Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Múslimar reiðir Dönum Ný Múhameðsmyndadeila gæti verið í uppsiglingu eftir að fréttir bárust af því að ungliðar í Danska þjóðarflokknum hefðu haft spámanninn að háði og spotti. Formaður flokksins segir að um saklaust grín hafi verið að ræða en múslimar í Arabaheiminum hóta aðgerðum. 8.10.2006 18:52
Fjórir létust í sprengingu í Bagdad Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja sprakk við vegkant nálægt Tíkrit í Írak í dag. Þeir slösuðu vrou fluttir á Tæknisjúkrahúsið í Tíkrit. Sprengjan sprakk um hundrað og þrjátíu kílómetra norður af Bagdad. 8.10.2006 18:39
Landlæknir treystir yfirlækni á Sogni Matthías Halldórsson, starfandi landlæknir telur að það þurfi að bæta aðstöðu og fjölga plássum á réttargeðdeildinni að Sogni. Hann segist treysta dómgreind yfirlæknisins á Sogni sem varð að senda geðsjúkan afbrotamann í leyfi til þess að losa pláss vegna bráðainnlagnar. 8.10.2006 18:37
Sáttaviðræður milli DV og Jónínu Ben Málflutningi í máli sem Jónína Benediktsdóttir höfðaði gegn DV vegna umfjöllunar um einkalíf hennar var frestað í vikunni vegna tilboðs um að dómsátt yrði gerð í málinu. Í tilboðinu felst að fjölmiðillinn greiði Jónínu bætur og biðji hana afsökunar á umfjölluninni. 8.10.2006 18:34
Litháar vísa grunuðum njósnara úr landi Litháísk stjórnvöld eru sögð hafa rekið hátt settan starfsmann rússneska sendiráðsins úr landi í dag vegna gruns um njósnir. 8.10.2006 17:57
Reykingar bannaðar í Frakklandi Frakkar ætla að banna reykingar á öllum opinberum stöðum frá 1. febrúar á næsta ári. Bannið tekur einnig til veitingastaða, skemmtistaða og hótela. Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakka tilkynnti þetta í dag. 8.10.2006 17:30
Íranar vanir hótunum Utanríkisráðherra Írana sagði í dag Írana vana hótunum um refsiaðgerðir og að þær hefðu engin áhrif á áform þeirra um að auðga Úran. 8.10.2006 17:15
Fundað eftir helgi vegna uppsagna starfsmanna Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði ætlar að funda eftir helgi um uppsagnir þriggja starfsmanna hjá Alcan. Rafiðnaðarsamband Íslands hótaði því fyrir helgi að beita sér gegn stækkun álversins í Straumsvík vegna uppsagna þriggja starfsmanna hjá Alcan fyrir helgi. 8.10.2006 16:56
Íslenskar mjólkurafurðir kynntar í Bandaríkjunum Íslenskar mjólkurafurðir hafa síðustu daga verið kynntar verslunum Whole foods market í Washington. Á heimasíðu Landssambands kúabænda segir að íslensku vörurnar hafi hlotið góðar viðtökur. 8.10.2006 16:39
Valgerður vill áfram leiða í Norðausturkjördæmi Tvöfalt kjördæmisþing kemur til með að velja á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Þingið verður haldið 13. janúar og munu fulltrúar þar raða í tíu efstu sætinu á listanum. Valgerður Sverrisdóttir leiddi lista flokksins í kjördæminu í síðustu kosningum. Í samtali við NFS sagði Valgerður að hún gæfi að sjálfsögðu kost á sér fyrir komandi kosningar. 8.10.2006 15:50
Katrín vill leiða lista Katrín Jakobsdóttir, varaþingmaður Vinstri-grænna, sækist eftir efsta sæti sameiginlegu prófkjöri flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum og í Suðvesturkjördæmi. Katrín hefur verið varaformaður flokksins frá árinu 2003 en hún var varaborgarfulltrúi Reykjarvíkurlistans á síðasta kjörtímabili. Prófkjörið verður haldið 2. desember næstkomandi. 8.10.2006 15:15
