„Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sindri Sverrisson skrifar 27. október 2026 07:03 Gylfi Þór Sigurðsson mætti spariklæddur og fór yfir málin eftir annað stórkostlegt tímabil með Víkingi. Sýn Sport „Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar.
Gylfi fór yfir ýmislegt í lokaþætti Stúkunnar um helgina og talaði meðal annars um það hvernig ýmis ummæli Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR og nú markametshafa í efstu deild, hefðu virkað eins og bensín á tankinn hjá Víkingsliðinu. Allt tal um að Víkingar kæmu haltrandi inn í lokakafla mótsins og að KR væri besta liðið hefði í raun gagnast Víkingi. „Já, ég held það. Ég held að þetta hafi virkað öfugt við það sem hann vonaðist til. Við erum það sterkir í hausnum og með það mikið hugarfar í að vinna að þetta gerði okkur bara enn einbeittari í að klára dæmið. Ég held að það þýði ekkert að vera með einhverja hugarleiki gegn okkur. Þetta gaf okkur bara aukabensín til að klára dæmið,“ sagði Gylfi en viðtalið við hann má sjá hér að neðan. Klippa: Stúkan - Gylfi bestur og mætti í settið Gylfi veitti góða innsýn inn í huga keppnismannsins þegar hann greindi frá því að aðeins nokkrum klukkutímum eftir að hafa orðið Íslandsmeistari, annað árið í röð, hefði hann verið farinn að hugsa um þriðja titilinn á næsta ári. „Hræðslan við að tapa… þú vilt ekki tapa. Það er það sem lætur mann fara í gegnum allt sem við þurfum að gera – sjúkraþjálfun, hlaup, styrktaræfingar eða aðrar æfingar. Það er það sem heldur manni gangandi,“ sagði Gylfi og ræddi aðeins um áföllin sem Víkingar urðu fyrir á árinu. „Vá hvað mig langar að gera þetta þrisvar í röð“ Víkingar misstu meðal annars aðalmarkvörð sinn, Ingvar Jónsson, út vegna veikinda en einnig aðra afar öfluga leikmenn vegna meiðsla. Gylfi segir þetta hafa gert áfallið við að detta út úr Evrópukeppni minna: „Það var svo mikið af meiðslum í hópnum, erfiðum augnablikum, og ég held að það hafi dempað aðeins höggið. Í kjölfarið er svo bara einn leikur í viku og það er gríðarlegur munur að spila á vikufresti eða tvo leiki í viku. Við lærðum mikið af síðasta tímabili, gerðum bara svipaða hluti og virkuðu þá og keyrðum á deildina.“ Gylfi segir ekkert því til fyrirstöðu að hægt sé að sækja fleiri titla á næsta ári. Kúltúrinn sé einfaldlega þannig í Víkinni: „Nokkrum klukkutímum eftir að við unnum leikinn á móti KR og urðum Íslandsmeistarar var ég strax farinn að hugsa: „Vá hvað mig langar að gera þetta þrisvar í röð.“ Þetta er svo skrýtin tilfinning. Það eina sem þú hugsar um er að verða Íslandsmeistari, svo vinnurðu deildina og nokkrum klukkutímum síðar er maður farinn að hugsa um næsta titil. Farinn að breyta æfingum og styrkja sig fyrir næsta tímabil,“ sagði Gylfi en hægt er að horfa á viðtalið allt hér að ofan.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Stúkan Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Sjá meira