Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skutu nýrri gerð flugskeytis Nýrri gerð af íranskri sprengiflaug var í gær skotið frá kafbát á Persaflóa. Tilraunaskotið var liður í umfangsmiklum heræfingum Írana á Persaflóa, sem virðast vera haldnar til að sýna Vesturlöndum hernaðarmáttinn sem Íransstjórn ræður yfir. 28.8.2006 04:45
Jafnaðarmenn í kjörfylgi Fylgi við danska Jafnaðarmannaflokkinn mælist nú örlítið meira en flokkurinn fékk í kosningunum í fyrra samkvæmt nýrri skoðanakönnun Berlingske tidende. Er þetta mjög mikill viðsnúningur frá því í byrjun árs. Þá mældist stuðningur við Jafnaðarmannaflokkinn minni en hann hafði verið í rúm hundrað ár. 28.8.2006 04:15
Vinstrimaður vann í Chiapas Frambjóðandi stærsta vinstriflokksins í Mexíkó, Juan Sabines, vann kosningar til ríkisstjóra í Chiapas í suðurhluta landsins. Hlaut hann samkvæmt opinberum úrsitum 6.300 fleiri atkvæði en aðalkeppinauturinn, Jose Antonio Aguilar, sem var frambjóðandi borgaralegu flokkanna. 28.8.2006 04:15
Ernesto orðinn fellibylur Hitabeltislægðin Ernesto hefur stigmagnast í fyrsta stigs fellibyl. Vindhraði í fellibylnum er orðinn rúmir 34 m/sek. Búist er við að bylurinn nái suð-vestur odda Haítí í kvöld og skelli svo á strönd Kúbu í fyrramálið. 27.8.2006 20:30
Víti til varnaðar Hlynur Smári Sigurðsson, Íslendingurinn sem er í fangelsi í Brasilíu vegna fíkniefnamisferlis, segist ekki lifa af marga mánuði í viðbót í fangelsinu. 27.8.2006 20:27
Slapp lifandi undan lest Það þykir ganga kraftaverki næst að 26 ára gamall heimilislaus Íslendingur hafi sloppið lifandi þegar honum var hrint fyrir lest á Nörreport-stöðinni í Kaupmannahöfn í gær.Það varð honum til happs að hann lenti milli brautarteina þannig að lestin keyrði ekki beint yfir hann. 27.8.2006 19:11
Einn lifði flugslysið af Einn komst lífs af þegar flugvél frá Delta flugfélaginu með fimmtíu manns innanborðs hrapaði í Kentucky í Bandaríkjunum í dag. Flugvélin hrapaði skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Lexington. Ekkert er sagt benda til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 27.8.2006 18:58
Vill umræðu um nauðsyn leyniþjónustu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hyggst beita sér fyrir umræðum um hvort nauðsynlegt sé að stofna leyniþjónustu hér á landi. Íslendingar geti ekki látið eins og önnur lögmál gildi um Ísland á þessu sviði en önnur lönd. Þingmaður Samfylkingarinnar segist engin rök hafa séð fyrir leyniþjónustu á Íslandi. 27.8.2006 18:48
Regnbogabörn opna nýja heimasíðu Regnbogabörn, samtök áhugafólks um eineltismál, opnuðu heimasíðu í dag kl. 16:00. Heimasíðunni er sérstaklega beint til barna og er hugsuð sem forvarnartæki gegn einelti. 27.8.2006 18:13
Bíll valt á Sæbrautinni Ökumaður velti bíl sínum á Sæbrautinni til móts við Seðlabankann um klukkan tíu í morgun. Svo virðist sem hann hafi misst stjórn á bifreiðinni í beygju en hún er nokkuð kröpp þar sem nú standa yfir framkvæmdir á svæðinu 27.8.2006 15:44
Messa undir berum himni Messað var undir berum himni í Grafarvogi í morgun. Séra Vigfús Þór Árnason þjónaði fyrir altari ásamt séra Bjarna Þór Bjarnasyni. 27.8.2006 13:39
Flugslys í Kentucky Flugvél frá Delta flugfélaginu með 50 manns innanborðs hrapaði í Kentucy í Bandaríkjunum fyrr í dag. Óstaðfestar fréttir herma að minnsta kosti einn maður hafi komist lífs af í slysinu og er hann sagður mikið slasaður. 27.8.2006 13:25
