Innlent

Hafa ekki efni á samningunum

Sveitarfélög á landsbyggðinni hafa fæst efni á kennarasamningunum. Hækkun fasteignaskatta og þjónustgjalda ásamt niðurskurði í rekstri og framkvæmdum er meðal þess sem rætt er um. Aðrir treysta á að sveitarfélögin nái að semja við ríkið um auknar tekjur. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga kom saman í dag en þar var bæði fjallað um kennarasamningana og viðræður ríkis og sveitarfélag um breytta tekjuskiptingu. Ljóst er að sveitarfélög eru misjafnlega í stakk búin til að mæta yfirvofandi launahækkunum en staðan virðist einna erfiðust í smærri byggðum úti á landi. Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri Stykkishólms, segist feginn að búið sé að ná samningum og væntir þess að þeir gangi eftir. Þó sé alveg ljóst að þeir verða bæjarfélaginu erfiðir. Bæjarstjórinn telur að afla verði aukinna tekna, t.a.m. með hækkun fasteignagjalda, þjónustugjalda eða með því að draga úr öðum rekstri.   Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, tekir undir með Óla Jóni og er glöð yfir því að samningar hafi náðst. Hún segir að sveitarfélagið sé nýtt eftir sameiningu sveitarfélaganna fyrir austan sem skapar aukið hagræði en nú er einmitt verið að vinna að fjárhagsáætlun. Að sögn Soffíu á hún von á að bæjarfélagið haldi sjó þrátt fyrir samningana, m.a. vegna þess að lítið er af ungum kennurum í Fljótsdalshéraði sem fá mestu launahækkunina. Lárus Valdimarsson, bæjarfulltrúi á Ísafirði, segir þar hvorki svigrúm til niðurskurðar né gjaldahækkana, tekjustofnar séu fullnýttir. Hann teystir því á að hagstæðir samningar komi út úr viðræðum ríkis og sveitarfélaga. Annars fari Ísafjörður í stórfellda skuldaaukningu.  Launanefnd sveitarfélaga ætlar að bíða með að afgreiða kennarasamningana þar til niðurstaða liggur fyrir í atkvæðagreiðslu Kennarasambandsins.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×