Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðbúnaðarstig hækkað hér á landi ef fuglaflensuveiran berst til Bretlands Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir viðbúnaðarstig hér á landi verða aukið ef H5N1 gerð fuglaflensuveirunnar berst til Bretlands. Rannsóknarstofa Evrópusambandsins í Surrey á Englandi hefur staðfest að svanur, sem fannst dauður í höfninni í Cellardyke norður af Edinborg í Skotlandi fyrir átta dögum, var með H5N1 fuglaflensuveiru. 6.4.2006 16:04
Um átta tonn bóka á bókamarkaði Braga Um átta tonn bóka eru nú til sölu á bókamarkaði Fornbókabúðinnar Bókin á Klapparstígnum. Óhætt er að segja að þar sé eitt og annað áhugavert að finna. 6.4.2006 15:57
Dregið úr brottkasti fisks á Íslandsmiðum Verulega hefur dregið úr brottkasti fisks á Íslandsmiðum samkvæmt nýrri könnun sem IMG Gallup gerði fyrir sjávarútvegsráðuneytið, en tímabil könnunarinnar var frá 29. desember 2005 - 24. janúar 2006. 6.4.2006 15:05
David Trads ráðinn ritstjóri hjá nýju fréttablaði Dagsbrúnar David Trads hefur verið ráðinn ritstjóri fyrirhugaðs fréttablaðs sem Dagsbrún hyggst gefa út í Danmörku. Trads hefur unnið á fjölmörgum dagblöðum og tók meðal annars þátt í að setja á stofn fríblaðið Metro Express í Danmörku. Einnig hefur hann kennt blaðamennsku við Syddansk Universitet í Odense 6.4.2006 14:58
Tveggja milljóna króna aukafjárveiting til Námsflokka Reykjavíkur Borgarráð samþykkti í morgun 2 milljóna króna aukafjárveitingu til Námsflokka Reykjavíkur vegna íslenskunáms innflytjenda. Samningur sem borgin gerði við Mími símenntun var rammasamningur um 700 nemendur, en þeim fjölda hefur þegar verið sinnt á liðnu námsári. 6.4.2006 14:55
Lítil áhrif gengis á ferðaþjónustu Ferðaþjónustan kemur ekki til með að njóta góðs af því ef gengið lækkar, sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í dag. 6.4.2006 14:09
Félag lesblindra fær styrk Félag lesblindra fékk í dag úthlutað fjögra og hálfrar milljónar króna styrk frá Velferðarsjóði barna. Á næstunni verður gengið frá veitingu sumargjafa sjóðsins til þurfandi barna á Íslandi en þær nema tólf milljónum króna. 6.4.2006 12:58
Mladic verður framseldur Serbar hafa fullvissað fulltrúa stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Haag í Hollandi um að Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, verði afhentur dómstólnum fyrir lok apríl. Mladic hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug. 6.4.2006 12:45
Skert þjónusta á tíu dvalarheimilum Á annað þúsund íbúar á dvalarheimilum fá skerta þjónustu í dag þar sem ófaglærðir starfsmenn heimilanna eru í tveggja daga setuverkfalli. Starfsmennirnir segja laun sín óviðunandi og eru ósáttir við það sem þeir kalla skeytingarleysi ráðamanna. 6.4.2006 12:32
Norskir bankar taka áhættuþóknun Norskir bankar eru farnir að taka eins konar áhættuþóknun fyrir að höndla með íslenskar krónur, sem endurspeglar litla trú þeirra á krónunni. 6.4.2006 12:30
Hafa áhyggjur af þorskstofninum Stjórnarandstæðingar lýstu miklum áhyggjum af stöðu þorsksins og gagnrýndu kvótakerfið harðlega við upphaf þingfundar í morgun. Sjávarútvegsráðherra sagði fréttir af togararalli Hafrannsóknastofnunar ekki góðar en hvatti menn til að bíða lokaniðurstaðna. 6.4.2006 12:15
Bálhvasst á Austfjörðum Bálhvasst hefur verið á Austfjörðum í morgun og stórhríð geisað á fjallvegum. Veður er hins vegar gengið niður á Vestfjörðum og þeir Bolvíkingar, sem urðu að yfirgefa hús sín í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu, fengu að snúa aftur heim í morgun. 6.4.2006 12:02
