegi. Þá hafa flug- og lestarsamgöngur farið úr skorðum víða um Norður-Evrópu. 18.1.2007 19:54 Stjórnarandstaðan leitar sátta í útvarpsmálinu Formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar hafa gert stjórnarflokkunum tilboð um að frumvarpi um Ríkisútvarpið verði hleypt hratt og vel í gegnum þingið ef gildistöku laganna verði breytt, þannig að þau taki gildi eftir kosningar. 18.1.2007 18:48 Eyðir kynbundnum launamun í boltanum ef hún nær kjöri Halla Gunnarsdóttir blaðamaður hefur fyrst kvenna boðið sig fram til formanns Knattspyrnusambands Íslands. Nái hún kosningu hyggst hún leiðrétta launamun leikmanna í landsliði karla og kvenna í fótbolta. 18.1.2007 18:45 Ráðamenn telja áfengissýki vera synd Yfirlæknir SÁÁ, varaði landlækni og heilbrigðisráðuneytið við því í bréfi árið 2003 að fela ofsatrúarmönnum meðferð áfengissjúklinga. Hann sagði að stór hópur svokallaðra endurkomusjúklinga í áfengismeðferð ætti við geðræn vandamál að stríða og gæti stafað hætta af trúboði öfgatrúarmanna. Þetta var skrifað til ráðuneytis heilbrigðismála sumarið 2004. 18.1.2007 18:43 Auðvelt að dylja slóð sína á netinu Kunnáttufólk á tölvur getur auðveldlega komið efni, eins og persónulegum myndum og myndböndum á internetið án þess að upp um það komist. Formaður allsherjarnefndar Alþingis telur ólíklegt að lagaumhverfinu verði breytt til að hindra að persónulegt efni fari á Netið án samþykkis fólks. 18.1.2007 18:25 Eftirspurn eftir lúxusþotu fyrir 21 milljarð króna Ráðherrar Evrópuríkja fengu í dag far með nýju risaþotu Airbus, af gerðinni A380. Yfirmenn Airbus segja auðmenn sýna lúxusútgáfu þessarar stærstu farþegaþotu heims mikla athygli. Listaverðið á lúxusþotunni er rétt um 21 milljarð íslenskra króna. 18.1.2007 18:11 Úrvinda sorphirðufólk Starfsmenn Sorphirðu Reykjavíkur eru úrvinda eftir erfiða viku þar sem snjóþyngsli hafa torveldað starf þeirra. Sorptunnur Reykvíkinga eru víða lokaðar inni bak við snjóskafla og ekki hlaupið að því að sækja þær og koma þeim í ruslabílinn. 18.1.2007 18:01 Bandaríkjamenn sömdu sig frá tiltekt Í viðaukum við varnarsamninginn sem utanríkisráðuneytið létti leynd af í dag kemur fram að Bandaríkjamönnum er ekki skylt að hreinsa upp eftir sig eða skila varnarsvæðunum í því ástandi sem þeir tóku við þeim. Þó skulu þeir kappkosta að ganga frá úrgangsefnum sem kostur gefst. 18.1.2007 17:53 Veikt fólk flutt frá einum „ofsatrúarsamtökum“ til annarra Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, undrast mjög þá ákvörðun Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra að koma vegalausum skjólstæðingum Byrgisins fyrir hjá Samhjálp. Það lýsi skilningsleysi á fíknsjúkdómum að „...alvarlega veikt fólk“ skuli vera flutt frá einum „ofsatrúarsamtökum“ til annarra. 18.1.2007 17:33 Ríflega níu milljóna króna bætur vegna líkamsárásar Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann til að greiða öðrum manni ríflega 9,3 milljónir króna í skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í líkamárás sem átti sér stað í september 1998. 18.1.2007 17:24 Dómur mildaður yfir ofbeldismanni Hæstiréttur mildaði í dag dóm héraðsdóms Reykjavíkur yfir ofbeldismanni sem dæmdur hafði verið fyrir þrjár líkamsárásir og að hafa fíkniefni í fórum sínum. Héraðsdómur dæmdi manninn í 12 mánaða fangelsi en hæstiréttur lækkaði refsingu mannsins í 9 mánaða fangelsi. 18.1.2007 17:24 Þrautaþrautavarakröfu vegna olíusamráðs vísað aftur til héraðsdóms Hæstiréttur úrskurðaði í dag að héraðsdómi bæri að taka til efnismeðferðar þrautaþrautavarakröfu Sigurðar Hreinssonar á Húsavík á hendur Keri, sem áður hét Esso, vegna ólöglegs samráðs stóru olíufélaganna þriggja. 