„Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Agnar Már Másson skrifar 20. október 2026 23:58 „[H]vaða rök réttlæta að trú mín sé notuð til að tengja mig við afbrot manns sem ég hef aldrei hitt og ber enga ábyrgð á?“ Samsett Mynd Jasmina Vajzovic, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, gagnrýnir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. „
Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ spyr Jasmina Vajzovic, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, í færslu á Facebook og beinir spurningu sinni til Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, sem hélt því fram í kommentakerfinu á Facebook að „óheftur straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, [væri] að valda skaða“. „Ég er múslimi. Ég er líka móðir, amma, fyrrverandi varabæjarfulltrúi, stjórnandi, verkefnastjóri og stjórnarkona. Og margt fleira,“ skrifar hún. „Hvaða skaða hef ég valdið? Hvað hafa börnin mín gert ykkur? Hvað hefur fjölskylda mín gert Íslandi? Hvað með vinkonur mínar og börnin þeirra? Hvenær urðum við að fólki sem hægt er að tala um með þessum hætti án þess að nokkur þurfi að gera grein fyrir því hvað við höfum gert af okkur?“ Bendir hún á að á bak við orðið múslimar sé fólk. Lífi þeirra verði ekki lýst með einu trúarheiti og fólk eigi ekki að þurfa að svara fyrir verknað ókunnugs fólks í öðrum löndum. „Ég hef byggt mér líf hér. Menntað mig, alið upp börn, tekið þátt í lýðræðinu og axlað ábyrgð,“ segir hún og nefnir meðal annars að hún hafi setið í bæjarstjórn sem varabæjarfulltrúi, starfað í nefndum bæjarins, komið að stofnun íþróttadeilda, félaga og stjórnmálaflokka og margt fleira. „Þetta er brot af framlagi mínu. Brot af verkum mínum,“ segir hún og spyr hvenær framlög hennar til samfélagsins fái meira vægi en sú staðreynd að hún sé múslimi. Hún kveðst stolt af framlagi sínu og segir að manngildi hennar standi ekki og falli með afköstum hennar. Þeir sem ekki hafi sömu menntun, reynslu eða sömu aðstöðu til að láta í sér heyra eigi rétt á sömu virðingu. „Börnin okkar þurfa ekki að vinna sér inn réttinn til að vera metin sem einstaklingar,“ segir hún. Hvaða ákvarðanir? Eftir að fjallað var um ummæli Elliða á Vísi og DV í morgun skrifaði hann nýja samfélagsmiðlafærslu þar sem hann sagðist hafa miklar áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá ákveðnum svæðum, sérstaklega Norður-Afríku, Miðausturlöndum „og fl.“ „Gagnrýni mín beinist að stefnu sem leyfir of hraða fjölgun og að tilteknum hugmyndum sem byggja á trúarlegum kreddum eða venjum sem ganga gegn því jafnrétti og frelsi sem við höfum byggt vestræna menningu á. Ég vil stífari löggjöf varðandi málefni innflytjenda frá þessum svæðum,“ skrifaði bæjarstjórinn. Jasmina bregst við þessu og segir það ekki duga að segja að gagnrýnin beinist að stefnum og hugmyndum án þess að ræða þá stefnu og þær hugmyndir af nákvæmni. „Hvaða ákvarðanir? Hvaða hegðun? Hvaða gögn styðja hvaða niðurstöðu?“ spyr hún. „Orðið múslimar svarar engri þessara spurninga,“ heldur hún áfram. Það segi ekkert um hvaða skoðanir hún hafi á lýðræði, hvernig hún ali upp börnin sín, hvort hún berjist fyrir jafnrétti eða gegn því. „Til þess þarf að hlusta á mig og skoða það sem ég geri.“ Samkvæmt tölum frá Hagstofunni voru Pólverjar fjölmennasti hópur innflytjenda árið 2026. Innflytjendur telja samkvæmt nýjustu tölum 77.226 eða 19,6 prósent mannfjöldans þann 1. janúar 2026. 29,9 prósent þeirra eru Pólverjar. Þar á eftir komu einstaklingar frá Úkraínu, 6,1 prósent og þess næst frá Litháen, þeir eru 4,9 prósent. 3.531 innflytjandi var fæddur í Miðausturlöndum eða Norður-Afríku, miðað við tölur Hagstofunnar. Það jafngildir 4,6 prósent allra innflytjenda og 0,9 prósent landsmanna. Flestir þeirra eru frá Sýrlandi. Tekur orðræðunni persónulega Jasmina tekur fram að hún hafi barist fyrir réttindum kvenna, hinsegin fólks, fatlaðra, efnaminni og fyrir mannréttindum. Hún þurfi sjálf engan fyrirlestur um mikilvægi jafnréttis frá fólki sem gefi sér fyrir fram hver afstaða hennar sé vegna uppruna eða trúar. „Gagnrýnið trúarbrögð. Gagnrýnið kúgun, kvenfyrirlitningu, ofbeldi og öfgahyggju. Gerið kröfur til fólks og látið einstaklinga bera ábyrgð á eigin gjörðum. Ég geri það líka,“ skrifar hún. „En hvaða rök réttlæta að trú mín sé notuð til að tengja mig við afbrot manns sem ég hef aldrei hitt og ber enga ábyrgð á?“ Einstaklingur sem fremji ofbeldi eigi að svara fyrir það. „Ég á ekki að svara fyrir hann. Börnin mín eiga ekki að svara fyrir hann. Það er lágmarkskrafa um sanngirni.“ Hún segist því taka þessari orðræðu persónulega. „Það er auðvelt að tala um hópa úr fjarlægð og undrast síðan að einstaklingarnir í þeim svari,“ segir hún og spyr hversu lengi fólk þurfi að búa hér á landi til að vekja til að fá að tilheyra samfélaginu fyrirvaralaust. „Ef framlag okkar er alltaf metið sem undantekning en brot ókunnugs einstaklings látið varpa grun á okkur öll, fáum við aldrei sanngjarnt mat.“ Tekur hún fram að hún sé Bosníaki, hafi lifað af stríð og viti af eigin raun hvað það þýði þegar fólk hættir að sjá manneskjuna og sjái aðeins hópinn sem henni hafi verið komið fyrir í. „Af fólki í opinberri ábyrgð geri ég kröfu um vandaðan málflutning. Það þarf að geta rætt samfélagsleg vandamál án þess að gera heilan trúarhóp tortryggilegan. Það þarf að geta talað um jafnrétti og frelsi og sýnt sömu gildi í framkomu sinni við fólk sem tilheyrir minnihluta.“ „Hvaða skaða hef ég valdið Íslandi? Hvaða skaða hafa börnin mín valdið? Hvað hefur fjölskylda mín gert sem réttlætir að trú okkar sé sérstaklega dregin fram í umræðu um skaða?“ skrifar hún, „Svarið þarf að fjalla um okkur. Tilvísun í ókunnugan mann erlendis dugar ekki.“
Innflytjendamál Ölfus Trúmál Flóttamenn Flóttafólk á Íslandi Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira