Fleiri
Fimm Rússar handteknir 26.7.2006 06:30 Kostirnir eru króna eða ESB Aðeins tveir raunhæfir kostir eru varðandi framtíðarskipan gengismála á Íslandi. Annaðhvort núverandi staða með flotgengisstefnu krónunnar eða upptaka evru með inngöngu í myntbandalagið og Evrópusambandið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Viðskiptaráðs sem kemur út í dag. 26.7.2006 06:30 Enn ein bílvelta á Hólssandi Erlendur ferðamaður velti bílaleigubíl sínum á Hólssandi í fyrrakvöld. Hann var einn í bílnum og sakaði ekki. Varðstjóri lögreglunnar á Húsavík segir þennan veg sérstaklega varasaman. Það sem af er sumri hafi orðið þar einar átta bílveltur. 26.7.2006 06:15 Hafa reynslu af vinnu erlendis Íslenska orkufyrirtækið Enex, sem vinnur að rannsóknum á jarðvarma í þremur sveitarfélögum í austanverðri Slóvakíu, hefur tekið þátt í meira en fimm verkefnum á erlendri grundu. Meðal annars hefur fyrirtækið tekið þátt í stórum verkefnum í El Salvador, Ungverjalandi, Póllandi og Slóvakíu. 26.7.2006 06:15 Danir vilja hluta gróðans Danir og Grænlendingar deila nú um það hvort tekjur af olíu, sem hugsanlega finnst út af ströndum Grænlands, eigi að falla Grænlendingum óskiptar í skaut eða dragast frá árlegum greiðslum frá Danmörku til grænlensku landstjórnarinnar. 26.7.2006 06:15 Seðlarnir komnir á netið Fólk getur nú nálgast álagningarseðla sína rafrænt á þjónustusíðu ríkisskattstjóra, www.rsk.is, með veflykli sínum. Opnað var fyrir þessa þjónustu klukkan fjögur í gærdag. 26.7.2006 06:00 Milljónir trjáa þarf til að binda mengunina Bílafloti Íslendinga blæs út um 700 þúsund tonnum af koltvísýringi á hverju ári. Það þyrfti að gróðursetja um það bil 350 milljónir trjáa til að binda mengun flotans. 25.7.2006 22:26 Engin varanleg mengun Heilbrigðiseftirlit Norðurlands telur varanlega mengun vegna bensínslyssins í Ljósavatnsskarði í dag vera litla sem enga. Valdimar Brynjólfsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands segir mest af bensíninu hafa lent á veginum og vegkantinum en vegurinn er mikið upphækkaður á þessum stað. 25.7.2006 22:06 Fæðingamet í júní Íslendingum fjölgar hratt. Nýtt fæðingarmet var slegið í júnímánuði. Og aldrei fyrr hafa eins margir erlendir ríkisborgarar sest að hér á landi og undanfarin misseri. 25.7.2006 21:54 Bækur fundust í gröf Sá merkilegi atburður gerði í dag að bækur fundust í fyrsta sinn við fornleifauppgröft hér á landi á Skriðuklaustri í dag. Bækurnar lágu í kistum tveggja manna sem eru líklega munkar úr klaustrinu. Því er talið að bækurnar séu sálmabækur. Uppgröfturinn hefur leitt í ljós marga fagra hluti. Enn bíða grafir rannsóknir í klausturkirkjunni að Skriðu og því líklegt að uppgröfturinn leiði fleira óvænt í ljós. 25.7.2006 21:50 Framtíð friðargæslu í Líbanon óljós Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði bak við luktar dyr í dag til að ræða um framtíð alþjóðlegs friðargæsluliðs í Líbanon sem gæta bláu línunnar sem skilur Líbanon og Ísrael. 25.7.2006 21:47 Óperuhúsi ekki frestað Kópavogsbær hyggur á niðurskurð sem nemur um hálfum milljarði króna til að stemma stigu við þenslu í efnahagslífinu. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að byggingu óperuhúss verði ekki frestað þrátt fyrir bæjarstjórn hafi ákveðið á dögunum að skera niður um hálfan milljarð króna vegna þenslu. 25.7.2006 21:35 Lítil mengun vegna olíuslyssins Hreinsunaraðgerðum er nú lokið í Ljósavatnsskarði, eftir að 10 þúsund lítrar af bensíni láku úr olíuflutningabíl og tengivagni sem hann dró valt á hliðina til móts við Stóru-Tjarnir í morgun. