Kjólasaga Brooklyns loðin Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 20. janúar 2026 14:56 Þegar allt lék í lyndi - allavega út á við. Cruz Beckham, Nicola Peltz Beckham, Victoria Beckham og Brooklyn Peltz Beckham í febrúar 2024. Frazer Harrison/Getty Images Það hefur vart farið fram hjá neinum að Beckham-fjölskyldan stendur nú í sögulegum deilum sem vöktu sérstaklega mikla athygli í gær þegar Brooklyn elsti sonur Victoriu og Davids opnaði sig um áralangar erjur hans og fjölskyldu hans.
Fer Brooklyn ekki fögrum orðum um foreldra sína og bræður og rifjar meðal annars upp nokkur atvik tengd brúðkaupi hans og Nicolu Peltz frá árinu 2022. Segir hann meðal annars að móðir hans Victoria Beckham hafi stolið fyrsta dansinum af nýgiftu hjónunum og dansað við hann á óviðeigandi hátt. Brooklyn segir líka að Victoria hafi á ögurstundu hætt við að hanna brúðarkjól Nicolu. „Mamma hætti við að sauma kjól Nicolu á elleftu stundu þrátt fyrir hversu spennt hún var að klæðast hönnun hennar, sem neyddi hana til að finna nýjan kjól í flýti,“ segir Brooklyn. Þessi fullyrðing hans hefur verið á milli tannanna á fólki á samfélagsmiðlum og vakti einn notandi athygli á gömlu viðtali tískurisans Vogue við Nicolu. Nicola klæddist glæsilegum brúðarkjól tískuhússins Valentino og sagði við Vogue að ferlið hefði tekið rúmt ár í heildina, sem fæstir myndu kannski kalla eitthvað sem gert er í flýti. „Þessi sérhannaði brúðarkjóll er afrakstur mikillar vinnu síðastliðið ár þar sem Nicola og stílisti hennar voru í stöðugum samskiptum við Pierpaolo Piccioli, listrænan stjórnanda Valentino. Nicola flaug tvisvar til Rómar í mátun og fór tvisvar í mátun í Bandaríkjunum og yfir saumakona tískuhússins flaug meira að segja til Miami til þess að tryggja að hvert einasta smáatriði væri til fyrirmyndar á stóra deginum. Þetta var draumakjóll Nicolu,“ er haft eftir henni í Vogue.
Hollywood Ástin og lífið Tíska og hönnun Brúðkaup Deilur hjá Beckham-fjölskyldunni Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira