Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íranar standa við ummæli sín um Ísrael Fátt bendir til að Íranar verði reknir úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að réttast væri að þurrka Ísrael út af landakortinu. Íranar standa við ummælin og segja þetta hafa verið stefnu Írans gagnvart Ísrael um langt skeið. 28.10.2005 12:45
Málþing um skólagöngu hjartveikra barna Skólaganga hjartveikra barna er um margt ólík skólagöngu heilbrigðra barna og koma þarf til móts við þau í skólakerfinu. Í dag verður haldið málþing í Gerðubergi þar sem skólaganga þeirra verður til umfjöllunar. Tilefnið er tíu ára afmæli Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna. 28.10.2005 12:36
Veður að versna á Suður- og Vesturlandi Veturinn hefur heldur betur minnt á sig á Suður- og Vesturlandi í nótt og í morgun. Borgarbúar vöknuðu við fyrstu snjókomuna þetta haustið og nokkuð var um árekstra í morgun. Spáð er stormi á Suður- og Vesturlandi þegar líður á daginn með töluverðri ofankomu sem færir sig svo yfir á Norðurland en búist er við að veðrið gangi niður eftir hádegi á morgun. 28.10.2005 12:30
Segir útgerðarmenn eina eiga fiskinn í sjónum Það eru útgerðarmenn einir, en ekki landsmenn allir, sem eiga fiskinn í sjónum, að mati doktors Guðrúnar Gauksdóttur, formanns Rannsóknastofnunar í auðlindarétti. 28.10.2005 12:15
Búist við hækkun á vöxtum húsnæðislána Allt stefnir í að vextir af húsnæðislánum hækki á næstunni þar sem vextir á skuldabréfamarkaði hækka nú daglega. 28.10.2005 12:00
Rætt um stöðuna í varnarviðræðunum Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman til fundar klukkan kortér yfir átta í morgun, til að ræða stöðuna í viðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna um herstöðina á Keflavíkurflugvelli og varnarmál Íslands almennt. 28.10.2005 12:00
Tekist á um aðfarahæfi dóms í máli Jóns gegn Hannesi Þingfesting var í morgun í máli Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors vegna aðfarahæfi dóms í meiðyrðamálið Jóns Ólafssonar gegn Hannesi. 28.10.2005 11:20
Bærinn vill kaupa starfsstöðina Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, hefur óskað eftir viðræðum við stjórnendur Já Símaskrár, um að kaupa vinnustöð fyrirtækisins á Ísafirði. Beiðni Halldórs kemur í kjölfar þess að fyrirtækið ákvað að leggja starfsstöðina niður og flytja starfsemina annað en þar með glatast fimm störf á Ísafirði. 28.10.2005 11:00
Fyrstu íbúðirnar fyrir eldri borgara Vinna er hafin við byggingu fyrstu íbúðanna fyrir eldri borgara sem reistar eru í Snæfellsbæ. Í gær var tekin skóflustunga að fyrra af tveimur parhúsum sem verða reist. Húsin verða á Ólafsvík en að því er fram kemur á vef Skessuhorns eru það Grundfirðingar sem sjá um bygginguna. 28.10.2005 10:24
Svíi handtekinn í Sarajevó vegna hryðjuverkaógnar Fjórir múslimar sem voru handteknir í Kaupmannahöfn í gær eru grunaðir um að hafa ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu, að öllum líkindum i Danmörku. Þá segja sænskir fjölmiðlar að átján ára Svíi hafi verið handtekinn í Sarajevó í síðustu viku, grunaður um að hafa ætlað að gera þar sjálfsmorðsárás. 28.10.2005 10:15
Allt flug til og frá höfuðborginni liggur niðri Allt flug til og frá Reykjavíkurflugvelli hefur legið niðri í morgun vegna hvassviðrisins sem er á Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Flugfélagi Íslands verður næst kannað hvort hægt verði að fljúga klukkan tíu mínútur yfir ellefu. 28.10.2005 10:07
