Íslenski boltinn

Hall­grímur kveður KA

Sindri Sverrisson skrifar
Hallgrímur Jónasson afrekaði meðal annars að gera KA að bikarmeistara í fyrsta sinn.
Hallgrímur Jónasson afrekaði meðal annars að gera KA að bikarmeistara í fyrsta sinn. vísir/Diego

Hallgrímur Jónasson er hættur störfum sem þjálfari KA eftir að liðið féll niður í Lengjudeildina nú í haust. Samkvæmt tilkynningu KA er um sameiginlega ákvörðun félagsins og Hallgríms að ræða.

Hallgrímur gekk upphaflega til liðs við KA sem leikmaður fyrir tímabilið 2018, eftir farsælan atvinnumannaferil erlendis. Hann tók síðar við sem aðstoðarþjálfari liðsins árið 2020 áður en hann var ráðinn aðalþjálfari í september 2022 þegar Arnar Grétarsson hætti. Það ár endaði KA í 2. sæti efstu deildar sem er besti árangur liðsins frá því að það varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1989.

Undir stjórn Hallgríms varð KA bikarmeistari í fyrsta sinn í sögunni, fyrir tveimur árum, með sigri á Víkingum í úrslitaleik.

KA réði Eið Smára Guðjohnsen inn í þjálfarateymið um miðjan ágúst og unnu þeir Hallgrímur saman út leiktíðina sem lauk um síðustu helgi. KA endaði í 11. sæti, einu stigi á eftir Þór, og féll niður í Lengjudeildina eftir að hafa spilað í efstu deild samfleytt í tíu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×