18.1.2007 16:51 Litháar dæmdir fyrir fíkniefnasmygl Hæstiréttur dæmdi í dag tvo Litháa, þá Arvydas Maciulskis og Saulius Prusinskas, í fjögurra og þriggja ára fangelsi fyrir að hafa í félagi með óþekktum vitorðsmanni í Litháen reynt að smygla rúmlega 1,7 lítrum af vökva með ametamínbasa til landsins sem hægt hefði verið að nota til framleiðslu á yfir 13 kílóum af amfetamíni hér á landi. 18.1.2007 16:35 Standa fyrir herferð um örugga netnotkun Landssamtökin Heimili og skóli ætla í samstarfi við AUGA, góðgerðasjóð auglýsenda, að standa fyrir herferð á næstunni í prentmiðlum, útvarpi og sjónvarpi um jákvæða og örugga netnotkun. Verkefnið er í tengslum við SAFT, vakningarverkefni Heimilis og skóla um notkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum. 18.1.2007 16:27 26 bjargað með þyrlum Þyrlur bresku strandgæslunnar björguðu í dag tuttugu og sex manna áhöfn flutningaskips á Ermarsundi, í aftakaveðri. Gat kom á síðu skipsins og þegar sjórinn byrjaði að fossa inn, fór áhöfnin í björgunarbnáta. Dráttarbátar og þyrlur voru sendar bæði frá Frakklandi og Bretlandi. 18.1.2007 16:22 Starfsdögum fjölgað á leikskólum Reykjavíkurborgar Leikskólaráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma á fundi sínum í fyrradag að fjölga starfsdögum í skólunum úr þremur í fjóra á ári. Miðað er við að starfsfólk leikskólanna geti nýtt tvo daga á haustönn og tvo daga á vorönn. 18.1.2007 16:17 DNA frelsar 12 fanga 18.1.2007 16:04 Dísilbílum fjölgar í bílaflotanum Tæplega fjórðungur innfluttra fólksbíla á síðasta ári var með díselvél og hefur hlutur þeirra aukist síðustu tvö ár frá því að ný lög um olíu- og kílómetragjald tók gildi. 18.1.2007 16:02 Samráð stjórnmálaflokka og um varnarmál hefjist hið fyrsta Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um ný verkefni stjórnvalda við brottför varnarliðsins verður komið á samráðsvettvangi stjórnmálaflokkanna um öryggi Íslands. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sagði í ræðu sinni í Háskóla Íslands í dag um öryggis- og varnarmál, að ástæða væri til þess að hefja slíkt samráð hið fyrsta, og einnig mætti koma á fót rannsóknasetri á sviði utanríkis- og öryggismála. Hún sagði, að slíkur samráðsvettvangur myndi efla umræðu um öryggismál í víðum skilningi, en jafnframt væri nauðsynlegt að stuðla að almennri umræðu um slík mál. "Í því skyni má sjá fyrir sér stofnun rannsóknarseturs á sviði utanríkis- og öryggismála, sem fjallað gæti um öryggis- og varnarmál í víðum skilningi, þ.m.t. þætti á borð við samgöngur, umhverfisöryggi, fólksflutninga, þróunarmál og fleira. Tengja mætti hinn pólitíska samráðsvettvang og það alþjóðastarf sem á sér stað hér innan veggja Háskóla Íslands og í öðrum háskólum við starfsemi setursins sem stýrt getur rannsóknum og ráðstefnum til þess að efla faglega umræðu um öryggis- og varnarmál innanlands," sagði Valgerður. Hún sagði slíkt setur geta, með dugmikilli forystu, brúað bil frá akademískri umræðu til stefnumótunar. Þátttaka sérfræðinga utanríkisráðuneytisins og jafnvel annarra ráðuneyta í starfsemi setursins myndi styðja akademískar rannsóknir og jafnvel kennslu á þessu sviði. Jafnframt myndi sú gerjun hugmynda sem yrði við tengingu þessara þriggja heima leiða til hugmyndasköpunar og frjórri stefnumótunar. 18.1.2007 15:46 Flogið milli Keflavíkur og Akureyrar í sumar Icelandair hefur ákveðið að bjóða brottför og komu í millilandaflugi sínu á Akureyri í sumar. Munu farþegar þá fljúga til og frá Akureyri með flugvél Flugfélags Íslands og þannig tengjast beint við millilandaflug Icelandair á Keflavíkurflugvelli. 