Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eigandi næturklúbbs myrtur Lögreglan í Lundúnum handtók í gærkvöldi tvo menn sem grunaðir eru um aðild að hrottalegu morði á tuttugu og fjögra ára gömlum manni sem rak vinsælan næturklúbb fyrir samkynhneigða. Hinir handteknu eru 33ja og 25 ára og voru þeir yfirheyrðir vegna málsins í nótt. 22.10.2005 00:01
Einn slasaður í Salzburg Að minnsta kosti einn slasaðist alvarlega þegar gashylki sprakk í miðborg Sazburg í Austurríki í dag. Sprengingin varð í íbúð við Bachstrasse þar í borg og var að sögn lögreglunnar gríðarlega öflug. Verið er að athuga hvort einhverjir fleiri hafi slasast í sprengingunni 22.10.2005 00:01
Svalbarðadeila í hnút Ef samningar nást ekki við Norðmenn um stjórn fiskveiða við Svalbarða innan mjög skamms tíma er ekki annað fyrir stjórnvöld að gera en að höfða mál fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, segir framkvæmdastjóri LÍÚ. 22.10.2005 00:01
Annasamt hjá Rvk. lögreglu í nótt Ráðist var á 26 ára gamlan mann í miðbæ Reykjavíkur á fimmta tímanum í nótt. Kallað var til lögreglu sem stöðvaði barsmíðarnar. Fórnarlambið var flutt á Landspítala Háskólasjúkrahús þar sem gert var að sárum hans en talið er að bein hafi brotnað í andliti mannsins. Árásarmaðurinn var fluttur í fangageymslur og verður yfirheyrður nú í morgunsárið eða þegar mesta víman er runnin af honum. Ekki er enn um ástæðu árásarinnar og er málið nú í rannsókn. 22.10.2005 00:01
Fuglaflensuveira í Bretlandi Fuglaflensuveiran er komin til Bretlands en hún greindist í dauðum páfagauki þar í landi í vikunni. Heilbirigðisráðherrann þar í landi segir þó ekkert að óttast. 22.10.2005 00:01
Þorgerður Katrín ekki hrifin af VG Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir stefnu Vinstri grænna sem og hinna stjórnarandstöðuflokkana arfavitlausa. Það sé stefna stjórnarflokkanna hins vegar ekki og það sjái hver sem vilji. 22.10.2005 00:01
Hópbílaleigan krefst úrskurðar Hópbílaleigan hefur kært til kærunefndar útboðsmála að ekki hafi verið samið við fyrirtækið um akstur á Suðurnesjum. Samið var við Kynnisferðir þrátt fyrir að tilboð Hópbílaleigunnar hafi verið talsvert lægra. Í kærunni er farið fram á að kærunefnd útboðsmála úrskurði um þá ákvörðun Vegagerðarinnar, að hafna tilboði Hópbílaleigunnar, verði ógild. 22.10.2005 00:01
Vildarbörn styrkt af Icelandair Icelandair afhenti í dag var fimmtán langveikum börnum og fjölskyldum þeirra ferðastyrk úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair. Fjölskyldunum er boðið í utanlandsferð að eigin vali til áfangastaða Icelandair og er allur kostnaður við ferðina greiddur. Alls hafa 55 börn og fjölskyldur þeirra fengið úthlutað úr sjóðnum frá stofnun hans árið 2003 og er heildarfjöldi farþega á vegum sjóðsins kominn yfir 220 manns. 22.10.2005 00:01
Engin breyting á forystu VG Engin breyting varð á forystusveit Vinstri hreyfingarinnar-græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Sjálfkjörið var í helstu embætti. 22.10.2005 00:01
Einsemd getur leitt til geðraskana Fólki sem býr eitt getur verið hætt við geðröskunum sökum samskiptaleysis við annað fólk. Miðborgarprestur segir forvitni af hinu góða þar sem hún getur bjargað mannslífum og komið í veg fyrir eyðileggingu á heimilum fólks. 22.10.2005 00:01
