Fleiri
Hamas vill reyna til þrautar að mynda stjórn 6.10.2006 16:54 Þjóðskrá annar nú útgáfu kennitalna Þjóðskrá annar nú útgáfu kennitalna eftir að fór að bera á töfum vegna gríðarlegrar sóknar útlendinga í vinnu hér í sumar. Þjóðskrá afgreiðir nú yfir eitthundrað kennitölubeiðnir á dag. Næstum 4000 útlendingar eða 3.946 útlendingar fengu úthlutað kennitölu hjá Þjóðskrá í ágúst og september. 6.10.2006 16:37 Sjá næstu 50 fréttir
Blaðamenn drepnir í Afganistan Tveir þýskir blaðamenn létu lífið í skotárás í norðurhluta Afganistan fyrr í dag. 7.10.2006 13:17
Mannfall á Srí Lanka Á sjötta tug Tamíl-tígra hafa fallið í bardögum við stjórnarherinn á norðan- og austanverðri Srí Lanka undanfarinn sólarhring. 7.10.2006 13:15
Keldur seldar? Nefnd sem fjallað hefur um málefni Tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði að Keldum, leggur til að reist verði fimm þúsund fermetra bygging í Vatnsmýrinni undir starfsemina og Keldur verði seldar. 7.10.2006 13:14
Tóku saklausan borgara af lífi Bandarískur herlæknir vitnaði fyrir herdómstól í gær hvernig landgönguliðar í herdeild hans tóku íraskan borgara af lífi. 7.10.2006 13:00
Virkjanir hafa mikil áhrif á ferðaþjónustu í Skagafirði Skagafjarðarvirkjanir koma til með að hafa mikil áhrif á ferðaþjónustu ef af þeim verður, að mati eigenda Ferðaþjónustunnar á Bakkaflöt, en flúðasiglingar fyrirtækisins koma þá til með að leggjast af. 7.10.2006 12:45
Spennan magnast á Kóreuskaga Suðurkóreski herinn skaut viðvörunarskotum að hermönnum frá Norður-Kóreu sem fóru yfir landamærin á milli ríkjanna í morgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á næstu dögum. 7.10.2006 12:30
Kaupa Icelandair Líkur eru á því að gengið verði frá sölu á ríflega helmingshlut í Icelandair á næstu dögum, að stærstum hluta til hóps fjárfesta með tengsl við fyrrum Sambandsfyrirtæki. 7.10.2006 12:10
Karlar sofa betur einir Karlar sem sofa einir í rúmi eru hressari á morgnanna og heilastarfsemi þeirra er öflugri en þeirra sem deila rúmi með maka. 7.10.2006 11:45
Sjálfsmorðsárás í Tal Afar Átta létust og sex særðust í bílsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í morgun. Árásin var gerð á eftirlitsstöð lögreglu en engu að síður voru fjórir óbreyttir borgarar í hópi þeirra sem dóu. 7.10.2006 11:30
Líkir aðgerðum við þjóðernishreinsanir Gela Bezhuasvhili, utanríkisráðherra Georgíu, segir að framganga Rússa undanfarna daga gegn Georgíu jaðri við þjóðernishreinsanir. 7.10.2006 11:15
Hátt í fimmtíu bílar eru skráðir í sparaksturskeppni Hátt í fimmtíu bílar eru skráðir í sparaksturskeppni sem hefst við Húsgagnahöllina á Bíldshöfða nú klukkan ellefu. FÍB og Atlantsolía standa að keppninni og geta þeir sem vilja vera með mætt til leiks allt til klukkan hálf eitt. 7.10.2006 11:00
Jón Baldvin ekki í framboði í Suðvesturkjördæmi Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, er ekki á meðal þeirra sem buðu sig fram í prófkjör hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út í gærkvöldi og gefa 19 manns kost á sér. 7.10.2006 10:42
Ríflega helmingshlutur í Icelandair group seldur? Gengið verður frá sölu á ríflega helmingshlut í Icelandair group til hóps fjárfesta um helgina, að því fram kemur í Morgunblaðinu. Þar segir að Finnur Ingólfsson, fyrrverandi forstjóri VÍS fari fyrir hópi fjárfesta sem kaupi 30 prósent í fyrirtækinu en ásamt honum komi einnig að kaupunum þeir Helgi S. Guðmundsson og Þórólfur Gíslason. 7.10.2006 10:35