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands telur varanlega mengun vegna slyssins vera litla sem enga. 25.7.2006 18:54 Banaslys við Hellisheiðarvirkjun Tæplega fimmtugur franskur maður lést í vinnuslysi á svæði Hellisheiðarvirkjunar í morgun. Maðurinn féll úr sjö til níu metra hæð þegar lyftari með kranabómu valt. 25.7.2006 18:30 Gefur lítið fyrir rök ríkisstjórnarinnar Dagur B. Eggertsson gefur lítið fyrir rökstuðning ríkisstjórnarinnar um að hægja þurfi á framkvæmdum á væntanlegu tónlistar- og ráðstefnuhúsi í Reykjavík til að slá á þenslu í efnahagslífinu og segir að svo virðist sem allt eigi að víkja fyrir stóriðjustefnu stjórnvalda. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hægja á framkvæmdum við tónlistar og ráðstefnuhús í samkomulagi við Reykjavíkurborg og Portus. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að þetta væru skýr skilaboð frá ríkisstjórninni um að hún vildi viðhalda stöðugleikanum. Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir þau rök þó í versta falli nothæf sem skemmtiatriði á árshátíð hagfræðinga. Þó hann fagni því að húsið sé að rísa segir hann óheppilegt að Reykvíkingar þurfi að sætta sig við að hafa stóra holu í hjarta miðbæjarins fjórum mánuðum lengur en gert var ráð fyrir. Dagur segir jafnframt að skortur sé á yfirsýn þegar reynt væri að koma böndum á þensluna og nefnir hann sem dæmi að fyrirhugaðar framkvæmdir á Geldinganesi séu mun líklegri til að þensla í efnahagslífinu aukist enn frekar. 25.7.2006 17:21 Rauði kross Íslands sendir neyðaraðstoð til Líbanons Rauði kross Íslands hefur ákveðið að leggja tvær milljónir króna til hjálparstarfs í Líbanon eftir að alþjóða Rauði krossinn sendi út neyðarbeiðni til aðildarsamtaka víða um heim. Rauði kross Íslands kallar ennfremur eftir framlögum frá Íslendingum þar sem reynt verður að senda frekari aðstoð á næstu dögum. 25.7.2006 17:00 Netsími bundinn í jarðlínu Róbert Bragason, stjórnarformaður Atlassíma, vill koma því á framfæri að notast er við jarðlínur í netsímtölum fyrirtækisins. Í frétt hér á Vísi fyrr í dag var sagt að "ólíkt símkerfi Símans eru símar Atlassíma ekki bundnir við jarðlínur heldur er hringt í gegnum tölvur." Yfirmenn lögreglu og Neyðarlínu vilja að beðið verði með að heimila flutning símanúmera úr talsímakerfinu í netsímakerfi Atlassíma. Þeir óttast að flutningurinn dragi úr öryggi og geti hamlað lögreglurannsóknum. 25.7.2006 15:33 Sjá næstu 50 fréttir
Stækkun sem dugar til 2016 Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur kallað á stækkun og breytingar. Verklok eru áætluð í vor. Meðal nýjunga er farangursflokkunarkerfi. 26.7.2006 07:45
FBI segir ásatrú ofbeldisfulla Ásatrú verður sífellt vinsælli innan fangelsisveggja í Bandaríkjunum og mun einn fangi verða tekinn af lífi á morgun fyrir að drepa samfanga, fyrir að sýna guðunum ekki tilhlýðilega virðingu. Sérfræðingar óttast að ofbeldi muni aukast með útbreiðslu trúarbragðanna. 26.7.2006 07:45
Kvóti seldur frá Grímsey til Sandgerðis Kvóti, sem dugað hefur til að gera út fjóra báta frá Grímsey, hefur verið seldur til Sandgerðis og eru seljendurnir hættir útgerð, að því er Morgunblaðið greinir frá. Þetta eru tæp 12.000 tonn af þorski og ýsu, sem er stór hluti af heildarkvóta Grímseyinga, og er söluvirðið nálægt tveimur milljörðum króna. Nú búa um það bil hundrað manns í Grímsey þannig að þeta er umtalsvert hlutfall af efnahag eyjarskeggja. 26.7.2006 07:45
