Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 07:01 Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að uppbyggingu Litla spítalans í gamla Landsvirkjunarhúsinu við Háaleitisbraut. Markmiðið er að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu og létta á heilbrigðiskerfinu. Vísir/BIG/Anton Brink Hansen Ný einkarekin heilbrigðisþjónusta undir nafninu Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Henni er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu, meðal annars með því að sinna fólki með langvinna sjúkdóma á einum stað. Stefnt er að því að heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur.
Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verkefninu ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks. Hún segir að þörf fyrir heilbrigðisþjónustu fari sívaxandi og við náum ekki að mæta henni nema með fjölbreyttum og nýjum lausnum. Fólksfjölgun og öldrun þjóðarinnar knýja þá þróun áfram og álagið á heilbrigðiskerfið mun aukast meira en flesta órar fyrir. „Við þekkjum þetta öll á eigin skinni. Foreldrar okkar eru að eldast, börnin okkar meiðast í íþróttum, við veikjumst sjálf og alls staðar er bið.“ Samkomulag hefur verið gert við fasteignafélagið Landsbyggð um langtímaleigu húsnæðisins við Háaleitisbraut. Þar standa nú yfir umfangsmiklar endurbætur. Guðrún segir húsnæðið gefa kost á að móta aðstöðuna að starfseminni og svigrúm til að stækka síðar en starfsemin verður til að byrja með á tveimur hæðum. Fjölbreytt þjónusta á einum stað Ein af áherslum Litla spítalans verður að halda utan um fólk með langvinna sjúkdóma. Guðrún nefnir einstakling sem þurfi reglulegt eftirlit, einstaka inngrip, ráðgjöf um lífsstíl og aðkomu fleiri en eins sérfræðings. „Í dag þarf hann sjálfur að púsla þessu saman á mörgum stöðum. Við viljum að hann fái heildstæða þjónustu á einum stað þar sem gæði og öryggi verða í forgrunni.“ Guðrún Ása Björnsdóttir segir að Litli spítalinn verði byggður upp að norrænni fyrirmynd. Heilbrigðisstarfsfólk eigi að vera meirihlutaeigendur og fagleg sjónarmið ráða för.Vísir/BIG Þar eigi forvarnir, heilsuefling og ráðgjöf um lífsstíl að fara saman við læknisþjónustu. Hún segir að markmiðið sé að sinna verkefnum sem geti átt heima utan Landspítala og heilsugæslunnar og létta þannig á öðrum hlutum heilbrigðiskerfisins. Aðstandendur verkefnisins stefni að samstarfi bæði við opinbera aðila og einkaaðila. Markmiðið sé að tryggja samfellu í þjónustunni, einnig þegar sjúklingar þurfi frekari meðferð annars staðar. „Við viljum ekki keppa við kerfið, við viljum létta á því.“ Horfa til Norðurlandanna Fyrirmyndirnar sækja aðstandendur meðal annars til Norðurlandanna. Guðrún segir opinbera aðila og einkaaðila þar vinna saman innan sama heilbrigðiskerfis. Hún vilji nýta þá reynslu og laga að íslenskum aðstæðum. Hún segir samstarf milli heilsugæslu, sérhæfðrar þjónustu og sjúkrahúsa vera þróaðra þar, þannig að fólk fái meðferð þar sem hún hentar best hverju sinni. „Á Íslandi hefur myndast gat á milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu sem nágrannaþjóðir okkar hafa að miklu leyti brúað en okkur hefur ekki tekist það almennilega.“ Vilja fá heilbrigðisstarfsfólk heim Guðrún hefur starfað hjá hinu opinbera, í einkageiranum og í stjórnkerfinu. Hún segir þá reynslu hafa hjálpað sér að móta verkefnið. Mönnun sé ein stærsta áskorun heilbrigðiskerfisins. Aðstandendur séu þegar byrjaðir að ráða inn starfsfólk og vilji meðal annars fá íslenskt heilbrigðisstarfsfólk heim frá útlöndum. Endurbætur standa yfir í húsnæðinu við Háaleitisbraut. Ein af áherslum Litla spítalans verður að veita fólki með langvinna sjúkdóma eftirlit, meðferð og ráðgjöf á einum stað.Vísir/Anton Brink „Markmið okkar er ekki að ráða starfsfólk frá opinberum stofnunum, heldur að skapa umhverfi sem laðar heilbrigðisstarfsfólk m.a. heim frá útlöndum og annars staðar frá og halda því í faginu.“ Hún segir miklu skipta að fólk sem hafi menntað sig til heilbrigðisstarfa geti og vilji starfa við fagið hér á landi. Heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur Fjárfestar koma að fjármögnun verkefnisins, sem Guðrún segir umfangsmikið og kostnaðarsamt. Féð fari í aðstöðu, búnað og aðra innviði. Hún lýsir fjárfestunum sem þolinmóðum. Húsnæðið er nú lagað að fyrirhugaðri starfsemi Litla spítalans. Þjónustunni er ætlað að brúa bilið milli heilsugæslu og sjúkrahúsa, bæta aðgengi og létta á öðrum hlutum heilbrigðiskerfisins.Vísir/Anton Brink „Endanlegt eignarhald verður þó alltaf í meirihlutaeigu heilbrigðisstarfsfólks og skipulagið tryggir að fagleg sjónarmið ráði för í allri stefnumörkun.“ Guðrún segir einnig stefnt að þátttöku í kennslu, þjálfun heilbrigðisstarfsfólks og rannsóknum í samstarfi við háskóla og aðrar stofnanir. Nauðsynleg heilbrigðisþjónusta standi öllum til boða Guðrún segir að erindi hafi verið sent til Sjúkratrygginga Íslands og þreifingar séu í gangi. Ekki liggi enn fyrir hvort eða með hvaða hætti stofnunin muni taka þátt í kostnaði við þjónustuna. „Við viljum að nauðsynleg heilbrigðisþjónusta standi öllum til boða sem á henni þurfa að halda, óháð efnahag.“ Aðstandendur vilji sækja um greiðsluþátttöku þar sem það eigi við til að jafna aðgengi sjúklinga.
Heilbrigðismál Heilsa Reykjavík Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira