Innlent

Biðlar til fólks að fara var­lega í vetrarfærðinni

Oddur Ævar Gunnarsson og Telma Tómasson skrifa
Svona var staðan á Sauðárkróki í morgun.
Svona var staðan á Sauðárkróki í morgun.

Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra biðlar til vegfarenda að fara varlega en vetrarfærð er fyrir norðan með snjó og krapi á vegum. Hann segir landshlutann hafa sloppið betur en á horfðist í óveðri gærdagsins en lögregla hafi haft áhyggjur um tíma af mikilli sjávarhæð við höfnina á Skagaströnd.

„Staðan er bara góð utan þess að það er bara vetrarfærð og allt hvítt, snjór og krapi á vegum, þannig það er helsta áskorunin í augnablikinu,“ segir Höskuldur Birkir Erlingsson aðalvarðstjóri á Norðurlandi vestra í samtali við fréttastofu. Hann segir unnið hafi verið að hreinsun vega nú í morgun.

Einhver skilaboð til vegfarenda sem eru á ferðinni?

„Já, taka sér tíma. Það liggur ekkert á og þeir sem eru ekki komnir á vetrardekk þurfa að huga að því. Þetta er ekki gott núna eins og er, en það er líka náttúrulega alltaf möguleiki á að hinka því að miðað við veðurspána þá sýnist mér nú að strax seinni partinn í dag og svo aftur á morgun sé bara komið haust aftur og veðurblíða með rauðum tölum.“

Höskuldur segir vel hafa gengið hjá viðbragsaðilum í óveðrinu í gær. Landshlutinn hafi sloppið nokkuð vel og bændur undirbúið sig vel undir veðrið.

„Veðurhæðin var nokkuð mikil. Það fór yfir fjörutíu metra á sekúndu í Blönudhlíð í Skagafirði og eins á Skagaströnd var mjög hvasst. Þar höfðum við áhyggjur, sjávarhæð var mikil og það fór sjór yfir höfnina og bátar voru við að losna. En það slapp allt til þannig mér sýnist við hér á Norðurlandi vestra bara hafa komist býsna vel frá þessu.“

Hann ítrekar beiðni sína til vegfarenda um að fara varlega í dag. Verið sé að hreinsa vegi og útlit fyrir hlýrra veður síðar í dag og á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×