Fleiri fréttir Blaðberar grunaðir um innbrot 12.10.2006 15:23 Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. 12.10.2006 15:20 Fjármálaráðherra ætlar ekki að víkja sæti Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur hafnað kröfu Öryrkjabandalags Íslands um að hann, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins og aðrir starfsmenn ráðuneytisins víki sæti við meðferð á máli sem lýtur að staðfestingu á breytingum á samþykktum Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. 12.10.2006 15:01 Skoðana hvað ? 12.10.2006 14:59 Borgarráð samþykkir að selja Fríkirkjuveg 11 Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að selja húsið að Fríkirkjuvegi 11, sem áður var einbýlishús Thors Jensens athafnamanns. Þar hafa um árabil verið höfuðstöðvar Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar en í tillögunni sem lögð var fyrir á fundi borgarráðs er gert ráð fyrir því að fundið verði nýtt húsnæði fyrir þá starfsemi. 12.10.2006 14:35 Skattbyrðin hækkaði langmest á Íslandi á síðasta ári Skattbyrðin á Íslandi miðað við landsframleiðslu, hækkaði meira á síðasta ári en í nokkru öðru OECD landi, samkvæmt nýrri úttekt OECD. 12.10.2006 14:25 Gorbatsjov aftur í Höfða eftir tuttugu ár Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Svoétríkjanna, sneri aftur í Höfða nú í hádeginu, tuttugu árum eftir að hann og Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, komu þar saman til fundar til að ræða afvopnunarmál stóveldanna tveggja. 12.10.2006 14:20 Ekið á mann á Akureyri Ekið var á mann við bílaleigu á Akureyri rétt eftir hádegi í dag. Maðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en hann var með áverka á fæti. 12.10.2006 14:03 83 teknir fyrir hraðakstur í borginni í gær Lögreglan í Reykjavík tók í gær 83 ökumenn fyrir hraðakstur í borginni. Lögregla var víða við hraðamælingar og nýtti meðal annars myndavélabíl sinn óspart eftir því sem fram kemur á vef hennar. 12.10.2006 13:49 Innflutt vinnuafl aldrei eins mikið Innflutningur á erlendu vinnuafli hefur aldrei mælst eins mikil og í september eða tæplega eitt þúsund manns. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa um 4.400 nýir erlendir starfsmenn verið skráðir á íslenskum vinnumarkaði. Allt árið í fyrra voru 3.900 erlendir starfsmenn skráðir. 12.10.2006 13:44 Viðurkenndi undirbúning árása 12.10.2006 13:43 Himnesk hollusta innkallar döðlur vegn mítla Fyrirtækið Himnesk hollusta hefur innkallað lífrænt ræktaðar döðlur sem það selur vegna svokallaðra mítla sem fundist hafa í þeim. Um er að ræða 250 og 400 gramma bakka með döðlum sem eru bestar fyrir 30.05.07 og 31.07.07. 12.10.2006 13:33 Myndband veldur pólitískri deilu Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim. 12.10.2006 13:03 Ólöf Nordal sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi Ólöf Nordal, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum í vor. 12.10.2006 13:00 Hinar tvær stíflurnar að klárast Ein risastífla við Kárahnjúka dugar ekki til að stöðva Jöklu. Þær verða þrjár stíflurnar sem mynda munu Hálslón, og allar eru þegar komnar í flokk stærstu mannvirkja hérlendis, því tvær hliðarstíflur eru að verða tilbúnar. 12.10.2006 12:45 Reykjavík verður friðarmiðstöð Borgaryfirvöld vinna að því að gera Reykjavík að miðstöð sáttarstarfs í alþjóðlegum deilumálum með því að koma á fót friðarstofnun í borginni, að því er fram kom í hádegisfréttum RUV. 12.10.2006 12:35 Amish skólinn jafnaður við jörðu Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ. 