Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dregið hefur úr hryðjuverkum Dregið hefur úr ofbeldisverkum í Írak eftir árás bandarískra og íraskra hersveita á Falluja, sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks. "Umfang glæpsamlegra aðgerða hefur minnkað og heldur áfram að minnka eftir aðgerðirnar í Falluja," sagði Allawi í sjónvarpsútsendingu þar sem hann svaraði spurningum áhorfenda. 29.11.2004 00:01
Hætta árásum á Ísraela Hamassamtökin hafa hætt árásum á Ísraela fram yfir forsetakosningar Palestínumanna 9. janúar. Þetta sagði Sheik Hassan Yousef, leiðtogi Hamas á Vesturbakkanum. Hann sagði samtökin jafnframt reiðubúin að íhuga formlegt vopnahlé við Ísraela. 29.11.2004 00:01
Mús rændi úr búðarkassa Verslunareigandi í Villach í Austurríki botnaði hvorki upp né niður í því þegar seðlar fóru að hverfa úr búðarkassanum hans. Hann brá því á það ráð að beina öryggismyndavél að búðarkassanum og komst þá að raun um hver þjófurinn var, nefnilega mús sem hafði komið sér fyrir í búðinni. 29.11.2004 00:01
Hinir lugu sagði Aznar "Það voru aðrir en við sem lugu," sagði Jose Maria Aznar, fyrrum forsætisráðherra Spánar, þegar hann bar vitni frammi fyrir þingnefnd sem rannsakar hryðjuverkaárásirnar í Madríd í mars. 29.11.2004 00:01
Skattalækkanir þyngja budduna Útreikningar Fréttablaðsins sýna að barnmargar fjölskyldur og tekjuháar koma best út úr skattabreytingum ríkisstjórnarinnar. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, tekur ekki jafndjúpt í árinni og Geir H. Haarde fjármálaráðherra sem telur að skattalækkanirnar hafi verið rangtúlkaðar í fjölmiðlum. 29.11.2004 00:01
Ráðuneyti birtir ekki stefnu "Við sjáum ekki fram á það að utanríkisráðuneytið geti tekið að sér að birta bandarískum stjórnvöldum stefnuna," segir Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri. 29.11.2004 00:01
Harkan eykst dag frá degi "Andrúmsloftið hefur stigmagnast dag frá degi og það er greinilegt að enginn ætlar að gefa tommu eftir," segir Dagbjartur Örn Pétursson kvikmyndagerðarmaður, sem ásamt félaga sínum, Guðmundi Tjörva Guðmundssyni hefur verið í Kænugarði undanfarnar þrjár vikur þar sem þeir vinna að heimildarmynd. 29.11.2004 00:01
Hætta á miltisbrandi á Íslandi Óttast er að bráð smithætta geti skapast hér á landi vegna miltisbrands sem leynist víða í jörð. Embætti yfirdýralæknis brýnir fyrir þeim sem grafa skurði, taka grunna að húsum eða setja niður rotþrær að gæta ítrustu varúðar ef dýraleifar koma upp á yfirborðið. 29.11.2004 00:01
Starfsemi Kísiliðjunnar hætt Slökkt var á síðasta ofninum í Kísiliðjunni við Mývatn í dag. Síðasti starfsdagur um 50 manna starfsliðs verksmiðjunnar er á morgun. 29.11.2004 00:01
Fækka slysum um 80-90% Talið er að vel hönnuð mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fækki slysum þar um 80-90 prósent. Á Umferðarþingi, sem haldið var af Umferðarstofu og Umferðarráði, var samþykkt að skora á borgaryfirvöld í Reykjavík að beita sér fyrir því að sem fyrst verði ráðist í gerð mislægra gatnamóta. 29.11.2004 00:01
Vísir næststærstur - kippt fyrirvaralaust út úr samræmdri mælingu Vísir.is er nú næststærsta vefsvæði landsins,samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernuss. Gildir þar einu hvort miðað er við notendur, innlit eða fjölda flettinga. Rúmlega 128 þúsund notendur heimsóttu Vísi í liðinni viku. Modernus sem annast vefmælinguna kippti einhverra hluta vegna Vísi út úr lista sem birtur er vikulega yfir aðsókn stærstu vefja landsins. Engin tilkynning eða skýringar hafa fengist frá Modernus um hverju þetta sætir. 29.11.2004 00:01