Grbavica verðlaunuð á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Grbavica hlaut í gærkvöldi aðalverðalaun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar. Myndin er eftir Jasmila Zbanic. Grbavica heitir eftir samnefndu hverfi í Bosníu. Í tilkynningu frá hátíðinni segir að myndin sé raunsæ og áhrifamikil en hún tekur á erfiðleikum eftirstríðsáranna í Bosníu. 8.10.2006 15:09
Stillt upp hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjördæmi Stillt verður upp á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið á kjördæmaráðsþingi flokksins sem fer fram á Ísafirði nú um helgina. 8.10.2006 15:04
Birkir Jón sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sækist eftir 2. sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Birkir lýsti þessu yfir á kjördæmaráðsþingi flokksins sem nú stendur yfir á Djúpavogi. 8.10.2006 14:32
Réttað í Þverárrétt Búið er að rétta um mest allt land en í dag fara einar síðustu réttir haustsins fram í Eyjafjarðarsveit. Réttað er í Þverárrétt í dag og hófust stóðréttir þar klukkan tíu í morgun. 8.10.2006 14:09
Skiluðu rússneska fánanum Tveir karlmenn um tvítugt skiluðu skömmu fyrir hádegi í dag rússneskum fána sem þeir stálu af lóð rússneska sendiráðsins. Mennirnir skiluðu fánanum á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Teknar voru af þeim skýrslur en þeir ásamt þriðja manninum brutust inn á lóð rússneska sendiráðsins við Túngötu aðfaranótt laugardags, eftir að hafa verið að skemmta sér í miðborg Reykjavíkur. Rússneska sendiráðið lítur málið alvarlegum augum 8.10.2006 13:46
Geta ekki notað eigin tungu á veitingastöðum Talið er að um 2000 útlendingar starfi hér réttindalausir á svörtum markaði. Formaður Matvíss er uggandi fyrir hönd félagsmanna sinna og segir fyrir neðan allar hellur að geta ekki notað eigin tungu á veitingastöðum á Íslandi. 8.10.2006 13:29
Vier Minuten hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar Kvikmyndin Vier Minuten eftir Chris Kraus hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar en verðlaunin er nú veitt í fyrsta sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2006. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands veitti verðlaunin. 8.10.2006 12:59
Mercedes Benz sigraði í sparaksturskeppni Mercedes Benz 180 CDI sigraði í sparaksturkeppni sem haldin var í gær. Þessi fólksbíll frá Benz eyddi rétt rúmum þremur lítrum á hundraði, sem þykir einkar góður árangur. 8.10.2006 12:26
Orka virkjana í Skagafirði einungis nýtt innan héraðs Baráttusamtök hafa verið stofnuð í Skagafirði gegn virkjun fallvatna héraðsins. Hugmyndir sveitarstjórnar Skagafjarðar eru háðar því skilyrði að orkan verði einungis nýtt innan héraðs, samkvæmt sérstakri bókun. Í henni segir að það sé samfélagsleg skylda að meta alla möguleika til eflingar atvinnu- og mannlífs í Skagafirði. 8.10.2006 12:16
Verið að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfiði Næstu daga verður lokið við nýja tvöfalda Reykjanesbraut í Hafnarfirði norður fyrir mislæg gatnamót við Urriðaholt. Á fjórða ár eru liðið frá því framkvæmdir hófust við breikkun Reykjanesbrautar. 8.10.2006 11:54