H5N1 sagt hafa greinst í Skotlandi Að sögn bresku Sky fréttastofunnar hefur hið banvæna H5N1 afbrigði fuglaflensu greinst í hræi af svani sem fannst í Skotlandi í síðustu viku. Bresk yfirvöld hafa þó ekki staðfest þetta formlega. Fari svo má gera ráð fyrir að viðbúnaðarstig hér á landi verði aukið. 6.4.2006 12:00
Snjóar fyrir norðan Akureyringar þurftu enn á ný að grípa til snjósköfunnar í morgun en töluvert hefur snjóað í nótt og í dag fyrir norðan. Meiri snjór er nú á Akureyri en um langt skeið og mega íbúar enn bíða vorsins. 6.4.2006 11:45
Mannfall í Najaf Minnst 15 féllu þegar bílsprengja sprakk nálægt helgidómi sjía-múslima í borginni Najaf í Írak í morgun. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hverjir bera ábyrgð á árásinni. 6.4.2006 11:30
Mladic framseldur fyrir lok apríl Serbar hafa fullvissað fulltrúa stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Haag í Hollandi um að Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, verði afhentur dómstólnum fyrir lok apríl. 6.4.2006 11:15
Fyrsta skóflustungan tekin að byggingu Háskólatorgs Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Björgólfur Guðmundsson, formaður stjórnar Háskólasjóðs h/f Eimskipafélags Íslands, tóku í sameiningu fyrstu skóflustunguna að Háskólatorgi í morgun. Ekki dugði minna til en stærðarinnar skurðgrafa enda miklar framkvæmdir framundan. 6.4.2006 11:00
Olmert falið að mynda stjórn Moshe Katsav, forseti Ísraels, hefur falið Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra, að mynda næstu ríkisstjórn landsins. Kadima-flokkur Olmerts hlaut flest þingsæti í kosningum í Ísrael í síðustu viku. 6.4.2006 10:45
Merck gert að greiða skaðabætur Kviðdómur í Bandaríkjunum hefur dæmt lyfjafyrirtækið Merck til að greiða manni jafnvirði tæplega 330 milljóna króna í skaðabætur fyrir að hafa leynt aukaverkunum verkalyfsins Vioxx. 6.4.2006 10:30
Sprengjuárás á helgidóm sjía í Najaf Óttast er að fjölmargir hafi farist þegar bílsprengja sprakk nálægt helgidómi sjía-múslima í borginni Najaf í Írak í morgun. 6.4.2006 10:15
Fuglaflensa dregur 3 til dauða í Egyptalandi Staðfest var í dag að 16 ára stelpa í Egyptalandi lést af völdum fuglaflensu og hefur þá flensan dregið þrjár manneskjur til dauða þar í landi. 6.4.2006 10:00
Hvasst á Austurlandi Verulega hefur hvesst á Austurlandi í morgun með ofankomu og skafrenningi. Stórhríð er á fjallvegum og beðið með mokstur þar til veður lægir. 6.4.2006 09:45
Fíkniefni fundust í fórum farþega með Norrænu Tveir karlmenn, sem komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald , en fíkniefni fundust í fórum þeirra. 6.4.2006 09:30
Krefjast afsagnar Arroyo Óeirðalögregla á Filippseyjum þurfti að nota vatnsþrýstibyssur og kylfur til að dreifa mótmælendum sem höfðu safnast saman í höfuðborginni, Manila, í morgun til að krefjast afsagnar Arroyo, forseta. Svo virðist sem mótmæli sem leiddur til afsagnar Shinawatra, forsætisráðherra Tælands, hafi blásið mótmælendum eldmóð í brjóst. 6.4.2006 09:16
Kennari særðist í áhlaupi Að minnsta kosti 7 Palestínumenn voru handteknir og 2 særðust þegar Ísraelsher gerði áhlaup á hús í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun. Annar þeirra sem særðust er kennara sem var á leið til vinnu sinnar þegar áhlaupið var gert. 6.4.2006 09:00