Ríkið í skuld við sveitarfélögin Ríkisvaldið er í skuld við sveitarfélögin að mati Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar, en hvorki Árni Magnússon félagsmálaráðherra né Geir H. Haarde eru tilbúnir til að greiða hana. Hann sagði í umræðu á Alþingi í gær að fulltrúar sveitarfélaganna kvörtuðu sáran undan því að illa gangi í samningum við ríkið um breytingar á tekjuskiptingu milli þeirra og ríkisins. 29.11.2004 00:01
Sænsk stofnunin skorar á alþingi Raoul Wallenberg mannréttindastofnunin í Svíþjóð hefur lýst yfir áhyggjum yfir tillögu meirihluta fjárlaganefndar Alþingis um að hætta fjárveitingum til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Hefur hún þess vegna sent Alþingi áskorun þar sem þingmenn eru hvattir til að endurskoða tillöguna. 29.11.2004 00:01
70% vill þjóðgarð norðan jökuls Um 70 prósent landsmanna vilja að stofnaður verði þjóðgarður norðan Vatnajökuls. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Nátturuverndarsamtök Íslands. Í sömu könnun kom í ljós að rúm 60 prósent styðja friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum. 29.11.2004 00:01
Átak gegn ölvunarakstri Átak lögreglunnar í Reykjavík til að koma í veg fyrir ölvunarakstur fyrir jólin er hafið. Um helgina voru 560 ökumenn stöðvaðir og ástand þeirra kannað. Fjórir þeirra reyndust vera undir áhrifum áfengis og tveir reyndust án ökuréttinda. 29.11.2004 00:01
Starfsleyfisumsókn vísað frá Mjöll-Frigg lagði ekki fram tilskilin gögn með starfsleyfisumsókn í Kópavogi og var henni því vísað frá á fundi heilbrigðisnefndar bæjarins í gær. Fyrirtækið var áður með starfsemi við Fossháls í Reykjavík. 29.11.2004 00:01
Hlutfallslega flest í Grímsey Einkahlutafélögum hefur fjölgað verulega á undanförnum fjórum árum, eða úr tæplega 14 þúsund í tæplega 21 þúsund. Víða hefur þessi þróun merkjanleg áhrif á útsvarstekjur sveitarfélaganna. Ef miðað er við íbúafjölda eru einkahlutafélögin hlutfallslega flest í Grímsey. 29.11.2004 00:01
Herdís prófessor Háskólastjórn Viðskiptaháskólans á Bifröst hefur skipað Dr. jur. Herdísi Þorgeirsdóttur í stöðu prófessors við lagadeild skólans að undangengnu hæfnismati dómnefndar, samkvæmt reglugerð skólans. 29.11.2004 00:01
Afturhaldskommatittir á Alþingi Davíð Oddsson utanríkisráðherra kallaði þingmenn Samfylkingarinnar „afturhaldskommatitti“ í umræðum á Alþingi í dag. Deilt var um ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins sem kvaðst í gær reiðubúinn til að endurskoða hvort Ísland ætti að vera á lista hinna viljugu þjóða. 29.11.2004 00:01
Nýjar kosningar eina leiðin Leóníd Kútsma, forseti Úkraínu segir að nýjar forsetakosningar kunni að vera eina leiðin til að losa þjóðina úr þeirri spennutreyju sem hún sé í. Ólga fer hratt vaxandi með hótunum um aðskilnað og sjálfsstjórn í austurhluta landsins. 29.11.2004 00:01
Jákvæð reynsla af reykingabanni Frumvarp sem bannar reykingar á veitingahúsum verður lagt fram á Alþingi fyrir jól. Reynsla annarra landa af slíku reykingabanni er almennt jákvæð en þó hafa ýmsar óvæntar hliðarverkanir komið í ljós. 29.11.2004 00:01
Ríkisvaldið neitar að borga Ríkisvaldið stendur í skuld við sveitarfélögin en lætur eins og það sé statt í miðjum grínfarsa og neitar að borga. Þetta sagði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag í umræðum um skiptingu tekna milli ríkis og sveitarfélaga. 29.11.2004 00:01
