Fleiri fréttir Kaupþing banki selur hlut í Exista Kaupþing banki hefur selt 6,1% hlut í Exista til alls níu lífeyrissjóða á Íslandi. Þessi hluti samsvarar um 30% af heildareign bankans í félaginu. 1.8.2006 17:59 Líðan mannsins eftir atvikum Líðan unga mannsins, sem slasaðist alvarlega á Sandgerðisvegi í gærkvöldi þegar bíll hans fór útaf og bílbeltið slitnaði, er eftir atvikum góð. Hann er undir eftirliti lækna á gjörgæslu Landspítalans en hann er mikið slasaður. Hann er þó ekki í öndunarvél en hann verður áfram undir eftirliti lækna næstu daga. Hann var einn í bílnum og kastaðist út úr honum eftir að beltið slitnaði. Lögregla og Rannsóknanefnd bílslysa rannsaka tildrög slyssins, og af hverju bílbeltið slitnaði. 1.8.2006 17:57 BSRB stefnir bæjarstjórn Snæfellsbæjar BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar, verði uppsagnir sex starfsmanna sundlauga og íþróttahúsa í sveitarfélaginu ekki dregnar til baka. Uppsagnirnar standa í tengslum við skipulagsbreytingar en BSRB segir kjarasamninga kveða skýrt á um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að fólki sé sagt upp störfum. 1.8.2006 17:52 Tíu ár frá því að Ólafur Ragnar var kjörinn forseti Í dag eru tíu ár síðan Ólafur Ragnar Grímsson tók formlega við embætti forseta Íslands. Það má segja að hver merkisdagurinn reki hvorn annan í þessari viku hjá forsetanum því í gær fékk Dorrit Mousaieff forsætisfrú íslenskan ríkisborgararétt. 1.8.2006 17:51 Í athugun að fjölga Íslendingum á Sri Lanka Sænska utanríkisráðuneytið hefur nú ákveðið að draga alla friðargæsluliða sína frá Sri Lanka. 1.8.2006 17:49 Methagnaður viðskiptabankanna Methagnaður er á rekstri viðskiptabankanna á þessu ári, en fyrstu sex mánuði ársins nam hagnaðurinn rúmlega 72 milljörðum króna. Glitnir hefur aldrei skilað meiri hagnaði og hagnaður KB banka og Landsbanka er meiri en á sama tíma í fyrra. 1.8.2006 17:31 1200 öryrkjar missa lífeyrisbæturnar 1. nóvember Um 1200 öryrkjar munu að líkindum missa allar lífeyrisbætur sínar þann 1. nóvember næstkomandi eftir sérstaka tekjuathugun Greiðslustofu lífeyrissjóða. Bætur 1100 manns til viðbótar skerðast á sama tíma. 1.8.2006 17:11 Hot Destination 1.8.2006 16:18
Sjá næstu 50 fréttir
Kaupþing banki selur hlut í Exista Kaupþing banki hefur selt 6,1% hlut í Exista til alls níu lífeyrissjóða á Íslandi. Þessi hluti samsvarar um 30% af heildareign bankans í félaginu. 1.8.2006 17:59
Líðan mannsins eftir atvikum Líðan unga mannsins, sem slasaðist alvarlega á Sandgerðisvegi í gærkvöldi þegar bíll hans fór útaf og bílbeltið slitnaði, er eftir atvikum góð. Hann er undir eftirliti lækna á gjörgæslu Landspítalans en hann er mikið slasaður. Hann er þó ekki í öndunarvél en hann verður áfram undir eftirliti lækna næstu daga. Hann var einn í bílnum og kastaðist út úr honum eftir að beltið slitnaði. Lögregla og Rannsóknanefnd bílslysa rannsaka tildrög slyssins, og af hverju bílbeltið slitnaði. 1.8.2006 17:57
BSRB stefnir bæjarstjórn Snæfellsbæjar BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar, verði uppsagnir sex starfsmanna sundlauga og íþróttahúsa í sveitarfélaginu ekki dregnar til baka. Uppsagnirnar standa í tengslum við skipulagsbreytingar en BSRB segir kjarasamninga kveða skýrt á um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að fólki sé sagt upp störfum. 1.8.2006 17:52
Tíu ár frá því að Ólafur Ragnar var kjörinn forseti Í dag eru tíu ár síðan Ólafur Ragnar Grímsson tók formlega við embætti forseta Íslands. Það má segja að hver merkisdagurinn reki hvorn annan í þessari viku hjá forsetanum því í gær fékk Dorrit Mousaieff forsætisfrú íslenskan ríkisborgararétt. 1.8.2006 17:51
