Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óánægja um ráðningu framkvæmdarstjóra Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur Magnús Ólafs Hansson hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur til eins árs í stað Ólafs Kristjánssonar. Tveir bæjarfulltrúar í Bolungarvík, Soffía Vagnsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, og Ragna Jóhanna Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, lýstu yfir undrun sinni á því að staðan hafi ekki verið auglýst opinberlega. 5.1.2006 18:18
40% utan nýbyggingarsvæða 40% nýbyggðra íbúða í Reykjavík eru á þéttingarsvæðum. Af 5.150 íbúðum, sem fullgerðar voru í Reykjavík á árunum 1996-2004, voru 2.025 á þéttingarsvæðum, það er að segja utan nýbyggingarsvæðanna austast í borginni. 5.1.2006 18:09
Enn mikið vatn á hringveginum við Jökulsá í lóni Enn rennur talsvert mikið vatn yfir hringveginn vestan vð Jökulsá í Lóni á Suðausturlandi. Vegfarendur eru beðnir að aka með gát um þessa leið. Hálka er á Hellisheiði og Þrengslum og þá eru einnig hálkublettir á Suðurlandi. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. 5.1.2006 18:05
Boða til opins fundar vegna stöðu leikskólamála Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi óskuðu eftir því að bæjarstjórnarflokkar í Kópavogi byðu foreldrum og starfsmönnum leikskóla til fundar þar sem farið yrði yfir stöðu leikskólamála. Forystumenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogu lýstu því yfir í dag að ekki væri vilji hjá þeim til að taka þátt í slíkum fundi að sögn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar. 5.1.2006 17:58
Fjármálaráðherra Noregs hvetur norska neytendur til að sniðganga vörur frá Ísrael Fjármálaráðherra Noregs, Kristin Halvorsen, hefur hvatt norska neytendur til að sniðganga vörur frá Ísrael. Hún segir að með því geti fólk tjáð óánægju sína með meðferð Ísraela á Palestínumönnum. Flokkur hennar, Sósíalistik venstreparti, fer af stað með herferð til stuðnings Palestínumönnum í næsta mánuði og herferðin fær fullan stuðning fjármálaráðherra. 5.1.2006 17:48
Laun á Íslandi há samanborið við önnur Evrópulönd Árslaun á Íslandi eru há samanborið við önnur Evrópulönd. Þetta kemur fram í alþjóðlegum samanburði á launum sem gerður var undir forystu Evrópsku hagstofunnar. Þegar tillit er tekið til verðlags færist Ísland hins vegar nokkuð neðar á listann. 5.1.2006 17:45
Eldur kom upp í bíl á bensínstöð Eldur kom upp í bíl á bensínstöð Shell á Höfða í dag. Slökkvilið Reykjavíkur var kallað út en engin hætta var á ferð þar sem um lítill eld var að ræða. Engin hætta skapaðist því vegna eldsins sem greiðlega gekk að slökkva. 5.1.2006 17:26
Lífeyrissjóður Norðurlands og Lífeyrissjóður Austurlands hyggja á sameiningu Stjórnir Lífeyrissjóðs Norðurlands og lífeyrissjóðs Austurlands hafa undirritað viljayfirlýsingu um að athuga möguelika á sameiningu sjóðanna. Markmið sameiningarinnar er að auka hagkvæmni í rekstri, bæta áhættudreyfingu og ávöxtun eigna og hámarka með þeim hætti lífeyrisréttindi sem sameinaður sjóður getur veitt sjóðsfélögum sínum. 5.1.2006 17:13
Grunaður stríðsglæpamaður handtekinn í Bosníu-Herzegovínu Dragomir Abazovic, sem grunaður er um stríðsglæpi í Bosníustríðinu, var handtekinn í gær á heimili sínu í Rogatica í Bosníu-Herzegovínu. Friðargæsluliðar Evrópusambandsins réðust til atlögu á heimili hans og særðu hann, eiginkonu hans og son þeirra. Eiginkona hans lést og bæði Abazovic og sonur hans eru særðir. 5.1.2006 17:07
Enginn slasaðist þegar vörubíll valt í Hveradalabrekku Vörubíll valt á hliðina í Hveradalabrekku í nágrenni skíðaskálans í Hveradölum á öðrum tímanum í dag. Engin slys urðu á fólki en loka þurfti tveimur akreinum til austurs um tíma vegna slyssins og kalla þurfti til kranabíl til að koma vörubílnum á hjólin á ný. 5.1.2006 16:34