120 hvalir syntu á land Yfir eitt hundrað og tuttugu hvalir drápust þegar þeir syntu á land við strendur Ástralíu í dag og í gær. Vísindamenn vita ekki hvað olli þessari hegðun hvalanna. 29.11.2004 00:01
Apple kærir íslenska ríkið Stjórnendur Apple-tölvuverslunarinnar ætla að kæra íslenska ríkið fyrir tollaflokkun á Ipod margmiðlunarlófatölvunni. Tollstjórinn hefur skilgreint tækið sem upptökutæki sem hefur þær afleiðingar að fáir kaupa það hér á landi. 29.11.2004 00:01
Skilar ríkissjóði 340 milljónum Alþingi samþykkti í kvöld frumvarp sem felur í sér að áfengisgjald á sterku víni og tóbaki hækkar um 7%. Áfengisgjald af léttu víni og bjór verður óbreytt. Hækkunin skilar ríkissjóði 340 milljóna króna tekjuauka. 29.11.2004 00:01
Þeir tekjuháu fá mest Barnmargar fjölskyldur með ung börn og háar tekjur koma best út úr skattabreytingum ríkisstjórnarinnar miðað við útreikninga sem gerðir voru fyrir Fréttablaðið. Barnlausir einstaklingar koma verst út úr þeim. </font /></b /> 29.11.2004 00:01
ESB vill að kosið verði á ný Evrópusambandið segir að eina leiðin fyrir Úkraínu út úr því ófremdarástandi sem geysað hefur í landinu eftir forsetakosningarnar, sé að boða til nýrra kosninga. Þjóðþing landsins ógilti í gær úrslit kosninganna, en samkvæmt þeim sigraði Janúkóvits, forsætisráðherra. 28.11.2004 00:01
Tvö banaslys Tvö banaslys urðu undanfarinn hálfan sólarhring. Ekið var á karlmann á Eyrarvegi á Selfossi klukkan sex í morgun og með þeim afleiðingum að hann lést. Ökumaður bifreiðarinanr tilkynnti um slysið. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Þá beið ökumaður jeppabifreiðar bana á sjötta tímanum í gær þegar bíll hans fór fram af snjóhengju í sunnanverðu Vonarskarði og lenti á hvolfi ofan í á. 28.11.2004 00:01
Hundruð manna fastir inni í námu Hátt í tvö hundruð námamenn eru fastir inni í kolanámu, langt niðrí iðrum jarðar, eftir gríðarlega gassprengingu í námu í norðurhluta Kína í nótt. Óttast er að ekki takist að bjarga mönnunum. Slys eru tíð í kolanámum í Kína og hafa kínversk yfirvöld verið harðlega gagnrýnd fyrir að tryggja ekki öryggi starfsmanna. 28.11.2004 00:01
Áratugur Íslendinganna Breska stórblaðið The Sunday Times fjallar ítarlega um íslensku innrásina í breskt viðskiptalíf, í blaði sínu í dag. Þar segir að á áttunda áratugnum hafi arabískir kaupsýslumenn gert sig mjög gildandi í Bretlandi, næsta áratug á eftir hafi það verið japanskir og svo auðvitað bandarískir alltaf á ferðinni. 28.11.2004 00:01
Boðað verði til nýrra kosninga Evrópusambandið segir að boða verði til nýrra forsetakosningu í Úkraínu til að koma í veg fyrir borgarastyrjöld. Hæstiréttur landsins úrskurðar um lögmæti kosninganna á morgun. 28.11.2004 00:01
Kosið í Rúmeníu Rúmenar ganga í dag að kjörborðum, þar sem kosið verður til forseta í landinu. Þeir sem til þekkja segja kosningarnar þær mikilvægustu og umtöluðustu í landinu síðan árið 1989 eftir fall kommúnismans. Á næstu tveim árum munu Rúmenar klára aðildarviðræður við Evrópusambandið og stefna að inngöngu árið 2007 ásamt nágrönnum sínum Búlgaríu. 28.11.2004 00:01
Fleiri taka þátt í heilögu stríði Myndband hryðjuverkasamtakanna al-Qaeida fær fleiri og fleiri danska múslima til að taka þátt í svokölluðu heilögu stríði. Múslimum í Danmörku finnst umræðan í sinn garð óvæginn en forsætisráðherra landsins segir heilaga ritningu múslima ekki hafna yfir gagnrýni. 28.11.2004 00:01