Miklar rigningar í Norður-Argentínu Mikið hefur rignt í Norður-Argentínu síðustu daga og hafa mörg hundruð manns þurft að yfirgefa heimili sín. Salta héraði hefur orðið hvar verst úti en þar hefur verið mikið um skriðuföll. Miklar skemmdir vegna þessa en margar fjölskyldur hafa misst heimili sín. Talið er að um 400 fjölskyldur séu innilokaðar á svæðinu en enn hafa engar fregnir borist af manntjóni. 6.4.2006 08:30
Jesú gekk á ísfleka Prófessor við ríkisháskóla Flórída í Bandaríkjunum telur sig vera búinn að afsanna að Jesús hafi gengið á vatni, eins og greint er frá í bíblíunni. 6.4.2006 08:15
Um 30.000 farþegar bíða flugs í Noregi Flugfreyjur og flugþjónar hjá SAS Braatens flugfélaginu í Noregi hófu verkfall í morgun og hefur félagið fellt niður 400 flug og komast 28.000 farþegar ekki leiðar sinnar. Þar af eru margir á leið í langt páskafrí og eiga 33.000 manns pantað með félaginu á morgun. Talsmenn félagsins segja þetta mikið áfall þar sem í hönd fari mikill annatími. 6.4.2006 08:02
Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi fann 30 grömm af anfetamíni og eitthvað af kannabisefnum við húsleit á heimili í bænum í gærkvöldi. Einn maður var handtekinn, en sleppt að loknum yfirheyrslum í nótt. Málið verður rannsakað nánar. 6.4.2006 07:45
Fuglaflensa komin til Skotlands Fuglaflensan er komin til Skotlands. Veira af H5 stofni greindist í dauðum svani þar í gær. Halldór Runólfsson Yfirdýralæknir segir að ef veiran sé af stofninum H5N1 verði viðbúnaðarstig hér á landi hækkað í stig tvö. Frekari niðurstaðna væri að vænta frá Skotlandi strax í dag. Flestir farfuglar sem verpa á Íslandi, koma við í Skotlandi á leið sinni hingað til lands. 6.4.2006 07:30
Íbúar skjálftasvæðanna farnir að snúa heim á ný Íbúar á þeim svæðum sem verst urðu úti í jarðskjálftunum í Pakistan í fyrra eru nú farnir að halda til síns heima. Nærri sex mánuðir eru síðan að skjálftarnir riðu yfir í Pakistan en sá stærsti var 7,6 á richter. Yfir áttatíu þúsund manns létu lífið í skjálftunum og yfir þrjár milljónir manna misstu heimili sín. 6.4.2006 07:16
Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í Miðbænum Ökumaður slasaðist og var fluttur á Slysadeild Landsspítalans-háskólasjúkrahús til aðhlynningar, eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á móts við Kolaportið í Reykjavík og ók á umferðarljós. Ljósavitinn brotnaði niður og bíllin stór skemmdist, en maðurinn slasaðist ekki alvarlega. 6.4.2006 07:15
Um 64% Akureyringa vilja nýjan meirihluta í bæjarstjórn Rúmlega 64% Akureyringa vilja fá nýjan meirihluta í bæjarstjórn samkvæmt niðurstöðum í nýlegri Gallup könnun. Fréttavefurinn Dagur greinir frá niðurstöðum könnunarinnar en í henni var spurt um ánægju með meiri- eða minnihluta í bæjar- og sveitafélögum víða um land. 6.4.2006 07:10
Bætir í vindinn á Austurlandi Verulega hefur hvesst á Austurlandi í morgun með ofankomu og skafrenningi. Stórhríð er á fjallvegum og beðið með mokstur þartil veður lægir. Vindhraði fer víða vel yfir 20 metra á sekúndu og er skólahaldi í grunnskólanum á Eskifirði frestað til hádegis vegna óveðurs og leikskólinn verður lokaðaur í dag. 6.4.2006 07:02
Nokkrir festust í bílum sínum vegna óveðurs Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu fólk í föstum bílum á Holtavörðuheiði og í Víðidal í gærkvöldi og bóndi kom konu til hjálpar, sem var föst í bíl sínum á Eyrarfjalli við Ísafjarðardjúp, en óveðrinu tók að slota upp úr klukkan þrjú í nótt. 6.4.2006 06:57