Í athugun að fjölga Íslendingum á Sri Lanka Sænska utanríkisráðuneytið hefur nú ákveðið að draga alla friðargæsluliða sína frá Sri Lanka. 1.8.2006 17:49
Methagnaður viðskiptabankanna Methagnaður er á rekstri viðskiptabankanna á þessu ári, en fyrstu sex mánuði ársins nam hagnaðurinn rúmlega 72 milljörðum króna. Glitnir hefur aldrei skilað meiri hagnaði og hagnaður KB banka og Landsbanka er meiri en á sama tíma í fyrra. 1.8.2006 17:31
1200 öryrkjar missa lífeyrisbæturnar 1. nóvember Um 1200 öryrkjar munu að líkindum missa allar lífeyrisbætur sínar þann 1. nóvember næstkomandi eftir sérstaka tekjuathugun Greiðslustofu lífeyrissjóða. Bætur 1100 manns til viðbótar skerðast á sama tíma. 1.8.2006 17:11
Mikið álag á Reiknistofu bankanna Mikið álag hefur verið á Reiknisstofu bankanna frá því í gærkvöldi, en í dag eru stærstu mánaðarmót ársins vegna greiðslna hins opinbera á vaxtabótum og ofgreiddum sköttum. 1.8.2006 15:28
BSRB hótar kæru á hendur Snæfellsbæ BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar, verði uppsagnir sex starfsmanna sundlauga og íþróttahúsa í sveitarfélaginu ekki dregnar til baka. Uppsagnirnar standa í tengslum við skipulagsbreytingar en BSRB segir kjarasamninga kveða skýrt á um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að fólki sé sagt upp störfum. 1.8.2006 14:45
Bóluefni gegn offitu hefur jákvæð áhrif á rottur Bandarískir vísindamenn segjast nú hafa þróað bóluefni gegn offitu. Bóluefnið lætur líkamann þróa mótefni gegn grelíni, sem er hormón sem hvetur hungur og þyngdaraukningu. 1.8.2006 14:30
Lögreglan neitar að hafa ekið á mótmælanda Lögreglan á Egilsstöðum vísar á bug ásökunum Ólafs Páls Sigurðssonar um að hafa ekið á hann við fjölskyldubúðir Íslandsvina nálægt Kárahnjúkavirkjun. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, segir að maðurinn hafi verið ógnandi, eins og sjáist á þessari mynd lögreglunnar sem NFS fékk afhenta. 1.8.2006 14:00
Sturla hyggst höggva á hnútinn Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, ætlar að fá utanaðkomandi aðila til að skoða nýtt vaktafyrirkomulag flugumferðarstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. Flugumferðarstjórar funduðu með ráðherra í morgun, en þeir hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktafyrirkomulag tók gildi í vor. 1.8.2006 13:11
Stýrivextir hafa lítil áhrif á þenslu Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans hafa lítil áhrif á þenslu í þjóðfélaginu. Þetta segir Árni Mathiesen fjármálaráðherra. Hann segir Seðlabankann vinna að því að finna áhrifaríkari leið til að slá á þensluna. Þrátt fyrir að stýrivextir Seðlabankans hafi hækkað mikið á þessu ári þá virðist ekkert lát vera á þenslu í þjóðfélaginu. 1.8.2006 13:11
Hjálpargögn komust loks til Kana Bílalest með hjálpargögnum komst til Kana í Líbanon nú í morgun, þrátt fyrir að Ísraelar haldi loftárásum sínum áfram í Líbanon. Ísraelskur landher sækir nú lengra inn í Suður-Líbanon til að berjast gegn skæruliðum Hisbollah. 1.8.2006 12:45
Indversk skólarúta endaði í skurði Minnst sex börn létust þegar skólarúta skall ofan í skurð á Norður-Indlandi í morgun. Um það bil fimmtíu börn voru í rútunni þegar slysið varð. Íbúar á svæðinu stukku þegar ofan í vatnið til að reyna að bjarga sem flestum. Búið er að bjarga tólf börnum. 1.8.2006 12:44
Fiskur að verða munaðarvara á Íslandi Skortur á ferskum fiski og hörð samkeppni um það litla sem í boði er, hefur valdið 40% verðhækkun á fiskmörkuðum á aðeins tveimur mánuðum. Aðeins brot af því er enn komið út í verðlagið í fiskbúðum. 1.8.2006 12:28
