Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aukning í sölu nýrra bíla Mikil aukning hefur verið í sölu á nýjum bílum á Vestfjörðum það sem af er árinu. Samkvæmt upplýsingum frá ökutækjaskrá hefur sala á nýjum bílum á landinu öllu aukist um 52%, en á Vestfjörðum um heil 74%. Vestfirðir eru þar með yfir landsmeðaltal í aukningu í fyrsta sinn síðan árið 1997. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta í dag. 21.10.2005 00:01
Lögfræðingur tekinn af lífi Lögmaður eins sakborninganna í réttarhöldunum gegn Saddam Hussein og félögum hans fannst myrtur á götu í Bagdad í gær. Morðið er áfall fyrir alla sem að réttarhöldunum koma. 21.10.2005 00:01
Sýrlendingum kennt um morðið Stjórnvöld í Sýrlandi og líbanskir bandamenn þeirra fá á baukinn í skýrslu rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna sem segir allt benda til aðildar þeirra að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í febrúar síðastliðnum. 21.10.2005 00:01
Fá ekki lán á landsbyggðinni "Íslenski bankinn neitaði okkur um lán því að verksmiðjan á að rísa á landsbyggðinni," segir Michael Ryan, framkvæmdastjóri írska fyrirtækisins Marigot, sem reisa mun kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal ásamt sanddælingarfyrirtækinu Björgun. „Það hefði verið auðsótt mál að fá lánið hefði verksmiðjan átt að rísa í Reykjavík," bætir hann við. 21.10.2005 00:01
Erfitt að tjá sig ekki Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skipaði í gær Sigurð Tómas Magnússon sem sérstakan saksóknara í Baugsmálinu. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, undrast að Björn telji sig hæfan. Ráðherrar eru pólitískir segir Sigurður. 21.10.2005 00:01
Sífellt fleiri börn hringja í 112 Æ fleiri börn hringja í Neyðarlínuna 112 til að segja frá ofbeldisverkum á heimilum sínum. Neyðarlínan grípur inn í slík mál með tafarlausum útköllum starfsmanna Barnaverndar eða tilkynningum til viðkomandi nefndar. 21.10.2005 00:01
Öndum að okkur verkfallslofti Formaður Eflingar, Sigurður Bessason, telur helmingslíkur á að kjarasamningar rofni. Hann segir þjóðina standa frammi fyrir verðbólgu sem ekki hafi verið hægt að sjá fyrir við gerð síðustu samninga. Samningar eru lausir um áramót. 21.10.2005 00:01
Allrahanda uppfylla ekki skilmála Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri segir Iceland Excursions Allrahanda ekki hafa uppfyllt skilmála útboðs um sérleyfisakstur milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Þess vegna hafi ekki verið samið við fyrirtækið um aksturinn þrátt fyrir að það hafi boðið hæstu greiðslu fyrir aksturinn. 20.10.2005 00:01
Öflugasti fellibylur sögunnar Tugþúsundir íbúa og ferðamanna í Mexíkó og Kúbu leituðu í gær skjóls undan fellibylunum Wilmu en bylurinn fer yfir Yucatan-skaga í Mexíkó í vikulokin. Bandaríska fellibyljamiðstöðin í Miami hefur staðfest að Wilma sé öflugasti fellibylur sem sögur fara af á Atlantshafi en hann mælist nú af stærðinni fimm á Saffír-Simpson kvarða um stærð fellibylja. 20.10.2005 00:01
Tveir skammtar af bóluefni Bresk stjórnvöld vilja koma sér upp tveimur skömmtum af bóluefni fyrir hvern einasta landsmann. Aðeins þannig yrði hægt að verja alla þjóðina fyrir fuglaflensunni þar sem ekki er víst að einn skammtur á hvern landsmann myndi duga. 20.10.2005 00:01
Stálu sextán gróðurhúsalömpum Þjófar brutust inn í gróðrastöð í Hveragerði í nótt og höfðu talsverð verðmæti á brott með sér auk þess að valda nokkrum skemmdum. Þeir stálu meðal annars sextán gróðurhúsalömpum, sem vinsælir eru til kannabisræktar, og tölvubúnaði. Þjófarnir voru horfnir af vettvangi þegar innbrotsins varð vart og er þeirra nú leitað. 20.10.2005 00:01
Ungabörn auglýst til sölu á Netinu Lögreglan í Sjanghæ í Kína rannsakar nú mál þar sem ungabörn voru auglýst til sölu á Netinu. Auglýsingin birtist síðastliðinn sunnudag á vefsíðu sem er í eigu uppboðsvefjarins E-Bay. Að sögn lögreglu höfðu um fimmtíu manns skoðað auglýsinguna þegar málið komst upp en enginn reynt að ganga frá kaupum. 20.10.2005 00:01
Tillögum minnihlutans hafnað Meirihluti leikskólanefndar Kópavogs hafnaði í gær tillögum minnihlutans um sértækar aðgerðir til að bregðast við vanda á leikskólum bæjarins vegna manneklu. Börn á tveimur leikskólum í Kópavogi eru nú heima í eina viku á mánuði vegna lokunar deilda. 20.10.2005 00:01
Palestínumenn styðja Saddam Tugir Palestínumanna tóku þátt í mótmælagöngu til stuðnings Saddam Hussein, fyrrverandi einræðisherra Íraks, í Gaza-borg í gærdag. Mótmælendurnir segja Hussein fórnarlamb Bandaríkjamanna og að hann sé einn fárra valdamanna í heiminum sem hefur staðið þétt við bakið á Palestínu í stríðinu gegn Ísrael. 20.10.2005 00:01
Baugsmálið tekið fyrir í dag Baugsmálið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter yfir níu. Öllum ákæruliðunum fjörutíu var vísað frá dóminum í síðasta mánuði en ákæruvaldið áfrýjaði úrskurðinum til Hæstaréttar. Þar var svo öllum ákærunum nema átta vísað frá á dögunum. Ákæruliðirnir sem eftir standa varða meint brot á almennum hegningarlögum, tollalagabrot og lög um ársreikninga. 20.10.2005 00:01
Abbas og Bush funda Leiðtogi Palestínumanna, Mahmoud Abbas, kom til Washington í gær til að eiga fund með George Bush Bandaríkjaforseta en í enn eitt skiptið á að reyna að finna leiðir svo friður geti orðið á milli Ísraels og Palestínu. Abbas vill að Bush pressi á Ísraela til að hörfa frá öllum landnemasvæðum og að Palestínumenn fái að halda frjálsar kosningar. 20.10.2005 00:01
Öryrkjar mótmæla kjararýrnun Öryrkjabandalag Íslands fagnar þeirri ákvörðun stjórnvalda að leggja til að hluta þeirra fjármuna sem fengust fyrir Landsímann skuli varið til uppbyggingar úrræða fyrir geðfatlaða. Á hinn bóginn sé á engan hátt hægt að fallast á að sú efling feli í sér um leið kjararýrnum lífeyrisþega eins og kemur fram í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. 20.10.2005 00:01
Óttast að hætta skapist Steinnunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir tilmæli sín vegna kvennafrídags miðast að því að þjónusta verði ekki skert þannig að hætta skapist. Hún lýsir yfir stuðningi við að konur leggi niður störf, sæki börnin sín á leikskóla og frístundaheimili og taki þátt í aðgerðunum. 20.10.2005 00:01
Baugsmálið ekki tekið fyrir Baugsmálið verður ekki tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkurí dag eins og greint var frá á Vísi í morgun. Vegna formgalla einhvers konar var villa í útsendum gögnum frá dóminum þar sem kom fram að málið yrði tekið fyrir nú fyrir hádegi. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi. 20.10.2005 00:01
Lausir úr prísundinni Norsku srandgæslumennirnir tveir, sem var haldið hefur verið nauðugum um borð í rússneksum togaranum Electron, voru fluttir um borð í norskt skip í morgun að sögn rússneskra fjölmiðla. Öll skipin eru nú á Barentshafi skammt frá Kólaskaga. Norðmenn stóðu togarann að ólöglegum veiðum við Svalbarða á laugardag en skipstjóri togarans lagði á flótta með norsku varðskipsmennina innanborðs. 20.10.2005 00:01
Þróa bóluefni gegn flensuveirum Danskir vísindamenn segjast hafa fundið fljótvirka aðferð til að þróa bóluefni gegn flensuveirum hvers konar. Þeir vonast til að hægt verði að nota þessa aðferð til að þróa bóluefni gegn fuglaflensunni áður en kemur til faraldurs. Þetta kemur fram í grein í <em>Berlingske Tidende</em>. 20.10.2005 00:01
Éta það sem býðst Því meiri matur sem fólki er boðið upp á þeim mun meira borðar það, nema maturinn sé grænmeti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu bandarískra vísindamanna sem leita leiða til að draga úr offitu. 20.10.2005 00:01
