Fleiri
Enginn kom frá ráðuneytinu 26.8.2006 06:45 Lægsta tilboðið hjá Elísabetu Tryggingafélagið Elísabet býður upp á lægsta og Sjóvá hæsta ársiðgjald fyrir lögboðna ábyrgðartryggingu ökutækis, slysatryggingu ökumanns og eiganda og framrúðutryggingu ef marka má verðkönnun sem ASÍ lét gera hjá sex tryggingafélögum í ágúst. 26.8.2006 06:45 Sjá næstu 50 fréttir
Alvarlegt vinnuslys Alvarlegt vinnuslys varð á sorpförgunarsvæði Reykjavíkurborgar, í Álfsnesi á Kjalarnesi, rétt eftir klukkan tvö í dag. Slysið varð þegar vinnuvél valt á hliðina. Ekki liggur fyrir hvað gerðist nákvæmlega en lögregla var á vettvangi í um þrjár klukkustundir. 26.8.2006 17:08
Flugdagur á Reykjavíkurflugvelli Flugdagur var haldinn hátíðlegur á Reykjavíkurflugvelli í dag í tilefni sjötíu ára afmælis Flugmálafélags Íslands. Dagurinn byrjaði á hópflugi einkaflugvéla og fisvéla yfir Reykjavík um hádegi. 26.8.2006 16:54
Landlæknir á leið til Malaví Matthías Guðmundsson, aðstoðarlandlæknir, mun gegna embætti landlæknis á meðan Sigurður Guðmundsson og Sigríður Snæbjörnsdóttir eiginkona hans vinna við uppbyggingu heilbrigðiskerfisins í Malaví. 26.8.2006 16:47
Bandarískir hermenn valda skemmdum á mosku Töluverðar skemmdir urðu á mosku í írösku borginni Ramadi í gær þegar bandarískir hermenn skutu á hana. Til skotbardaga kom milli hermanna og herskárra andspyrnumanna sem héldu til í moskunni. 26.8.2006 16:43
Bandríkjastjórn vill borga sig frá ábyrgð Fyrir liggja drög að samningi við Bandaríkjastjórn um viðskilnað varnarliðsins. 26.8.2006 16:36
Þrír í haldi vegna tilraunar til að sprengja upp lest Þýska lögreglan er með þriðja manninn í haldi tengslum við rannsókn á misheppnaðri sprengjuárás á tvær lestar í tveimur borgum Þýskalands fyrr í mánuðinum. 26.8.2006 16:14
Gráösp valin tré ársins Skógræktarfélag Íslands útnefndi í dag tré ársins. Tré ársins er Gráösp sem stendur við Austurgötu 12 í í Hafnarfirði. 26.8.2006 16:03
Tafir á umferð vegna framkvæmda Tafir eru á umferð á Holtavörðuheiði við Bláhæð og við Fornahvamm vegna framkvæmda. Umferð er beint um einbreiða hliðarakrein. Á Djúpvegi við Selá í Hrútafirði standa yfir brúarframkvæmdir og er vegfarendum beint um hjáleið. 26.8.2006 15:56
Vopnahléssamkomulag undirritað í Úganda Stjórnvöld í Úganda og uppreisnarmenn í norður hluta landsins hafa undirritað vopnahléssamkomulag. Það var gert fyrr i dag en fulltrúar þessara stríðandi fylkinga hafa setið sáttafund í Suður-Súdan. 26.8.2006 14:31
Erlendir ríkisborgara fluttir frá Jaffna Rauði krossinn hefur byrjað að flytja erlenda ríkisborgarar frá Jaffna í norðurhluta Srí Lanka. Margir þeirra hafa verið innlyksa þar vegna átaka milli stjórnarhersins og skæruliða Tamíltígra. 26.8.2006 14:24
Rútuslys í Suður-Kína Að minnsta kosti sautján létu lífið og þrjátíu og þrír slösuðust þegar rúta skall á flutningabíl í Guangdong-kantónu í Suður-Kína í morgun. Yfirvöld á svæðinu segja engan hinna slösuðu í lífshættu. 26.8.2006 14:22
