Fleiri fréttir Sagðist nota etanól í bakstra við bakverk Efnafræðingur, sem vitnaði í máli tveggja Litháa sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnabrot, sagði fyrir dómi að hann hefði aldrei séð amfetamín í fljótandi formi áður. Það var flutt inn í hvítvínsflöskum og líklega ekki í fyrsta sinn. 13.7.2006 07:00 Ráðgjafi Blairs handtekinn Helsti fjáröflunarmaður breska Verkamannaflokksins, Levy lávarður, var í gær handtekinn í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á ásökunum um að Tony Blair forsætisráðherra hafi með óeðlilegum hætti séð til þess að auðkýfingar, sem styrktu flokkinn, fengju sæti í lávarðadeild þingsins. 13.7.2006 06:45 Einn þungt haldinn á gjörgæsludeild Tugir manna slösuðust í sjötta nautahlaupinu af átta á San Fermin-hátíðinni í Pamplona á Spáni í gær. Þó ráku vel hyrnd nautin engan í gegn og eingöngu einn maður slasaðist illa þegar nautin tröðkuðu á honum. Hann var lagður inn á sjúkrahús með nokkuð alvarlega bak- og höfuðáverka, en var þó ekki í lífshættu.Hlaupið stóð í tvær og hálfa mínútu. 13.7.2006 06:45 Fundu rústir klaustursins Lengi var vitað af stóru klaustri á Austurlandi en rústir þess fundust ekki fyrr en árið 2002. Uppgröftur stendur enn yfir og hefur helmingur rústanna nú verið afhjúpaður, eða um sex hundruð fermetrar. 13.7.2006 06:45 Kosning í stjórn talin ólíkleg Líklegast er að sjálfkjörið verði í stjórn Straums-Burðaráss á hluthafafundi 19. júlí. Framboðsfrestur rennur út klukkan tvö í dag. 13.7.2006 06:30 Tók á móti skútukörlum
British Scooners Arrive 12.7.2006 14:41 Litháinn lýsir sig saklausann Lithái, sem var handtekinn í Leifsstöð í desember með tvær áfengisflöskur fullar af vökva til amfetamínframleiðslu, lýsti sig saklausan við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 12.7.2006 13:38 Forsetinn tekur á móti breskum skútukörlum Í dag klukkan þrjú mun Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson taka á móti hópi breskra skútukarla sem siglt hafa hingað til lands á tíu skútum í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá siglingu Dufferins láverðar til Íslands. 12.7.2006 13:19 Útlán Íbúðalánasjóðs dragast saman Útlán Íbúðalánasjóðs hafa dregist saman um fjórðung síðan bankanrir hófu innreið sína á íbúðalánamarkaðinn fyrir tæpum tveimur árum. 12.7.2006 13:10 Guðni Ágústsson sækist eftir æðstu embættum Framóknarflokksins Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins ætlar að sækjast eftir einu af þremur æðstu embættum Framsóknarflokksins á flokksþinginu í ágúst. Það er því ljóst að til kosninga dregur á flokksþinginu. 12.7.2006 13:01 Aukin þjónusta í Leifsstöð Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur nú komið sér upp þráðlausu neti í byggingunni. Fyrst um sinn verður einungis boðið upp á þráðlaust net í suðurbyggingu flugstöðvarinnar en stefnt er að því að þráðlaust net verði aðgengilegt á öllum helstu stöðum í byggingunni í nánustu framtíð. 12.7.2006 12:41 Forged Perscription 12.7.2006 11:43 Collective Bargaining Agreement Reached 12.7.2006 11:43 Robbie in Love? 12.7.2006 11:06 Samið um kjör starfsmanna svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra Skrifað var undir nýan samning um kjör starfsfólks svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra upp úr klukkan níu í morgun í Rúgbrauðsgerðinni. 