Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. október 2026 21:34 Óraníubræður gerðu ítrekaðar tilraunir til að hefja gönguna án árangurs. Getty Norður-Írlandsmálaráðherra Bretlands hefur ákveðið að banna fyrirhugaða göngu Oraníureglunnar frá Drumcree-kirkju í Portadown. Deila um gönguna hefur staðið í nærri tvær vikur og vakið upp minningar um óöldina á tíunda áratug síðustu aldar.
Chris Bryant, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, greindi frá ákvörðuninni í kvöld. Hún kemur í kjölfar nærri tveggja vikna átakastöðu milli félaga í Oraníureglunni og þjóðernissinnaðra íbúa við Garvaghy Road í Portadown. Ráðherrann trompar nefndina Skrúðgöngunefnd Norður-Írlands hafði fyrir tveimur vikum heimilað gönguna, þó með ströngum skilyrðum. Gangan, sem átti að liggja frá mótmælendakirkjunni í Drumcree inn í Portadown og um Garvaghy Road, fór þó aldrei fram vegna fjölmennra mótmæla á veginum. Bryant sagðist hafa varið síðustu tveimur vikum í að reyna að ná samkomulagi milli deiluaðila. Hann hefði meðal annars boðað til nokkurra samningafunda í Hillsborough-kastala og verið í reglulegu sambandi við báða hópa. „Því miður hefur ekki tekist að finna lausn á staðnum,“ sagði Bryant. Hann hefði því komist að þeirri niðurstöðu, með almannahagsmuni og öryggi að leiðarljósi, að aðstæður hefðu breyst svo verulega frá fyrri ákvörðun göngunefndarinnar að gangan gæti ekki lengur farið fram með þeim hætti sem áður hafði verið heimilaður. Sinn Féin fagnar Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, og Michelle O'Neill, forsætisráðherra Norður-Írlands, sögðu ákvörðun Bryants mikinn létti fyrir íbúa Garvaghy Road. Annað hljóð kom úr búðum Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP). Gavin Robinson formaður sagði Bryant þurfa að útskýra hvernig breska ríkisstjórnin hygðist endurheimta traust á réttarríkinu eftir ákvörðunina. Bryant var meðal annars spurður hvort hann hefði með banninu í raun verðlaunað þá sem lokuðu Garvaghy Road og látið undan ólögmætum mótmælum. Hann hafnaði þeirri túlkun og hrósaði félögum Oraníureglunnar í Portadown fyrir samstarf þeirra við lögreglu og stjórnvöld síðustu tvær vikurnar.
Norður-Írland Bretland Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira