Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Andri Broddason skrifar 11. október 2026 14:32 Búast má við mikilli spennu í andrúmsloftinu þegar Manchester City heimsækir Liverpool. Getty/Matt McNulty Liverpool tók á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn var jafn til að byrja með en eftir að Liverpool varð manni færri tóku gestirnir yfir leikinn og unnu 3-0. Mikil spenna var fyrir leiknum þar sem þetta var fyrsti leikur Manchester City síðan félagið var dæmt brotlegt fyrir að brjóta fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar. Einnig hafa leikir Manchester City og Liverpool verið nokkrir af stærstu leikjum deildarinnar síðustu ár. Hvorugu liðinu gekk vel að skapa sér færi í fyrri hálfleik en leikmenn Liverpool ógnuðu þó marki Manchester City meira. Þrátt fyrir það komst liðið ekki í forystuna og var staðan markalaus í hálfleik. Það dró heldur betur til tíðinda snemma í seinni hálfleik þegar Ryan Gravenberch fékk gult spjald fyrir brot. Það átti eftir að skipta máli því um 20 mínútum síðar fékk hann að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Jeremy Dooku var að keyra upp völlinn í skyndisókn þegar Gravenberch stöðvaði hann. Klárlega brot en gult spjald verður að teljast strangur dómur. Eftir að Liverpool varð manni færri gjörsamlega hrundi liðið og nánast í næstu sókn náði Erling Haaland að koma gestunum í forystu. Nánast í næstu sókn var Jeremy Dooku með boltann fyrir utan teiginn og skrúfaði boltanum í færhornið, nánast óverjandi fyrir Allison í markinu. Staðan átti þó eftir að versna enn frekar fyrir Liverpool þegar Manchester City sundurspilaði sig í gegnum vörn Liverpool þar sem Ryan Cherki slapp einn inn fyrir vörnina. Þar fíflaði hann Jeremie Frimpong og skoraði snyrtilegt mark. Það reyndist síðasta mark leiksins og vann Manchester City sannfærandi 3-0 sigur. Dómurinn virtist hafa áhrif á leikmenn liðsins í seinni hálfleik en eftir að liðið varð manni fleiri þá hristu þeir það af sér. Fótbolti Enski boltinn Manchester City Liverpool FC
Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Íslenski boltinn