18.1.2007 15:42 Art Buchwald látinn Blaðamaðurinn og pistlahöfundurinn Art Buchwald er látinn, áttatíu og eins árs að aldri. Buchwald skrifaði gamansama pistla um allt milli himins og jarðar í meira en hálfa öld. Hann hlaut Pulitzer verðlaunin árið 1982 og skrifaði meira en þrjátíu bækur. Pistlar hans voru birtir í meira en 550 dagblöðum. 18.1.2007 15:33 Ekki eitrað fyrir Napóleon Napoleon Bonaparte dó úr magakrabba en ekki arsenikeitrun, samkvæmt nýrri rannsókn bandarískra vísindamanna. Sögusagnir um að keisarinn fyrrverandi hafi dáið úr eitrun hafa verið á kreiki síðan árið 1961 þegar rannsókn á hári hans leiddi í ljós óvenjumikið arsenik. 18.1.2007 15:19 90 sprengjusvæði bíða hreinsunar Um 90 skot- og sprengjuæfingasvæði bíða hreinsunar eftir brotthvarf varnarliðsins. Þetta kom fram í ræðu Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, í Háskóla Íslands í dag um öryggis- og varnarmál. Stefnt er að hreinsun verstu svæðanna á næstu fimm árum. 18.1.2007 15:19 Mona Sahlin fyrsti kvenleiðtogi jafnaðarmanna Mona Sahlin verður næsti formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð, fyrst kvenna. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. Hún tekur við forystu í flokknum af Göran Persson sem ákvað að halda ekki áfram eftir að flokkurinn tapaði í þingkosningum á síðasta ári. 18.1.2007 15:14 Slasaðist í útafakstri í Biskupstungum Ökumaður bíls sem fór út af Biskupstungnavegi laust fyrir hádegi var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur með minni háttar meiðsl. Í upphafi var talið um alvarlegt slys væri að ræða og var þyrla Landhelgisgæslunnar sett í viðbragðsstöðu en skömmu síðar kom í ljós að meiðsli mannsins reyndust ekki alvarleg. 18.1.2007 14:45 Milliríkjadeila vegna raunveruleikaþáttar Breski raunveruleikaþátturinn Big Brother hefur komið af stað milliríkjadeilum milli Indlands og Bretlands, og jafnvel Tony Blair, forsætisráðherra, hefur þurft að látta málið taka. Sömuleiðis Gordon Brown, fjármálaráðherra, sem var svo óheppinn að vera í heimsókn í Indlandi þegar deilan kom upp. 18.1.2007 14:43 Dæmd fyrir að breyta lyfseðli Kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdi í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals með því að hafa í sumar reynt að svíkja út Parkódín forte út úr apóteki með því að breyta lyfseðli. 18.1.2007 14:28 Fjögur fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu í gær Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær eftir því sem segir í frétt frá lögreglunni. Um miðjan dag voru tveir karlmenn handteknir í Kópavogi en þeir eru grunaðir um fíkniefnamisferli. 18.1.2007 14:00 Lýst eftir vitnum að umferðarslysi við Munaðarnes á föstudag Karlmaður á fertugsaldri sem slasaðist alvarlega í áresktri jeppa og flutningabifreiðar við Munaðarnes í Borgarfirði á föstudaginn var er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild. 18.1.2007 13:55 Enn nóg af síld í Grundarfirði Fjölveiðiskipin Krossey og Jóna Eðvalds, sem Skinney-Þinganes gerir út, eru nú á leið til Hornafjarðar með fullfermi af síld sem veiddist í Grundarfirði í nótt og morgun. 18.1.2007 13:47 Löggan var fiskifæla Fjölmargir hringdu í norsku lögregluna í morgun til þess að tilkynna um mann sem lá hreyfingarlaus á ísnum á Bogstad vatni. Ekki var vitað hversu traustur ísinn var, og því var þyrla send á vettvang, ásamt sjúkrabíl og lögreglubíl. Þyrlan sveimaði yfir og lögreglumennirnir fikruðu sig varlega út á ísinn. 18.1.2007 13:34 Meðlimum í Kaþólsku kirkjunni fjölgar mest Trúfélögum hefur fjölgað um tæpan helming á fimmtán árum. Skráðum meðlimum í Þjóðkirkjunni hefur fækkað jafnt og þétt á þessu tímabili en meðlimum hefur fjölgað langmest í Kaþólsku kirkjunni. 