Skutu viðvörunarskotum á hermenn frá Norður-Kóreu Suður-kóreski herinn lét skjóta viðvörunarskotum á hermenn frá Norður-Kóreu sem sagðir eru hafa farið yfir vopnahléslínuna sem skilur löndin að. Eftir að um 40 skotum hafði verið skotið sneru Norður-Kóreumennirnir við. 7.10.2006 10:15
Sautján ára tekinn í fjórða sinn Sjö voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt og í morgun. Þrír þeirra voru próflausir. Lögreglan svipti einnig ökumann bílprófi sínu sem ók í nótt á 163 kílómetra hraða austarlega á Miklubrautinni. Sautján ára piltur var einnig stöðvaður vegna hraðaaksturs en þetta er í fjórða sinn sem hann er tekinn fyrir of hraðan akstur. 7.10.2006 10:04
Vatnsleki í Bónus í Kringlunni Vatnsleki varð í gærkvöldi í búð Bónus í Kringlunni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á staðinn eftir að vatn bunaði úr úðara á lager og í búðinni. Kúbull hafði brotnað af vatnsslökkvikerfi og fór því úðarinn í gang. Ekki urðu miklar skemmdir. 7.10.2006 10:01
Kringlumýrarbraut lokuð vegna slyss Vegna alvarlegs umferðarslyss hefur lögregla lokað Kringlumýrarbraut til suðurs rétt sunnan við Bústaðabrú. Um bílveltu er að ræða eftir árekstur við annan bíl og er tækjabíll með klippur á vettvangi. Lokun er við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar til suðurs. Umferð sem kemst inn á brautina er vísað upp á Bústaðaveg eða inna á Hamrahlíð. Búast má við að brautin verði lokuð til kl. 20:30 í minnsta lagi. Lögrgela getur ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu. 7.10.2006 19:33
Dæmdur fyrir morð í Írak Bandarískur herlæknir, sem átti þátt í að ræna Íraka og myrða hann, var í kvöld dæmdur í 10 ára fangelsi en mun aðeins afplána eitt ár þar sem hann mun bera vitni gegn félögum sínum, sem ákærðir eru fyrir morðið. 6.10.2006 23:52
Engin leynifangelsi í Þýskalandi Stjórnvöld í Þýskalandi hafa neitað fréttum frá í dag þess efnis að háttsettir liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna, þar á meðal einn höfuðpauranna á bak við hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001, hafi verið í haldið í fangelsi á herstöðvum Bandaríkjahers í Þýskalandi án vitneskju yfirvalda. Það voru bresk samtök sem sérhæfa sig í að veita lögfræðiaðstoð sem greindu frá þessu. Samtökin annast mál margra þeirra sem eru í haldi Bandríkjamanna í Guantanamo-fangabúðunum að Kúbu. 6.10.2006 23:00
19 gefa kost á sér Framboðsfresti vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi lauk kl. 22:00 í kvöld. Alls gefa 19 einstaklingar kost á sér í prófkjörinu. 6.10.2006 22:45
Vélmenni sem læknar skalla Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja til jafnvirði tæplega 240 milljóna íslenskra króna til rannsókna hjá fyrirtæki í Cambridge sem er að þróa vélmenni sem mun vinna gegn skallamyndun. 6.10.2006 22:33
Geimrusl gerði gat á geimferju Geimrusl gerði gat á bandarísku geimferjuna Atlantis þegar hún var á ferð um geiminn í 12 daga. Á leið sinni fóru geimfararnir um borð í Alþjóðlegum geimstöðina og hófu á ný framkvæmdir við hana. Fulltrúar Bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, greindu frá því í dag að rusl sem komst nærri flauginni á leið hennar til jarðar hafi gert gat á hlífar á kæli. 6.10.2006 22:15