Áætluð fjölgun um 15 prósent Sveitarfélögin í landinu áætla að rúmlega ellefu þúsund einstaklingar muni njóta greiðslna húsaleigubóta á þessu ári. Það er 14,9 prósenta fjölgun frá árinu áður. 26.7.2006 07:30
Ökumennirnir gæta sín ekki Ellefu hafa látist í umferðinni á árinu. Slysin hafa orðið jafnt í þéttbýli sem dreifbýli og ýmist ökumenn, farþegar eða gangandi vegfarendur hafa látið lífið. Þá hafa orðið slys, bæði vegna árekstra og útafaksturs. 26.7.2006 07:30
Framkvæmdum við tónlistarhús frestað Ríkisstjórnin vill fresta framkvæmdum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík um eitt ár. Þannig á að sporna gegn þenslu og hvetja aðra til að hægja á dýrum framkvæmdum. Portus group hefur þegar samþykkt frestun. 26.7.2006 07:30
Unglingum séu sett mörk Foreldrahús og skjólstæðingar þess vilja veita foreldrum stuðning með því að hvetja til samráðs og samheldni við að virða lög og reglur. Brýnt er að foreldrar setji skýrar reglur og hviki ekki frá þeim. 26.7.2006 07:30
Mikið um kjarrelda í Noregi Sjaldan ef aldrei hafa kviknað jafn margir kjarreldar í Noregi líkt og á þessu ári samkvæmt frétt á fréttavef norska ríkissjónvarpinu. Fara þarf allt aftur til ársins 1976 til að finna svipaðar tölur yfir fjölda kjarrelda en þó hafa fleiri eldar kviknað í ár og mun stærra svæði hefur brunnið. Veðurfarið er talin ein helsta orsök eldanna. Úrkoma hefur víða verið lítil það sem af er sumri en á sumum svæðum hefur verið þrisvar sinnum minni úrkoma í júlí en fyrri ár. 26.7.2006 07:30
Slapp úr brennandi hjólhýsi Maður slapp ómeiddur út úr brennandi hjólhýsi í Þjórsárdal í nótt, en hjólhýsið brann til kaldra kola. Um leið og hann komst út, hringdi hann á slökkvilið, sem brátt kom á vettvang, en þá var hjólhýsið al elda og ekki lengur við neitt ráðið. Svo vel vildi til að ringt hafði á svæðinu í gærkvöld og fram yfir miðnætti, þannig að eldur náði ekki að læsa sig í skóginn í grenndinni. Þá voru önnur hjólhýsi á svæðinu í öruggri fjarlægð. Eldsupptök eru ókunn. 26.7.2006 07:30
Aukinn kraftur í rannsóknir Landsvirkjun setur nú aukinn kraft í rannsóknir á Norðausturlandi í tengslum við viðræður Alcoa um álver á Húsavík að sögn Bjarna Pálssonar, verkfræðings hjá Landsvirkjun. 26.7.2006 07:15
Mikil eldhætta skapaðist Rúmlega tíu þúsund lítrar af bensíni runnu niður í jarðveg eftir að tankbíll með tengivagn valt á þjóðveginum við Stórutjarnir í Ljósavatnsskarði í gærmorgun. Bílstjórinn var fluttur lítillega slasaður á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. 26.7.2006 07:15
Sextugur Dani olli fjaðrafoki slökkvilið og sjúkrabifreiðar voru snögg á vettvang í gærmorgun, með sprengjuleitarbúnað og sprengjuleitarhunda, þegar tilkynning barst frá bandaríska sendiráðinu í Kaupmannahöfn um hættu á sprengjuárás. Nærliggjandi götur voru lokaðar klukkutímum saman. 26.7.2006 07:15
Fjórir eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna drepnir Fjórir eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna féllu í árásum Ísraelshers í bænum Khima í Suður-Líbanon í gærkvöld. Mennirnir voru staddir í bækistöðvum sínum á svæðinu þegar Ísraelar gerðu loftárás á þær. 26.7.2006 07:13
