Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Lovísa Arnardóttir skrifar 18. október 2026 08:59 Nanna Kristín ætlaði að þiggja bólusetninguna fyrir barn sitt en fær hana ekki. Aðsend Nanna Kristín Tryggvadóttir móðir kallar eftir skýringum á því hvers vegna börn sem eru fædd í apríl eru þau einu sem eru undanskilin því að þiggja bólusetningu vegna RS-víruss.
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent foreldra þáðu mótefni fyrir börn sín og varð fækkun á staðfestum sýkingum og sjúkrahúsinnlögnum vegna veirunnar hjá aldurshópnum samhliða því. Í síðustu viku var greint frá því að heilbrigðisráðuneytið hefði tryggt áframhaldandi fjármögnun fyrir bólusetningu gegn RS-veirunni og að börnum yngri en sex mánaða yrði áfram boðið upp á slíka vörn. Nanna skrifar um málið í aðsendri grein á Vísi í dag. Hún segir það frábærar fréttir að áfram verði boðið upp á slíka bólusetningu og hún hafi verið ákveðin í að þiggja hana en ekki getað það því stjórnvöld telji ekki þörf á því. Munur á að fæðast í apríl eða maí? „En hvernig má það vera, ætli vírusinn ráðist í manngreiningarálit? Börn sem fæðast á skilgreindu RS-tímabili, október til mars, fá boð um bólusetningu ásamt þeim sem ekki hafa náð sex mánaða aldri fyrir 1. nóvember, það eru börn fædd 1. maí og út september. Börn sem fædd eru á þessu 30 daga millibilstímabili, í apríl, eru ekki talin þurfa aukna vörn gegn vírusnum, enda augljóslega reginmunur á því að fæðast 30. apríl eða 1. maí, eða hvað?“ Eins og má sjá á mælaborði landlæknisembættisins varð veruleg fækkun tilvika síðata vetur á RS veiru. Landlæknisembættið Nanna bendir á að í Bandaríkjunum sé miðað við að öll börn séu viðkvæm fyrir vírusnum fyrstu átta mánuði lífs síns og að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) telji að ávinningur geti verið af bólusetningu barna allt að 12 mánaða. Fjárhagsleg ákvörðun eða hugsunarleysi Nanna spyr því hvort og spyr hvort það hafi verið hugsunarleysi að undanskilja einn fæðingarmánuð barna. „Eru til ítarlegar greiningar sem sýna fram á að börn fædd í apríl veikist ekki alvarlega ef þau fá vírusinn? Eða er þetta kannski aðeins fjárhagsleg ákvörðun sem verður þess valdandi að foreldrar þessara u.þ.b. 300 barna sem fædd eru í apríl fá ekki val um að þiggja bólusetninguna?“ spyr Nanna sem vill að börnin fái að njóta vafans. „Nú er haustið gengið í garð og fyrsti vetur lítilla kríla fram undan.“
Heilbrigðismál Bólusetningar Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Embætti landlæknis Tengdar fréttir Búin að bíða lengi eftir bóluefni við RS fyrir yngstu börnin Sýkingar af völdum RS veiru er algengasta ástæða innlagnar ungra barna á spítala á Íslandi. Lyfjastofnun Evrópu hefur mælt með því að nýtt bóluefni gegn RS fái markaðsleyfi. Barnasmitsjúkdómalæknir segir það spennandi. 27. október 2023 07:02 Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Valtýr Thors, yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann, segir heilbrigðisstarfsfólk á spennt að hefja notkun á nýju mótefni við RS-veirunni. Hann segir fullyrðingar hagsmunahóps um að lyfið hafi farið í hraðferð við leyfisveitingu ekki standast og að góð reynsla hafi myndast á notkun lyfsins á bæði Frakklandi og á Spáni. 16. september 2025 09:43 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Sjá meira
Búin að bíða lengi eftir bóluefni við RS fyrir yngstu börnin Sýkingar af völdum RS veiru er algengasta ástæða innlagnar ungra barna á spítala á Íslandi. Lyfjastofnun Evrópu hefur mælt með því að nýtt bóluefni gegn RS fái markaðsleyfi. Barnasmitsjúkdómalæknir segir það spennandi. 27. október 2023 07:02
Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Valtýr Thors, yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann, segir heilbrigðisstarfsfólk á spennt að hefja notkun á nýju mótefni við RS-veirunni. Hann segir fullyrðingar hagsmunahóps um að lyfið hafi farið í hraðferð við leyfisveitingu ekki standast og að góð reynsla hafi myndast á notkun lyfsins á bæði Frakklandi og á Spáni. 16. september 2025 09:43