Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Actavis flytur hluta framleiðslu til Króatíu verði Pliva keypt Lyfjafyrirtækið Actavis fyrirhugar að flytja hluta framleiðslu sinnar til Króatíu þar sem framleiðsukostnaður er lágur, ef því tekst að kaupa króatíska lyfjafyrirtækið Pliva. Stjórn Pliva mælti á mánudag með því við hluthafa að ganga til samninga við bandaríkst fyrirtæki um sölu á Pliva í stað Actavis. 30.6.2006 09:00
Búist við fjölda uppsagna Búist er við að fjöldi starfsmanna hjá Svæðisskrifstofum um málefna fatlaðra muni segja upp störfum í dag, vegna óánægju með hægagang í kjaraviðræðum BHM við ríkið. Starfsmenn Svæðisskrifstofu Reykjaness ætla að skila inn uppsagnabréfum kl 11:00 og starfsmenn í Reykjavík kl 14:00. Búist er við að fleiri munu gera slíkt hið sama í kjölfarið. 30.6.2006 08:51
Fylgi Samfylkingarinnar aðeins um 24% Fylgi Samfylkingarinnar mælist aðeins rúm 24%, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins, en það er talsvert undir kjörfylgi í síðustu kosningum, og hið minnsta sem flokkurinn hefur mælst með í könnunum eftir kosningarnar. Sjálfstæðisflokkurinn bætir hinsvegar talsvert við sig frá kosningunum og mælist með rösk 42%. 30.6.2006 08:35
Árásum á Gaza haldið áfram Ísraelskar herþotur gerðu í nótt árásir á ýmis skotmörk á Gaza-svæðinu, þar á meðal innanríkisráðuneyti heimastjórnar Palestínumanna og skrifstofur Fatah-hreyfingar Abbas, forseta, í Gaza-borg. Einn Palestínumaður er sagður hafa fallið. 30.6.2006 08:15
Aldursmerkingu á myndum og leikjum breytt Aldursmerkingar á kvikmyndum, sjónvarpsefni og tölvuleikjum taka breytingum nú um mánaðmótin þegar ný lög um eftirlit með aðgengi barna að þessu efni taka gildi. Framleiðendur og dreifendur munu þá sjálfir merkja efnið á viðeigandi hátt en Barnaverndarstofa sinnir eftirliti vegna þess. 30.6.2006 08:00
Félagsmenn BHM segja upp störfum Stjórnendur á sambýlum fyrir fatlaða afhenda uppsagnarbréf sín í dag og rennur uppsagnarfresturinn út ýmist eftir einn eða þrjá mánuði. Skelfilegt ástand getur skapast á sambýlunum ef ekki fást fagmenntaðir í staðinn. 30.6.2006 07:45
Gríðarlegur verðmunur Munur á hæsta og lægsta verði á grænmeti og ávöxtum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu nemur allt að 365 prósentum, samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands sem gerð var í vikunni. 30.6.2006 07:45
Konur kjósa í fyrsta sinn Þingkosningar voru haldnar í Kúveit í gær og var þetta í fyrsta sinn sem konur fengu að kjósa í hinu olíuríka arabalandi. Kjörstaðir voru kynskiptir. 30.6.2006 07:45
Fylgi Samfylkingar ekki minna frá kosningum Sjálfstæðisflokkurinn hefur 42,5 prósenta fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins en fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 24,2 prósent. Vinstri græn hafa 14,8 prósenta fylgi og Frjálslyndi flokkurinn 6,2 30.6.2006 07:30
Úrskurður kveðinn upp í dag Arngrímur Ísberg, dómari í Baugsmálinu, kveður í dag upp úrskurð um það hvort endurákærum í Baugsmálinu verði vísað frá dómi eða ekki. Verjendur ákærðu í málinu, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Tryggva Jónssonar og Jóns Geralds Sullenberger, kröfðust þess að endurákærum í málinu yrði vísað frá dómi vegna "ágalla og viðamikilla staðreyndavillna í ákæru," eins og Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, lét hafa eftir sér fyrir dómi. 30.6.2006 07:30
Segja upp 22 starfsmönnum Tuttugu og tveimur starfsmönnum Vátryggingafélags Íslands, VÍS, verður sagt upp störfum frá og með mánaðamótum vegna skipulagsbreytinga hjá fyrirtækinu. 30.6.2006 07:15
Farþegar geta andað léttar Sættir hafa náðst í deilum starfsmanna IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, og stjórnar fyrirtækisins, en sem kunnugt er lögðu starfsmenn niður vinnu í þrjá tíma seinasta sunnudag til að mótmæla kjörum og vinnuaðstöðu. 30.6.2006 07:15
Upplýsingum verði safnað Ný Þjóðaröryggisdeild á að safna upplýsingum um hryðjuverk áður en til þeirra kemur. Mikilvægt að læra af öðrum þjóðum, segir Björn Bjarnason. 30.6.2006 07:15
Fangaréttarhöld eru lögleysa Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í gær að þeirri niðurstöðu að stríðsglæparéttarhöld yfir föngum sem hafa verið í haldi í bandarískum fangabúðum á Kúbu, brjóti bæði í bága við bandarísk herlög og Genfarsáttmálana. 30.6.2006 07:15
Unnið er að gerð samnings við Kína Fríverslunarsamningar skipta miklu fyrir fyrirtæki á Íslandi. Samningarnir opna fyrirtækjum leið inn á nýja markaði. Mikilvægt að gera samninga við lönd í Asíu vegna mikils vaxtar í framtíðinni. 30.6.2006 07:00
Drakk úr einni flösku Litháinn Romas Kosakovski er ákærður fyrir að reyna að smygla amfetamínvökva og brennisteinssýru til landsins. Amfetamínvökvinn hefði dugað til að framleiða sautján og hálft kíló af amfetamíni. 30.6.2006 07:00
Verðum að afstýra mansali Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði hafa skorað á Norrænu ráðherranefndina að útbúa sameiginlega norræna verkefnaáætlun í baráttunni við mansal. 30.6.2006 07:00
Ríkisstjórnir heims axli meiri ábyrgð Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti á mánudag ríkisstjórnir heims til að gæta vopnabúra sinna betur og setja aukinn kraft í að eyða ólöglegum vopnum. Á alþjóðlegri ráðstefnu um ólöglega vopnasölu sem nú stendur yfir sagði Annan vopnasmyglara, þjófa og spillta embættismenn höfuðandstæðinga þeirra sem vilja koma böndum á ólöglega vopnasölu í heiminum, en þó mættu ríkisstjórnir heimsins leggja mun meira af mörkum til að sporna við henni. 30.6.2006 07:00
Vilja ókeypis getnaðarvarnir Ungmennaráð Hafnarfjarðar fundaði með bæjarstjórn Hafnarfjarðar í vikunni og lagði ungt fólk í bænum þar fram tillögur sínar um það sem betur mætti fara. Tillögurnar eru afrakstur ungmennaþings sem haldið var í lok apríl. 30.6.2006 06:45
Búist við fjölda á góðgerðadag Góðgerðarmál Tívolíið við Smáralind verður með góðgerðadag, fjórða árið í röð, næstkomandi mánudag. 30.6.2006 06:45
Búast við svari frá Íransstjórn Bandaríkin, Rússland og önnur iðnríki í hópi átta stærstu iðnríkja heims sögðust í gær vænta þess að írönsk stjórnvöld veiti svar í næstu viku við tilboði stórveldanna til lausnar deilunni um kjarnorkuáform Írana. 30.6.2006 06:45
Segir af sér vegna Hirsi Hollenski forsætisráðherrann, Jan Peter Balkenende, lýsti því yfir að þriggja ára samsteypustjórn hans muni segja af sér eftir að þrír ráðherrar sögðu sig úr henni í gær. Ætlar Balkenende að senda Beatrix drottningu bréf þess efnis í dag. 30.6.2006 06:45
Alhæft um afgreiðsluvenjur Lyfjafræðingar eru ósáttir við fullyrðingar Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra og telja umræðuna ómálefnalega. Þeir segja ekki hægt að alhæfa um afgreiðsluvenjur lyfjafræðinga út frá einni verðkönnun sem einungis nái til fárra lyfja. 30.6.2006 06:30
Ísraelar handtaka Palestínuþingmenn Ísraelsher hélt áfram hörðum hernaðaraðgerðum á Gaza-strönd í gær. Tugir palestínskra þingmanna voru handteknir til að auka þrýsting á Palestínumenn. 30.6.2006 06:30
Þakka fyrir góð viðbrögð Þingmenn Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, þau Dagný Jónsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Birkir Jón Jónsson og Jón Kristjánsson, voru á ferð um kjördæmið og komu í fyrradag við á Eskifirði þar sem þau ræddu við lögreglumenn sem staðið höfðu í ströngu vegna mengunarslyssins á Eskifirði í fyrradag. 30.6.2006 06:00
Gera átak gegn utanvegaakstri Ferðaklúbburinn 4x4, Vélhjólaíþróttaklúbburinn, Ferðafélag Íslands, Útivist, Umhverfisstofnun, Landgræðsla ríkisins og Landvernd kynntu í dag átak gegn utanvegaakstri. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hóf átakið formlega með opnun vefsíðu sem ætlað er að fræða fólk. 30.6.2006 05:45
Réðu ófaglært þvert á reglur Reykhólahreppur var dæmdur til greiðslu 1,5 milljóna króna bóta til faglærðs sjúkraliða sem ekki var ráðinn í starf við hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð þvert á reglur. 30.6.2006 05:45
Rússarnir þurfa ekkert leyfi Alþjóðamál Landhelgisgæslunni hafa engar upplýsingar borist varðandi fyrirhugaða heræfingu Rússa innan tvö hundruð mílna íslensku efnahagslögsögunnar, samkvæmt Ásgrími L. Ásgrímssyni yfirmanni vaktstöðvar siglinga hjá gæslunni. Gæslunni er því ekki kunnugt um hvenær æfingarnar eiga að hefjast. 30.6.2006 05:45
Veggjald einn kosta Tæplega sjötíu prósent aðspurðra í nýlegri könnun Gallup vilja stytta hringveginn með nýjum vegi sunnan við Blönduós. Stór meirihluti er samkvæmt könnuninni tilbúinn til að greiða sérstakt veggjald, eins og þekkist í Hvalfjarðargöngum, til að svo geti orðið. 30.6.2006 05:45
Fetaostsmyglari flýr tollverði Tuttugu og átta ára gamall maður, sem reyndi að smygla tveimur tonnum af fetaosti inn í Noreg, lagði á flótta þegar tollverðir gáfu honum merki um að stöðva flutningabíl sinn. 30.6.2006 05:45
Tæplega 1.500 erindi flutt Ráðstefna um aðgerðarrannsóknir í Háskóla Íslands verður haldin á sunnudag. Þetta er fjölmennasta alþjóðlega ráðstefna sem hefur verið haldin hér á landi. 30.6.2006 05:15
Leitar tilboða í Straumsbréf Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) ákvað að leita eftir tilboðum í fimm prósenta hlut sinn í Straumi-Burðarási. Miðað við gengi Straums í gær er virði hlutarins tæpir tíu milljarðar króna. 30.6.2006 05:15
Myrtir vegna Tétsníu Utanríkisráðuneyti Rússlands hefur staðfest að fjórir sendiráðsstarfsmenn Rússlands í Írak hafi verið myrtir af lítt þekktum hópi uppreisnarmanna sem talinn er tengjast al-Kaída-hryðjuverkanetinu. 30.6.2006 05:00
Fjallar um hlýnun jarðar Bandaríkjanna samþykkti á mánudag að taka til meðferðar mál, sem snýst um það hvort ríkisstjórn Bandaríkjanna beri skylda til að setja hömlur á losun gróðurhúsalofttegunda. 30.6.2006 04:45
Ingimundur nýr bankastjóri Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur skipað Ingimund Friðriksson í stöðu seðlabankastjóra til næstu sjö ára. Hann hefur gegnt stöðu aðstoðarbankastjóra Seðlabankans frá árinu 1994. Ingimundur er fæddur 17. febrúar 1950 og hefur lokið MA-prófi í þjóðhagfræði. 30.6.2006 04:30
Skila tillögum fyrir áramót Fundur skipulagsráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt tillögu meirihluta ráðsins, um stofnun sérstaks starfshóps um skipulag við Laugaveg. 30.6.2006 04:30
Allt að 356 prósenta munur á grænmetisverði Allt að 356 prósenta verðmunur reyndist á hæsta og lægsta verði á grænmeti og ávöxtum samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ. Alls voru 40 tegundir af grænmeti og ávöxtum kannaðar og var yfir 100 prósenta munur í 27 tilvikum. 29.6.2006 23:15
World Class hyggur á landvinninga í Danmörku Eigendur líkamsræktarkeðjunnar World Class á Íslandi bætast nú í hóp útrásarmanna til Danmerkur því þeir hafa fest kaup á þrettán líkamsræktarstöðvum þar í landi. Þeir sjá mikil sóknarfæri í Danmörku og áforma að koma á fót tugum líkamsræktarstöðva í viðbót. 29.6.2006 23:04