Brenndist illa þegar hann olli stórtjóni Karlmaður á þrítugsaldri brenndist alvarlega þegar hann olli stórtjóni með því að kveikja í bílum á bílasölu í Reykjavík í nótt. Lögreglumaður á eftirlitsför sá eldinn og kallaði á slökkvilið, en maðurinn var á bak og burt. Hann komst af sjálfsdáðum á Slysadeild Landsspítalans, þar sem hann er enn í meðferð vegna brunasára, einkum í andliti. Þaðan tilkynnti hann lögreglu að hann hefði kveikt í bílunum. Hann hefur borið eldfimt efni að einum eða tveimur bílum, sem eru gjörónýtur, en eldurinn varð svo mikill að hann barst í fjóra bíla til viðbótar, sem allir skemmdust nokkuð og hleypur tjónið á mörgum milljónum króna. 26.7.2006 07:03
Útgáfa jökla-bréfa í blóma Krónan styrktist um 1,4 prósent í gær en KfW, þýski landbúnaðarsjóðurinn, gaf í gær út erlend skuldabréf fyrir níu milljarða króna sem eru á gjalddaga eftir eitt ár. 26.7.2006 07:00
200 ferðir með sjúklinga á dag Um 200 ferðir eru farnar á dag með sjúklinga á Landspítalanum sem þurfa að fara í myndatökur, hjartalínurit eða aðrar rannsóknir. 26.7.2006 07:00
Lýsa stuðningi við formann Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullum stuðningi er lýst við formann bandalagsins, Sigurstein Másson. Harmar stjórnin persónugerða gagnrýni í fjölmiðlum frá hendi tveggja af þrjátíu fulltrúum aðalstjórnar á hann og störf stjórnar. 26.7.2006 07:00
Ætíð ný njósnaforrit í umferð Stöðugur straumur nýrra eða endurbættra njósnaforrita er í umferð á hverjum tíma að sögn Friðriks Skúlasonar tölvufræðings. Hann segir svokallaða auðkennislykla, sem eru samstarfsverkefni allra banka landsins og verða teknir í almenna notkun hér á landi í haust, vera mikilvæga vörn gegn heimabankaþjófnaði. 26.7.2006 07:00
Segir skilyrðin engu breyta Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, um að setja samruna Dagsbrúnar og Securitas ákveðin skilyrði, breytir engu um starfsemi Securitas eða Dagsbrúnar, segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar. 26.7.2006 07:00
Breytir miklu fyrir farsímanotendur Ákveðið hefur verið að skylda farsímafélögin til þess að lækka lúkningargjöld. Miklar hagsbætur fyrir neytendur, segir Hrafnkell Gíslason. Fögnum breytingunni, segir fulltrúi Símans. Óþarfa inngrip, segir forstjóri Og Vodafone. 26.7.2006 07:00
Féll marga metra af gaffli lyftara og lést Banaslys varð við Hellisheiðarvirkjun í gær þegar maður sem stóð á vörubretti á gaffli lyftara féll marga metra til jarðar. Forstjóri Vinnueftirlitsins segir að öryggisráðstöfunum hafi ekki verið fylgt og hefur vinna við verkið verið stöðvuð. 26.7.2006 07:00
Ísraelsher tryggir sér svæði Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir að Ísraelar ætli sér upp á eigin spýtur að ákvarða "öryggissvæði" syðst í Líbanon á landræmu meðfram landamærum Ísraels. Þeir ætla sér að verja þetta svæði þangað til annað hvort alþjóðlegar gæslusveitir verða sendar þangað eða samið verður um að skæruliðar Hizbollah-hreyfingarinnar fari frá ísraelsku landamærunum. 26.7.2006 07:00
Nýr spítali haldi áætlun Áríðandi er að undirbúningur við byggingu nýs spítala haldi áætlun, segir í ályktun frá stjórn hjúkrunarráðs Landspítalans. Stjórnin segir frestun á framkvæmdum geta haft alvarlegar afleiðingar þar sem húsnæðisskortur sé nú þegar óviðunandi. Með nýrri byggingu muni þjónusta við sjúklinga batna, hagkvæmni í rekstri aukast og aðstaða starfsmanna og nemenda verða betri. 26.7.2006 06:45
Verulega dregur úr nýskráningum bíla Sala nýrra bíla það sem af er þessu ári er umtalsvert meiri en fyrir ári síðan en tæplega þúsund fleiri bílar hafa verið seldir nú en þá sem þó var algjört metár hvað sölu á nýjum bílum snerti. 26.7.2006 06:45