Harðir bardagar í Diwaniya Bandarískar og íraskar hersveitir felldu tuttugu liðsmenn úr herflokki sjíaklerksins Muqtada al-Sadr í hörðum bardaga í borginni Diwaniya í nótt. 8.10.2006 11:30
Abe kominn til Kína Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er staddur í Kína í fyrstu opinberu heimsókn japansks leiðtoga þangað í fimm ár. Frá Kína mun Abe svo halda til Suður-Kóreu. 8.10.2006 11:00
Keyrði ölvaður á stólpa Rúmlega tvítugur karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús á áttunda tímanum í morgun eftir að hafa ekið á stólpa við Breiðhöfða. Maðurinn er grunaður um ölvun við akstur. 8.10.2006 10:45
Í óformlegum viðræðum við ETA Fulltrúar aðskilnaðarsamtaka Baska, ETA, og spænsku ríkisstjórnarinnar hafa átt í leynilegum könnunarviðræðum að undanförnu í Noregi. 8.10.2006 10:41
Kalvitis lýsir yfir sigri Ríkisstjórnin í Lettlandi hélt velli í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær, þeim fyrstu frá því ríkið gekk í Evrópusambandið fyrir rúmum tveimur árum. 8.10.2006 10:30
Bílvelta á Reykjanesbraut Beita þurfti klippum til að ná ökumanni fólksbíls, sem valt á Reykjanesbrautinni í nótt, út úr bílnum. Maðurinn var einn í bílnum og reyndist hann lítið slasaður. 8.10.2006 10:15
Ár liðið frá Kasmír-skjálftanum Þess er minnst víða um heim að ár er liðið frá jarðskjálftanum mikla í Kasmír sem 75.000 létu lífið í. 8.10.2006 10:03
Vöknuðu við hávaðann í reykskynjara Reykskynjari gæti hafa bjargað lífi hjóna á fimmtugsaldri þegar eldur kom upp í íbúðarhúsinu Búlandi, skammt sunnan Hjalteyrar við Eyjafjörð, laust fyrir klukkan sjö í morgun. Hjónin, sem eru 45 og 47 ára, vöknuðu við hávaðann í reykskynjaranum. Þau komust sjálf út úr brennandi húsinu og hringdu síðan eftir hjálp. 8.10.2006 10:00
Alvarlega slasaður eftir árekstur á Kringlumýrarbraut Ökumaður fólksbifreiðar er alvarlega slasaður eftir bílslys á Kringlumýrarbraut í kvöld. Hann er fótbrotinn á báðum fótum en er ekki talinn í lífshættu. 7.10.2006 21:08
Skilningsleysi gagnvart Sogni Magnús Skúlason, yfirlæknir á réttargæsludeildinni að Sogni sakar stjórnvöld um skilningsleysi á málefnum deildarinnar en í eitt ár hafa átta geðsjúkir afbrotamenn verið þar í vistun þó að einungis séu sjö sjúkrarúm á deildinni. Fyrir viku varð að losa eitt rúm vegna bráðainnlagnar og var þá pláss losað með því að senda vistmann í ótímabundið leyfi. 7.10.2006 19:01
Fengu ekkert í samningum við Bandaríkjastjórn Íslendingar fengu ekkert í samningum við Bandaríkjastjórn umfram það sem NATO-aðild veitir, að mati Michaels Corgans, prófessors við Boston-háskóla. Hann telur að Bandaríkjamenn hafi komið fram af mikilli óbilgirni í uppgjöri þjóðanna í varnarmálum. 7.10.2006 18:57
Sala á helmingi Icelandair Fjárfestingahópur með rætur í Sambandsarmi atvinnulífsins verður kjölfestan í nýjum eigendahópi Icelandair. Félagið hefur fengið nafnið Langflug en um helgina er unnið að því að ganga frá sölu til þess og annarra fjárfesta á meirihluta í flugfélaginu og tengdum rekstri. 7.10.2006 18:54
Sækja mannskap á nýju þyrluna frá Noregi Landhelgisgæslan fékk í dag nýja þyrlu, sem er sömu gerðar og TF-LÍF og er hún leigð frá Noregi. Tveir norskir flugmenn komu með þyrlunni og koma þeir til með að starfa hér á landi næsta árið þar sem Gæsluna skortir þjálfaðan mannskap. 7.10.2006 18:51