Sharon reiðubúinn til viðræðna Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segist reiðubúinn til viðræðna við Mahmoud Abbas, einn af leiðtogum Palestínumanna, til að reyna að ná samkomulagi um framtíð Gasa svæðisins. 28.11.2004 00:01
7 slökkviliðsmenn létust Sjö slökkviliðsmenn létu lífið í Sviss í gær, þegar þak á bílastæðahúsi féll ofan á þá, þar sem þeir voru við slökkvistörf. Þá er tveggja slökkviliðsmanna saknað og að sögn lögreglu er lítil von til þess að þeir finnist á lífi. Fjórir slökkviliðsmenn komust þó lífs af og eru við ágæta heilsu. 28.11.2004 00:01
Átu ljón Íbúar í þorpi nokkru í Zimbababve lögðu sér ljón til munns í vikunni sem leið. Ljónið hafði ráðist á skepnur í þorpinu og étið og þótti íbúum þá rétt að launa ljóninu greiðann með því að skella því á grillið. Að sögn vonuðust margir þorpsbúanna til þess að fá hugrekki og styrk ljónsins í kjölfar átunnar. 28.11.2004 00:01
Borgarráð frestar ákvörðun Borgarráð Reykjavíkur frestaði ákvörðun um hvenær uppbygging mannvirkja á Laugardalsvelli gæti hafist. Borgarráði barst bréf þess efnis frá borgarverkfræðing þar sem leitað var eftir samþykki til að hefja framkvæmdir nú þegar á skrifstofuhúsnæði KSÍ þar sem framkvæmdin verður alfarið á vegum KSÍ. 28.11.2004 00:01
Enn leitað Lögreglan leitar enn mannsins sem nam níu ára stúlku á brott í Kópavogi á miðvikudag og skildi eftir á Mosfellsheiði. Hann var á rauðum fernra dyra fólksbíl og lýsti stúlkan honum þannig að hann væri um tvítugt, sköllóttur með svört gleraugu og skegghýjung við neðri vörina. 28.11.2004 00:01
Óttast um tvöhundruð námumenn Óttast er um afdrif hátt í tvö hundruð námumanna, sem sitja fastir inni í kolanámu eftir gríðarlega gassprengingu í norðurhluta Kína í gærkvöldi. Um þrjú hundruð kolanámumenn voru við störf þegar sprengingin varð, en rúmlega hundrað tókst að forða sér. Mikill reykur á slysstaðnum hefur hamlað björgunarstarfi. 28.11.2004 00:01
Mótmæli hjá starfsmönnum Jaguar Hundruð starfsmanna sportbílaframleiðandans Jagúar mótmæltu því um helgina að framleiðslu bílanna yrði hætt í stærstu verksmiðju fyrirtækisins í Englandi. 28.11.2004 00:01
Ekki eins gott og sýnist? Tímamót í netsögu Íslands segja forsvarsmenn fyrirtækisins IPNets, sem bjóða nú fyrstir allra ótakmarkað niðurhal frá útlöndum. Hjá öðrum netþjónustufyrirtækjum eru menn þó fullir efasemda. 28.11.2004 00:01
Sigurður Geirdal látinn Sigurður Geirdal bæjarstjóri í Kópavogi er látinn 65 ára að aldri. Sigurður lést á hjartadeild Lanspítalans við Hringbraut í morgun. Hann fékk hjartaáfall aðfararnótt mánudags og gekkst undir aðgerð, en komst ekki til meðvitundar aftur. Sigurður Geirdal var bæjarstjóri í Kópavogi í rúm fjórtán ár. 28.11.2004 00:01
Banaslys á Selfossi Ekið var á karlmann sem lést samstundis snemma á sunnudagsmorgun á Selfossi, atvikið átti sér stað sunnarlega á Eyrarveginum. 28.11.2004 00:01
Steyptist fram af hengiflugi Tveir menn létust af slysförum um helgina. Ekið var á karlmann á fimmtugsaldri á Eyrarvegi á Selfossi um sexleytið í morgun og lést hann samstundis að sögn lögreglunnar að Selfossi. Slæm akstursskilyrði voru þegar slysið varð, rigning og rok og lélegt skyggni. Ökumann fólksbifreiðarinnar sakaði ekki. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. 28.11.2004 00:01
Fjöldi manns lokast inni Um 166 manns lokuðust neðanjarðar inn í námu eftir gríðarlega öfluga gas sprengingu í Kína í gær án nokkura leiða til að ná sambandi við umheiminn. Um 300 námuverkamenn voru í námunni sem er í Shaanxi héraði þegar sprengingin átti sér stað en um 127 námumenn sluppu. 28.11.2004 00:01