Segja Koizumi ætla að stokka upp í stjórn sinni Koizumi, forsætisráðherra Japans, hyggst stokka upp í ríkisstjórn landsins strax eftir helgina. Þetta hafa japanskir fjölmiðlar eftir hátt settum embættismanni innan flokks Koizumis. Þá mun hann einnig skipa nýja menn í æðstu stöður flokksins á mánudaginn kemur. 28.10.2005 09:45
Grunur um sprengju í skóla í Svíþjóð Skóli í Falköping, sem er 150 kílómetra norðaustur af Gautaborg, hefur verið rýmdur vegna grunsamlegs pakka sem fannst hangandi á hurð við einn af inngöngum skólans. Svæðið í kringum skólann hefur nú verið lokað af og sprengjusérfræðingar eru á leið frá Gautaborg til þess að athuga pakkann. Frá þessu er greint á vefsíðu sænska blaðsins Expressen. 28.10.2005 09:37
Gefa upp næringarupplýsingar Vegna óska margra viðskiptavina sinna hefur McDonalds-hamborgarakeðjan ákveðið að gefa upp næringarupplýsingar um vörur sínar á neytendaumbúðunum. Hingað til hefur einungis verið hægt að nálgast þær upplýsingar í sérstökum bæklingum sem hægt er að biðja um í afgreiðslu staðanna. 28.10.2005 09:30
Fimm látnir eftir sprengingu í gullnámu Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir sprengingu í gullnámu á suðurhluta Filippseyja seint á miðvikudag. Hluti námunnar hrundi við sprenginguna og óttast er að á bilinu fimmtíu til hundrað manns séu enn lokaðir inni í námunni. 28.10.2005 09:15
Tafir á umferð í morgun vegna hálku Talsverðar umferðartafir urðu víða á Reykjavíkursvæðinu í morgun vegna hálku og særok og ágjöf eru á Sæbrautinni. Nokkrir árekstrar hafa orðið, en ekki er vitað um slys. Þá er búist við hvassviðri Suðvestanlands þannig að vanbúnum bílum getur verið hætt. 28.10.2005 09:14
Ný tilvik af fuglaflensu í Rúmeníu Rúmensk yfirvöld staðfestu í morgun að upp væri komið nýtt tilvik af fuglaflensu í landinu. Flensan greindist í dauðum hegra, nærri landamærum Moldavíu og rannsóknir leiddu í ljós að um H5N1-stofninn var að ræða. 28.10.2005 09:00
Ólíklegt að Íranar verði reknir úr SÞ Fátt bendir til að Íranar verði reknir úr Sameinuðu Þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að réttast væri að þurrka Ísrael út af landakortinu. Ummælin lét forsetinn, Mahmoud Ahmadinejad, falla á miðvikudaginn, og sagði jafnframt að ný alda árása frá Palestínu myndi líklega sjá til þess að honum yrði að ósk sinni. 28.10.2005 08:45
Varað við óveðri á vesturhluta landsins Vegagerðin varar við óveðri á Kjalarnesi, Holtavörðuheiði, Snæfellsnesi og á Klettshálsi. Hálkublettir og skafrenningur eru á Hellisheiði og í Þrengslum og hálkublettir á Reykjanesi. 28.10.2005 08:40
Samþykkt að selja hitaveitu Ólafsfjarðar Meirihluti bæjarstjórnar Ólafsfjarðar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að selja hitaveitu bæjarins til Norðurorku á Akureyri fyrir 535 milljónir króna. Talsverð andstaða hefur verið meðal bæjarbúa við þessum áformum, en megnið af söluandvirðinu verður notað til að greiða niður skuldir bæjarins. 28.10.2005 08:30
Greint frá hvort kært verði fyrir uppljóstrun Patrick Fitzgerald, sem farið hefur fyrir rannsókn á því hvernig nafni leyniþjónustukonu innan bandarísku leyniþjónustunnar var lekið í bandaríska fjölmiðla, greinir í dag frá því hvort einhver eða einhverjir verði ákærðir fyrir uppljóstrunina. 28.10.2005 08:15
Aðalbjörg sæmd umhverfisverðlaunum Útgerðin Aðalbjörg sf. í Reykjavík hlaut umhverfisverðlaun Landssambands íslenskra útvegsmanna. Bræðurnir Sigurður, Guðbjartur og Stefán Einarssynir, sem eiga Aðalbjörgu, tóku við verðlaununum úr hendi Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á landsfundi LÍÚ í gær. 28.10.2005 08:00
Volvo og Atlas grunuð um mútur Sænsku fyrirtækin Volvo og Atlas Copco og tuttugu og eitt danskt fyrirtæki, eru í hópi 2,400 fyrirtækja í 66 löndum, sem grunuð eru um mútustarfsemi í olíuviðskiptunum við Íraka. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um áætlunina Olía fyrir mat. 28.10.2005 08:00
