Fleiri fréttir Sing Sling in Copenhagen 22.9.2006 11:18
Sjá næstu 50 fréttir
Trilla olíulaus úti fyrir Kópanesi á Vestfjörðum Björgunarbátur frá Patreksfirði var kallaður út í morgun um klukkan níu vegna trillu sem varð olíulaus um sjö sjómílur norður af Kópanesi sem er mitt á milli Arnarfjarðar og Dýrarfjarðar. Ekkert amaði að skipverjanum á trillunni og er gott veður á staðnum. 22.9.2006 11:09
Grunaðir um að hafa skotið á bænahús gyðinga í Osló Lögreglan í Osló í Noregi hefur handtekið fjóra menn sem eru grunaðir um að hafa gert árás á bænahús gyðinga í borginni um síðustu helgi. Skotið var á bænahúsið. Einn þeirra handteknu var tekinn höndum í Þýskalandi síðasta sumar, grunaður um að skipuleggja hryðjuverkaárás þegar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu stóð sem hæst. 22.9.2006 11:00
Launavísitala hækkar um 0,7 prósent milli mánaða Launavísitala í ágúst hækkaði um 0,7 prósent frá fyrri mánuði samkvæmt tölum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 10,6 prósent. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í október 2006 er 6506 stig. 22.9.2006 10:45
Viktor fer ekki í prófkjörsslag Viktor B. Kjartansson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, hyggst ekki gefa kost á sér í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum. 22.9.2006 10:30
Spáir því að verðbólga standi í stað milli mánaða Greiningardeild KB banka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,6 prósent og að verðbólga muni áfram verða 7,6 prósent á ársgrundvelli eins og hún er nú. Segir í verðbólguspá bankans að hækkun á matvöru, fatnaði og húsnæði muni vega þyngst í hækkun vísitölunnar. 22.9.2006 10:15
Íslendingar munu líklega þjálfa heimamenn Íslendingum veður líklega falið að að þjálfa heimamenn til að taka við rekstri flugvallarins í Kabúl í Afganistan. Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu í gær í New York samhliða allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem nú er haldið þar í borg, og kom þetta fram á fundinum, sem Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra, sat. 22.9.2006 10:00
Allt að 113% verðmismunur á hæsta og lægsta verði á ákveðnum tegundum Meðalverð á fiski í fiskbúðum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 10% frá því í janúar samkvæmt nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ og munur á hæsta og lægsta verði á ákveðnum tegundum var allt að 113%. Í átján tilvikum af þeim tuttugu og níu, sem skoðuð voru, var munur á hæsta og lægsta verði um og yfir 50%. Lægsta verðið var oftast í fiskborði Fjarðarkaupa í Hafnarfirði en oftast hæst í Gallerý fiski við Nethyl í Reykjavík. Athygli vekur að hæsta verð var oft í nýju verslanakeðjunni Fiskisögu, þannig að hagkvæmni stærðarinnar virðist ekki vera að skila sér til neytenda í þeim fiskbúðum. 22.9.2006 09:45
Stefnir lífeyrissjóðunum ef ekki verður fallið frá skerðingu Öryrkjabandalag Íslands hyggst stefna þeim lífeyrissjóðum sem hafa ákveðið að skerða eða fella niður lífeyrisgreiðslur til öryrkja ef ekki verður horfið frá þeirri framkvæmd. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar bandalagsins í gær. 22.9.2006 09:30
Benedikt páfi leitar sátta Bendedikt páfi sextándi hefur boðið sendiherra múslimaríkja á fund sinn á mánudaginn í Vatíkaninu. Auk þess hefur hann boðið trúarleiðtogum múslima á Ítalíu á fundinn. Með fundinum ætlar páfi að freista þess að ná sátt við múslima en þeir eru honum margir æfareiðir vegna ummæla hans um Múhameð spámann. 22.9.2006 09:15
Óvenju mikið um árekstra í Reykjavík í gær Óvenju mikið var um árekstra í Reykjavík í gærdag þrátt fyrir hin ákjósanlegustu akstursskilyrði. Frá klukkan sjö í gærmorgun fram til klukkan níu í gærkvöldi urðu 24 árekstrar, þar af einn fimm bíla á Breiðholtsbraut, en engin slasaðist alvarlega. Þau mynduðu löggæslumyndavélar lögreglunnar tugi ökumanna fyrir of hraðan akstur í borginni í gær. 22.9.2006 09:15
Býður sig fram í 2.-3. sæti á lista Samfylkingar í NV-kjördæmi Helga Vala Helgadóttir, fjölmiðlakona og laganemi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Helga Vala hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum en hún er menntaður leikari og hefur starfað við uppfærslur frá útskrift árið 1998, bæði sem leikari og leikstjóri. Hún er gift Grími Atlasyni bæjarstjóra Bolungarvíkur og saman eiga þau fjögur börn. 22.9.2006 09:00
Sumarbústaður brann til kaldra kola Sumarbústaður í Sléttuhlíð, suðaustur af Hafnarfirði, brann til kaldra kola í nótt. Vegfarandi sá reyk langt að og tilkynnti um hann, en þegar slökkviliðið kom á vettvang skömmu síðar var bústaðurinn al elda. Engin hafði verið í honum eða nálægum bústöðum í gærkvöldi. Eldsupptök eru ókunn en lögregla vinnur að rannsókn á vettvangi. 22.9.2006 08:45
Mótmælin fóru friðsamlega fram í nótt Um tíu þúsund manns söfnuðust saman fimmta kvöldið í röð við þinghúsið í Búdapest í Ungverjalandi. 22.9.2006 08:30
Íslensk leyniþjónusta starfrækt fyrir seinni heimsstyrjöld Vísir að íslenskri leyniþjónustu var starfræktur hér á landi frá því skömmu fyrir seinni heimstyrjöldina. Tíu árum síðar beitti Bjarni Benediktsson, þáverandi dómsmálaráðherra, sér fyrir leynilegri öryggisþjónustudeild hjá lögreglustjóraembættinu í nánum tengslum við dómsmálaráðuneytið. Morgunblaðið greinir frá því að þetta komi fram í grein eftir Þór Whitehead, prófessor, sem hann ritar í tímaritið Þjóðmál og kemur út á næstu dögum. 22.9.2006 08:18
Enn í yfirheyrslum vegna afbrota Lögreglan í Keflavík beið í gær eftir að lögreglan í Reykjavík lyki yfirheyrslum yfir tveimur síbrotamönnum, sem Reykjavíkurlögreglan handtók á stolnum jeppa í fyrrinótt eftir að Selfosslögreglan hafði handtekið þá á stolnum fólksbíl tveimur nóttum fyrr. Eftir yfirheyrslur í Keflavík, vegna afbrota mannanna þar í bæ, óskaði lögreglan eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir þeim, sem Héraðsdómur Reykjaness féllst á í gærkvöldi. Þegar það rennur út bíða svo Húsavíkurlögreglan og lögreglan í Borgarnesi eftir að fá að tala við mennina vegna afbrota þeirra í þeim bæjarfélögum. 22.9.2006 08:15
Kröfur um að aftökum verði frestað Fjölmargir baráttumenn fyrir mannréttindum ætla að vaka á götum Jakarta, höfuðborgar Indónesíu, í nótt og mótmæla aftöku þriggja herskárra kristinna manna á Súlavesí-eyju. Ekki er vitað með vissu hvar eða hvenær mennirnir verði teknir af lífi. Þó er talið að þeir verði dregnir fyrir aftökusveit rétt fyrir dögun í fyrramálið. 21.9.2006 23:45
Grunaðir um árás á bænahús gyðinga í Noregi Lögreglan í Oslo í Noregi hefur handtekið fjóra menn sem eru grunaðir um að hafa gert árás á bænahús gyðinga í borginni um síðustu helgi. Skotið var á bænahúsið. 21.9.2006 23:30
Upplausn í pólskum stjórnmálum Íhaldsflokkarnir í Póllandi hafa óvænt bundið enda á óstöðugt ríkisstjórnarsamstarf sitt við vinstriflokk svokallaðarar heimavarnarsinan eftir harðar deilur um fjárlög næsta árs. Allt bendir því til þess að boða þurfi til kosninga í landinu fljótlega. 21.9.2006 23:15
Utanríkisráðherrar NATO funda í New York Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu í dag í New York samhliða allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem nú er haldið þar í borg. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sat fundinn, sem var haldinn til undirbúnings leiðtogafundi bandalagsins í Ríga, höfuðborg Lettlands, í lok nóvember næstkomandi. Rætt var um ástandið í Afganistan og mögulega stækkun NATO. 21.9.2006 23:02