Skutu flugskeytum á bíl Reuters-fréttastofunnar Ísraelsher skaut tveimur flugskeytum á brynvarinn bíl Reuters-fréttastofunnar í Gaza-borg í nótt. Fimm særðust, þar af tveir myndatökumenn. Herskár Hamas-liði féll í annarri árás Ísraela skammt frá. 27.8.2006 13:21
Fréttmenn Fox látnir lausir Mannræningjar á Gaza-svæðinu hafa látið tvo starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar bandarísku lausa. Þeir hafa verið í haldi mannræningja síðan um miðjan mánuðinn 27.8.2006 13:13
Maður lést í vinnuslysi Karlmaður á fimmtugssaldri lést í gærdag þar sem hann var við vinnu á athafnasvæði Íslenska gámafélagsins í Álfsnesi á Kjalarnesi. 27.8.2006 13:10
Erill hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í gærkvöld og nótt vegna mikillar ölvunar í miðbænum. Þurftu þónokkrir að leita á slysadeild vegna áverka eftir slagsmál en enginn þeirra var þó alvarlega slasaður. 27.8.2006 11:15
Starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar látnir lausir Mannræningjar á Gaza-svæðinu hafa látið tvo starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar bandarísku lausa. Þeir hafa verið í haldi mannræningja síðan um miðjan mánuðinn. Myndband með mönnunum var birt snemma í morgun, skömmu áður en þeir voru látnir lausir. 27.8.2006 11:00
Lögregla í eftirför á Kjalvegi í gær Lögreglan á Blönduósi lenti í háskalegri eftirför á hálendinu í gær þar sem hún var við eftirlit. Í frétt frá lögreglunni kemur fram við Áfangafell, sem er við Blöndulón, hafi hún komið auga á jeppabifreið sem ekið var á miklum hraða suður Kjalveg. 27.8.2006 10:45
Flugvél BA hélt áfram ferð sinni í gærkvöld Flugvélin frá British Airways sem lenti á Keflavíkurflugvelli á sjöunda tímanum í gærkvöld vegna reyks í farþegarými hélt áfram ferð sinni í gærkvöld eftir að búið var að rannsaka vélina. Farþegar fóru aldrei frá borði. 27.8.2006 10:15
Slapp lifandi eftir að hafa verið hrint fyrir lest Það þykir ganga nærri kraftaverki að tuttugu og sex ára gamalla heimilislaus Íslendingur hafi sloppið lifandi þegar honum var hrint fyrir lest á Nörreport-stöðinni í Kaupmannahöfn í gær. Fram kemur á fréttavef Politiken hann það hafi orðið honum til happs að hann lenti á milli járnbrautateina og því keyrði lest sem kom aðvífandi ekki beint á hann. 27.8.2006 10:00
Eldur í kjallara Eldur kom upp í kjallara nýbyggingar við Dalveg í Kópavogi, rétt eftir klukkan átta í gærkvöldi. Kviknaði hafði í frauðplasti sem var þar til geymslu og lagði mikinn reyk frá eldinum. 27.8.2006 09:51
Vilja fresta því að fylla Hálslón Stjórn og þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs hefur skorað á ríkisstjórnina og stjórn Landsvirkjunar að fresta því að fylla Hálslón þar til sérstök matsnefnd, skipuð óháðum aðilum, verður fengin til að vinna nýtt áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. 27.8.2006 09:15
Bílvelta á Ólafsfjarðarvegi Bíll valt á Ólafsfjarðarvegi til móts við Djúparbakka um klukkan sjö í morgun. Einn maður var í bílnum og var hann fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Ekki er vitað hver meiðsli hans eru að svo stöddu. 27.8.2006 09:08
Íslandssafn í Sognafirði Össur Skarphéðinsson vill að íslenska ríkisstjórnin eigi frumkvæði að stofnun safns í Sognafirði í Noregi til minningar um landnámsmenn Íslands. 27.8.2006 09:00
Nýr formaður breytir engu Formannsskipti í Framsóknarflokknum breyta ekki fylgi Framsóknarflokksins samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Fylgi Frjálslyndra og Sjálfstæðisflokks dalar en Samfylking og Vinstri græn bæta við sig. 27.8.2006 08:45