Kínverskum ferðamönnum fjölgar Fjöldi kínverskra ferðamanna sem koma hingað til lands hefur sextánfaldast á fjórum árum. Gert er ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram næstu árin og jafnvel áratugina og segja Flugleiðamenn að þessi stöðuga fjölgun opni jafnvel möguleika á beinu flugi milli landanna. 22.10.2005 00:01
Ofbeldismenn skyldaðir í meðferð Heimilisofbeldi er blettur á samfélaginu sem erfitt er að fást við. Hér á landi eiga konur, sem eru fórnarlömb slíks ofbeldis, skjól í Kvennaathvarfinu. Austurríkismenn hafa fundið aðra lausn á þessu máli. 22.10.2005 00:01
Fyrsta brautskráning nýs rektors Fyrsti kvenrektor Háskóla Íslands brautskráði sína fyrstu kandídata í dag. Liðlega þrjúhundruð kandídatar brautskráðust, en meðal þeirra voru hjón á Ísafirði sem útskrifuðust saman úr fjarnámi í íslensku, og fyrsti nemandinn í upplýsingatækni á heilbrigðissviði útskrifaðist einnig í dag. 22.10.2005 00:01
18 ára stúlka vann ökuritakeppni Átján ára stúlka úr Vogunum vann góðaksturskeppni Vís með fyrirmyndarakstri sem skráður var með ökurita í þrjá mánuði. Hún var í hópi ungmenna sem reyndist standa sig betur en starfsmenn fyrirtækja í sambærilegum verkefnum. Sextán ungmenni luku ökuritaverkefni á vegum Vátryggingafélags Íslands nýverið. 22.10.2005 00:01
Íslendingur á leið til Pakistan Jón Hafsteinsson, sjúkraflutningamaður, sem heldur til skjálftasvæðanna í Pakistan eftir helgi, segist búa sig undir það versta, enda aðstæður hörmulegar í landinu. Gríðarlegir kuldar gera hjálparstarfi þar erfitt fyrir. 22.10.2005 00:01
Launaleynd til trafala Kvenfrelsi verður þungamiðja í stefnuyfirlýsingu vinstri grænna að loknum landsfundi flokksins. Í pallborðsumræðum kom fram að jafnréttisyfirvöld hafa takmarkaðri heimildir til að rannsaka launamun en aðrar eftirlitsstofnanir. 22.10.2005 00:01
Skýrsla um morðið á Hariri Sameinuðu þjóðirnar segja leyniþjónustur Sýrlands og Líbanons bera ábyrgð á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. 21.10.2005 00:01
Slasaðist á torfæruhjóli Sautján ára réttindalaus pilltur á torfæruhjóli slasaðist þegar hann lenti í árekstri við bíl á Villingaholtsvegi austan við Selfoss í gærkvöld. 21.10.2005 00:01
Flokksþing VG hefst í dag Í drögum að stjórnmálaályktun Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs, sem fjallað verður um á flokksþinginu í dag, er þess krafist að þegar í stað verði hafist handa við aðgerðir til að styrkja stöðu útflutningsgreinanna. 21.10.2005 00:01
Lögfræðingi Saddams rænt Fyrrverandi lögfræðingi Saddams Husseins, sem ákærður hefur verið fyrir aðild að fjöldamorðum ásamt Hussein og 7 öðrum, var rænt af skrifstofu sinni í Bagdad í gær. 21.10.2005 00:01
Velti bíl í togi Stjórnandi bíls meiddist eitthvað þegar bíllinn sem hann stjórnaði í drætti aftan í öðrum bíl, valt út af þjóðveginum austan við Húsavík í gærkvöldi. 21.10.2005 00:01
Barnasmyglarar handteknir Hollenskt par var handtekið á alþjóðaflugvellinum í Kólumbíu í vikunni fyrir að kaupa tíu daga gamalt barn þar í landi og ætla að smygla því til Hollands. 21.10.2005 00:01
Vinna sameiginlega gegn flensunni Heilbrigðisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins munu vinna sameiginlega að því að vinna bug á fuglaflensufaraldri í álfunni. Þetta kom fram á fundi sem ráðherrarnir héldu í gær. 21.10.2005 00:01
Hlutverk skólanna skoðað Menntaráð Reykjavíkurborgar vill skoða hlutverk skólanna í umræðu og fræðslu um kynferðisofbeldi gegn börnum. Menntaráð hefur falið menntasviði að efna til umræðu við fagfólk og foreldrasamtök um þetta. 21.10.2005 00:01