Bætur fyrir brottnám Þýskur lögfræðingur hefur ákveðið að fara nýstárlega leið til að afla fleiri viðskiptavina. Hann ætli að sækja fébætur til þýska ríkisins fyrir þá borgara sem geimverur hafi numið á brott. Lögfræðingurinn, Jens Lorek, segirl ljóst að hér sé þörf á lögfræðiaðstoð en fólk veigri sér við því að leita hjálpar af ótta við að það geri sig að fífli fyrir dómstólum. 6.10.2006 22:07
Jakob Frímann sækist eftir 3. sæti Jakob Frímann Magnússon hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út í kvöld. 6.10.2006 21:45
Ragnheiður stefnir á 3. sæti í Kraganum Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ, hefur ákveðið að sækjast eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Prófkjör fer fram 11. nóvember. 6.10.2006 21:30
Ferðir um draugabæ Skoðunarferðir um yfirgefna herstöðina á Miðnesheiði eru nýjasta útspilið í ferðaþjónustu á Suðurnesjum. Þar sem áður var eitt stærsta bæjarfélag landsins eru nú auðar götur og mannlaus hús. Tvær ferðir í draugabæinn á Keflavíkurflugvelli verða farnar á morgun. Fyrsta ferðin var farin í dag og hana fóru eldri borgarar og skólafólk úr Reykjanesbæ. 6.10.2006 21:18
Bardagi að bresta á Bardagi er að bresta á um Skagafjarðarvirkjanir, segir Ómar Ragnarsson, eftir að sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti í gærkvöldi að setja tvær virkjanir, Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun, inn á aðalskipulagstillögu. Ómar segir að Villinganesvirkjun hafi skemmri líftíma en meðal kolanáma þar sem lón hennar fyllist á fáum áratugum. 6.10.2006 20:51
Ekki fengu allir Nyhedsavisen Nýja danska fréttablaðið Nyhedsavisen, sem hóf göngu sína í morgun, stendur ekki undir hástemmdum loforðum stjórnenda um byltingarkennt dagblað, að mati lektors í danska blaðamannaháskólanum. Erfiðleikar hrjáðu blaðið á fyrsta degi, því vegna bilunar í prentvél tókst aðeins að koma helmingi upplagsins í umferð. 6.10.2006 20:45
Framkvæmdastjórn fyrir rektor til mánaðamóta Framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík mun sinna verkefnum Guðfinnu Bjarnadóttur rektors fram til mánaðamóta. Þetta var tilkynnt á fundi rektors með starfsmönnum skólans í dag, en háskólaráð hefur veitt Guðfinnu launalaust leyfi til októberloka, á meðan hún tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 6.10.2006 20:30
ÖBÍ undirbýr málsókn gegn lífeyrissjóðunum Öryrkjabandalagið undirbýr víðtæka málsókn gegn lífeyrissjóðunum vegna stórfelldrar kerfisbundinnar kjaraskerðingar fátækasta fólks landsins. Sjóðirnir hafa ekki sinnt erindi um að eitt prófmál hafi verið höfðað. 6.10.2006 20:15
Mótmæla brottrekstri Rafiðnaðarsamband Íslands hótar því að verkalýðshreyfingin beiti sér gegn stækkun álversins í Straumsvík vegna uppsagna þriggja starfsmanna hjá Alcan í gær. Í ályktun sambandins segir að þrír iðnaðarmenn á aldrinum 58 til 60 ára hafi verið reknir fyrirvaralaust með þeim orðum að fyrirtækið væri ekki ánægt með vinnubrögð þeirra. 6.10.2006 20:00
Stóð af sér vantrauststillögu Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra Ungverjalands, baðst í dag afsökunar á því að hafa ekki tekist á við alvarlegt ástand efnahagsmála í landinu fyrir þingkosningar í apríl. Ríkisstjórn forsætisráðherrans stóð af sér vantrauststillögu. 6.10.2006 19:45