Heimamenn afar ósáttir Vestmannaeyingar eru ósáttir við að heimsókn þingmanna Suðurkjördæmis, sem hefjast átti í dag, skyldi vera frestað fram í næstu viku vegna slæms veðurútlits. 28.10.2005 07:45
Sjö Palestínumenn drepnir í loftárásum Ísraela Sjö Palestínumenn létust og fimmtán særðust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðið í gær. Fórnarlömbin voru á leið frá kvöldbænum þegar árásin var gerð. Einn þeirra sem lést var Shahdi Mhanna, einn æðstu manna uppreisnarhópsins Íslamska-Jihad. 28.10.2005 07:30
Einstaklingar tvöfalda lántökur Lántökur einstaklinga voru meira en tvöfalt hærri undir lok síðasta mánaðar en þær voru árið áður. Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabankans þar sem kemur fram að útlán bankanna jukust um 59 prósent á einu ári. Útlán til fyrirtækja jukust um 42 prósent á sama tíma og útlán til einstaklinga jukust um 118 prósent. 28.10.2005 07:26
Búast við hækkun vaxta af húsnæðislánum Allt stefnir í að vextir af húsnæðislánum hækki alveg á næstunni þar sem vextir á skuldabréfamarkaði hækka nú daglega. Sérfræðingar KB banka segja að miðað við stöðuna núna þyrftu vextir Íbúðalánasjóðs til dæmis að vera 4,65 prósent en ekki 4,15, eins og þeir eru nú. 28.10.2005 07:16
Bandaríkjamenn kaupa flensulyf Bandaríkjamenn eru farnir að vera uggandi vegna fuglaflensunnar, líkt og Evrópubúar. 28.10.2005 07:15
Grunaðir um að skipuleggja árás í Danmörku Fjórir múslímar sem voru handteknir í Kaupmannahöfn í gær ætluðu að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu, að öllum líkindum i Danmörku. Mennirnir fjórir eru á aldrinum sextán til tuttugu og ára og eru allir danskir ríkisborgarar. 28.10.2005 07:11
Tvískattlagt á leið til Reykjavíkur Umræðan um lagningu Sundabrautar hefur að undanförnu legið nokkuð í skugga flugvallarumræðunnar. Þrjár lausnir hafa verið kannaðar á fyrsta áfanganum sem er þverun Kleppsvíkur frá Gufuneshöfða. Þær eru í fyrsta lagi hábrú sem kæmi niður við Sæbraut, í öðru lagi göng undir sundið og í þriðja lagi innri leið, nær Elliðaárdal, með lábrú. 28.10.2005 07:00
Áfengisauglýsingar hafa aukist í íslenskum prentmiðlum Í skýrslum sem Lýðheilsustöð lét gera yfir auglýsingar, kynningar og umfjöllun um áfengi og léttöl í íslenskum prentmiðlum, kemur fram að áfengisauglýsingar hafa aukist töluvert í íslenskum prentmiðlum á síðustu árum. 28.10.2005 07:00
Háskóli Íslands hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs Háskóli Íslands hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2005. Meginástæða þeirrar ákvörðunar er þau tímamót sem urðu í sögu skólans nú í sumar, þegar kona var í fyrsta skipti kjörin rektor við Háskóla Íslands. 28.10.2005 07:00
Verið að meta tjón af völdum vatnavaxta Búið er að tilkynna um tjón í 16 byggingum á Höfn í Hornafirði. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið tjón varð af völdum þeirra miklu vatnavaxta sem áttu sér stað á Hornafirði nýverið en mat stendur yfir. 28.10.2005 07:00
Stendur vörð um styrkina Jacques Chirac Frakklandsforseti krafðist þess á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem haldinn var í grennd við Lundúnir í gær að ráðamenn hinna aðildarríkjanna sýndu landbúnaðarstyrkjakerfi sambandsins "algjöra virðingu". Margir innan sambandsins þrýsta hins vegar á um að kerfið verði stokkað alveg upp í tengslum við gerð fjárlagaramma sambandsins fyrir tímabilið 2007 til 2013. 28.10.2005 06:45