Þrjú menningarverkefni tilnefnd til Eyrarrósinnar Þrjú menningarverklefni á landsbyggðinni eru í ár tilnefnd til Eyrarrósarinnar en það eru Jöklasýningin á Höfn í Hornafirði, Kórastefna við Mývatn og LungA - listahátíð ungs fólks, Austurlandi. Þetta er í annað sinn sem Eyrarrósin verður afhent, en verðlaunin verða afhent á Bessastöðum 13. janúar næstkomandi. Verkefnin þrjú voru tilnefnd úr hópi fjölmargra umsækjenda. 5.1.2006 16:22
Umboðsmaður alþingis gerir ekki athugasemdir Umboðsmaður alþingis gerir ekki athugasemdir við skipun yfirlögregluþjóns við embætti sýslumanns á Seyðisfirði í svari sínu við kvörtun lögreglumanns sem lagði inn kvörtun yfir ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra um skipum yfrirlögregluþjóns við embættið. 5.1.2006 16:14
Salan á Iceland Express að fara í gang Salan á Iceland Express er fyrst nú að fara í gang. KB banki annast sölu fyrirtæksins og eru menn þar nú farnir að útbúa útboðsgögn sem verða til á næstu tveimur til þremur vikunum. 5.1.2006 16:04
Enginn slasaðist í sprengjuárás sem gerð var á rútu í Kosovo Enginn slasaðist þegar sprengju var kastað á rútu sem var á ferð í Pristina í Kosovo í gærkvöldi. Rútan er mikið skemmd og þykir mildi að enginn þeirra 55 farþega sem voru í rútunni, hafi slasast. Þetta er önnur sprengjuárásin á innan við mánaðartímabili sem er gerð á rútu á þessari leið, frá bænum Dragas til Belgrad, höfuðborgar Serbíu. 5.1.2006 15:57
Borgarráðsfulltrúi F-listans vill afnema fargjald í strætó Ólafur F. Magnússon, borgarráðsfulltrúi F-Listans, mun leggja fram á ný tillögur sínar um niðurfellingu strætófargjalda á borgarstjórnarfundi 17. janúar næstkomandi. Í ljósi þess að nýting á almenningssamgangna hefur dregist saman telur F-listinn nauðsynlegt að koma á hugarfarsbreytingu varðandi nýtingu almenningssamgangna. 5.1.2006 15:24
Vinstri grænir í Kópavogi gagnrýna bæjarstjórn Kópavogs Stjórn Vinstri grænna í Kópavogi lýsir yfir áhyggjum sínum vegna stöðu leikskólamála í bænum. Stjórn Vinstri grænna fordæmir verklag bæjarstjórnar en í ályktun frá Vinstri gænum eru bæjarstjórn Kópavogs gagnrýnd harðlega. Bæjarstjórn Kópavogs er sögð hafa þráast við að leysa úr þeim vandamálum sem komið hafa upp vegna óánægju starfsfólks á leikskóla og foreldra. 5.1.2006 15:07
Erlendum félagsmönnum í VR fjölgar um þriðjung Félagsmönnum í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur með erlent ríkisfang hefur fjölgað um nær þriðjung á ári og eru nú 650 eftir því sem fram kemur á heimasíðu VR. Tíu prósent eða 66 manns eru frá Danmörku en fast á hæla þeirra eru Pólverjar, þá Þjóðverjar, Bandaríkjamenn, Júgóslavar og Bretar. 5.1.2006 14:40
Kallar eftir þjóðarsátt um að hækka lægstu laun Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, kallar eftir þjóðarsátt um að hækka lægstu launin fyrir launamálaráðstefnu sveitarfélaganna sem halda á 20. janúar næstkomandi. Hann segir minni sveitarfélög ekki þola að launahækkanir verði jafnmiklar yfir alla línuna. Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi gagnrýnir bæjarstjórnina fyrir að grípa ekki strax í taumana til þess að koma í veg fyrir frekari uppsagnir á leikskólum bæjarins. 5.1.2006 14:15
Heppilegra að bíða með aðgerðir Það er betra að fara hægar en hraðar þegar kemur að því að heimila hjónavígslu samkynhneigðra, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að fólk verði að gefa sér tíma til að ræða málið út frá öllum hliðum áður en lengra sé haldið. 5.1.2006 14:15
Fjölmargir pílagrímar létust þegar gisthús í Mekka hrundi Að minnsta kosti 15 pílagrímar létu lífið og um það bil 40 slösuðust þegar fjögurra hæða gistihús hrundi í borginni Mekka í Sádí Arabíu í dag. Rúmlega milljón múslimar eru í borginni vegna fimm daga trúarhátíðar sem nú stendur yfir. 5.1.2006 13:58
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni vegna fíkniefnabrota. Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók manninn á Gamlársdag og hefur lagt hald á um 1,5 kíló af hassi auk annarra fíkniefna og peninga. 5.1.2006 13:56
Á annað hundrað fallnir í árásum Á annað hundrað manns hafa farist og meira en 200 særst í ofbeldisverkum í Írak það sem af er degi. 225 hafa látist af völdum árása frá áramótum og nær 300 slasast. Vikan sem nú er að líða er því orðin ein sú blóðugasta frá því innrásin í Írak hófst í mars 2003. 5.1.2006 13:45
Segja örn hafa drepið tvö þúsund hreindýr Norskir hreindýrabændur fengu í fyrra greiddar bætur frá ríkinu vegna tvö þúsund dýra sem þeir segja að örn hafi drepið. Frá þessu er greint í norska blaðinu Verdens Gang. Alls fengu þeir 250 milljónir króna í bætur vegna 11.400 hreindýra sem annaðhvort örninn eða önnur rándýr eiga að hafa drepið. 5.1.2006 13:45
Innflutningurinn nam 285 milljörðum Íslendingar fluttu inn vörur fyrir 23 milljarða króna í síðasta mánuði samkvæmt bráðabirgðatölum um innheimtu virðisaukaskatts. Það er fimm milljörðum minna en í nóvember þegar fluttar voru inn vörur fyrir 28 milljarða, meira en í nokkrum öðrum mánuði síðasta árs. Alls voru fluttar inn vörur fyrir 285 milljarða króna í fyrra. 5.1.2006 13:28
Hægt að lækka matvælaverð Hægt er að lækka matvælaverð á Íslandi með því að afnema tolla og höft á innfluttum matvælum, að mati aðjúnkts við Háskólann í Reykjavík. Hann segir einnig að matvælaverð myndi lækka ef Íslandi gengi í Evrópusambandið. Þetta kom fram á fundi Samtaka verslunar og þjónustu og Félags viðskipta- og hagfræðinga í morgun. 5.1.2006 13:14
Fjölga ferðum vegna hláku Flutningafyrirtækin sem annast landflutninga hafa orðið að fjölga ferðum og aka með hálftóma bílana, eftir að Vegagerðin greip í gær til þess ráðs að setja þungatakmarkanir á vegi víða um land til að verja þá skemmdum í hlákunni. 5.1.2006 13:00
Tugir látast er hús hrynur í Sádí Arabíu Tugir pílagríma létust eftir að fjögurra hæða gistiheimili hrundi í Mekka í Sádi-Arabíu í dag 5.1.2006 12:53
Fjármálaeftirlitið líklega vanhæft Sigurður G. Guðjónsson lögmaður segir að ekki hafi myndast nýr virkur eignarhlutur á aðalfundi Sparisjóðs Hafnarfjarðar í fyrra, það hafi einungis verið vel heppnuð stjórnarbylting. Vafasamt sé að Fjármálaeftirlitið sé hæft til að fjalla um málið og að því hafi verið tilkynnt um væntanlegt stjórnarframboð fyrir aðalfundinn. 5.1.2006 12:50
Hornfirðingar kaupa í flugfélagi Hópur Hornfirðinga hefur keypt 10% hlut í eignarhaldsfélaginu City Star sem á og rekur flugfélag í Skotlandi og Landsflug sem flýgur meðal annars milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Forsvarsmaður fjárfestahópsins segir kaupin opna fyrir möguleika á leiguflugi frá Hornafirði til borga í Evrópu. 5.1.2006 12:12
Tryggir gasframboð í Evrópu Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagði á blaðamannafundi í Mosvku, að samkomulag við stjórnvöld í Úkraínu um kaup á gasi frá Rússlandi á hærra verði en áður, yrði til að tryggja stöðugt framboð á gasi til annarra Evrópuríkja. 5.1.2006 12:11
Læknar svartsýnir á bata Sharons Ariel Sharon liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ísrael. Hann fékk heilablóðfall í gærkvöldi og læknar eru svartsýnir á bata. Ehud Olmert aðstoðarforsætisráðherra hefur tekið við stjórn landsins. 5.1.2006 12:00
Vinstri-grænir fordæma bæjaryfirvöld Vinstri-grænir í Kópavogi lýsa þungum áhyggjum vegna stöðu leikskólamála í bænum í ályktun sem þeir hafa sent frá sér. Þar segir að bæjaryfirvöld hafi þubast við og ekkert gert til að leysa vandann þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir starfsfólks og foreldra. 5.1.2006 11:47
Yfir fjörtíu manns fallnir í írak í dag Að minnsta kosti fjörtíu manns hafa fallið í sprengjuárás í borginni Karbala í sunnanverðu Írak í morgun og tala látinna gæti enn átt eftir að hækka. Þá eru um sextíu særðir. Maður með sprengiefni bundin um sig sprengdi sig í loft upp í mannþröng nærri einu af helstu helgiskrínum sjíamúslima. Sprengjuárásin í morgun er önnur árásin á jafn mörgum dögum. Í gær særðust þrír í bílsprengjuárás, sú var fyrsta árásin sinnar tegundar í Karbala í rúmlega ár. 5.1.2006 11:44
