Fleiri fréttir

Mótmæla uppsögnum

Starfsmenn Álversins í Straumsvík fjölmenntu á fund í Bæjarbíó í dag til að mótmæla uppsögnum reyndra starfsmanna fyrirtækisins sem þeir segja tilefnislausar

Yfirmaður Landsíma staðfestir hlerun, segir Jón Baldvin

Að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar staðfesti fyrrverandi yfirmaður hjá Landssímanum í gærkvöld að sími Jóns var hleraður í ráðherratíð hans. Áður hafi Jón Baldvin talið víst að bandarískir njósnarar stæðu að baki og til lítils að greina samráðherrum í Sjálfstæðisflokknum frá málinu. Hann hafi ekki þá vitað af tilvist íslensku leyniþjónustunnar.

4 bíla árekstur við Smáralind

Reykjanesbraut var lokað til suðurs í nokkra stund síðdegis í dag þegar 4 bílar lentu í árekstri við Smáralind í Kópavogi skömmu fyrir kl. 18.

Tillögur gætu haft áhrif á álver við Húsavík

Tillögur orkuauðlindanefndar, um að veiting nýrra rannsóknarleyfa verði takmörkuð næstu árin, gætu haft áhrif á orkuöflun vegna álvers við Húsavík. Tillögurnar virðast hins vegar hvorki trufla áform um álver í Helguvík né stækkun í Straumsvík.

Ford á sjúkrahús

Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var fluttur í sjúkrahús í Kaliforníu í dag. Ford, sem er 93 ára, gengst þar undir rannsóknir. Ekki hefur fengist gefið upp hvað hrjáir hann en hann er ekki sagður illa haldinn.

Fengu að hitta Guantanamo fanga

Fulltrúar Rauða krossins hafa fengið aðganga að 14 grunuðum hryðjuverkamönnum sem fluttir voru í leynifangelsum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, til gæslu í fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. Bandaríski herinn greindi frá þessu í dag.

Ríkisendurskoðun stendur við stjórnsýsluúttekt á Umhverfisstofnun

Ríkisendurskoðun stendur við stjórnsýsluúttekt sína á starfsemi Umhverfisstofnunar. Þetta kemur fram í svari Ríkisendurskoðunar við gagnrýni Davíðs Egilssonar, forstjóra Umhverfisstofnunar, þar sem hann gerði verulega athugasemdir við aðferðir og framkvæmd stjórnsýsluúttektarinnar. Skýrslan hafi verið unnin af heilindum og samviskusemi og án þess að láta annarleg og ómálefnaleg sjónarmið hafa áhrif á niðurstöður.

Heimsókn forsætisráðherra í Washington senn á enda

Geir H. Haarde forsætisráðherra átti í gær fund með Richard G. Lugar, formanni utanríkismálanefndar öldungadeildar bandaríska þingsins. Þar gerði forsætisráðherra þingmanninum grein fyrir nýgerðu samkomulagi Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál og ræddu þeir framtíðarsamskipti ríkjanna.

Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt

Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær.

Lífeyrissjóðir hefja viðræður um sameiningu

Lífeyrissjóðir Norðurlands og Austurlands hafa ákveðið að hefja formlegar viðræðu um sameiningu sjóðanna. Þetta var á ákveðið á stjórnarfundum þeirra í vikunni.

Mótmæla sölu á Fríkirkjuvegi 11

Vinstri - grænir í Reykjavík mótmæla sölu á Fríkirkjuvegi 11, sem áður var einbýlishús athafnamannsins Thors Jensens. Borgarráð samþykkti í dag að undirbúa sölu þess en í bókun Árna Þórs Sigurðssonar, fulltrúa Vinstri - grænna í borgarráði, segir segja að það eigi áfram að vera í eigu borgarinnar enda um eina fegurstu húseign borgarinnar að ræða.

Hey handa hungruðum úlföldum í Arabíu

Vilhjálmur Þórarinsson bóndi í Litlu-Tungu, sem er einn afkastamesti heyútflutningsbóndinn á landinu, hefur fengið fyrirspurnir frá Jórdaníu og Dubai um hey handa úlföldum.

Jón Gunnarsson vill 4. sæti í Suðvesturkjördæmi

Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi, sækist eftir 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Prófkjör fer fram 11. nóvember næstkomandi.

Atlantsskip kanna arðsemi strandsiglinga til Ísafjarðar og fleiri staða

Atlantsskip kanna arðsemi strandsiglinga til Ísafjarðar og fleiri staða, að sögn Bæjarins Besta á Ísafirði. Gunnar Bachmann, framkvæmdastjóri Atlantsskipa, segir, að fyrirtækið sé að kanna möguleika á því að hefja strandsiglingar út frá Reykjavík, meðal annars til Ísafjarðar.