Frelsið kostar 2,5 milljónir Hlynur Sigurðarson, 23 ára Íslendingur sem situr í fangelsi í Brasilíu vegna kókaínsmygls, segist hafa fengið tilboð frá lögfræðingi sínum um að hann geti keypt sér frelsi fyrir tæpar 2,5 milljónir króna. „Það er víst hægt að gera allt í þessu landi með peningum,“ segir Hlynur. „Þetta er ekki óalgengt hér, dómarinn myndi þá skrifa undir plagg sem segði að ég hefði afplánað mína refsingu í fylkinu og ég gæti þá fengið að fara heim.“ 27.8.2006 08:30
Kveikti í dýnu í fangaklefanum Góðkunningja lögreglunnar sem gisti fangageymslu lögreglunnar við Hverfisgötu aðfaranótt laugardags tókst að smygla inn kveikjara í sokknum sínum og kveikja í horni rúmdýnu í klefa sínum, sem orsakaði minniháttar eldsvoða. Maðurinn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun en sú reyndist ekki raunin. Hann var sendur til baka í fangageymslu og fluttur á geðdeild þegar leið á gærdaginn. 27.8.2006 08:15
Frjálslyndir tapa miklu fylgi Frjálslyndi flokkurinn missir rúm fjögur prósentustig samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Samfylkingin og Vinstri græn bæta við sig um fjórum prósentustigum hvor, en Sjálfstæðisflokkur missir tæp þrjú prósentustig. Engin breyting er á fylgi Framsóknarflokks. 27.8.2006 08:15
Fjölmenni á Akureyrarvöku Á fimmta þúsund manns voru í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi þegar Listasumri Akureyringa lauk með Akureyrarvöku. Í tilefni dagsins var boðið upp á menningarviðburði um allan Akureyrarbæ sem góður rómur var gerður að. 27.8.2006 08:00
Valgerður sökuð um að leyna skýrslunni Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir Valgerði Sverrisdóttur hafa leynt Alþingi upplýsingum með því að kynna þingmönnum ekki skýrslu Gríms Björnssonar um Kárahnjúkavirkjun. Gerði ekkert rangt, segir Valgerður. 27.8.2006 08:00
Þungavatnsverk-smiðja vígð í Íran Forseti Írans ætlar ekki að hætta við kjarnorkuáætlunina og segir að engri þjóð standi ógn af íranskri kjarnorku. Ísraelskur þingmaður segir þjóð sína þurfa að bregðast við kjarnorkutilburðum Írana. 27.8.2006 07:45
Erfitt verkefni framundan „Það vekur athygli að Framsóknarflokkurinn er enn með svipað fylgi, svo flokksþing þeirra hefur ekkert híft flokkinn upp. Framsókn á erfiðan vetur fyrir höndum ef þeir eiga að ná kosningafylginu,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um skoðanakönnun Fréttablaðsins. 27.8.2006 07:30
Vill 3 milljónir punda í bætur Lágfargjaldaflugfélagið Ryanair hefur höfðað mál gegn bresku ríkisstjórninni vegna herts öryggiseftirlits eftir að upp komst um meint hryðjuverk sem fremja átti í háloftunum. 27.8.2006 07:30
Vopn gerð upptæk í borginni Lögreglan í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka, fann í gær vopnabúr í húsi nálægt alþjóðaflugvelli borgarinnar. Sautján manns voru handteknir og segir lögreglan fólkið hafa haft árás í hyggju. Lagt var hald á átta handsprengjur, tvær stærri sprengjur, riffil og skotfæri. 27.8.2006 07:15
Bruni í húsi við gæsluvöll Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða þegar eldur kom upp í húsnæði við gæsluvöll við Heiðarból í Keflavík klukkan rúmlega átta í gærmorgun. Gluggi í húsinu var brotinn og eldurinn er talinn hafa kviknað innan frá. 27.8.2006 07:00
Klasasprengjur í íbúðahverfum Fjöldi lítilla virkra sprengja hefur fundist víðs vegar um Suður-Líbanon, inni í görðum, úti á svölum, leikvöllum og á götum úti. Sprengjurnar eru litlu stærri en gosdósir og vitað er um tvö börn sem hafa látið lífið eftir að hafa leikið sér með þær. Einnig hafa sprengjurnar banað átta fullorðnum og sært tæplega fjörutíu manns, eftir að vopnahléi var komið á og Líbanar sneru aftur heim til sín. 27.8.2006 06:45