Haldið sofandi á gjörgæslu Jonathan Motzfeldt, formanni grænlenska landsþingsins, er enn haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum en hann var fluttur þangað frá Grænlandi á fimmtudag. Motzfeldt hefur verið greindur með lungnabólgu og nýrnabilun vegna bakteríusýkingar. 26.7.2006 06:45
Síminn og Atlassími ná sáttum í deilu Síminn hf. og Atlassími hafa náð sáttum í deilu félaganna um færslu á númerum úr almennri símaþjónustu í netsímaþjónustu. Póst- og fjarskiptastofnun mun ekki hafa frekari afskipti af málinu en undrast stjórnsýslukæru í málinu. 26.7.2006 06:45
Fimm þúsund bílar sukku Tuttugu og þriggja manna áhöfn var í gær bjargað um borð í þyrlur af sökkvandi flutningaskipi skammt frá Aleuteyjum, suður af Alaska. Um borð í skipinu eru fimm þúsund nýjar bifreiðar sem átti að flytja frá Japan til Kanada. 26.7.2006 06:45
Farþegarnir blandast áfram Eftir að breytingum á Flugstöð Leifs Eiríkssonar lýkur í vor eiga komu- og brottfararfarþegar enn eftir að blandast. 26.7.2006 06:30
Kostirnir eru króna eða ESB Aðeins tveir raunhæfir kostir eru varðandi framtíðarskipan gengismála á Íslandi. Annaðhvort núverandi staða með flotgengisstefnu krónunnar eða upptaka evru með inngöngu í myntbandalagið og Evrópusambandið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Viðskiptaráðs sem kemur út í dag. 26.7.2006 06:30
Enn ein bílvelta á Hólssandi Erlendur ferðamaður velti bílaleigubíl sínum á Hólssandi í fyrrakvöld. Hann var einn í bílnum og sakaði ekki. Varðstjóri lögreglunnar á Húsavík segir þennan veg sérstaklega varasaman. Það sem af er sumri hafi orðið þar einar átta bílveltur. 26.7.2006 06:15
Hafa reynslu af vinnu erlendis Íslenska orkufyrirtækið Enex, sem vinnur að rannsóknum á jarðvarma í þremur sveitarfélögum í austanverðri Slóvakíu, hefur tekið þátt í meira en fimm verkefnum á erlendri grundu. Meðal annars hefur fyrirtækið tekið þátt í stórum verkefnum í El Salvador, Ungverjalandi, Póllandi og Slóvakíu. 26.7.2006 06:15
Danir vilja hluta gróðans Danir og Grænlendingar deila nú um það hvort tekjur af olíu, sem hugsanlega finnst út af ströndum Grænlands, eigi að falla Grænlendingum óskiptar í skaut eða dragast frá árlegum greiðslum frá Danmörku til grænlensku landstjórnarinnar. 26.7.2006 06:15
Seðlarnir komnir á netið Fólk getur nú nálgast álagningarseðla sína rafrænt á þjónustusíðu ríkisskattstjóra, www.rsk.is, með veflykli sínum. Opnað var fyrir þessa þjónustu klukkan fjögur í gærdag. 26.7.2006 06:00
Milljónir trjáa þarf til að binda mengunina Bílafloti Íslendinga blæs út um 700 þúsund tonnum af koltvísýringi á hverju ári. Það þyrfti að gróðursetja um það bil 350 milljónir trjáa til að binda mengun flotans. 25.7.2006 22:26
Engin varanleg mengun Heilbrigðiseftirlit Norðurlands telur varanlega mengun vegna bensínslyssins í Ljósavatnsskarði í dag vera litla sem enga. Valdimar Brynjólfsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands segir mest af bensíninu hafa lent á veginum og vegkantinum en vegurinn er mikið upphækkaður á þessum stað. 25.7.2006 22:06
Fæðingamet í júní Íslendingum fjölgar hratt. Nýtt fæðingarmet var slegið í júnímánuði. Og aldrei fyrr hafa eins margir erlendir ríkisborgarar sest að hér á landi og undanfarin misseri. 25.7.2006 21:54
Bækur fundust í gröf Sá merkilegi atburður gerði í dag að bækur fundust í fyrsta sinn við fornleifauppgröft hér á landi á Skriðuklaustri í dag. Bækurnar lágu í kistum tveggja manna sem eru líklega munkar úr klaustrinu. Því er talið að bækurnar séu sálmabækur. Uppgröfturinn hefur leitt í ljós marga fagra hluti. Enn bíða grafir rannsóknir í klausturkirkjunni að Skriðu og því líklegt að uppgröfturinn leiði fleira óvænt í ljós. 25.7.2006 21:50