12.7.2006 10:27 Hermenn Ísraelshers hafa haldið inn í Líbanon Hermenn Ísrelshers hafa haldið inn í Líbanon til að frelsa tvo hermenn sem Hizbollah skæruliðar fönguðu við landamærin landsins. Al-Jazeera-sjónvarpsstöðin segir að sjö ísraleskir hermenn hafi fallið í átökunum. 12.7.2006 09:54 Góðæri hjá útgerðarfélögum Góðæri ríkir nú hjá útgerðarfélögunum þar sem verðmæti fiskiaflans hefur hækkað mikið á þessu ári á sama tíma og gengi krónunnar hefur veikst. 12.7.2006 08:30 Samruni lyfsölufyrirtækja ógiltur Samkeppniseftirlitið ógilti í gær samruna lyfsölufyrirtækjanna Lyfja og heilsu og Lyfjavers. 12.7.2006 08:23 Engin sjúkraflugvél í Eyjum Starfsmenn heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja gripu enn í tómt í fyrradag, þegar þeir hugðust senda sjúkling með sjúkraflugvél til Reykjavíkur til innlangar á Landspítalann. 12.7.2006 08:10 Trukk í uppgræðsluna Efnt verður til viðburðarins, “Trukk í uppgræðsluna” við Litlu kaffistofuna á morgun kl. 9:30-10:30. 12.7.2006 08:01 Sjá næstu 50 fréttir
Sagðist nota etanól í bakstra við bakverk Efnafræðingur, sem vitnaði í máli tveggja Litháa sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnabrot, sagði fyrir dómi að hann hefði aldrei séð amfetamín í fljótandi formi áður. Það var flutt inn í hvítvínsflöskum og líklega ekki í fyrsta sinn. 13.7.2006 07:00
Ráðgjafi Blairs handtekinn Helsti fjáröflunarmaður breska Verkamannaflokksins, Levy lávarður, var í gær handtekinn í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á ásökunum um að Tony Blair forsætisráðherra hafi með óeðlilegum hætti séð til þess að auðkýfingar, sem styrktu flokkinn, fengju sæti í lávarðadeild þingsins. 13.7.2006 06:45
Einn þungt haldinn á gjörgæsludeild Tugir manna slösuðust í sjötta nautahlaupinu af átta á San Fermin-hátíðinni í Pamplona á Spáni í gær. Þó ráku vel hyrnd nautin engan í gegn og eingöngu einn maður slasaðist illa þegar nautin tröðkuðu á honum. Hann var lagður inn á sjúkrahús með nokkuð alvarlega bak- og höfuðáverka, en var þó ekki í lífshættu.Hlaupið stóð í tvær og hálfa mínútu. 13.7.2006 06:45
Fundu rústir klaustursins Lengi var vitað af stóru klaustri á Austurlandi en rústir þess fundust ekki fyrr en árið 2002. Uppgröftur stendur enn yfir og hefur helmingur rústanna nú verið afhjúpaður, eða um sex hundruð fermetrar. 13.7.2006 06:45
Kosning í stjórn talin ólíkleg Líklegast er að sjálfkjörið verði í stjórn Straums-Burðaráss á hluthafafundi 19. júlí. Framboðsfrestur rennur út klukkan tvö í dag. 13.7.2006 06:30
Segja bið eftir lækni of langa Í könnun sem gerð var meðal fanga á Litla-Hrauni kemur fram að meirihluti þeirra er óánægður með lækna- og tannlæknaþjónustu fangelsisins og allmargir með sálfræðiþjónustuna. Þetta kemur fram í Tímamótum, fréttablaði fanga á Litla-Hrauni. Þar kemur einnig fram að bið eftir viðtali hjá lækni á Litla-Hrauni getur verið nokkrir dagar. 13.7.2006 06:15
Ráðherrar votta samúð Forsætis- og utanríkisráðuneyti Íslands hafa sent indverskum stjórnvöldum samúðarkveðjur vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í fyrradag. 13.7.2006 06:15
Valgerður og Geir votta Indverjum samúð Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa sent starfsbræðrum sínum í Indlandi samúðarskeyti vegna sprengjuárásanna á lestakerfið í Mumbei á Indlandi. Valgerður ítrekaði ennfremur stuðning íslenskra stjórnvalda við baráttuna gegn alþjóðlegum hryðjuverkum. 12.7.2006 23:06