Ratsjárstofnun sögð hafa fylgst með sprengjuflugvélunum Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, segir Ratsjárstofnun hafa fylgst með rússneskum sprengjuflugvélum fyrir viku. Annað kemur fram í dagbókarfærslum flugumferðarstjóra í Keflavík. Ólafur Örn Haraldsson, forstjóri Ratsjárstofnunar, segir að Flugmálastjórn í Reykjavík hafi verið látin vita en vill ekki segja hvenær. Ríkisstjórnin skoðar nú boðskipti milli stofnana sem hafa eftirlit með flugumferð. 6.10.2006 19:45
Enn logar í eiturefnaverksmiðju Búið er að flytja um 17 þúsund manns frá heimilum sínum í smábæ í Norður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum í dag vegna stórbruna í efnaverksmiðju í bænum. Efnaúrgangur er brotinn niður í verksmiðjunni og urðu á bilinu 20 til 30 sprengingar í henni í nótt. 18 slösuðust, þar á meðal lögreglu- og slökkviliðsmaður. 6.10.2006 19:30
Reinfeldt forsætisráðherra, Bildt utanríkisráðherra Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 19:15
Rýmt fyrir enn hættulegri manni Geðsjúkum afbrotamanni, sem dæmdur var á Sogn í kjölfar líkamsárásar og líflátshótana, var sleppt fyrir viku án dómsúrskurðar vegna þess að það þurfti að taka í vistun hættulegri einstakling. Kona sem maðurinn hefur ofsótt á grundvelli ranghugmynda árum saman fékk ekki að vita af lausn mannsins fyrr en hann sendi henni ástarbréf og blóm daginn eftir að honum var sleppt. 6.10.2006 19:09
Sprengi fyrr en síðar Allt eins er búist við því að Norður-Kóreumenn láti verða af því að sprengja kjarnorkusprengju nú um helgina. Í gegnum njósnahnetti hefur sést óvenjuleg umferð á nokkrum stöðum í landinu, sem talin er benda til þess að verið sé að undirbúa tilraunasprengingu. 6.10.2006 19:00
Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Hvalfjarðargöngin hafa verið opnuð á ný eftir að þeim var lokað vegna bílveltu í göngunum á sjötta tímanum síðdegis. 6.10.2006 18:15
19 í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 19 hafa gefið kost á sér fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem haldið verður daganan 27. og 28. október næstkomandi. Framboðsfresturinn rann út kl. 17 í dag. 6.10.2006 18:15
17 gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi 17 gefa kost á sér í 5 efstu sætin á lista Samfylkingarinnar fyrir prófkjör flokksins í Suðurkjördæmi. Prófkjörið verður haldið laugardaginn 4. nóvember og er opið öllum kosningabærum mönnum sem eiga lögheimili í kjördæminu á kjördag. 6.10.2006 18:02
Haniyeh hné niður Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hné niður þar sem hann flutti ræðu á fjöldafundi í Gaza-borg í dag. Haniyeh, sem er 46 ára, þagnaði í miðri setningu og féll í fang aðstoðarmanna sinna sem stóðu á bak við hann. 6.10.2006 17:56
Bíll valt í Hvalfjarðargöngum Lögreglan fékk tilkynningu um bílveltu í Hvalfjarðargöngunum klukkan tíu mínútur yfir fimm síðdegis. Ökumaður mun hafa misst stjórn á fólksbíl sínum og bíllinn farið nokkrar veltur og staðnæmst á hliðinni. Ekki munu vera nein teljandi meiðsl á fólki, að sögn lögreglu. 6.10.2006 17:30
Hagstjórnin gagnrýnd úr öllum áttum Tvenn samtök Starfsgreinasamband Íslands og Samtök fiskvinnslustöðva gagnrýndu hagstjórn ríkisstjórnarinnar á fundum sínum í dag 6.10.2006 17:07
Þjóðskrá annar nú útgáfu kennitalna Þjóðskrá annar nú útgáfu kennitalna eftir að fór að bera á töfum vegna gríðarlegrar sóknar útlendinga í vinnu hér í sumar. Þjóðskrá afgreiðir nú yfir eitthundrað kennitölubeiðnir á dag. Næstum 4000 útlendingar eða 3.946 útlendingar fengu úthlutað kennitölu hjá Þjóðskrá í ágúst og september. 6.10.2006 16:37