Aftakaveður og nokkur snjóflóð fallið Um tuttugu manns gista nú hjá vinum og ættingjum á Bolungarvík vegna snjóflóðahættu og verða þar fram á morgun. Veðrinu hefur lítið slotað en fyrr í dag lýsti Veðurstofan yfir viðbúnaðarstigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Sex hús hafa verið rýmd á Bolungarvík vegna þessa. Húsin standa við Dísarland og Traðarland, efst í hlíðum Traðarhyrnu. Göturnar sem um ræðir eru efst í bænum og hefur oft þurft að rýma þar hús áður vegna snjóflóðahættu. Ekki er lengur búið í öllum húsunum þar sem Ofanflóðasjóður hefur keypt upp hús í götunum til þess að þetta svæði tæmist varanlega. 5.4.2006 22:18
Síðasta vígið fallið Fuglaflensa af H5-stofni hefur greinst í dauðum svani í Fife í Austur-Skotlandi, að því er kemur fram í vefriti BBC. Nær allir íslenskir farfuglar koma við á Bretlandseyjum og sérstaklega á Skotlandi og hafa yfirvöld því ekki viljað fara á viðbúnaðarstig 2 fyrr en sjúkdómurinn greinist á Bretlandseyjum. Ef kemur í ljós að veiran er af H5N1-stofni sem berst í menn verður þess líklega ekki langt að bíða. 5.4.2006 20:47
Fyrsti dökki þingmaðurinn á Ítalíu? Hörundsdökkur þingmaður gæti í fyrsta sinn náð þingsæti á Ítalíu og það sem meira er, þingmannsefnið er líka kona. Auglýsingar Aminötu Fofana stinga nokkuð í stúf í öllu auglýsingafarganinu sem fylgir síðustu dögunum fyrir þingkosningarnar. Hún er konungborin og fæddist í Gíneu í Afríku. 5.4.2006 19:30
Hús rýmd í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu Verið er að rýma 8 hús í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu og á það að verða búið fyrir klukkan 21:00. Þessi hús standa við Dísarland og Traðarland, sem er það svæði á Bolungarvík sem er hvað oftast rýmt vegna snjóflóðahættu. Fólkið gistir flest hjá ættingjum og vinum. 5.4.2006 19:13
Fékk nærri fjórar milljónir til sjóntækjakaupa Átta ára drengur sem fæddist með gallaða augasteina og önnur börn í svipaðri stöðu sjá fram á betri tíma. Sjónstöð Íslands fékk í dag stjórgjöf til tækjakaupa eftir umfjöllun drenginn í fréttaskýringaþættinum Kompás. 5.4.2006 19:05
Bækur til varnar Bandaríkjamenn gáfu Íslendingum í dag fjölda bóka um varnarmál. Sendiherra Bandaríkjanna vonar að bækurnar hjálpi Íslendingum að byggja upp sérþekkingu á varnarmálum sem utanríkisráðherra hefur sagt skorta hér á landi. Forstöðumaður meistaranáms HÍ í alþjóðasamskiptum segir gjöfina ekki sárabót fyrir brottför hersins. 5.4.2006 18:59
Vill vitnavernd í íslensk lög Jón Gerald Sullenberger átti ekki von á því að vera ákærður í Baugsmálinu. Hann segir brotalöm í íslenskum lögum þar sem vanti vitnavernd. Þá vill hann að einn dómari í málinu víki en dómarinn taldi Jón Gerald ótrúverðugt vitni þegar málið var fyrst tekið fyrir í Héraðsdómi. 5.4.2006 18:56
Bjuggu til fyrirtæki Bandaríska leyniþjónustan hefur kerfisbundið notfært sér tilbúin fyrirtæki sem ekkert er á bakvið til að halda leynd yfir fangaflugi. Þetta kemur fram í fyrstu niðurstöðum rannsókna Amnesty International á fangafluginu. 5.4.2006 18:45
Mun kalla þekkta viðskiptamenn til vitnis í Baugsmálinu Jón Gerald Sullenberger átti ekki von á því að vera ákærður í Baugsmálinu. Hann segir brotalöm í íslenskum lögum þar sem vanti vitnavernd. Þá vill hann að einn dómari í málinu víki en dómarinn taldi Jón Gerald ótrúverðugt vitni þegar málið var fyrst tekið fyrir í Héraðsdómi. 5.4.2006 18:14
Snjóflóð féll á björgunarmenn Einn maður slasaðist nokkuð þegar hann klemmdist á milli bíla á Súðarvíkurvegi rétt eftir klukkan þrjú í dag. Maðurinn var við björgunarstörf á vegum Landsbjargar þegar slysið varð. Bílar höfðu lokast inni á milli tveggja snjóflóða sem fallið höfðu á Súðavíkurveg og var maðurinn ásamt öðrum björgunarsveitarmönnum að bjarga fólki úr einum bílnum 5.4.2006 17:32