Fjárfestingar Íslendinga erlendis litlu minni en Dana Fjárfestingar Íslendinga erlendis var litlu minni en fjárfestingar nágranna okkar Dana í fyrra þrátt fyrir að hagkerfi þeirra sé um það bil fimmtán sinnum stærra. Alls námu fjárfestingar Íslendinga erlendis 439 milljörðum króna á síðasta ári og hafa þær aldrei verið meiri. Þetta um tvöföld upphæð fjárfestinga frá árinu áður og fimmtánföld upphæð ársins 2003. Auk þess má rifja upp á Ísland var í 16. sæti af aðlidarríkjum efnahags- og framfarastofunnarinnar, OECD þegar kom að beinum fjárfestingum. Sem dæmi um hve mikil þessi umsvif þessi voru má nefna að beinar fjárfestingar Íslendinga erlendis voru meiri en Norðmanna og Finna. Það segja Glitnismenn í raun ótrúlegt þegar litið er til þess að Ísland er lang fámennast þessara ríkja. Þessar miklu beinu fjárfestingar erlendis skýrast mest af sókn íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendum mörkuðum svo sem kaup Actavis á Amide og Alpharma, Kaupþings á Singer og Fridlander og Bakkavarar á Geest. Það er því von að margir spyrji sig að því hvaðan allir þessir peningar koma. Jón Bjarki Bentsson sérfræðingur frá greiningardeild Glitnis segir skýringuna vera aukin erlend lán Íslendinga. Skuldasöfnunin komi svo fram í því að reynt hafi á lánshæfni íslenskra kaupahéðna og því hafi þessi þróun dregist saman. Í mars á þessu ári dró Den Danske Bank upp mjög dökka mynd af íslensku efnahagslífi. Þeirri gagnrýni vísuðu Glitsmenn þó mikið til á bug og lögðu ríka áherslu á að þó spáð væri samdrætti væri ekkert sem benti til kreppu. 12.7.2006 22:51
ESB reynir að lækka farsímagjöld Evrópusambandið hefur kynnt áætlun sem miðar að því að lækka reikigjöld fyrir notkun farsíma erlendis um allt að 70%. Tekjur farsímafyrirtækja af reikigjöldum eru oft um 10-15% af heildartekjum fyrirtækjanna. 12.7.2006 22:41
Fullur unglingur stal olíubíl Sautján ára drengur var sviptur ökuleyfi í átta mánuði og dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa stolið olíuflutningabifreið af bensínafgreiðslustöð Atlantsolíu við Kópavogsbraut. Bifreiðin var tengd við aftanívagn sem innihélt um þrjátíu þúsund lítra af bensíni. Drengurinn var undir áhrifum áfengis. Dómarinn taldi rétt að fresta fullnustu refsingarinnar haldi drengurinn skilorð næstu tvö árin. 12.7.2006 22:34
Rekin fyrir að reykja í laumi Afgreiðslustúlka á veitingastað í Reykjavík var sagt upp störfum þegar upp komst um laumureykingar hennar og ítrekað hnupl með falinni myndavél inn á staðnum. Persónuvernd segir að um ólögmæta vöktun hafi verið um að ræða. 12.7.2006 22:29
Starfsmenn á baráttufundi Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust nú laust fyrir klukkan átta í kvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 12.7.2006 22:27
Microsoft sektað Evrópusambandið hefur sektað bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft um 280 milljónir evra, jafnvirði 26 milljarða íslenskra króna. 12.7.2006 21:00
Göngugarpur setur met Göngugarpurinn Jón Eggert Guðmundsson er nú í Barðastrandarsýslu í göngu sinni eftir strandvegum Íslands. Hann hefur þegar náð þeim áfanga að verða sá Íslendingur sem lengst hefur gengið á vegum umhverfis Ísland. 12.7.2006 20:57
Matarkostnaður gæti lækkað um 50 þúsund á ári Allt stefnir í að matvælanefnd forsætisráðuneytisins sem átti að leggja til leiðir til að lækka matarverð á Íslandi, ljúki störfum í þessari viku án þess að skila sameiginlegri niðurstöðu um innflutningstolla á matvælum. 12.7.2006 20:55