Flugmenn léku listir sínar Á annað þúsund manns var söfnuðust saman á Reykjavíkurflugvelli í gær til að fylgjast með flugsýningu Flugmálafélagsins í tilefni 70 ára afmælis félagsins. „Þetta var ótrúlega vel heppnuð sýning enda lék veðrið við okkur,“ segir Kristján Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins. 27.8.2006 06:30
Hjálmhvelfing hrundi í eldi Mikill bruni varð í dómkirkjunni í Pétursborg í gær með þeim afleiðingum að hjálmhvelfing kirkjunnar hrundi í þessari fyrrum höfuðborg Rússlands. Eldurinn kviknaði í miðhvelfingu Kirkju heilagrar þrenningar og hrundi hvelfingin ásamt einni af fjórum minni hvelfingum. 27.8.2006 06:30
Banaslys í Sorpu á Álfsnesi Karlmaður á sextugsaldri lést um tvöleytið í gær þegar hann var við vinnu í sorpurðunarstöð Sorpu á Álfsnesi á Kjalarnesi. Engin vitni urðu að slysinu og lögregla vinnur að rannsókn málsins. 27.8.2006 06:00
Varð vélarvana í Reyðarfirði Hollenskt tólf þúsund tonna flutningaskip, Aalsmeergracht, varð vélarvana í Reyðarfirði um tíuleytið að kvöldi föstudags. Engin skip í nágrenninu voru nægilega öflug til að geta komið til aðstoðar, svo brugðið var á það ráð að kalla til björgunarskips Slysavarnarfélagsins á Norðfirði og línubátinn Pál Jónsson, sem var staddur austur af Gerpi. Sérfræðingar sjómælingasviðs Landhelgisgæslunnar voru kallaðir til ráðgjafar um góðan haldbotn fyrir akkeri og var skipinu ráðlagt að kasta akkeri norðvestur af Grímu. Viðgerð stendur yfir. 27.8.2006 06:00
Orsök ókunn Ekki er ljóst hvað olli því að báturinn Sigurvin GK119 sökk á föstudagskvöld. Báturinn sökk undan Rifi á Snæfellsnesi á níunda tímanum á föstudagskvöld. Ekki liggur fyrir hvað olli því að báturinn hóf að leka, en skipverjar voru að ljúka veiðiferð þegar skipið sökk. 27.8.2006 05:30
Nauðlenti vegna brauðofns Nauðlending Neyðarástandi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli um stund þegar tilkynnt var um hugsanlegan eld í farþegarými flugvélar British Airways um klukkan sex í gær. Flugvélin var þá um fimmtíu kílómetra úti fyrir Reykjarnesi á leið til Denver í Bandaríkjunum. Ekki reyndist hætta á ferðum því í ljós kom þegar flugvélin lenti á Keflavíkurflugvelli að reykur í farþegarými vélarinnar stafaði af brauðofni sem ofhitnaði. 27.8.2006 04:30
Líbönsk börn snúa aftur til Beirút Sextíu líbönsk börn voru flutt aftur í faðm fjölskyldna sinna í Beirút í dag eftir margra vikna fjarveru. Þau voru flutt á brott eftir að Ísraelsher fór að láta sprengjum rigna yfir suðurhluta landsins. Að vonum var um fagnaðarfundi að ræða. 26.8.2006 19:45
Eldur á Dalveginum Allt tiltækt slökkvilið var nú á áttunda tímanum sent að Dalvegi 14 í Kópavogi þegar tilkynning barst um að mikinn reyk legði frá húsinu. Það mun vera iðnaðarhúsnæði og nýbygging. Allar stöðvar eru nú á vettvangi og reykkafarar á leið inn í húsið. 26.8.2006 19:43
Óttinn við hryðjuverk í háloftunum eykst Nú berast nær daglega fréttir af því að flugvélum sé beint á aðra lendingarstaði en þeim voru upphaflega ætlaðir vegna þess að ótti um yfirvofandi hryðjuverk hefur vaknað. Yfirleitt hafa farþegar þá í vangá tekið bannaða hluti með sér í handfarangri eða hegðun farþega talin grunsamleg. Óttinn við hryðjuverk í háloftunum truflaði ferðir sjö flugvéla í Bandaríkjunum bæði í innanlands- og millilandaflugi í gær. 26.8.2006 19:30