12.10.2006 12:30 Svigrúm til hækkunar hámarkslána að myndast Félagsmálaráðherra telur að innan skamms verði hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækkuð í 90%. Frá þessu er greint í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis. 12.10.2006 12:24 Tekið tillit til matarskattslækkunar við vaxtaákvörðun Tekið verður tillit til lækkunar matarskatts við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans um mánaðamótin, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Hann segir að skattalækkunin auki spennu en það sé þó til bóta að lækkunin komi ekki til framkvæmda fyrr en næsta vor þegar væntingar séu um að verðbólgan hafi hjaðnað töluvert. 12.10.2006 12:19 Hvalreki í Hrútafirði Hvalreka er að finna í landi Stóru-Hvalsár í Hrútafirði, í nágrenni við réttina. Á myndinni má sjá hvalinn liggjandi á flúru skammt frá landi. 12.10.2006 12:00 Hefja morgunflug til Bandaríkjanna Icelandair ætlar að fljúga á þrjá nýja staði og hefja morgunflug til Bandaríkjanna á næsta ári, en leggja niður flug til San Fransisco. 12.10.2006 12:00 Ban verður eftirmaður Annans Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu. 12.10.2006 11:56 Styrktaruppboð fyrir Ómar Ragnarsson 12.10.2006 11:52 Standa saman að frumvarpi um að gefa megi samkynhneigða saman Frumvarp sem heimilar prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga sem hafa vígsluheimild, að gefa saman samkynhneigða í staðfesta samvist hefur verið lagt fram á Alþingi. Sem kunnugt er náðist ekki samkomulag um þetta atriði þegar samstaða var um umtalsverðar réttarbætur í málefnum samkynhneigðra í vor vegna andstöðu kirkjunnar. 12.10.2006 11:46 Björgólfur Thor kemur hvergi nærri tilboðinu í West Ham 12.10.2006 11:25 Harma að fjármagn sé ekki eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda fagnar nýjum samingi milli Ríkisútvarpsins og Menntamálaráðuneytisins um aukinn hlut íslensks dagskrárefnis í Ríkissjónvarpinu á næstu fimm árum. Í ályktun frá stjórninni er það hins vegar harmað að í samningnum sé hvorki fjármagn né útsendingarhlutfall eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni. 12.10.2006 11:05 Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. 12.10.2006 11:03 Forval VG á höfuðborgarsvæðinu 2. desember Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að forval flokksins vegna þingkosninga í vor í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður og Suðvesturkjördæmi verði haldið þann 2. desember. 12.10.2006 11:00 Afli meiri í upphafi nýs fiskveiðiárs en í fyrra Nýtt fiskveiðiár virðist hefjast ágætlega því aflinn í nýliðnum september var um 86.500 tonn sem er tæplega 22 þúsund tonnum meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta sýna nýjar tölur Fiskistofu. 12.10.2006 10:45 Flug milli Eyja og Selfoss hefst á næstunni Áætlunarflug á milli Vestmannaeyja og Selfoss hefst um leið og búið verður að endurnýja starfsleyfi fyrir Selfossflugvöll sem rann út fyrir tæpri viku. Flugfélag Vestmannaeyja hyggst fljúga á þessari leið og verður þetta fyrsta áætlunarflug um Selfossvöll til þessa. 12.10.2006 10:32 Samkeppniseftirlitið samþykkir samruna Exista og VÍS Samkeppnistofnun hefur lagt blessun sína yfir samruna Exista og VÍS. Exista keypti ríflega 80 prósenta hlut í VÍS í sumar og á Exista og dótturfélög þess nú nánast allt hlutafé í VÍS. 12.10.2006 10:24 Forstjóri Umhverfisstofnunar svarar gagnrýnni úttekt Ríkisendurskoðunar Davíð Egilson, forstjóri Umhverfisstofnunar, gerir verulegar athugasemdir við aðferðir og framkvæmd Stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar á starfsemi Umhverfisstofnunar. Hann segir vanta í úttektina útlistun á því hvernig úttektin var framkvæmd og hvaða gögn voru lögð til grundvallar. Fyrir vikið sé erfitt að greina milli staðreynda og huglægra atriða. Davíð segir að sumar tilvitnanir séu ekki rétt eftir hafðar þrátt fyrir óskir um leiðréttingar. 12.10.2006 10:15 Police to carry guns 12.10.2006 10:12 Samþykkti umdeilt frumvarp um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem gerir það refsivert að neita því að Armenar hafi sætt þjóðernishreinunum af hálfu Ottómanaveldis Tyrkja árið 1915. Tyrkir hafa mótmælt þessari lagasetningu hástöfum og segja að hún muni skaða samskipti þjóðanna. 