100 miðborgaríbúðir fyrir stúdenta Liðlega eitt hundrað miðborgaríbúðir fyrir stúdenta og þrír íbúðaturnar með rúmlega eitt hundrað íbúðum að auki verða að veruleika eftir að borgarráð samþykkti skipulag fyrir svokallaðan Barónsreit í gær. Svæðið afmarkast af Barónsstíg, Hverfisgötu, Skúlagötu og Vitastíg. 21.10.2005 00:01
Lífsýni tekið úr litla prinsinum Lífsýni verður tekið úr litla prinsinum í Danmörku og varðveitt á Ríkissjúkrahúsinu. Danskt fyrirtæki, StemCare, hafði boðist til að varðveita blóðið í naflastreng litla prinsins til seinni nota en danska konungsfjölskyldan hefur afþakkað það með ofangreindum rökum. 21.10.2005 00:01
Mannræningjar slepptu blaðamanni Rory Carroll, írski blaðamaðurinn sem mannræningjar tóku höndum í Írak í gær, hefur verið leystur úr haldi. Carroll var að koma út úr húsi þar sem hann hafði nýlokið viðtali við eitt fórnarlamba stjórnartíðar Saddams Hussein fyrir enska blaðið <em>Guardian</em> þegar byssumenn rændu honum. 21.10.2005 00:01
Nettenging bætt á Vestfjörðum Nettenging verður mun betri áður en langt um líður við Ísafjarðardjúp og á Ströndum því verið er að leggja svokallaða ISDN-tengingu þar um þessar mundir. Meðal annars hefur verið gengið frá slíkri tengingu á Djúpavík þar sem rekin hefur verið ferðaþjónusta í 20 ár en fyrst nú er þar kostur á sæmilegri nettengingu. 21.10.2005 00:01
Ástrali dæmdur til dauða Ástralskur maður hefur verið dæmdur til dauða í Singapúr fyrir eiturlyfjasmygl. Hann var tekinn með tæplega 400 grömm af heróíni á alþjóðaflugvellinum í Singapúr árið 2002 þegar hann millilenti þar á leið sinni frá Víetnam til Ástralíu. 21.10.2005 00:01
Áfengisauglýsingabann samþykkt Bann við áfengisauglýsingum í norskri löggjöf samræmist EES-samningnum að sögn EFTA-dómstólsins. Þó sé nauðsynlegt að meta aðstæður í hverju landi fyrir sig. 21.10.2005 00:01
Nýr vegur um Kolgrafarfjörð Nýr vegur um Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi verður opnaður formlega í dag. Með veginum styttist leiðin á norðanverðu nesinu um sex kílómetra. 21.10.2005 00:01
Lögmaðurinn fannst myrtur Lögmaður eins samstarfsmanna Saddams Husseins, sem ákærður er fyrir aðild að fjöldamorðum ásamt Hussein og sjö öðrum, fannst látinn í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Lögmaðurinn var skotinn til bana en honum var rænt af skrifstofu sinni í Bagdad í gær. Ekki er nánar vitað um málið að svo stöddu en enginn hefur lýst verknaðinum á hendur sér. 21.10.2005 00:01
Aðgerðum Norðmanna vísað til Haag? Svo kann að fara að spænskur útgerðarmaður skjóti íslenskum stjórnvöldum ref fyrir rass og vísi einhliða stjórnunaraðgerðum Norðmanna á hafsvæðinu við Svalbarða til Alþjóðadómstólsins í Haag, eins og íslensk stjórnvöld hafa velt fyrir sér að gera árum saman. 21.10.2005 00:01
Langt frá því að vera nóg Forseti Pakistans segir þá rúmlega þrjátíu og sjö milljarða króna, sem borist hafa frá alþjóðasamfélaginu vegna hamfaranna í Pakistan í síðustu viku, langt frá því að vera nóg. Segir hann að minnsta kosti þrjú hundruð milljarða króna þurfi til enduruppbyggingar á þeim svæðum sem verst urðu úti. 21.10.2005 00:01
Rússnesku skipverjunum fagnað Rússneskir fjölmiðlar fögnuðu skipverjum á rússneska togaranum Elektron sem þjóðhetjum þegar togarinn lagðist að bryggju í Múrmansk í gærkvöldi eftir sögulegan flótta undan norsku strandgæslunni síðan á laugardag. Norskir fjölmiðlar tala hins vegar um hetjudáð norsku strandgæslumannanna sem hafðir voru í gíslingu í togaranum í nokkra sólarhringa. 21.10.2005 00:01
