Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kerfið verður skilvirkara Aðkoma ríkisstjórnarinnar að endurskoðun kjarasamninga byggist að hluta eða öllu leyti á ákvörðun um lækkun á tekjuskattinum í staðinn fyrir lægra skattþrep. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að til álita kæmi að lækka tekjuskattinn um eitt prósent og fresta opinberum framkvæmdum. 18.6.2006 07:00
Umbótum verði hraðað Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu á fundi sínum í Brussel í gær að styðja áform Rúmena og Búlgara um að ganga í sambandið um næstu áramót, en þeir áminntu stjórnvöld í löndunum tveimur um að hraða umbótum sem þau hafa skuldbundið sig til að hrinda í framkvæmd áður en af aðildinni verður. 18.6.2006 06:45
Eþíópíski herinn við landamæri Sómalíu Líklegt þykir að herinn sé kominn til að vega á móti íslamistum og til varnar bráðabirgðastjórn landsins. Íslamistarnir vinna hvern sigurinn á fætur öðrum og hafa stökkt tveimur stríðsherrum á flótta. 18.6.2006 06:45
Varað við skelfiski í Hvalfirði Hafrannsóknastofnunin varar fólk við því að tína skelfisk í Hvalfirði sér til matar næstu vikurnar. Ástæðan er mikið magn eitraðra svifþörunga en fjöldi svonefndra Dinophysis spp-skoruþörunga er mjög mikill og við slíkar aðstæður er hætta á DSP-eitrun í skelfiski. 18.6.2006 06:45
Stunginn með hnífi í kviðinn Karlmaður á fimmtugsaldri var stunginn í kviðinn með hnífi á veitingastað ofarlega við Laugaveg aðfaranótt laugardags. Hann var fluttur á slysadeild Landsspítalans í Fossvogi og voru sár hans svo alvarleg að hann var lagður inn á gjörgæsludeild. 18.6.2006 06:45
Falleg athöfn á Bessastöðum Ellefu Íslendingar voru sæmdir riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Á meðal þeirra sem hlutu orðuna voru Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, fyrir störf að velferð og réttindum kvenna, Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur, fyrir störf í þágu kirkju og samfélags og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri, fyrir störf í þágu menningar og leiklistar. 18.6.2006 06:45
Kúrdasjónvarp veldur deilum Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er hneykslaður á því að 56 tyrkneskir borgar- og bæjarstjórar, sem sendu honum bréf, skuli nú af þeim sökum sæta sakarannsókn af hálfu yfirvalda í Tyrklandi. 18.6.2006 06:30
Safna fé undir fölsku flaggi Dæmi eru um að svikahrappar hafi hringt í fólk og sagst vera að safna fé til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands sem er líknarfélag í þágu þeirra sem minna mega sín í Reykjavík. Svikahrapparnir bjóðast til að koma heim til fólks og sækja féð. 18.6.2006 06:15
Synti um 1.600 kílómetra leið Vísindamenn í Alaska ráku upp stór augu á dögunum þegar hvíthvalshræ fannst í þarlendri á, um 1.600 kílómetrum frá náttúrulegum dvalarstað tegundarinnar. Þeir telja ólíklegt að hræinu hafi verið komið þangað af mannavöldum og dettur helst í hug að hvalurinn, sem mældist tveir og hálfur metri á lengd, hafi synt upp ána í leit að mat en mjög óalgengt er að hvalir sem þessir syndi svo langt frá heimaslóðum sínum. Útivistarmenn á kanóum fundu hræið, en farið var með það á safn þar sem það verður úrbeinað og beinagrindin höfð til sýnis. 18.6.2006 06:00
Foreldrar fái eingreiðslu Markmið meirihlutasamstarfs Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Sveitarfélaginu Árborg er að byggja upp fjölskylduvænt sveitarfélag. Fram kemur í nýkynntum málefnasamningi þeirra að foreldrum þeim sem kjósa að vera heima með börn sín frá níu til átján mánaða aldurs bjóðist valgreiðsla að upphæð 20.000 krónur á mánuði. Ennfremur er stefnt að því að öllum börnum frá átján mánaða aldri verði tryggð leikskólavist á kjörtímabilinu. 18.6.2006 06:00