McDonalds merkja matinn Vegna óska margra viðskiptavina sinna hefur McDonalds-hamborgarakeðjan ákveðið að gefa upp næringarupplýsingar um vörur sínar á neytendaumbúðunum. 28.10.2005 06:45
Uppnám vegna þingforseta Viðræður um myndun samsteypustjórnar hægriflokkanna tveggja sem unnu þingkosningarnar í Póllandi í síðasta mánuði virðast vera farnar út um þúfur. Donald Tusk, leiðtogi markaðshyggjuflokksins Borgaravettvangs (PO), segist ekki sjá neina möguleika á að halda viðræðunum áfram eftir að stærsti flokkurinn, Lög og réttlæti, kom því í gegn að fulltrúi hans yrði þingforseti. 28.10.2005 06:00
Öldurhús fá undanþágu Breska ríkisstjórnin hefur fallist á áform um að banna reykingar á öllum opinberum innandyrastöðum í Englandi. Undanþágu frá banninu geta klúbbar og krár fengið sem ekki stunda matsölu. Í undirbúningi er víðtækara reykingabann í Skotlandi, Wales og Norður-Írlandi. 28.10.2005 05:30
Endurnýjaður réttur með helgarferð til útlanda Vinnumálastofnun synjaði beiðni starfsmanna 2B ehf. um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem hér hafa verð við störf á hennar vegum. "Ætli verði ekki bara notað þetta klassíska úrræði að menn fari í helgarferð til Köben og komi svo aftur," segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður 2B, en við það myndi hefjast nýtt þriggja mánaða tímabil ferðamannaáritunar. 28.10.2005 05:00
Nautahakkið reyndist of feitt Danskt nautahakk inniheldur oft töluvert meiri fitu en sagt er til um á pakkningum. Þetta kemur fram í nýrri könnun þar sem meðal annars var mæld fita í nautahakki sem auglýst var að væri að hámarki átta prósent fita. 28.10.2005 05:00
Sektaðir fyrir notkun Q og W Dómstóll í Siirit í Tyrklandi hefur sektað tuttugu Kúrda fyrir að rita stafina Q og W á veggspjöld sem rituð voru á kúrdísku og hengd upp í tilefni nýars, sem hófst í mars að okkar tímatali. Þarlend lög banna notkun stafa sem ekki er að finna í tyrkneska stafrófinu og því var hver og einn Kúrdanna sektaður um sem nemur fimm þúsund krónum, að því er CNN hermir. 28.10.2005 05:00
Nýtt skip í stað Jaxlisins Flutningaskipið Jaxlinn sem selt var til Danmerkur um miðjan þennan mánuð fær fljótlega arftaka. "Og það verður enginn eftirbátur hans," segir Ragnar Magnús Traustason, framkvæmdastjóri Sæskipa sem gerðu út Jaxlinn. 28.10.2005 04:45
Situr inni í tvo mánuði Maður sem viðhafði kynferðislegt og klámfengið tal í fjölmörgum smáskilaboða í farsíma tveggja ungra stúlkna þarf að greiða þeim 400.000 krónur í bætur og var dæmdur í fimm mánaða fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær fangelsisdóm Héraðsdóms Vesturlands yfir manninum, en hækkaði bótagreiðslur til hvorrar stúlku um 150.000 krónur. 28.10.2005 04:30
Óttast frosthörkur Bretar hafa áhyggjur af því að komandi vetur verði mjög kaldur, en síðustu tíu ár hefur veturinn þar í landi verið mjög hlýr. Í frétt í dagblaðinu The Independent í vikunni kemur fram að menn hafi áhyggjur af almennum orkuskorti en orkuforðinn þar í landi dugir nú aðeins í ellefu daga, samanborið við 55 víðast á meginlandi Evrópu. 28.10.2005 04:00
Þúsundir innlyksa Um 22.000 ferðamenn urðu innlyksa í Cancun og öðrum ferðamannastöðum við Mexíkóflóann, sem urðu illa úti af völdum Wilmu. Fellibylurinn hefur þar með valdið ferðamannaiðnaði Mexíkó miklum búsifjum. 28.10.2005 04:00
Abbas heldur sínu striki Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, sagði á palestínska þinginu á miðvikudag að einungis "guðleg íhlutun" gæti komið í veg fyrir að þingkosningar yrðu haldnar í Palestínu 25. janúar næstkomandi. Hamas-samtökin höfðu áður lýst því yfir að þau teldu vopnahlé við Ísraela renna úr gildi yrði kosningunum frestað. 28.10.2005 04:00