12.10.2006 10:11 Segir starfsmann Landssímans hafa staðfest hleranir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að fyrrverandi yfirmaður í tæknideild Landssíma Íslands hafi hringt í sig í gærkvöld og staðfest að sími Jóns hefði verið hleraður þegar hann var ráðherra. Þetta kom fram í viðtali við Jóhann Hauksson í þættinum Morgunhaninn á Útvarpi Sögu í morgun. 12.10.2006 09:56 Forsetinn fékk fyrsta eintakið Forseti Íslands tók í dag við fyrsta eintakinu af bókinni og geisladisknum "Ljóð í sjóð", sem MND-félagið gefur út. Í bókinni eru ljóð og myndlist eftir alla helstu listamenn þjóðarinnar og á geisladisknum eru lög sem tónlistarmenn gáfu félaginu. MND, eða hreyfitaugahrörnun, er ólæknandi sjúkdómur en um sex Íslendingar greinast með MND á hverju ári. 11.10.2006 20:46 Tap fyrir Svíum Íslenska landsliðið tapaði 2-1 fyrir Svíum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi 1-1. Íslenska liðið var mun sterkari aðilinn í síðustu mínúturnar og átti Eiður Smári Guðjohnsen meðal annars skot í slá sænska marksins. 11.10.2006 20:15 Davíð trúir ekki á að Jón Baldvin hafi verið hleraður Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra leggur lítinn trúnað á fullyrðingar Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra um að sími hans hafi verið hleraður í tíð Viðeyjarstjórnarinnar enda hafi sérfræðingar frá NATO og norsku öryggislögreglunni yfirfarið símann árlega. Davíð telur illboðlegt að hafa ekki sýnilegar varnir á Íslandi og hefði sjálfur sagt upp varnarsamningnum. Hann álasar þó ekki eftirmanni sínum fyrir samninginn sem undirritaður var í Washington í dag - en kallar hann bútasaum. 11.10.2006 19:29 Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. 11.10.2006 19:10 Við sýndum hugrekki, visku og ábyrgð Mikhail Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, kom til landsins í dag. Á morgun, 12 október, eru 20 ár síðan leiðtogafundur hans og Ronald Reagans, fyrrum Bandaríkjaforseta, var haldinn í Höfða. Einkavél Björgólfs Thórs Björgólfssonar forstjóra Novators lenti með Gorbosjov á Reykjavíkurflugvelli um klukkan 16:00. Gorbasjov sagði meðal annars í viðtali sem Þórir Guðmundsson, varafréttastjóri NFS, átti við hann í dag og flutt verður ás NFS í kvöld, að leiðtogafundurinn 12. október 1986 í Reykjavík hafi markað þáttaskil í viðræðum um takmörkun kjarnorkuvopna. 11.10.2006 18:16 "Farvegur þjóðarsáttar, " segir iðnaðarráðherra um tillögur auðlindanefndar "Farvegur þjóðarsáttar um viðkvæmt deilumál," segir iðnaðarráðherra um tillögur auðlindanefndar um verndun og nýtingu auðlinda sem kynntar voru í dag. Fulltrúar stjórnarandstöðu í nefndinni gerðu þó athugasemdir við hvernig rannsóknarleyfum um nýtingu jarðhita og vatnsafls verður úthlutað fram til ársins 2009 11.10.2006 18:06 Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengið ofbeldi og nauðganir Karlmaður á sextugsaldri, Jón Pétursson, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa ítrekað nauðgað fyrrverandi unnustu sinni og svipt hana frelsi og fyrir að hafa ráðist á aðra fyrrverandi sambýliskonu sína með ofbeldi í þrígang. 11.10.2006 17:39 Veita um 70 milljónir í friðarsjóð SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita framlag sem nemur einni milljón bandaríkjadala, um 70 milljónum króna til sérstaks sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðshrjáðum löndum (Peacebuilding Fund). 11.10.2006 17:01 Danir bíða föstudagsins með kvíða 11.10.2006 16:53 Skrifað undir varnarsamning í Washington - Rice heimsækir Ísland Geir H. Haarde forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skrifuðu undir nýtt samkomulag milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í Washington nú á fimmta tímanum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var einnig viðstaddur undirritunina. 11.10.2006 16:52 Sjá næstu 50 fréttir
Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. 12.10.2006 15:20
Fjármálaráðherra ætlar ekki að víkja sæti Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur hafnað kröfu Öryrkjabandalags Íslands um að hann, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins og aðrir starfsmenn ráðuneytisins víki sæti við meðferð á máli sem lýtur að staðfestingu á breytingum á samþykktum Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. 12.10.2006 15:01
Borgarráð samþykkir að selja Fríkirkjuveg 11 Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að selja húsið að Fríkirkjuvegi 11, sem áður var einbýlishús Thors Jensens athafnamanns. Þar hafa um árabil verið höfuðstöðvar Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar en í tillögunni sem lögð var fyrir á fundi borgarráðs er gert ráð fyrir því að fundið verði nýtt húsnæði fyrir þá starfsemi. 12.10.2006 14:35
Skattbyrðin hækkaði langmest á Íslandi á síðasta ári Skattbyrðin á Íslandi miðað við landsframleiðslu, hækkaði meira á síðasta ári en í nokkru öðru OECD landi, samkvæmt nýrri úttekt OECD. 12.10.2006 14:25
Gorbatsjov aftur í Höfða eftir tuttugu ár Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Svoétríkjanna, sneri aftur í Höfða nú í hádeginu, tuttugu árum eftir að hann og Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, komu þar saman til fundar til að ræða afvopnunarmál stóveldanna tveggja. 12.10.2006 14:20
Ekið á mann á Akureyri Ekið var á mann við bílaleigu á Akureyri rétt eftir hádegi í dag. Maðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en hann var með áverka á fæti. 12.10.2006 14:03
83 teknir fyrir hraðakstur í borginni í gær Lögreglan í Reykjavík tók í gær 83 ökumenn fyrir hraðakstur í borginni. Lögregla var víða við hraðamælingar og nýtti meðal annars myndavélabíl sinn óspart eftir því sem fram kemur á vef hennar. 12.10.2006 13:49
Innflutt vinnuafl aldrei eins mikið Innflutningur á erlendu vinnuafli hefur aldrei mælst eins mikil og í september eða tæplega eitt þúsund manns. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa um 4.400 nýir erlendir starfsmenn verið skráðir á íslenskum vinnumarkaði. Allt árið í fyrra voru 3.900 erlendir starfsmenn skráðir. 12.10.2006 13:44
Himnesk hollusta innkallar döðlur vegn mítla Fyrirtækið Himnesk hollusta hefur innkallað lífrænt ræktaðar döðlur sem það selur vegna svokallaðra mítla sem fundist hafa í þeim. Um er að ræða 250 og 400 gramma bakka með döðlum sem eru bestar fyrir 30.05.07 og 31.07.07. 12.10.2006 13:33
Myndband veldur pólitískri deilu Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim. 12.10.2006 13:03
Ólöf Nordal sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi Ólöf Nordal, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum í vor. 12.10.2006 13:00
Hinar tvær stíflurnar að klárast Ein risastífla við Kárahnjúka dugar ekki til að stöðva Jöklu. Þær verða þrjár stíflurnar sem mynda munu Hálslón, og allar eru þegar komnar í flokk stærstu mannvirkja hérlendis, því tvær hliðarstíflur eru að verða tilbúnar. 12.10.2006 12:45
Reykjavík verður friðarmiðstöð Borgaryfirvöld vinna að því að gera Reykjavík að miðstöð sáttarstarfs í alþjóðlegum deilumálum með því að koma á fót friðarstofnun í borginni, að því er fram kom í hádegisfréttum RUV. 12.10.2006 12:35
Amish skólinn jafnaður við jörðu Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ. 12.10.2006 12:30
Svigrúm til hækkunar hámarkslána að myndast Félagsmálaráðherra telur að innan skamms verði hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækkuð í 90%. Frá þessu er greint í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis. 12.10.2006 12:24