Ísraelar handtaka palestínska þingmenn og ráðherra Spenna magnast enn á herteknu svæðunum eftir að Ísraelar handtóku fjölda palestínskra þingmanna og ráðherra. Ráðherrar sem ekki eru í höndum Ísraela hafa farið í felur. Eitt fórnarlamb átakanna var jarðsett í dag. Það var átján ára landnemi, sem palestínskir byssumenn rændu og skutu til bana. Enn er óvíst um afdrif ísraelska hermannsins sem var tekinn á sunnudag. Noam Shalit, father of kidnapped Israeli soldier, Corporal Gilad Shalit: "In this kind of situation time is crucial and every minute that passes is against us and Gilad." Ísraelskur her, grár fyrir járnum, er kominn inn á Gaza svæðið. Í gær og í nótt tóku Ísraelar átta ráðherra Hamas stjórnarinnar í Palestínu höndum, um 20 þingmenn og nærri sextíu aðra embættismenn. Aðrir ráðherrar eru í felum og stjórn Palestínu er nú óstarfhæf. (Arabic) Nasser Shaer, Palestinian deputy prime minister: (14.30) "There is a real disaster in Gaza now. In addition to the security disaster, tens or even hundreds of tanks and aeroplanes are shelling and destroying the power station which provides electricity for Gaza. This is not an action to eradicate terrorism, but a siege hurting the Palestinian people." Ísraelskar herflugvélar skutu í dag á bíl í Gazaborg, sem í voru palestínskir byssumenn. Þeir sluppu en ungur drengur meiddist. 29.6.2006 20:01
Vonast eftir íslenskri leyniþjónustu Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, vonast til að hægt verði að ræða á næsta þingi frumvarp um stofnun þjóðaröryggisdeildar - eins konar leyniþjónustu. Þetta er í samræmi við ráðgjöf evrópskra sérfræðinga sem telja að þetta ætti að vera 25-30 manna deild með víðtækar heimildir til hlerana, eftirlits og upplýsingaöflunar í forvarnarskyni gegn hryðjuverkum. 29.6.2006 19:54
Nýtt megrunarlyf á markað Stefnt er að því að setja nýtt megrunarlyf á markað hér á landi í haust. Um er að ræða töflu sem þarf að taka daglega og er talin geta lækkað líkamsþyngd fólks um einn tíunda. 29.6.2006 19:49
Maður lét lífið í hagli Einn maður lét lífið og rúmlega hundrað manns slösuðust þegar mikil haglél féllu í Suðvestur-Þýskalandi. Haglið var á stærð við tennisbolta og olli miklum skemmdum á bílum og húsum. Bóndi á sjötugsaldri drukknaði þegar hann var að reka kýr inn í hús. Hann lenti í flóði þegar lækjarspræna varð að stórfljóti á augabragði. Talið er að tjón á mannvirkjum nemi hundruðum milljóna króna. 29.6.2006 19:44
Heimsótti vin sinn haförninn Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir, Grundfirðingurinn ungi sem bjargaði haferni frá bráðum bana í fyrradag, kom í bæinn í dag til að heimsækja fiðraðan vin sinn en honum hefur hún gefið nafnið Sigurörn. 29.6.2006 19:36
Varað við grjóthruni í Óshlíð Vegagerðin biður þá sem aka um Óshlíð á Vestfjörðum að fara með aðgát þar sem búast má við grjóthruni úr hlíðinni. Mikil rigning hefur verið á svæðinu og með henni eykst hættan á grjóthruni. 29.6.2006 17:16
Varaforsætisráðherra heimastjórnarinnar í haldi Ísraelskar herþyrlur skutu flugskeyti að bíl herskárra Palestínumanna í Gaza-borg í dag. Vitni segja að flugskeytið hafi þó geigað. Ísraelar hafa handtekið ráðherra og þingmenn Hamas-samtakanna til að knýja um að nítján ára ísraelskum hermanni, Gilad Shalit, verði sleppt úr haldi herskárra Palestínumanna. Meðal þeirra ráðherra sem Ísarelsmenn hafa handtekið er Nasser Shaer, vara-forsætisráðherra í palestínsku heimastjórninni. 29.6.2006 16:15