Vilja fresta fyllingu Hálslóns Stjórn og þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á ríkisstjórnina og stjórn Landsvirkjunar að fresta fyrirhugaðri fyllingu Hálslóns þar til sérstaklega skipuð matsnefnd óháðra aðila hefur verið fengin til að vinna nýtt áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. 26.8.2006 14:00
Maður slasaðist við veiðar í Grenlæk Maður sem var að veiða í Grenlæk skammt frá Kirkjubæjarklaustri í dag, hrasaði á leið upp á brú og datt ofan í ána. Við það hlaut hann opið beinbrot á fæti og lítilsháttar skurð á höfði. Félagar mannsins hlúðu að honum og kölluðu eftir aðstoð læknis, sem kom á staðinn ásamt lögreglu og sjúkrabifreið. 26.8.2006 13:16
Engin ógn af kjarnorkuáætlun segir Íransforseti Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, vígði í morgun verksmiðju þar sem þungavatns-kjarnaofnar verða notaðir sem hluti að kjarnorkuáætlun Írana. Forsetinn sagði þetta mikilvægan áfanga í áætluninni og lagði áherslu á að þjóðum heims, þar á meðal Ísrael, stafaði ekki ógn af kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran. 26.8.2006 13:15
Dýnamít í farangrinum Dýnamít og kveikiþræðir fundust í farangri bandarísks háskólanema sem var á leið með flugvél Continental flugfélagsins frá Argentínu til Texas í gær. 26.8.2006 13:00
Fresturinn liðinn Frestur sem mannræningar á Gaza-svæðinu hafa gefið bandarískum yfirvöldum til að láta palestínska fanga lausa, í skiptum fyrir tvo starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar bandarísku, rann út í morgun. Frétta- og myndatökumanni Fox var rænt í Gaza-borg 14. ágúst síðastliðinn en myndband af þeim var fyrst birt á miðvikudaginn. 26.8.2006 12:30
Trúnaðarbestur milli Valgerðar og Alþingis "Það getur komið til þess að ráðherra sé ekki sætt," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Fréttavikunni á NFS. Kristinn vísaði þar til Valgerðar Sverrisdóttur, flokkssystur sinnar og fyrrverandi iðnaðarráðherra. Til umfjöllunar var greinargerð Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings um Kárahnjúkavirkjun og meðferð þeirra upplýsinga sem þar koma fram. 26.8.2006 12:26
Hlutabréf í Sony lækka í verði vegna innköllunar Hlutabréf í Sony lækkuðu í verði í gær eftir að Apple tölvufyrirtækið innkallaði tæpar tvær milljónir fartölvurafhlaðna. Þetta er í annað sinn á tæpum hálfum mánuði sem það gerist en í síðustu viku innkallaði Dell tölvufyrirtækið rúmar fjórar milljónir rafhlaðna. Forsvarsmenn Sony eru sagðir eiga von á því að þurfa að greiða jafnvirði rúmra tíu milljarða króna vegna innköllunarinnar. 26.8.2006 11:45
Rannsókn á notkun klasasprengja Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar hvort Ísraelar hafi sprengt klasasprengjur í íbúðarhverfum í Líbanon meðan á átökum Ísraela og Hizbollah-skæruliða stóð þar fyrr í þessum mánuði. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna segja slíkar sprengjur liggja sem hráviði í rústum húsa, görðum og á götum úti í Suður-Líbanon. 26.8.2006 11:30
Eldur í fangaklefa Minniháttar eldur varð þegar fangi kveikti í dýnu í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. 26.8.2006 11:30