Samkomulag um loftferðir Náðst hefur samkomulag milli Íslands og Indónesíu um loftferðir, sem mun veita íslenskum flugfélögum tækifæri til að stunda flug til og frá þremur borgum í landinu með tengingum við flug til annarra staða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 18.6.2006 06:00
Vill leita að samstarfsfleti Stefna Landspítala - háskólasjúkrahúss þess efnis að yfirmenn hjá sjúkrahúsinu séu í 100 prósenta starfshlutfalli og sinni ekki öðrum lækningastörfum þess utan mun standa óbreytt í máli Tómasar Zoëga læknis, sem og annarra á spítalanum. Reynt verður að fá Tómas til að starfa áfram. 18.6.2006 06:00
Fótboltinn sameinar Til átaka kom á milli palestínskra mótmælenda og ísraelskra hermanna í bænum Bílín á Vesturbakkanum í gær vegna múrsins sem verið er að reisa á landamærunum. Allt féll hins vegar í dúnalogn þegar deilendur töldu sig skyndilega hafa mikilvægari hnöppum að hneppa. 17.6.2006 20:00
Íranar eru jákvæðir Vonir glæddust um lausn á kjarnorkudeilunni við Írana vegna yfirlýsinga um að þeir vilji skoða sáttatilboð Vesturveldanna af mikilli alvöru. Fregnir af eldflaugatilraunum Norður-Kóreumanna vekja hins vegar talsverðan ugg 17.6.2006 19:00
Segja framtíð landsins ráðast á næstu misserum Fullt var út úr dyrum á stofnfundi Framtíðarlandsins, félags áhugafólks um framtíð Íslands, í Austurbæ í hádeginu. Talsmenn félagsins telja að framtíð landsins muni ráðast á næstu mánuðum eða misserum og vilja hafa áhrif á hana og gera Ísland að draumalandi. 17.6.2006 19:00
Gæsluvarðhald vegna hnífsstungu Karlmaður um tvítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 23. júní vegna hnífsstungu á veitingastað við Laugaveginn í nótt. 17.6.2006 17:42
Átök og innbyrðis deilur meðal ástæðna afsagnar Átök og innbyrðis deilur í Framsóknarflokknum eru meðal ástæðna þess að Halldór Ásgrímsson hættir í pólitík að mati Björns Inga Hrafnssonar, fyrrverandi aðstoðamanns hans. 17.6.2006 16:24
Ættjarðarstemmning hjá Íslendingum í Kaupmannahöfn Ættjarðarstemmningin sveif yfir vötnum á 17. júní hátíðahöldum Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn í dag. Þar komu Íslendingar saman á Amager-ströndinni að því er greint er frá á fréttavefnum Suðurnland.net. 17.6.2006 15:46
Ellefu Íslendingar sæmdir fálkaorðunni Ellefu Íslendingar voru sæmdir heiðursorðu hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, sex karlar og fimm konur. Þar á meðal voru Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, fyrir störf að velferð og réttindum kvenna, Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur fyrir störf í þágu kirkju og samfélags, Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar svokölluðu, fyrir frumkvæði í menntamálum. 17.6.2006 15:45
Sonur síðasta konungs Ítalíu handtekinn Ítalska lögreglan handtók í gær Viktor Emmanuel, son Umberto annars, síðasta konungs Ítalíu. Emmanuel er grunaður um að hafa tekið þátt í skipulagðri glæpastarfsemi sem talin er teygja anga sína víða um lönd, meðal annars á sviði vændis. 17.6.2006 15:00
Leiðtogi aðskilnaðarsinna í Tsjetsjeníu felldur Tsjetsjenski stjórnarherinn felldi í morgun Abdul-Kalim Saidulajeff, leiðtoga aðskilnaðarsinna í landinu, í bænum Argun, skammt austur af höfuðborginni Grosní 17.6.2006 14:45