Tekið tillit til matarskattslækkunar við vaxtaákvörðun Tekið verður tillit til lækkunar matarskatts við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans um mánaðamótin, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Hann segir að skattalækkunin auki spennu en það sé þó til bóta að lækkunin komi ekki til framkvæmda fyrr en næsta vor þegar væntingar séu um að verðbólgan hafi hjaðnað töluvert. 12.10.2006 12:19
Hvalreki í Hrútafirði Hvalreka er að finna í landi Stóru-Hvalsár í Hrútafirði, í nágrenni við réttina. Á myndinni má sjá hvalinn liggjandi á flúru skammt frá landi. 12.10.2006 12:00
Hefja morgunflug til Bandaríkjanna Icelandair ætlar að fljúga á þrjá nýja staði og hefja morgunflug til Bandaríkjanna á næsta ári, en leggja niður flug til San Fransisco. 12.10.2006 12:00
Ban verður eftirmaður Annans Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu. 12.10.2006 11:56
Standa saman að frumvarpi um að gefa megi samkynhneigða saman Frumvarp sem heimilar prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga sem hafa vígsluheimild, að gefa saman samkynhneigða í staðfesta samvist hefur verið lagt fram á Alþingi. Sem kunnugt er náðist ekki samkomulag um þetta atriði þegar samstaða var um umtalsverðar réttarbætur í málefnum samkynhneigðra í vor vegna andstöðu kirkjunnar. 12.10.2006 11:46
Harma að fjármagn sé ekki eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda fagnar nýjum samingi milli Ríkisútvarpsins og Menntamálaráðuneytisins um aukinn hlut íslensks dagskrárefnis í Ríkissjónvarpinu á næstu fimm árum. Í ályktun frá stjórninni er það hins vegar harmað að í samningnum sé hvorki fjármagn né útsendingarhlutfall eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni. 12.10.2006 11:05
Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. 12.10.2006 11:03
Forval VG á höfuðborgarsvæðinu 2. desember Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að forval flokksins vegna þingkosninga í vor í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður og Suðvesturkjördæmi verði haldið þann 2. desember. 12.10.2006 11:00
Afli meiri í upphafi nýs fiskveiðiárs en í fyrra Nýtt fiskveiðiár virðist hefjast ágætlega því aflinn í nýliðnum september var um 86.500 tonn sem er tæplega 22 þúsund tonnum meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta sýna nýjar tölur Fiskistofu. 12.10.2006 10:45
Flug milli Eyja og Selfoss hefst á næstunni Áætlunarflug á milli Vestmannaeyja og Selfoss hefst um leið og búið verður að endurnýja starfsleyfi fyrir Selfossflugvöll sem rann út fyrir tæpri viku. Flugfélag Vestmannaeyja hyggst fljúga á þessari leið og verður þetta fyrsta áætlunarflug um Selfossvöll til þessa. 12.10.2006 10:32
Samkeppniseftirlitið samþykkir samruna Exista og VÍS Samkeppnistofnun hefur lagt blessun sína yfir samruna Exista og VÍS. Exista keypti ríflega 80 prósenta hlut í VÍS í sumar og á Exista og dótturfélög þess nú nánast allt hlutafé í VÍS. 12.10.2006 10:24
Forstjóri Umhverfisstofnunar svarar gagnrýnni úttekt Ríkisendurskoðunar Davíð Egilson, forstjóri Umhverfisstofnunar, gerir verulegar athugasemdir við aðferðir og framkvæmd Stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar á starfsemi Umhverfisstofnunar. Hann segir vanta í úttektina útlistun á því hvernig úttektin var framkvæmd og hvaða gögn voru lögð til grundvallar. Fyrir vikið sé erfitt að greina milli staðreynda og huglægra atriða. Davíð segir að sumar tilvitnanir séu ekki rétt eftir hafðar þrátt fyrir óskir um leiðréttingar. 12.10.2006 10:15
Samþykkti umdeilt frumvarp um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem gerir það refsivert að neita því að Armenar hafi sætt þjóðernishreinunum af hálfu Ottómanaveldis Tyrkja árið 1915. Tyrkir hafa mótmælt þessari lagasetningu hástöfum og segja að hún muni skaða samskipti þjóðanna. 12.10.2006 10:11