Flugdagur á Reykjavíkurflugvelli Flugdagur verður haldinn hátíðlegur í dag á Reykjavíkurflugvelli í tilefni sjötíu ára afmælis Flugmálafélags Íslands. Dagurinn byrjar á hópflugi einkaflugvéla og fisvéla yfir Reykjavík. 26.8.2006 11:20
Hús Hamas-liða eyðilagt Ísraelsher gerði í nótt loftárás á heimili háttsetts liðsmanns Hamas-samtakanna á Gaza-svæðinu. Enginn mun hafa fallið í árásinni en tveir vegfarendur særðust lítillega. 26.8.2006 11:15
Töluverðar skemmdir á dómkirkjunni í Sánkti Pétursborg Töluverðar skemmdir urðu á þaki dómkirkjunnar í Sánkti Pétursborg í Rússlandi þegar eldur kviknaði í henni í gær. Þakhvelfing kirkjunnar hrundi en við það þustu klekar af stað til að bjarga verðmætum helgimyndum. Ekkert liggur fyrir um eldsupptök. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi týnt lífi eða slasast í eldinum. 26.8.2006 11:00
Bílslys á Reykjanesbraut Árekstur varð á Reykjanesbraut við Vogar rétt fyrir miðnætti í gær þegar fólksbíll keyrði inn í tengivagn fluttningabíls. 26.8.2006 11:00
Mannbjörg úti fyrir Rifi Mannbjörg varð í gærkvöld þegar bátur með þrjá menn innanborðs sökk í grennd við Rif á Snæfellsnesi í gærkvöld. Skemmtibátur var fyrstur á staðinn og tók mennina þrjá um borð. 26.8.2006 10:45
Grunur um íkveikju í Keflavík Slökkviliðið í Keflavík var kallað út um klukkan átta í morgun. Kviknað hafði í húsi á gæsluvelli við Heiðarból í Keflavík 26.8.2006 10:30
Talið að eldur hafi kviknað vegna leka í gaskút Talið er að eldurinn sem kviknaði í efnamóttöku Sorpu í Gufunesi á sjötta tímanum í gær hafi komið til vegna leka úr própangaskút í húsinu. 26.8.2006 10:15
Slasaður sjómaður í togara úti fyrir Ingólfshöfða Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, lent fyrir stundu með slasaðan sjómann á Landspítalanum í Fossvogi. Maðurinn mun hafa fallið ofan í lest togara sem staddur var úti fyrir Ingólfshöfða og var þyrlan send af stað laust fyrir klukkan sjö í morgun. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan mannsins eða um hvað skip er að ræða. 26.8.2006 10:00
Vélarvana flutningaskip Hollenskt, 12 þúsund tonna flutningaskip varð vélarvana rétt innan við Grímu við Reyðarfjörð um klukkan tíu í gærkvöldi. 26.8.2006 09:56
Heillaður af Íslandi Fylkisstjóri Manitobafylkis í Kanada er á Íslandi. Hann segir samskipti Manitoba og Íslands mikilvæg enda margir íbúar Manitoba ættaðir frá Íslandi. 26.8.2006 09:30
Falsaðir evruseðlar í umferð Lögreglan hefur fengið til meðferðar mál vegna falsaðra evruseðla hér á landi. Nýlega var fölsuðum evruseðli framvísað í verslun í Smáralind, að sögn Smára Sigurðssonar hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Þá varaði lögreglan í Reykjavík fyrir skömmu við útlendingi sem reyndi að koma fölsuðum evrum í umferð. Hefur lögreglan í fórum sínum falsaðan seðil sem talinn er koma frá honum. 26.8.2006 09:00
Verði ekki vísað úr landi Þingflokkur vinstri grænna mun í haust endurflytja lagafrumvörp sem gera ráð fyrir að undanþáguákvæði verði sett í lög um útlendinga og atvinnuréttindi um stöðu erlendra kvenna sem verða fyrir heimilisofbeldi. 26.8.2006 08:45