Pyntingar viðgangast enn í Írak Pytingar eru að margra mati umfangsmeira og verra vandamál í Írak en þegar Saddam Hússein var þar forseti. Þetta segir segir Manfred Nowak, helsti sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna í baráttunni gegn pyntingum. 21.9.2006 22:52
3. sæti í keppninni Ungfrú Skandinavía og Eystrasalt Sif Aradóttir, fegurðardrottning Íslands, hreppti 3. sæti í keppninni um tiltilinn ungfrú Skandinavía og Eystrasalt sem haldin var í kvöld. Keppnir um titla tvo frá þessu svæðum voru sameinaðar nýverið og voru þátttakendur frá bæði Norður- og Eystrasaltslöndunum. 21.9.2006 22:42
Erla Ósk Ásgeirsdóttir nýr formaður Heimdallar Erla Ósk Ásgeirsdóttir var í kvöld kjörin formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir starfsárið 2006 til 2007 á fjölmennasta aðalfundi í sögu félagsins. 1550 manns kusu. 21.9.2006 22:31
Óskað eftir áliti dómsmálaráðuneytis Kærunefnd upplýsingamála hefur beðið dómsmálaráðuneytið um álit á því hvort gögn um símhleranir, sem Þjóðskjalasafnið neitar að veita aðgang að, varði virka öryggishagsmuni ríkisins. Ráðuneytið hefur frest fram á miðvikudag til að svara. 21.9.2006 19:34
Hefðin ein aðalástæða þess að launamunur helst óbreyttur Óbreyttur launamunur kynjanna fjórða árið í röð eru mikil vonbrigði, að sögn félags- og jafnréttismálaráðherra Íslands. Þar vísar hann í launakönnun VR sem birt var í gær. Ráðherrann telur hefðina eina aðalástæðu þess að launamunurinn haldist, þrátt fyrir mikla umræðu um jafnréttismál á Íslandi undanfarin ár. 21.9.2006 19:27
Nylon í 1. sæti á breska danslistanum Lag Nylon-söngflokksins vermir efsta sætið á breska danslistanum sem birtur verður í næstu viku. Umboðsmaður stúlknanna segir að ef eitthvað sé lögreglumál, þá séu það þessi tíðindi. 21.9.2006 18:52
365 ná dómssátt vegna umfjöllunar DV 365 miðlar hafa náð dómsátt í máli sem karlmaður höfðaði á hendur Jónasi Kristjánssyni og Mikael Torfasyni, fyrrverandi ritstjórum DV, vegna umfjöllunar blaðsins um manninn sökum þess að hann veiktist af hermannaveiki. 21.9.2006 17:45
Einn handtekinn vegna tilræðis í Gautaborg í gær Lögreglan í Gautaborg í Svíþjóð hefur handtekið einn mann vegna rannsóknar sinnar á sprengjutilræði í miðri borginni í gær. Sænska ríkisútvarpið segir manninn tengjast vélhjólaklúbbnum Banditos. 21.9.2006 17:30
Skonnortan Haukur í Reykjavíkurhöfn Skonnortan Haukur frá Húsavík er nú kominn til Reykjavíkurhafnar í ferð sinni hringinn í kringum landið. Skonnortan hefur siglt með ferðamenn í hvalaskoðun síðastliðin sumur en þetta er í fyrsta sinn sem hún siglir hringinn í kringum landið. 21.9.2006 17:15
Kjarnorkuviðræðum við ESB miðar vel Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sagði í dag að viðræðum við fulltrúa Evrópusambandsins um kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran miðaði vel. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsetans í New York í dag. Hann sagðist vona að ekkert myndi trufla þær viðræður. 21.9.2006 17:07
Sýknaður af ákæru um að hafa móðgað Tyrki Dómstóll í Tyrklandi sýknaði í dag Elif Shafak, þekktasta rithöfund landsins, af ákæru um að hafa móðgað Tyrki með skrifum sínum. Í skáldsögu Shafak er fjallað um morð á Armenum í Tyrklandi á árunum 1915 til 1923. 21.9.2006 17:00
Katrín gefur kost á sér í annað sætið Katrín Júlíusdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sætinu í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi vegna komandi þingkosninga. 21.9.2006 16:30
Rafmagn aftur komið á í Hafnarfirði og nágrenni Rafmagn er aftur komið á í Hafnarfirði, á Álftanesi og í hluta Garðabæjar. Rafmagnsleysið má rekja til þess að verktaki gróf í streng við Vesturgötu í Hafnarfirði og olli það rafmagnsleysinu sem var á milli klukka hálftvö og tíu mínútur yfir þrjú. Nokkurn tíma tók að finna bilunina en um leið og hún var fundin tók skamma stund að koma rafmagni aftur á. 21.9.2006 16:06