18.1.2007 13:00 Enginn flokkur með þá stefnu að selja RÚV Þriðja umræða um Ríkisútvarpið ohf. hélt áfram nú laust eftir hádegi eftir háværar deilur um störf þingsins og fundarstjórn forseta frá því klukkan hálfellefu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra steig fyrst í pontu nú í hádeginu og ítrekaði að enginn flokkur hefði það á stefnuskrá sinni að selja Ríkisútvarpið. 18.1.2007 12:49 Engin áform um íslenskan her, segir utanríkisráðherra Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, vill að landið verði áfram herlaust á friðartímum og segir engin áform um að setja á fót íslenskan her. Á fundi með utanríkismálanefnd í gær gerði hún grein fyrir leynilegum viðaukum við varnarsamninginn við Bandaríkin 1951, sem nú verða birtir. 18.1.2007 12:49 Búist við að Sahlin verði næsti leiðtogi sænskra jafnaðarmanna Búist er við því að tilkynnt verði á blaðamannafundi síðar í dag að Mona Sahlin verði nýr leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð. Fram kemur á vef sænska ríkisútvarpsins að hún hafi samþykkt í símtali við valnefnd flokksins að taka við forystu af Göran Persson sem ákvað að halda ekki áfram eftir að flokkurinn tapaði í þingkosningum á síðasta ári. 18.1.2007 12:34 ESB að endurskoða stjórnmálasamband við Líbíu Evrópuþingið mælti í dag fyrir því að lönd Evrópusambandsins myndu endurskoða stjórnmálasamband sitt við Líbíu ef stjórnvöld þar myndu ekki frelsa fimm búlgarska hjúkrunarfræðinga og palestínskan lækni sem bíða dauðarefsingar þar í landi. Læknaliðið var dæmt fyrir að hafa vísvitandi smitað um 450 börn af HIV veirunni. 18.1.2007 12:30 Tollar felldir niður á vatn og tómata Ísland og Evrópusambandið hafa gert samkomulag sem felur í sér almenna tollalækkun á kjöti og kjötafurðum um fjörutíu prósent. Samkomulagið felur einnig í sér gagnkvæma tollfrjálsa kvóta í viðskiptum með nokkuð magn af landbúnaðarvörum. 18.1.2007 12:13 Sjá næstu 50 fréttir
Skótauinu er kastað Síðasti dagur vetrarþings Taívans leystist upp í slagsmál eftir að stjórnarþingmaður henti skónum sínum í ræðumann. Þingmenn fóru þá að hrinda, ýta og slá frá sér. Í byrjun réðist hópur stjórnarþingmanna að ræðumanni til þess að koma í veg fyrir kosningu um mannabreytingar í raforkunefnd þingsins. Stjórnarandstöðuþingmenn hlupu þá allir sem einn að verja sinn mann og von bráðar var skónum kastað. 19.1.2007 11:24
Kínverjar í stjörnustríð Bandaríkin, Ástralía og Kanada hafa öll gagnrýnt nýjustu viðbótina við vopnabúr Kínverja, sem virðast vera að búa sig undir stjörnustríð. Tilraun sem Kínverjar gerðu í vikunni gekk út á það að skjóta niður gamlan veðurathugunargervihnött úti í geimnum. 18.1.2007 22:54
3,8 milljarðar og 340 kíló af gulli fyrir kókaín Kólumbíska lögreglan telur sig hafa fundið stærsta kókaínsjóð sem nokkurn tímann hefur verið gerður upptækur í heiminum. Lögreglumenn fundu peninga að jafnvirði 3,8 milljarða íslenskra króna og 340 kíló af hreinu, 24 karata gulli. Peningarnir tilheyra höfuðpaur Norte del Valle-fíkniefnahringsins sem var upprættur í vikunni. 18.1.2007 22:18
Kannað hvort Vogaperrinn tengist eldri málum Kynferðisafbrotadeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins kannar nú hvort maður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna áreitis við börn tengist ef til vill eldri óupplýstum málum. Þetta kom fram í 10-fréttum Ríkissjónvarpsins. Maðurinn var handtekinn á þriðjudagskvöld grunaður um að hafa áreitt fjórar barnungar stúlkur í Vogahverfinu í Reykjavík. 18.1.2007 22:07