Geir treystir Landsvirkjun Geir H. Haarde forsætisráðherra telur ekki tilefni til að Alþingi komi saman til að ræða um greinargerð Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings um Kárahnjúkavirkjun. 26.8.2006 08:30
Skemmdarverk Skemmdir voru unnar á húsnæði Bónusvídeós við Lóuhóla í fyrradag. Krotað var á veggi og glugga og nam kostnaður við hreinsunina um tuttugu til þrjátíu þúsund krónum. 26.8.2006 08:30
Láta drauminn rætast Hjónin Sigurður Guðmundsson landlæknir og Sigríður Snæbjörnsdóttir fara til Malaví í ár til að byggja upp heilbrigðisþjónustu á vegum ÞSSÍ. 26.8.2006 08:30
Yfir 2.500 laxar hafa veiðst Góð veiði hefur verið í vopnfirskum ám í sumar og höfðu 1.572 laxar veiðst í Selá og 1.050 í Hofsá í síðustu viku. 26.8.2006 08:15
Of lítið framboð dagforeldra Langflestir foreldrar sem eiga börn hjá dagforeldrum eru ánægðir með þjónustu dagforeldrisins, eða yfir 90 prósent. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Félagsvísindastofnun gerði í júní meðal á sjötta hundrað foreldra. 26.8.2006 08:00
Fimm Íslendingar eftirlýstir af Interpol Alþjóðalögreglan Interpol leitar fimm Íslendinga, þar af þriggja vegna nauðgunarmála. Einn þeirra er Davíð Garðarsson, sem mun nú vera í Amsterdam. Mál manns sem situr í fangelsi í Brasilíu ekki skoðað af íslenskum yfirvöldum. 26.8.2006 08:00
Euan Blair á sjúkrahúsi Euan Blair, elsti sonur Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, var lagður inn á sjúkrahús vegna kvilla í maga í gær. Euan var í sumarfríi þegar hann veiktist, staddur á eynni Barbados í Karíbahafi ásamt fjölskyldu sinni. 26.8.2006 07:30
Kanna rennsli úr göngunum Starfsmenn Náttúrustofu Austurlands vinna nú rannsókn á áhrifum aukins vatnsrennslis úr göngunum við Kárahnjúka á Glúmsstaðadalsá. Mælingar á mengun eiga sér enn stað og er búist við að niðurstaðan liggi fyrir eftir mánuð. 26.8.2006 07:15
Eiturefnamóttaka í ljósum logum Eldur braust út í eiturefnamóttöku Sorpu í Gufunesi í gær. Sprengingar urðu í húsinu og allt tiltækt slökkvilið var kallað út. Reykkafarar á staðnum segja mikla óvissu fylgja því að fara inn í eld við aðstæður eins og sköpuðust í gær. 26.8.2006 07:00
Of margir friðargæsluliðar Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti því yfir í gær að 15.000 friðargæsluliðar væru allt of margir fyrir Suður-Líbanon, en verið er að setja saman þann her manna samkvæmt samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt er 15.000 manna her Líbanons á svæðinu. 26.8.2006 07:00
Óttast um starfsgrein sína Bændur óttast um starfsgrein sína ef tollar verða afnumdir á innfluttum landbúnaðarafurðum og eru ekki tilbúnir til að takast á við hugsanlega samkeppni, að sögn Þórarins G. Sverrissonar, formanns stéttarfélagsins Öldunnar á Sauðárkróki. 26.8.2006 06:45
Lægsta tilboðið hjá Elísabetu Tryggingafélagið Elísabet býður upp á lægsta og Sjóvá hæsta ársiðgjald fyrir lögboðna ábyrgðartryggingu ökutækis, slysatryggingu ökumanns og eiganda og framrúðutryggingu ef marka má verðkönnun sem ASÍ lét gera hjá sex tryggingafélögum í ágúst. 26.8.2006 06:45