Auður Lilja nýr formaður UVG Auður Lilja Erlingsdóttir var kosin formaður Ungra vinstri-grænna á landsfundi samtakanna sem haldinn var í Hveragerði um síðustu helgi. Auður Lilja er 27 ára stjórnmálafræðingur og er að ljúka meistaranámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands í október. 21.9.2006 15:45
Brot á Genfar-sáttmálanum Mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja lagafrumvarp Bush Bandaríkjaforseta um hertari aðgerðir gegn grunuðum hryðjuverkamönnum brjóta gegn ákvæðum Genfar-sáttmálans. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu fimm sérfræðinga til Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. 21.9.2006 15:30
Ómar útilokar ekki framboð Ómar Ragnarsson sjónvarpsmaður sagði í viðtali við NFS í dag að umhverfissinnar ættu að íhuga að bjóða fram lista í þingkosningum í vor. Hann útilokaði ekki að hann myndi sjálfur fara í framboð í þágu umhverfismála. 21.9.2006 15:26
Farið að ráðleggingum Náttúrufræðistofnunar Umhverfisráðherra hefur ákveðið að fara að ráðleggingum Náttúrufræðistofnunar Íslands og leyfa veiði á 45 þúsund rjúpum í haust. Þetta kom fram á blaðamannafundi í umhverfisráðuneytinu í dag. 21.9.2006 15:05
Fjölmargir týnt lífi í óveðri á Indlandi og í Bangladesh Minnst 95 hafa týnt lífi í miklu óveðri sem hefur geisað á Indlandi og í nágrannaríkinu Bangladesh síðustu daga. Mörg hundruð manns hafa slasast. Stormurinn hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar á tveimur svæðum í Vestur-Bengal. 21.9.2006 15:00
Rafmagnslaust sunnarlega á höfuðborgarsvæðinu Rafmagnslaust er í Hafnarfirði, á Álftanesi og í hluta Garðabæjar. Unnið er að því að finna bilun en líklegt er að grafið hafi verið í streng í Garðabæ. Nánari upplýsingar verður hægt að nálgast á heimasíðu Hitaveitu Suðurnesja. 21.9.2006 14:56
Atlantis lenti heilu og höldnu Geimferjan Atlantis lenti heilu og höldnu með sex geimfara innanborðs í Houston í Texas í morgun eftir vel heppnaða ferð í Alþjóðlegum geimstöðinna til að halda áfram framkvæmdum við hana. Ferjunni var lent degi síðar en áætlað var. 21.9.2006 14:45
Innbrot og skemmdarverk í höfuðborginni Nokkrar tilkynningar hafa borist lögreglunni í Reykjavík á síðasta sólarhring vegna innbrota og skemmdarverka. 21.9.2006 14:30
Fimm létust í árásum á Gaza Fimm Palestínumenn létust í tveimur árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í dag. Í annarri árásinni létust þrír unglingar sem voru að gæta geita. 21.9.2006 14:29
Lýsing styrkir Þroskahjálp um tvær milljónir Lýsing hefur ákveðið að styrkja Landsamtökin Þroskahjálp um tvær milljónir króna í tilefni þess að Lýsing fagnar í ár 20 ára afmæli sínu. Fyrirtækið hefur verið aðalstyrktaraðili Þroskahjálpar undanfarin tvö ár og styrkt það um 500 þúsund krónur á ári. 21.9.2006 14:15
Markarfljót breytir farvegi sínum Markarfljót hefur breytt um farveg við Þórólfsfell og rennur nú yfir veginn við rætur fellsins, þannig að ófært er úr Fljótshlíð um Emstruleið inn á Fjallabaksleið syðri. Þessar breytingar komu mönnum í opna skjöldu og voru tveir Spánverjar hætt komnir þegar þeir misstu bílinn út í vatnselginn. 21.9.2006 14:00
Ómar kynnir áherslubreytingar í starfi Ómar Ragnarsson hefur boðað til blaðamannafundar í Gullteigi á Grand Hótel Reykjavík nú klukkan tvö. Þar kynnir hann átta síðna aukablaði sem Hugmyndaflug ehf. gefur út með næsta sunnudagsblaði Morgunblaðsins og sýnir myndbönd sem byggjast á starfi hans við Kárahnjúka í sumar og undanfarin ár. Ómar mun einnig á fundinum segja frá áherslubreytingum sem eru að verða í starfi hans sem frétta- og dagskrárgerðarmaður. Sýnt verður beint frá fundinum á NFS. 21.9.2006 13:50