Sharon liggur þungt haldinn Ariel Sharon liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ísrael. Hann fékk heilablóðfall í gærkvöldi og læknar eru svartsýnir á bata. Ehud Olmert aðstoðarforsætisráðherra hefur tekið við stjórn landsins 5.1.2006 11:41
Beiðni um ógildingu framsals vísað frá dómi Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu albansks karlmanns sem grunaður er um manndráp í Grikklandi á jóladag 2004 um að ákvörðun dómsmálaráðherra um að framselja hann til Grikklands yrði hnekkt. Maðurinn kærði framsalið til Héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfesti framsalið. 5.1.2006 11:39
Aldrei fleiri komur í Kvennaathvarf Konum og börnum sem dvöldu í Kvennaathvarfinu fjölgaði á síðasta ári. 92 konur og 74 börn dvöldu í athvarfinu á síðasta ári, það er fjórum konum og nítján börnum meira en árið þar á undan. Komur í athvarfið voru fleiri á síðasta ári en nokkru sinni frá því það var opnað árið 1982. 5.1.2006 11:22
Í það minnsta 80 fórust Í það minnsta 31 fórst og 30 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Ramadi í Írak í morgun. Karlmaður sprengdi sig og viðstadda þá í loft upp fyrir framan ráðningarstöð hers og lögreglu. Þetta er önnur mannskæða árásin í Írak í morgun. 5.1.2006 11:15
Gæsluvarðhald framlengt Hæstiréttur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir albönskum karlmanni sem grunaður er um að hafa myrt mann í Grikklandi á jóladag 2004. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 16. janúar eða þar til niðurstaða hefur fengist í máli sem rekið er vegna ákvörðunar stjórnvalda um að framselja hann grískum yfirvöldum. 5.1.2006 11:05
Verðbólgan næstmest hérlendis Íslendingar bjuggu við næst mesta verðbólgu allra þjóða innan Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu og nokkurra helstu iðnríkja utan Evrópu á síðasta ári. Verðbólgan var aðeins hærri í Tyrklandi en lægri í 28 ríkjum. 5.1.2006 11:00
Víðast góð færð Vegir eru víðast hvar auðir en hálkublettir á stöku fjallvegum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þá er komin snjóþekja á norðanverðu Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum. 5.1.2006 10:57
Dæmd fyrir að bjóða flensusprautur án leyfis Hjúkrunarkona í Minnesota-ríki í Bandaríkjunum hefur verið dæmd í níu mánaða fangelsi fyrir að bjóða flensusprautur án leyfis á háskólalóð. Hún sprautaði um fjörtíu manns með útvötnuðu bóluefni sem ekkert gagn var í. Hún drýgði bóluefnið með saltvatni og hafði heilar 36 þúsund krónur upp úr krafsinu. 5.1.2006 10:30
Spá aukinni verðbólgu Verðbólga eykst og verður áfram yfir efri þolmörkum Seðlabankans og langt yfir verðbólgumarkmiði hans gangi spá Greiningardeildar Íslandsbanka um verðbólgu milli desember og janúar eftir. 5.1.2006 10:15
Tveir slösuðust í árekstri Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar bílarnir skullu saman í mótum Sæbrautar og Faxagötu um klukkan hálf tvö í nótt. Annar bíllinn stóð kyrr á rauðu ljósi þegar hinum var ekið aftan á hann á talsverðri ferð. Bílarnir stórskemmdust og þurfti að fjarlægja þá af vettvangi með kranabílum. 5.1.2006 10:00
Hringvegurinn opnaður á ný Hringvegurinn, sem lokaðist í gærkvöldi austan við Höfn í Hornafirði vegna vatnavaxta í Jökulsá í Lóni, var opnaður á ný á tíunda tímanum. Vatn flæddi yfir veginn í alla nótt, en þrátt fyrir það urðu þar óverulegar skemmdir. Vegageraðrmenn eru nú að aka möl í skörð, þar sem runnið hefur úr köntum. 5.1.2006 10:00
Lík þess síðasta sem var saknað fundið Björgunarmenn hafa fundið lík síðustu manneskjunnar, sem vitað er til þess að hafi verið saknað, í rústum skautahallar sem féll saman á mánudag í Þýskalandi. Alls létust því 15 manns í slysinu, þar af tólf börn. 5.1.2006 10:00