40 bílum lagt ólöglega

Þeir sem lögðu bílum sínum á gangstéttum við Reykjaveg í gær, á meðan landsleikur Íslendinga og Svía stóð yfir, þurfa greiða stöðubrotsgjald. Alls voru gefnar út 40 sektir fyrir þá sem þar stöðvuðu bifreiðar sínar.

Fjármálaráðherra ætlar ekki að víkja sæti

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur hafnað kröfu Öryrkjabandalags Íslands um að hann, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins og aðrir starfsmenn ráðuneytisins víki sæti við meðferð á máli sem lýtur að staðfestingu á breytingum á samþykktum Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda.

Borgarráð samþykkir að selja Fríkirkjuveg 11

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að selja húsið að Fríkirkjuvegi 11, sem áður var einbýlishús Thors Jensens athafnamanns. Þar hafa um árabil verið höfuðstöðvar Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar en í tillögunni sem lögð var fyrir á fundi borgarráðs er gert ráð fyrir því að fundið verði nýtt húsnæði fyrir þá starfsemi.

Gorbatsjov aftur í Höfða eftir tuttugu ár

Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Svoétríkjanna, sneri aftur í Höfða nú í hádeginu, tuttugu árum eftir að hann og Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, komu þar saman til fundar til að ræða afvopnunarmál stóveldanna tveggja.

Ekið á mann á Akureyri

Ekið var á mann við bílaleigu á Akureyri rétt eftir hádegi í dag. Maðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en hann var með áverka á fæti.

83 teknir fyrir hraðakstur í borginni í gær

Lögreglan í Reykjavík tók í gær 83 ökumenn fyrir hraðakstur í borginni. Lögregla var víða við hraðamælingar og nýtti meðal annars myndavélabíl sinn óspart eftir því sem fram kemur á vef hennar.

Innflutt vinnuafl aldrei eins mikið

Innflutningur á erlendu vinnuafli hefur aldrei mælst eins mikil og í september eða tæplega eitt þúsund manns. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa um 4.400 nýir erlendir starfsmenn verið skráðir á íslenskum vinnumarkaði. Allt árið í fyrra voru 3.900 erlendir starfsmenn skráðir.

Himnesk hollusta innkallar döðlur vegn mítla

Fyrirtækið Himnesk hollusta hefur innkallað lífrænt ræktaðar döðlur sem það selur vegna svokallaðra mítla sem fundist hafa í þeim. Um er að ræða 250 og 400 gramma bakka með döðlum sem eru bestar fyrir 30.05.07 og 31.07.07.

Myndband veldur pólitískri deilu

Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim.

Hinar tvær stíflurnar að klárast

Ein risastífla við Kárahnjúka dugar ekki til að stöðva Jöklu. Þær verða þrjár stíflurnar sem mynda munu Hálslón, og allar eru þegar komnar í flokk stærstu mannvirkja hérlendis, því tvær hliðarstíflur eru að verða tilbúnar.

Reykjavík verður friðarmiðstöð

Borgaryfirvöld vinna að því að gera Reykjavík að miðstöð sáttarstarfs í alþjóðlegum deilumálum með því að koma á fót friðarstofnun í borginni, að því er fram kom í hádegisfréttum RUV.

Amish skólinn jafnaður við jörðu

Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ.

Tekið tillit til matarskattslækkunar við vaxtaákvörðun

Tekið verður tillit til lækkunar matarskatts við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans um mánaðamótin, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Hann segir að skattalækkunin auki spennu en það sé þó til bóta að lækkunin komi ekki til framkvæmda fyrr en næsta vor þegar væntingar séu um að verðbólgan hafi hjaðnað töluvert.

Hvalreki í Hrútafirði

Hvalreka er að finna í landi Stóru-Hvalsár í Hrútafirði, í nágrenni við réttina. Á myndinni má sjá hvalinn liggjandi á flúru skammt frá landi.

Hefja morgunflug til Bandaríkjanna

Icelandair ætlar að fljúga á þrjá nýja staði og hefja morgunflug til Bandaríkjanna á næsta ári, en leggja niður flug til San Fransisco.

Ban verður eftirmaður Annans

Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu.

Standa saman að frumvarpi um að gefa megi samkynhneigða saman

Frumvarp sem heimilar prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga sem hafa vígsluheimild, að gefa saman samkynhneigða í staðfesta samvist hefur verið lagt fram á Alþingi. Sem kunnugt er náðist ekki samkomulag um þetta atriði þegar samstaða var um umtalsverðar réttarbætur í málefnum samkynhneigðra í vor vegna andstöðu kirkjunnar.

Harma að fjármagn sé ekki eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni

Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda fagnar nýjum samingi milli Ríkisútvarpsins og Menntamálaráðuneytisins um aukinn hlut íslensks dagskrárefnis í Ríkissjónvarpinu á næstu fimm árum. Í ályktun frá stjórninni er það hins vegar harmað að í samningnum sé hvorki fjármagn né útsendingarhlutfall eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni.

Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels

Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku.

Sjá næstu 50 fréttir