Hermaður játaði á sig morð Bandarískur landgönguliði sem skaut 10 byssukúlum í gamlan, íraskan mann og dró hann út úr húsi sínu um miðja nótt játaði í kvöld á sig morð og aðrar ákærur á hendur honum. Atvikið átti sér stað í apríl 2006 í Hamdania í Írak. Fórnarlambið var nágranni manns sem hermenn ætluðu að ná vegna gruns um hryðjuverk. 18.1.2007 21:53
Fann dóttur sína eftir 19 ár í frumskóginum Kambódískur faðir segist þekkja aftur dóttur sína í ungri konu sem nýlega fannst í frumskóginum. Dóttir mannsins var talin af, þar sem hún hvarf inn í frumskóginn fyrir 19 árum, þá átta ára gömul. Frumskógarkonan talar ekkert skiljanlegt tungumál en faðir hennar segist þekkja aftur ör á bakinu á henni. 18.1.2007 21:25
Mælendalistinn lengist Ögmundur Jónasson stendur nú í pontu Alþingis í þriðju umræðu um frumvarpið um Rúv ohf. Mælendalistinn telur nú 14 Alþingismenn, sem er tæpur fjórðungur þingmanna. Aðeins einn af þeim 14 sem bíða þess að taka til máls, 15 ef við teljum Ögmund með, er aðeins einn þingmaður úr ríkisstjórnarflokkunum. 18.1.2007 20:47
Besta tækifæri til friðar í 16 ár Erindreki Sameinuðu þjóðanna í Sómalíu skorar á ríkisstjórn landsins til að sóa ekki "besta tækifæri í 16 ár til að koma á friði" í landinu. Erindrekinn Francois Fall hvatti í dag forseta Sómalíu, Abdullahi Yusuf, til að stofna fjölflokka ríkisstjórn. 18.1.2007 20:12
16 látnir í óveðri í Norður-Evrópu Í það minnsta 16 hafa látist í miklu óveðri sem lemur nú á Norður-Evrópu. Bretar hafa orðið verst úti þar sem vindhviður hafa náð 32 m/s. Fólk er varað við að vera á ferðinni þar sem tré hafa víða fallið á vegi. Þá hafa flug- og lestarsamgöngur farið úr skorðum víða um Norður-Evrópu. 18.1.2007 19:54
Stjórnarandstaðan leitar sátta í útvarpsmálinu Formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar hafa gert stjórnarflokkunum tilboð um að frumvarpi um Ríkisútvarpið verði hleypt hratt og vel í gegnum þingið ef gildistöku laganna verði breytt, þannig að þau taki gildi eftir kosningar. 18.1.2007 18:48
Eyðir kynbundnum launamun í boltanum ef hún nær kjöri Halla Gunnarsdóttir blaðamaður hefur fyrst kvenna boðið sig fram til formanns Knattspyrnusambands Íslands. Nái hún kosningu hyggst hún leiðrétta launamun leikmanna í landsliði karla og kvenna í fótbolta. 18.1.2007 18:45
Ráðamenn telja áfengissýki vera synd Yfirlæknir SÁÁ, varaði landlækni og heilbrigðisráðuneytið við því í bréfi árið 2003 að fela ofsatrúarmönnum meðferð áfengissjúklinga. Hann sagði að stór hópur svokallaðra endurkomusjúklinga í áfengismeðferð ætti við geðræn vandamál að stríða og gæti stafað hætta af trúboði öfgatrúarmanna. Þetta var skrifað til ráðuneytis heilbrigðismála sumarið 2004. 18.1.2007 18:43
Auðvelt að dylja slóð sína á netinu Kunnáttufólk á tölvur getur auðveldlega komið efni, eins og persónulegum myndum og myndböndum á internetið án þess að upp um það komist. Formaður allsherjarnefndar Alþingis telur ólíklegt að lagaumhverfinu verði breytt til að hindra að persónulegt efni fari á Netið án samþykkis fólks. 18.1.2007 18:25
Eftirspurn eftir lúxusþotu fyrir 21 milljarð króna Ráðherrar Evrópuríkja fengu í dag far með nýju risaþotu Airbus, af gerðinni A380. Yfirmenn Airbus segja auðmenn sýna lúxusútgáfu þessarar stærstu farþegaþotu heims mikla athygli. Listaverðið á lúxusþotunni er rétt um 21 milljarð íslenskra króna. 18.1.2007 18:11
Úrvinda sorphirðufólk Starfsmenn Sorphirðu Reykjavíkur eru úrvinda eftir erfiða viku þar sem snjóþyngsli hafa torveldað starf þeirra. Sorptunnur Reykvíkinga eru víða lokaðar inni bak við snjóskafla og ekki hlaupið að því að sækja þær og koma þeim í ruslabílinn. 18.1.2007 18:01