Kjarasamningar í uppnámi Kjarasamningar eru í uppnámi, skattur á tekjum undir 175 þúsund krónum á að verða 14,75 prósent, og ef til vill stendur lítið íslenskt myntsvæði og óstöðugt efnahagslíf vaxtalækkunum fyrir þrifum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ályktanadrögum ársfundar Alþýðusambands Íslands. 20.10.2005 00:01
Skorið úr um málið í Haag Samtök norska sjávarútvegsins eru óvænt fylgjandi því að alþjóðadómstóllinn í Haag verði látinn skera úr um rétt Norðmanna til að stjórna einhliða fiskveiðum á fjölþjóðlega hafsvæðinu við Svalbarða. Undirbúningur íslenskra stjórnvalda fyrir málshöfðun á hendur Norðmönnum fyrir dómstólnum er nú á lokastigi. 20.10.2005 00:01
Dánartalan gæti tvöfaldast Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir dánartölu vegna jarðskjálftanna í Pakistan og Indlandi tvöfaldast á næstunni, verði hjálp til fórnarlamba hamfaranna ekki aukin. Nú þegar hafa 80 þúsund látist. 20.10.2005 00:01
Gríðarlegur niðurskurður? Niðurskurðarhugmyndir Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli eru slíkar að umsvifin þar yrðu álíka lítil og fyrir rúmri hálfri öld. Nánar tiltekið er átt við árin 1946 til 51, þegar u.þ.b. 150 hermenn voru í stöðinni og um 300 Íslendingar, en um sjö hundruð Íslendingar eru þar nú eftir mikinn niðurskurð á síðustu misserum. 20.10.2005 00:01
Símasambandi komið á Símasambandi hefur verið komið á milli pakistanska og indverska hluta Kasmírhéraðs eftir að jarðskjálfti reið þar yfir í síðustu viku. Margir íbúar svæðanna báðum megin við landamærin geta því nú í fyrsta skipti haft samband við ættingja sína og hafa stjórnvöld ákveðið að símtölin verði ókeypis. 20.10.2005 00:01
Allrahanda kærir Vegagerðina Rútufyrirtækið Allrahanda hefur kært Vegagerðina þar sem ekki var samið við fyrirtækið um sérleyfisakstur á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Allrahanda bauð hæsta greiðslu fyrir sérleyfið en Kynnisferðir, sem samið var við, fá greitt með akstrinum. 20.10.2005 00:01
Fjórir féllu í sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti fjórir féllu og um tuttugu slösuðust þegar maður sprengdi sig í loft upp í borginni Bakuba í 65 kílómetra fjarlægð frá Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Engin samtök hafa lýst verknaðinum á hendur sér en talið er að menn Al-Qaida hafi verið að verki, nú sem svo oft áður. 20.10.2005 00:01
Forðast óþarfa hræðsluáróður Ríkisstjórnir og fjölmiðlar verða að vara sig á spám um yfirvofandi fuglaflensufaraldur því alls er enn óvíst hvort að faraldur brjótist út. Þetta segja alþjóðlegu ferðamálasamtökin sem óttast mikinn samdrátt á næstunni. 20.10.2005 00:01
Stúdentar afhenda ráðherra ályktun Stjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands harmar ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um að taka beri upp skólagjöld við opinbera háskóla. Stúdentar ætla að afhenda menntamálaráðherra og formanni menntamálanefndar Alþingis ályktun þessa efnis í dag. 20.10.2005 00:01
Þingmaður drepinn í Kirgistan Kirgiskur þingmaður var drepinn á fangasjúkrahúsi í Kirgistan fyrir stundu. Hann var fyrr í dag tekinn sem gísl ásamt tveimur úr fylgdarliði sínu þegar hann heimsótti fangelsið sem er skammt norðvestur af höfuðborginni, Bishkek. 20.10.2005 00:01
Ostborgarafrumvarpið samþykkt Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt lagafrumvarp sem kemur í veg fyrir að fólk geti höfðað mál á hendur skyndibitakeðjum og krafið þær um skaðabætur vegna offituvandamála sem fólkið glími við. 20.10.2005 00:01