15 ára á bíl foreldra sinna Lögreglan á Akureyri hafi í dag afskipti af 15 ára stúlku sem var að aka um bæinn á bíl foreldra sinna. Eftir að hafa stöðvað stúlkuna ók lögreglan með hana heim til foreldra sinna þar sem hún ræddi við þau. 7.10.2006 18:00
Sleit háspennulínu Lögreglan á Akureyri þurfti í dag að aðstoða mann sem var að flytja bát sinn við bæinn. Hátt mastur var á bátnum sem fór í háspennulínu á Moldhaugahálsi rétt fyrir norðan Akureyri. Þrír strengir slitnuðu við þetta en um sveitalínu er að ræða og fór rafmagn af bæjum í kring. Maðurinn slapp ómeiddur og báturinn að mestu óskemmdur. 7.10.2006 17:52
Kyssti nítján baneitraðar gleraugnaslöngur Taílendingurinn Khum Chaibuddee freistaði þess í dag að komast í Heimsmetabók Guinness fyrir óvenjulegt en lífshættulegt uppátæki (LUM). Hann gerði sér lítið fyrir og kyssti nítján baneitraðar gleraugnaslöngur í beinni útsendingu frá Pattaya-ströndinni í Taílandi. 7.10.2006 17:52
Ný þyrla Gæslunnar komin til landsins Ný leiguþyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan fimm. Hún er sömu gerðar og TF-LÍF, Super Puma, og er leigð frá Noregi. Koma hennar er liður í eflingu Landhelgisgæslunnar í kjölfar brotthvarfs þyrlusveitar Varnarliðsins. Bæði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, voru viðstaddir þegar þyrlan lenti og lýstu þeir yfir mikilli ánægju með hve skamman tíma tók að fá þyrluna til landsins. 7.10.2006 17:15
Hvetja til að jafnréttislögum verði fylgt við uppstillingu á lista Atvinnu- og stjórnmálahópur Femínistafélags Íslands og nemendur stjórnmálaskóla félagsins hvetja til þess að við uppsetningu lista fyrir komandi Alþingiskosningar verði fylgt jafnréttislögum. 7.10.2006 16:45
Sveinn sækist eftir fyrsta sæti í Norðvesturkjördæmi Sveinn Kristinsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, gefur kost á sér í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Sveinn varð varabæjarfulltrúi á Akranesi árið 1990 en var kjörinn bæjarfulltrúi 1994. 7.10.2006 16:30
Dagný sækist ekki eftir endurkjöri Dagný Jónsdóttir alþingismaður sækist ekki eftir sæti á framboðslista Framsóknarflokksins á næsta kjörtímabili. 7.10.2006 16:05
Ný þyrla Landhelgisgæslunnar á leið til landsins Ný þyrla Landhelgisgælunnar er nú á leið til landsins. Hún hélt á stað frá Noregi í morgun og hafði viðkomu á leiðinni í Færeyjum. Reiknað er með að hún lendi við flugskýli Landhelgisgæslunnar um klukkan hálf fimm. Þyrlan verður þriðja þyrla Landhelgisgæslunnar og bætist í hóp TF-LÍF og TF-Sif. 7.10.2006 16:00
Rennslið í Skaftá að ná jafnvægi Rennslið við Sveinstind í Skaftá er að ná jafnvægi eftir hlaup sem hófst í ánni fyrir um 10 dögum. Fréttavefurinn Sudurland.is greinir frá þessu en þar segir að hlaupið hafi aldrei orðið verulegt enda stutt síðan hljóp úr báðum Skaftárkötlum. 7.10.2006 15:45
Flugslys sviðsett á Bíldudalsflugvelli Neyðar- og björgunarsveitaæfing hefur staðið yfir á Bíldudal í dag. Sett var á svið flugslys þar sem flugvél með 21 farþega um borð lenti harkalega á Bíldudalsflugvelli. 7.10.2006 15:15
Slapp ómeiddur eftir bílveltu Ungur karlmaður slapp ómeiddur þegar hann velti bíl sínum, um hádegisbil í dag, við Reyjarskóla í Hrútafirði. Ökumaðurinn var einn í bílnum og er bílinn gjörónýtur. 7.10.2006 15:00