Hermönnunum allar bjargir bannaðar Þeir tæplega 500 hermenn, sem enn eru eftir í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli, komast ekki lengur í sund, því sundlauginni var lokað í gær, um leið og aðal-Vallarhliðinu. Félagsheimilinu og bókasafninu var líka lokað, internetkaffinu, aðal veitingahúsinu og matvöruverslun sömuleiðis. 1.8.2006 12:00
Umfangsmikil GSM uppbygging Og Vodafone í Eyjafirði Og Vodafone hefur nú lokið umfangsmikilli uppbyggingu á GSM kerfi fyrirtækisins á ákveðnum svæðum í Eyjafirði. Uppbyggingin hófst við Sörlagötu á Akureyri í febrúar á þessu ári en lauk við Klauf/Hrafnagil um helgina. 1.8.2006 11:00
Tony og tortímandinn ætla að berjast gegn mengun Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, ætla að sniðganga ríkisstjórn George Bush, og finna sameiginlegar leiðir til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 1.8.2006 10:48
Mörgæsir aftur til heimkynna sinna 49 Magellan mörgæsum var sleppt aftur út í náttúruna eftir að þeim var bjargað úr olíuflekk við strendur Suður-Argentínu í maí. Þær voru frelsinu fegnar þegar þeim var sleppt aftur á kaldri strönd í Patagóníu, með málmhring um löppina til merkingar. 1.8.2006 10:15
Fyrstu þjóðhátíðargestirnir komnir til Eyja Fyrstu þjóðhátíðargestirnir eru byrjaðir að tínast ti lEyja, en ekki er þó enn farið að tjalda í Herjólfsdal. Að sögn lögreglu verður öflugt fíkniefnaeftirlit bæði á flugvellinum og við Herjólfsbryggjuna. Fíkniefnahundar og lilðsauki úr landi verða lögreglunni í Eyjum til halds og trausts við það. 1.8.2006 10:00
Kenna hvorir öðrum um ofbeldið Fulltrúar Líbanons og Ísraels kenndu hvorir öðrum um sprenginguna í Kana á aðfaranótt sunnudags, þegar þeir ávörpuðu fund öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi. 1.8.2006 09:15
Meira herlið til Líbanons Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í morgun tillögu Amir Peretz, varnarmálaráðherra, að senda meira herlið inn í Suður-Líbanon til að berjast gegn skæruliðum Hisbollah. Tillagan var samþykkt samhljóða, stuttu eftir að Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels útilokaði vopnahlé svo lengi sem Ísraelar teldu öryggi sínu ógnað. 1.8.2006 09:00
Allt að loka á vellinum Þeir tæplega fimm hundruð hermenn, sem enn eru eftir í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli komast ekki lengur í sund, því sundlauginni var lokað í gær . Félagsheimilinu og bókasafninu var líka lokað, internetkaffinu, aðalveitingahúsinu og matvöruverslun sömuleiðis. ADSL tenging var tekin af, beinar sjónvarpsútsendingar felldar niður og bílaþjónustunni lokað. 1.8.2006 08:45
Papeyin vélarvana skammt frá Grindavík Brunnbáturinn Papey, sem er 150 tonn að stærð með þriggja manna áhöfn, missti vélarafl þegar hann átti skammt ófarið til Grindavíkur undir morgun með farm af lifandi laxi austan af Fjörðum. Skipverjar óskuðu eftir aðstoð og var björgunarskipið Oddur V. Gíslason frá Grindavík sent til móts við þá, en þeim tókst að koma vélinni aftur í gang. 1.8.2006 08:30
Bílbeltið gaf sig Bílbelti slitnaði á ögurstund, með þeim afleiðingum að ökumaður á tvítugsaldri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann ók út af Sandgerðisvegi um klukkan hálf sjö í gærkvöldi og bílinn valt. Hann var einn í bílnum og kastaðist út úr honum eftir að beltið slitnaði. 1.8.2006 08:08
Kastró stígur af stóli til hvíldar Fídel Kastró, einræðisherra á Kúbu mun láta tímabundið af leiðtogaembætti Kúbu meðan hann leggst inn á sjúkrahús. Bróðir hans stendur í brúnni á meðan. 1.8.2006 08:02
Lokað fyrir fullt og fast Umferð um aðalhlið varnarsvæðisins á Miðnesheiði hefur verið hætt. Hliðið var tekið í notkun í mars 2005, fyrir fimmtán mánuðum. Kostnaður við framkvæmdir vegna þess nam rúmum 130 milljónum króna en reist voru ný varðskýli og bygging fyrir vegabréfaumsýslu auk breytinga á bílastæðum og girðingu. 1.8.2006 05:00