Bandaríkjamenn sömdu sig frá tiltekt Í viðaukum við varnarsamninginn sem utanríkisráðuneytið létti leynd af í dag kemur fram að Bandaríkjamönnum er ekki skylt að hreinsa upp eftir sig eða skila varnarsvæðunum í því ástandi sem þeir tóku við þeim. Þó skulu þeir kappkosta að ganga frá úrgangsefnum sem kostur gefst. 18.1.2007 17:53
Veikt fólk flutt frá einum „ofsatrúarsamtökum“ til annarra Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, undrast mjög þá ákvörðun Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra að koma vegalausum skjólstæðingum Byrgisins fyrir hjá Samhjálp. Það lýsi skilningsleysi á fíknsjúkdómum að „...alvarlega veikt fólk“ skuli vera flutt frá einum „ofsatrúarsamtökum“ til annarra. 18.1.2007 17:33
Ríflega níu milljóna króna bætur vegna líkamsárásar Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann til að greiða öðrum manni ríflega 9,3 milljónir króna í skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í líkamárás sem átti sér stað í september 1998. 18.1.2007 17:24
Dómur mildaður yfir ofbeldismanni Hæstiréttur mildaði í dag dóm héraðsdóms Reykjavíkur yfir ofbeldismanni sem dæmdur hafði verið fyrir þrjár líkamsárásir og að hafa fíkniefni í fórum sínum. Héraðsdómur dæmdi manninn í 12 mánaða fangelsi en hæstiréttur lækkaði refsingu mannsins í 9 mánaða fangelsi. 18.1.2007 17:24
Þrautaþrautavarakröfu vegna olíusamráðs vísað aftur til héraðsdóms Hæstiréttur úrskurðaði í dag að héraðsdómi bæri að taka til efnismeðferðar þrautaþrautavarakröfu Sigurðar Hreinssonar á Húsavík á hendur Keri, sem áður hét Esso, vegna ólöglegs samráðs stóru olíufélaganna þriggja. 18.1.2007 16:51
Litháar dæmdir fyrir fíkniefnasmygl Hæstiréttur dæmdi í dag tvo Litháa, þá Arvydas Maciulskis og Saulius Prusinskas, í fjögurra og þriggja ára fangelsi fyrir að hafa í félagi með óþekktum vitorðsmanni í Litháen reynt að smygla rúmlega 1,7 lítrum af vökva með ametamínbasa til landsins sem hægt hefði verið að nota til framleiðslu á yfir 13 kílóum af amfetamíni hér á landi. 18.1.2007 16:35
Standa fyrir herferð um örugga netnotkun Landssamtökin Heimili og skóli ætla í samstarfi við AUGA, góðgerðasjóð auglýsenda, að standa fyrir herferð á næstunni í prentmiðlum, útvarpi og sjónvarpi um jákvæða og örugga netnotkun. Verkefnið er í tengslum við SAFT, vakningarverkefni Heimilis og skóla um notkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum. 18.1.2007 16:27
26 bjargað með þyrlum Þyrlur bresku strandgæslunnar björguðu í dag tuttugu og sex manna áhöfn flutningaskips á Ermarsundi, í aftakaveðri. Gat kom á síðu skipsins og þegar sjórinn byrjaði að fossa inn, fór áhöfnin í björgunarbnáta. Dráttarbátar og þyrlur voru sendar bæði frá Frakklandi og Bretlandi. 18.1.2007 16:22
Starfsdögum fjölgað á leikskólum Reykjavíkurborgar Leikskólaráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma á fundi sínum í fyrradag að fjölga starfsdögum í skólunum úr þremur í fjóra á ári. Miðað er við að starfsfólk leikskólanna geti nýtt tvo daga á haustönn og tvo daga á vorönn. 18.1.2007 16:17
Dísilbílum fjölgar í bílaflotanum Tæplega fjórðungur innfluttra fólksbíla á síðasta ári var með díselvél og hefur hlutur þeirra aukist síðustu tvö ár frá því að ný lög um olíu- og kílómetragjald tók gildi. 18.1.2007 16:02
Samráð stjórnmálaflokka og um varnarmál hefjist hið fyrsta Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um ný verkefni stjórnvalda við brottför varnarliðsins verður komið á samráðsvettvangi stjórnmálaflokkanna um öryggi Íslands. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sagði í ræðu sinni í Háskóla Íslands í dag um öryggis- og varnarmál, að ástæða væri til þess að hefja slíkt samráð hið fyrsta, og einnig mætti koma á fót rannsóknasetri á sviði utanríkis- og öryggismála. Hún sagði, að slíkur samráðsvettvangur myndi efla umræðu um öryggismál í víðum skilningi, en jafnframt væri nauðsynlegt að stuðla að almennri umræðu um slík mál. "Í því skyni má sjá fyrir sér stofnun rannsóknarseturs á sviði utanríkis- og öryggismála, sem fjallað gæti um öryggis- og varnarmál í víðum skilningi, þ.m.t. þætti á borð við samgöngur, umhverfisöryggi, fólksflutninga, þróunarmál og fleira. Tengja mætti hinn pólitíska samráðsvettvang og það alþjóðastarf sem á sér stað hér innan veggja Háskóla Íslands og í öðrum háskólum við starfsemi setursins sem stýrt getur rannsóknum og ráðstefnum til þess að efla faglega umræðu um öryggis- og varnarmál innanlands," sagði Valgerður. Hún sagði slíkt setur geta, með dugmikilli forystu, brúað bil frá akademískri umræðu til stefnumótunar. Þátttaka sérfræðinga utanríkisráðuneytisins og jafnvel annarra ráðuneyta í starfsemi setursins myndi styðja akademískar rannsóknir og jafnvel kennslu á þessu sviði. Jafnframt myndi sú gerjun hugmynda sem yrði við tengingu þessara þriggja heima leiða til hugmyndasköpunar og frjórri stefnumótunar. 18.1.2007 15:46
Flogið milli Keflavíkur og Akureyrar í sumar Icelandair hefur ákveðið að bjóða brottför og komu í millilandaflugi sínu á Akureyri í sumar. Munu farþegar þá fljúga til og frá Akureyri með flugvél Flugfélags Íslands og þannig tengjast beint við millilandaflug Icelandair á Keflavíkurflugvelli. 18.1.2007 15:42
Art Buchwald látinn Blaðamaðurinn og pistlahöfundurinn Art Buchwald er látinn, áttatíu og eins árs að aldri. Buchwald skrifaði gamansama pistla um allt milli himins og jarðar í meira en hálfa öld. Hann hlaut Pulitzer verðlaunin árið 1982 og skrifaði meira en þrjátíu bækur. Pistlar hans voru birtir í meira en 550 dagblöðum. 18.1.2007 15:33
Ekki eitrað fyrir Napóleon Napoleon Bonaparte dó úr magakrabba en ekki arsenikeitrun, samkvæmt nýrri rannsókn bandarískra vísindamanna. Sögusagnir um að keisarinn fyrrverandi hafi dáið úr eitrun hafa verið á kreiki síðan árið 1961 þegar rannsókn á hári hans leiddi í ljós óvenjumikið arsenik. 18.1.2007 15:19
90 sprengjusvæði bíða hreinsunar Um 90 skot- og sprengjuæfingasvæði bíða hreinsunar eftir brotthvarf varnarliðsins. Þetta kom fram í ræðu Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, í Háskóla Íslands í dag um öryggis- og varnarmál. Stefnt er að hreinsun verstu svæðanna á næstu fimm árum. 18.1.2007 15:19
Mona Sahlin fyrsti kvenleiðtogi jafnaðarmanna Mona Sahlin verður næsti formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð, fyrst kvenna. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. Hún tekur við forystu í flokknum af Göran Persson sem ákvað að halda ekki áfram eftir að flokkurinn tapaði í þingkosningum á síðasta ári. 18.1.2007 15:14
Slasaðist í útafakstri í Biskupstungum Ökumaður bíls sem fór út af Biskupstungnavegi laust fyrir hádegi var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur með minni háttar meiðsl. Í upphafi var talið um alvarlegt slys væri að ræða og var þyrla Landhelgisgæslunnar sett í viðbragðsstöðu en skömmu síðar kom í ljós að meiðsli mannsins reyndust ekki alvarleg. 18.1.2007 14:45
Milliríkjadeila vegna raunveruleikaþáttar Breski raunveruleikaþátturinn Big Brother hefur komið af stað milliríkjadeilum milli Indlands og Bretlands, og jafnvel Tony Blair, forsætisráðherra, hefur þurft að látta málið taka. Sömuleiðis Gordon Brown, fjármálaráðherra, sem var svo óheppinn að vera í heimsókn í Indlandi þegar deilan kom upp. 18.1.2007 14:43