Vilja draga úr tryggingum Stærstu tryggingafélög heims á sviði flugmála íhuga að hætta að tryggja flugfélög fyrir árásum á farþegaflugvélar þar sem notuð eru efnavopn og geislavirk efni. Láti þau verða af þessu þurfa Evrópuríki væntanlega að gangast í ábyrgðir fyrir flugfélögin líkt og þau gerðu eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. 20.10.2005 00:01
Sýknað af bótakröfu Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Flugleiðir í dag af átta og hálfrar milljóna króna skaðabótakröfu fyrrverandi starfsmanns fyrirtækisins, sem slasaðist við vinnu á Keflavíkurflugvelli 1. desember 1999. 20.10.2005 00:01
Verða að berjast gegn hryðjuverkum Palestínska heimastjórnin verður að fordæma hryðjuverk og berjast gegn þeim ef friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs á að ganga upp. Þetta sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti eftir fund með Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, í Washington rétt í þessu. 20.10.2005 00:01
Tvö ár fyrir kynferðisbrot 37 ára gamall karlmaður, Ólafur Eggert Ólafsson var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur, fyrir margvísleg kynferðisleg brot gegn þremur fimmtán ára stúlkum á árunum 2001 og 2002. 20.10.2005 00:01
Wilma veikist nokkuð Fellibylurinn Wilma er hefur veikst nokkuð og er nú orðinn fjórða stigs fellibylur. Sérfræðingar vara þó við að Wilma gæti átt eftir að styrkjast á nýjan leik. Bandaríska fellibyljamiðstöðin í Miami staðfesti í gær að Wilma hefði náð meiri styrk en nokkur annar fellibylur á Atlantshafi þegar kraftur hennar var sem mestur. 20.10.2005 00:01
Laun verða að hækka Laun verða að hækka meira en sem nemur verðbólgu, segja forystumenn ETUC, heildarsamtaka sextíu milljóna launþega í ríkjum Evrópusambandsins. Þeir segja engu skipta þó stjórnendur Seðlabanka Evrópu láti að því liggja að þeir bregðist við launahækkunum umfram verðbólgu með því að hækka vexti. 20.10.2005 00:01
Grunuðum hryðjuverkmönnum sleppt Fjórir menn frá Norður-Afríku sem bíða þess að vera vísað frá Bretlandi vegna gruns um aðild að hryðjuverkum verða leystir úr haldi lögreglu gegn tryggingu. Sérstakur dómstóll sem fjallaði um mál mannanna ákvað þetta í dag en neitaði fimm um lausn og máli eins var frestað. 20.10.2005 00:01
Býður almenningi á ball Haraldur Noregskonungur hefur ákveðið að bjóða fimm hundruð og fimmtíu þegnum sínum, víðs vegar að úr Noregi og úr öllum stéttum, til dansleiks í næsta mánuði. Haraldur, sem hefur átt til rölta um götur Oslóar og líta í verslanir án þess að mikið sé um sýnilega öryggisgæslu, telur dansleikinn tækifæri til að auka enn tengsl sín við landsmenn. 20.10.2005 00:01
Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi Tvítugur piltur var dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar í Hæstarétti í dag. Hann var fundinn sekur um manndráp af gáleysi með því að hafa bakkað bíl sínum út úr stæði og á gangstétt þar sem hann bakkaði á eldri konu sem lést af völdum áverka sem hún hlaut. 20.10.2005 00:01
Fræðsla um kynferðisofbeldi Menntaráð Reykjavíkur hefur ákveðið að fela menntasviði borgarinnar að efna til umræðu við fagfólk ogt foreldrasamtök um hlutverk skólanna í umræðu og fræðslu um kynferðisofbeldi gegn börnum. 20.10.2005 00:01
Misnotaði tólf ára stúlku Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir karlmanni sem misnotaði dóttur sambýliskonu sinnar kynferðislega á sex ára tímabili. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa fyrst haft samræði við stúlkuna þegar hún var tólf ára, aftur nokkrum sinnum þegar stúlkan var þrettán til fjórtán ára og að lokum þegar hún var átján ára. 20.10.2005 00:01
David keppir við David Tveir menn með sama fornafn berjast um leiðtogaembættið hjá breska Íhaldsflokknum. David Cameron og David Davis fengu flest atkvæði í kjöri þingmanna flokksins um hverjir skyldu fá að vera í framboði þegar 300 þúsund félagar í Íhaldsflokknum velja sér leiðtoga. 20.10.2005 00:01