Húsfyllir á fundi Framtíðarlandsins í Austurbæ Um 600 manns sóttu stofnfund Framtíðarlandsins, félags áhugafólks um framtíð Íslands. Fundurinn var haldinn í Austurbæ í hádeginu. Aðstandendur félagsins telja að framtíð landsins ráðist á næstu mánuðum eða misserum. 17.6.2006 14:30
Vill að Framsókn endurskoði stóriðjustefnu sína Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna í Reykjavík, sagðist í Skaftahlíðinni í hádeginu vilja að Framsóknarflokkurinn endurskoðaði stóriðjustefnu sína. 17.6.2006 14:00
N-Kóreumenn prófa eldflaug um helgina Norður-Kóreumenn hyggjast um helgina skjóta á loft langdrægri tilraunaeldflaug sem getur borið kjarnaodda. Eldflaugin er af tegundinni Taepodong-2 og getur dregið sex þúsund kílómetra, eða allt til borga á vesturströnd Bandaríkjanna. 17.6.2006 13:00
Konur hafi borið skarðan hlut frá borði í kosningum Félagsmálaráðherra telur konur hafa borið skarðan hlut frá borði í sveitastjórnarkosningunum í lok maí. Tveggja ára gömul jafnréttisáætlun ráðuneytisins verður tekin til endurskoðunar á næstunni. 17.6.2006 12:30
Eþíópískt herlið ræðst inn í Sómalíu vegna skæruliða Eþíópískt herlið réðst inn í Sómalíu morgun eftir að ljóst varð að íslamskir skæruliðar væru komnir í seilingarfjarlægð við borgina Baidoa, þar sem sómalska bráðabirgðastjórnin hefur aðsetur. 17.6.2006 12:15
Dræm þátttaka áhyggjuefni Íslendingar mega ekki gleyma þeim fórnum sem færðar voru til að koma hér á almennum kosningarétti. Þetta sagði forsætisráðherra í þjóðhátiðarræðu sinni í morgun. Töluvert af fólki var í miðbænum í morgun, þrátt fyrir að veðrið væri með grárra móti. 17.6.2006 11:59
Skilmálar ekki í samræmi við lög Skilmálar borgarinnar vegna útboðs um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar eru ekki í samræmi við lög segir kærunefnd útboðsmála. Þetta kemur fram á forsíðu Morgunblaðsins í dag. 17.6.2006 11:30
Ekki virðist meirihluti fyrir hvalveiðum Ríki sem hlynnt eru nýtingu hvalastofna virðast ekki í meirihluta á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins, þvert á það sem spáð hafði verið. Í gær höfðu friðunarsinnar betur í tveimur atkvæðagreiðslum á fundinum sem fram fer í karabíska eyríkinu Sankti Kristófer og Nevis. 17.6.2006 11:15
Töluverður erill hjá lögreglunni á Akureyri Töluverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gær og nótt en nóttinn gekk þó slysalaust fyrir sig. Mikil ölvun var í bænum og þurfti lögregla að hafa afskipti af allmörgum ungmennum sem ekki höfðu lögaldur til að neyta áfengis. 17.6.2006 11:00
Pétur Gautur hlaut flest verðlaun á Grímunni Leikritið Pétur Gautur, sem sýnt hefur verið í Þjóðleikhúsinu í vetur, kom sá og sigraði á Grímunni, íslensku leiklistarverðlaununum, sem voru afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. 17.6.2006 10:45
Tugir liggja í valnum eftir átök morgunsins Í það minnsta 37 hafa fallið í heiftarlegum átökum stjórnarhersins á Srí Lanka og Tamíl-tígra í morgun. Formælandi ríkisstjórnarinnar segir að ákveðið hafi verið að ráðast til atlögu gegn Tamílum eftir að 64 borgarar létu lífið í fyrradag þegar rúta sem þeir voru í ók utan í jarðsprengju sem tígrarnir höfðu komið fyrir. 17.6.2006 10:30
Fjölbreytt dagskrá um allt land á 17. júní Fjölbreytt dagskrá verður víða um land í dag, á þjóðhátíðardegi Íslendinga. 17.6.2006 10:15
Karlmaður stunginn á veitingastað í miðbænum í nótt Karlmaður á fimmtugsaldri var stunginn með hnífi í kviðinn á veitingastað við Laugaveg um hálftvöleytið í nótt. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og liggur hann nú á gjörgæslu. 17.6.2006 10:00