Litlar líkur á alheimsvandamáli Heilbrigðisyfirvöld Evrópusambandsríkjanna segja litlar sem engar líkur á að fuglaflensan verði að alheimsvandamáli. Engu að síður verði gripið til varúðarráðstafana. 21.10.2005 00:01
Neyðarástand á Yukatan-skaga Tugþúsundir hafa yfirgefið heimili sín í Mexíkó, á Kúbu og á Flórída vegna fellibylsins Vilmu og hefur neyðarástandi verið lýst yfir á Yukatan-skaga þar sem búist er við að Vilma komi að ströndum í dag. Vilma er nú orðin að fjórða stigs fellibyl og mun að öllum líkindum fara um Flórídaskaga á sunnudag. 21.10.2005 00:01
Hnífjafnt í Póllandi Fylgi frambjóðendanna tveggja í forsetakosningunum í Póllandi er nánast hnífjafnt aðeins tveimur dögum fyrir síðari umferð kosninganna. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum er fylgi Donalds Tusks 48,8 prósent en fylgi Lechs Kaczynskis 50,2 prósent. Stjórnmálaskýrendur segja útilokað að spá fyrir um hvor stendur uppi sem sigurvegari. 21.10.2005 00:01
Sjálfkjörið í embætti Sjálfkjörið var í miðstjórn og varaforsetaembætti á ársfundi Alþýðusambands Íslands í dag. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður til næstu tveggja ára og sjö voru kjörin í miðstjórn til jafnlangs tíma. 21.10.2005 00:01
Senda hermenn til Pakistan Sendiherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag að senda á bilinu fimm hundruð til þúsund hermenn og nokkrar þyrlur til Pakistan. Hermennirnir eiga að veita aðstoð við hjálparstarf á svæðunum sem urðu verst úti í jarðskjálftanum áttunda október, þegar fimmtíu þúsund manns að lágmarki létu lífið. 21.10.2005 00:01
Sýrlendingar axli ábyrgð Sýrlensk stjórnvöld verða að sæta ábyrgð vegna morðsins á Rafik al-Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Þetta sagði Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en fyrr í dag birtist skýrsla Sameinuðu þjóðanna þar sem kemur fram að hátt settir sýrlenskir og líbanskir embættismenn tengdust morðinu. 21.10.2005 00:01
Árekstur á Bíldshöfða Harður árekstur varð á Bildshöfða á fjórða tímanum þegar fólksbíll og jeppi rákust saman. Í fólksbílnum voru eldri hjón og voru þau bæði flutt á slysadeild en ökumaður jeppabifreiðarinnar slapp ómeiddur. Tafir urðu á umferð þar sem loka þurfti Bíldshöfðanum en nú er umferð komin í eðlilegt horf. 21.10.2005 00:01
Ísfirskar konur með baráttufund Ísfirskar konur gangast fyrir baráttu- og hátíðardagskrá á kvennafrídaginn 24. október og hafa boaða til utifundar á Silfurtorgi klukkna þrjú og síðan verður gengin kröfuganga um Pollgötu og niður Aðalstræti að Alþýðuhúsi þar sem fram fer hátíðardagskrá með fjölbreyttu sniði. 21.10.2005 00:01
64 prósent greiddu atkvæði Sextíu og fjögur prósent atkvæðabærra Íraka greiddu atkvæði í kosningum um nýja stjórnarskrá landsins, sögðu talsmenn kjörstjórnar Íraks í dag. Svo virðist sem stjórnarskráin hafi verið samþykkt. 21.10.2005 00:01
Sigurður Tómas settur saksóknari Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, setti í dag Sigurð Tómas Magnússon, lögfræðing og fyrrverandi héraðsdómara og formann dómstólaráðs, í embætti sérstaks saksóknara í þrjátíu og tveimur ákæruatriðum í Baugsmálinu. Bogi Nilsson, ríkissaksóknari hafði áður lýsti sig vanhæfan til að sækja málið. 21.10.2005 00:01