Dæmd fyrir að breyta lyfseðli Kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdi í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals með því að hafa í sumar reynt að svíkja út Parkódín forte út úr apóteki með því að breyta lyfseðli. 18.1.2007 14:28
Fjögur fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu í gær Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær eftir því sem segir í frétt frá lögreglunni. Um miðjan dag voru tveir karlmenn handteknir í Kópavogi en þeir eru grunaðir um fíkniefnamisferli. 18.1.2007 14:00
Lýst eftir vitnum að umferðarslysi við Munaðarnes á föstudag Karlmaður á fertugsaldri sem slasaðist alvarlega í áresktri jeppa og flutningabifreiðar við Munaðarnes í Borgarfirði á föstudaginn var er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild. 18.1.2007 13:55
Enn nóg af síld í Grundarfirði Fjölveiðiskipin Krossey og Jóna Eðvalds, sem Skinney-Þinganes gerir út, eru nú á leið til Hornafjarðar með fullfermi af síld sem veiddist í Grundarfirði í nótt og morgun. 18.1.2007 13:47
Löggan var fiskifæla Fjölmargir hringdu í norsku lögregluna í morgun til þess að tilkynna um mann sem lá hreyfingarlaus á ísnum á Bogstad vatni. Ekki var vitað hversu traustur ísinn var, og því var þyrla send á vettvang, ásamt sjúkrabíl og lögreglubíl. Þyrlan sveimaði yfir og lögreglumennirnir fikruðu sig varlega út á ísinn. 18.1.2007 13:34
Meðlimum í Kaþólsku kirkjunni fjölgar mest Trúfélögum hefur fjölgað um tæpan helming á fimmtán árum. Skráðum meðlimum í Þjóðkirkjunni hefur fækkað jafnt og þétt á þessu tímabili en meðlimum hefur fjölgað langmest í Kaþólsku kirkjunni. 18.1.2007 13:00
Enginn flokkur með þá stefnu að selja RÚV Þriðja umræða um Ríkisútvarpið ohf. hélt áfram nú laust eftir hádegi eftir háværar deilur um störf þingsins og fundarstjórn forseta frá því klukkan hálfellefu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra steig fyrst í pontu nú í hádeginu og ítrekaði að enginn flokkur hefði það á stefnuskrá sinni að selja Ríkisútvarpið. 18.1.2007 12:49
Engin áform um íslenskan her, segir utanríkisráðherra Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, vill að landið verði áfram herlaust á friðartímum og segir engin áform um að setja á fót íslenskan her. Á fundi með utanríkismálanefnd í gær gerði hún grein fyrir leynilegum viðaukum við varnarsamninginn við Bandaríkin 1951, sem nú verða birtir. 18.1.2007 12:49
Búist við að Sahlin verði næsti leiðtogi sænskra jafnaðarmanna Búist er við því að tilkynnt verði á blaðamannafundi síðar í dag að Mona Sahlin verði nýr leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð. Fram kemur á vef sænska ríkisútvarpsins að hún hafi samþykkt í símtali við valnefnd flokksins að taka við forystu af Göran Persson sem ákvað að halda ekki áfram eftir að flokkurinn tapaði í þingkosningum á síðasta ári. 18.1.2007 12:34
ESB að endurskoða stjórnmálasamband við Líbíu Evrópuþingið mælti í dag fyrir því að lönd Evrópusambandsins myndu endurskoða stjórnmálasamband sitt við Líbíu ef stjórnvöld þar myndu ekki frelsa fimm búlgarska hjúkrunarfræðinga og palestínskan lækni sem bíða dauðarefsingar þar í landi. Læknaliðið var dæmt fyrir að hafa vísvitandi smitað um 450 börn af HIV veirunni. 18.1.2007 12:30
Tollar felldir niður á vatn og tómata Ísland og Evrópusambandið hafa gert samkomulag sem felur í sér almenna tollalækkun á kjöti og kjötafurðum um fjörutíu prósent. Samkomulagið felur einnig í sér gagnkvæma tollfrjálsa kvóta í viðskiptum með nokkuð magn af landbúnaðarvörum. 18.1.2007 12:13