17. júní undirbúinn í kvöld Það er óhætt að segja að það hafi verið blautt í miðbænum í kvöld þar sem verið var að undirbúa dagskrá morgundagsins, 17. júní. Hún hefst nú klukkan tíu þegar lagður verður blómsveigur á leiði Jóns Sigurðssonar og henni lýkur ekki fyrr en tíu í kvöld, meðal annars með tónleikum við Arnarhól. 16.6.2006 23:30
Óttast að Miðstöð mæðraverndar heyri sögunni til Forstöðumaður Heilsuverndar barna óttast að Miðstöð mæðraverndar heyri sögunni til í núverandi mynd ef starfsemi Heilsuverndarstöðvarinnar á Barónsstíg verður flutt í Mjóddina. Starfsmenn Heilsuverndarstöðvarinnar vilja að ríkið reyni að fá húsið aftur. 16.6.2006 23:15
Komst út úr logandi húsi sínu við illan Guðrún Guðmundsdóttir, íbúi að Hólmaseli í Flóahreppi, komst út úr brennandi húsi sínu við illan leik í gærkvöldi. Það var henni til happs að nágrannar hennar sáu eldinn og kom henni til bjargar. 16.6.2006 23:02
Vill að lífeyriskjör verði reiknuð upp til launa Formaður VR vill að lífeyriskjör æðstu embættismanna verði með sambærilegum hætti og almennra launþega en að núverandi lífeyriskjör þeirra verði reiknuð upp til launa. Hann skorar á stjórnvöld að lýsa yfir vilja til breytinga á kerfinu. 16.6.2006 23:00
Forseti Írans efast enn um helförina Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, endurtók í dag fyrri staðhæfingar sínar um að helför nasista gegn gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni sé ekki studd nægilega traustum heimildum og því þurfi að gera nýja og óháða sagnfræðirannsókn á atburðunum sem áttu sér stað í vinnubúðum nasista. 16.6.2006 22:02
Smyglaði sprengiefni hugsanlega í skóm sínum Maður er grunaður um að hafa borið sprengiefni í skóm sínum inn til föstudagsbæna í Buratha-moskunni í Norður-Bagdad í dag. Í það minnsta 11 létust og 25 særðust þegar hann sprengdi sig í loft upp. 16.6.2006 21:49
Fyrsta verkefni Félagsmálaráðherra í Íbúðarlánasjóði Magnús Stefánsson nýsettur félagsmálaráðherra opnaði nýja og notendavænni heimasíðu Íbúðarlánasjóðs með viðhöfn vopnaður tölvumús. Þetta var fyrsta opinbera verkefni Magnúsar í embætti félagsmálaráðherra. kvót Magnús gat þó ekki starldað lengi við í húsakynnum Íbúðarlánasjóðs en notaði þó heimsóknina til að kynna sér starfsemina sem þar er rekinn. Hann kvaðst þó ekki reiðubúinn svara neinum spurningum um framhald þessarar stofnunnar sem mikið hefur verið í umræðunni að undanfarinn misserri eða allt frá því að bankar hófu lánastarfsemi fyrir húsnæðiskaupum. 16.6.2006 21:46
Hafró varar við kræklingatínslu víða um land Hafrannsóknarstofnun varar fólk eindregið við því að tína sér krækling eða annan skelfisk til matar í Hvalfirði vegna gríðarlegs magns eiturþörunga í sjónum þar. Einnig er varað við því að tína skelfisk í nágrenni Stykkishólms og í Eyjafirði. 16.6.2006 21:39
Hvalfriðunarsinnar enn í meirihluta Ríki sem hlynnt eru algerri friðun hvalastofna virðast enn einu sinni vera í meirihluta á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins því nýtingarsinnar töpuðu naumlega atkvæðagreiðslu um veiðar á smáhvelum. Formaður íslensku sendinefndarinnar á fundinum gerir sér engar grillur um að nokkur árangur náist þar. 16.6.2006 21:00
Flugferðum fjölgað eftir vistaskiptin Flugferðum til Barcelona frá Íslandi verður fjölgað eftir kaupin á Eiði Smára. Barcelona-treyjur eru uppseldar í Reykjavík, en stórar sendingar eru á leiðinni. 16.6.2006 20:00
Stjórnarskrársáttmálinn saltaður Engin niðurstaða fékkst á leiðtogafundi Evrópusambandsins, sem fram fer í Brussel, um hvað gera skuli við umdeildan stjórnarskrársáttmála þess. 16.6.2006 20:00