Segir starfsmann Landssímans hafa staðfest hleranir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að fyrrverandi yfirmaður í tæknideild Landssíma Íslands hafi hringt í sig í gærkvöld og staðfest að sími Jóns hefði verið hleraður þegar hann var ráðherra. Þetta kom fram í viðtali við Jóhann Hauksson í þættinum Morgunhaninn á Útvarpi Sögu í morgun. 12.10.2006 09:56
Forsetinn fékk fyrsta eintakið Forseti Íslands tók í dag við fyrsta eintakinu af bókinni og geisladisknum "Ljóð í sjóð", sem MND-félagið gefur út. Í bókinni eru ljóð og myndlist eftir alla helstu listamenn þjóðarinnar og á geisladisknum eru lög sem tónlistarmenn gáfu félaginu. MND, eða hreyfitaugahrörnun, er ólæknandi sjúkdómur en um sex Íslendingar greinast með MND á hverju ári. 11.10.2006 20:46
Tap fyrir Svíum Íslenska landsliðið tapaði 2-1 fyrir Svíum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi 1-1. Íslenska liðið var mun sterkari aðilinn í síðustu mínúturnar og átti Eiður Smári Guðjohnsen meðal annars skot í slá sænska marksins. 11.10.2006 20:15
Davíð trúir ekki á að Jón Baldvin hafi verið hleraður Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra leggur lítinn trúnað á fullyrðingar Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra um að sími hans hafi verið hleraður í tíð Viðeyjarstjórnarinnar enda hafi sérfræðingar frá NATO og norsku öryggislögreglunni yfirfarið símann árlega. Davíð telur illboðlegt að hafa ekki sýnilegar varnir á Íslandi og hefði sjálfur sagt upp varnarsamningnum. Hann álasar þó ekki eftirmanni sínum fyrir samninginn sem undirritaður var í Washington í dag - en kallar hann bútasaum. 11.10.2006 19:29
Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. 11.10.2006 19:10
Við sýndum hugrekki, visku og ábyrgð Mikhail Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, kom til landsins í dag. Á morgun, 12 október, eru 20 ár síðan leiðtogafundur hans og Ronald Reagans, fyrrum Bandaríkjaforseta, var haldinn í Höfða. Einkavél Björgólfs Thórs Björgólfssonar forstjóra Novators lenti með Gorbosjov á Reykjavíkurflugvelli um klukkan 16:00. Gorbasjov sagði meðal annars í viðtali sem Þórir Guðmundsson, varafréttastjóri NFS, átti við hann í dag og flutt verður ás NFS í kvöld, að leiðtogafundurinn 12. október 1986 í Reykjavík hafi markað þáttaskil í viðræðum um takmörkun kjarnorkuvopna. 11.10.2006 18:16
"Farvegur þjóðarsáttar, " segir iðnaðarráðherra um tillögur auðlindanefndar "Farvegur þjóðarsáttar um viðkvæmt deilumál," segir iðnaðarráðherra um tillögur auðlindanefndar um verndun og nýtingu auðlinda sem kynntar voru í dag. Fulltrúar stjórnarandstöðu í nefndinni gerðu þó athugasemdir við hvernig rannsóknarleyfum um nýtingu jarðhita og vatnsafls verður úthlutað fram til ársins 2009 11.10.2006 18:06
Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengið ofbeldi og nauðganir Karlmaður á sextugsaldri, Jón Pétursson, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa ítrekað nauðgað fyrrverandi unnustu sinni og svipt hana frelsi og fyrir að hafa ráðist á aðra fyrrverandi sambýliskonu sína með ofbeldi í þrígang. 11.10.2006 17:39
Veita um 70 milljónir í friðarsjóð SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita framlag sem nemur einni milljón bandaríkjadala, um 70 milljónum króna til sérstaks sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðshrjáðum löndum (Peacebuilding Fund). 11.10.2006 17:01
Skrifað undir varnarsamning í Washington - Rice heimsækir Ísland Geir H. Haarde forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skrifuðu undir nýtt samkomulag milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í Washington nú á fimmta tímanum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var einnig viðstaddur undirritunina. 11.10.2006 16:52