Framtíð friðargæslu í Líbanon óljós Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði bak við luktar dyr í dag til að ræða um framtíð alþjóðlegs friðargæsluliðs í Líbanon sem gæta bláu línunnar sem skilur Líbanon og Ísrael. 25.7.2006 21:47
Óperuhúsi ekki frestað Kópavogsbær hyggur á niðurskurð sem nemur um hálfum milljarði króna til að stemma stigu við þenslu í efnahagslífinu. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að byggingu óperuhúss verði ekki frestað þrátt fyrir bæjarstjórn hafi ákveðið á dögunum að skera niður um hálfan milljarð króna vegna þenslu. 25.7.2006 21:35
Lítil mengun vegna olíuslyssins Hreinsunaraðgerðum er nú lokið í Ljósavatnsskarði, eftir að 10 þúsund lítrar af bensíni láku úr olíuflutningabíl og tengivagni sem hann dró valt á hliðina til móts við Stóru-Tjarnir í morgun. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands telur varanlega mengun vegna slyssins vera litla sem enga. 25.7.2006 18:54
Banaslys við Hellisheiðarvirkjun Tæplega fimmtugur franskur maður lést í vinnuslysi á svæði Hellisheiðarvirkjunar í morgun. Maðurinn féll úr sjö til níu metra hæð þegar lyftari með kranabómu valt. 25.7.2006 18:30
Gefur lítið fyrir rök ríkisstjórnarinnar Dagur B. Eggertsson gefur lítið fyrir rökstuðning ríkisstjórnarinnar um að hægja þurfi á framkvæmdum á væntanlegu tónlistar- og ráðstefnuhúsi í Reykjavík til að slá á þenslu í efnahagslífinu og segir að svo virðist sem allt eigi að víkja fyrir stóriðjustefnu stjórnvalda. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hægja á framkvæmdum við tónlistar og ráðstefnuhús í samkomulagi við Reykjavíkurborg og Portus. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að þetta væru skýr skilaboð frá ríkisstjórninni um að hún vildi viðhalda stöðugleikanum. Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir þau rök þó í versta falli nothæf sem skemmtiatriði á árshátíð hagfræðinga. Þó hann fagni því að húsið sé að rísa segir hann óheppilegt að Reykvíkingar þurfi að sætta sig við að hafa stóra holu í hjarta miðbæjarins fjórum mánuðum lengur en gert var ráð fyrir. Dagur segir jafnframt að skortur sé á yfirsýn þegar reynt væri að koma böndum á þensluna og nefnir hann sem dæmi að fyrirhugaðar framkvæmdir á Geldinganesi séu mun líklegri til að þensla í efnahagslífinu aukist enn frekar. 25.7.2006 17:21
Rauði kross Íslands sendir neyðaraðstoð til Líbanons Rauði kross Íslands hefur ákveðið að leggja tvær milljónir króna til hjálparstarfs í Líbanon eftir að alþjóða Rauði krossinn sendi út neyðarbeiðni til aðildarsamtaka víða um heim. Rauði kross Íslands kallar ennfremur eftir framlögum frá Íslendingum þar sem reynt verður að senda frekari aðstoð á næstu dögum. 25.7.2006 17:00
Netsími bundinn í jarðlínu Róbert Bragason, stjórnarformaður Atlassíma, vill koma því á framfæri að notast er við jarðlínur í netsímtölum fyrirtækisins. Í frétt hér á Vísi fyrr í dag var sagt að "ólíkt símkerfi Símans eru símar Atlassíma ekki bundnir við jarðlínur heldur er hringt í gegnum tölvur." Yfirmenn lögreglu og Neyðarlínu vilja að beðið verði með að heimila flutning símanúmera úr talsímakerfinu í netsímakerfi Atlassíma. Þeir óttast að flutningurinn dragi úr öryggi og geti hamlað lögreglurannsóknum. 25.7.2006 15:33