Síðasta geimgangan Tveir geimfarar úr áhöfn geimferjunnar Discovery brugðu sér í dag í síðustu geimgöngu yfirstandandi leiðangurs. 12.7.2006 20:00
Ópólitískur upplýsingafulltrúi Guðmundur Hörður Guðmundsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins. Guðmundur hefur starfað í fréttamennsku, bæði á Rúv og Fréttablaðinu auk þess sem hann hefur numið umhverfisfræði í Edinborgarháskóla. Guðmundur Hörður var fyrir nokkrum árum áberandi í starfi ungs Samfylkingarfólks og sat í nefndum fyrir flokkinn en segist nú hafa sagt skilið við pólitíkina. 12.7.2006 19:59
Enn ekki sátt um mexíkósku forsetakosningarnar Mexíkóski forsetaframbjóðandinn Lopez Obrador, sem beið lægri hlut fyrir Felipe Calderon með aðeins ríflega hálfs prósents mun 2. júlí síðastliðinn, segist nú hafa óhrekjanlegar sannanir á myndbandi fyrir kosningasvindli. Hann hefur nú lagt fram 900 blaðsíðna kæru þar sem ýmislegt ólöglegt athæfi í kosningabaráttunni og á kjördag er tíundað. 12.7.2006 19:20
Indverjar reiðir Pakistönum Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkunum í Mumbai á Indlandi í gær, sem kostuðu 183 mannslíf. Samskipti Indverja og Pakistana hafa kólnað vegna ódæðanna. 12.7.2006 19:15
Ófriðarskýin hlaðast upp Forsætisráðherra Ísraels segir að Líbanar hafi kastað stríðshanskanum í morgun þegar skæruliðar Hizbollah-samtakanna tóku tvo ísraelska hermenn í gíslingu. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fordæmdi gíslatökuna harðlega í yfirlýsingu sinni í dag. 12.7.2006 18:45
Biðst afsökunar á framkomu sinni í úrslitaleiknum Franski knattspyrnumaðurinn Zinedine Zidane hefur beðist afsökunar á framferði sínu í úrslitaleiknum á HM um síðustu helgi þegar hann skallaði ítalska varnarmanninn Marco Materazzi og var sendur af velli í sínum síðasta leik. Hann segir Materazzi hafa látið mjög ljót orð falla um fjölskyldu sína. Nánar má lesa um málið á íþróttasíðu Vísis. 12.7.2006 18:31
Amfetamín í hvítvínsflöskum Það er jafn auðvelt að búa til hreint amfetamín úr amfetamínvökva og að baka köku. Þetta kom fram í vitnisburði sérfræðings í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, við aðalmeðferð í máli tveggja Litháa sem grunaðir eru um stórfellt fíkniefnasmygl til landsins. 12.7.2006 18:06
Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi opnaður á ný Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi hefur verið opnaður aftur eftir umferðaróhapp sem varð fyrr í dag og hindraði umferð. 12.7.2006 17:52
Forsætisráðherra sendir samúðarkveðjur til Mumbai Geir H Haarde, forsætisráðherra sendi í dag forsætisráðherra Indlands, Dr. Manmohan Singh, samúðarkveðjur íslensku þjóðarinnar vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í gær. 12.7.2006 17:37
Vill fá allt húsnæðið að Snorrabraut undir Blóðbankann Stjórnvöld og yfirstjórn Landsspítalans eiga að nýta tækifærið og flytja Blóðbankann í húsnæði sem rúmar alla starfsemina segir Sveinn Guðmundsson, blóðbankastjóri. Hann gagnrýnir harðlega ummæli ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins vegna fyrirhugaðra flutninga. 12.7.2006 17:29
Umskornir karlmenn smitast síður af kynsjúkdómum Minni líkur eru á að umskornir karlmenn smitist af HIV veirunni og fái aðra kynsjúkdóma en karlmenn sem ekki eru umskornir. Sóttvarnarlæknir hvetur þó ekki íslenska karlmenn til að fara í slíka aðgerð. 12.7.2006 17:25
Umferðartafir við Lómagnúp á Skeiðarársandi Umferðartafir eru við Lómagnúp á Skeiðarársandi vegna umferðaróhapps sem varð rétt fyrir klukkan þrjú. Jeppi með fellihýsi valt og lenti á miðjum veginum og hindrar umferð að öllu leyti. Enginn slasaðist alvarlega. Vegagerðin biður fólk um að sína tillitssemi. 12.7.2006 15:40
Vonast til að Alliance-húsið svokallaða verði friðað Formaður húsafriðunarnefndar ríkisins situr nú fund með borgarstjóra í von um að borgarstjóri taki vel í hugmyndir nefndarinnar um að friða Alliance-húsið svokallaða í vesturbæ Reykjavíkur. Formaðurinn neitar því alfarið að nefndin hafi sofið á verðinum, en til stendur að rífa húsið. 12.7.2006 15:16
Litháinn lýsir sig saklausann Lithái, sem var handtekinn í Leifsstöð í desember með tvær áfengisflöskur fullar af vökva til amfetamínframleiðslu, lýsti sig saklausan við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 12.7.2006 13:38
Forsetinn tekur á móti breskum skútukörlum Í dag klukkan þrjú mun Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson taka á móti hópi breskra skútukarla sem siglt hafa hingað til lands á tíu skútum í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá siglingu Dufferins láverðar til Íslands. 12.7.2006 13:19
Útlán Íbúðalánasjóðs dragast saman Útlán Íbúðalánasjóðs hafa dregist saman um fjórðung síðan bankanrir hófu innreið sína á íbúðalánamarkaðinn fyrir tæpum tveimur árum. 12.7.2006 13:10
Guðni Ágústsson sækist eftir æðstu embættum Framóknarflokksins Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins ætlar að sækjast eftir einu af þremur æðstu embættum Framsóknarflokksins á flokksþinginu í ágúst. Það er því ljóst að til kosninga dregur á flokksþinginu. 12.7.2006 13:01
Aukin þjónusta í Leifsstöð Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur nú komið sér upp þráðlausu neti í byggingunni. Fyrst um sinn verður einungis boðið upp á þráðlaust net í suðurbyggingu flugstöðvarinnar en stefnt er að því að þráðlaust net verði aðgengilegt á öllum helstu stöðum í byggingunni í nánustu framtíð. 12.7.2006 12:41
Samið um kjör starfsmanna svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra Skrifað var undir nýan samning um kjör starfsfólks svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra upp úr klukkan níu í morgun í Rúgbrauðsgerðinni. 12.7.2006 10:27
Hermenn Ísraelshers hafa haldið inn í Líbanon Hermenn Ísrelshers hafa haldið inn í Líbanon til að frelsa tvo hermenn sem Hizbollah skæruliðar fönguðu við landamærin landsins. Al-Jazeera-sjónvarpsstöðin segir að sjö ísraleskir hermenn hafi fallið í átökunum. 12.7.2006 09:54
Góðæri hjá útgerðarfélögum Góðæri ríkir nú hjá útgerðarfélögunum þar sem verðmæti fiskiaflans hefur hækkað mikið á þessu ári á sama tíma og gengi krónunnar hefur veikst. 12.7.2006 08:30
Samruni lyfsölufyrirtækja ógiltur Samkeppniseftirlitið ógilti í gær samruna lyfsölufyrirtækjanna Lyfja og heilsu og Lyfjavers. 12.7.2006 08:23
Engin sjúkraflugvél í Eyjum Starfsmenn heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja gripu enn í tómt í fyrradag, þegar þeir hugðust senda sjúkling með sjúkraflugvél til Reykjavíkur til innlangar á Landspítalann. 12.7.2006 08:10
Trukk í uppgræðsluna Efnt verður til viðburðarins, “Trukk í uppgræðsluna” við Litlu kaffistofuna á morgun kl. 9:30-10:30. 12.7.2006 08:01