Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Samúel Karl Ólason skrifar 9. október 2026 10:18 Donald Trump heiðraði Elon Musk, forstjóra SpaceX og fyrrverandi ráðgjafa forsetans, fyrr í vikunni. AP/Julia Demaree Nikhinson Tveimur dögum áður en hann hóf sérstakt átak í því að draga úr reglugerðum varðandi geimferðir einkafyrirtækja og kallaði eftir ríkisstuðningi við slík fyrirtæki, keypti Donald Trump skuldabréf SpaceX fyrir allt að fimm milljónir dala. Hann keypti einnig hlutabréf í Meta fyrir allt að 25 milljónir dala en í heildina framkvæmdi hann 517 viðskiptagjörninga í ágúst.
Hann keypti einnig hlutabréf fyrir allt að sex milljónir í Microsoft og fyrir minni upphæð í tæknifyrirtækinu Oracle. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjárhagsyfirlýsingu forsetans fyrir ágúst. Samkvæmt greiningu CNBC keypti eða seldi forsetinn hlutabréf og skuldabréf fyrir allt frá 74,3 milljónum dala til 273,3 milljóna dala í mánuðinum. Þá keypti hann einnig fimm ára skuldabréf SpaceX fyrir að minnsta kosti milljón dala en allt að fimm milljónir. Tveimur dögum síðar skrifaði hann undir nýja stefnuyfirlýsingu sem felst í því að reyna að draga úr reglugerðum varðandi einkafyrirtæki. Þar er einnig kallað eftir því að bandaríska ríkið styðji einkafyrirtæki í að skjóta að minnsta kosti þúsund geimförum út í geim á ári hverju fyrir árið 2030. Meðal annars á þessi stuðningur að vera í formi aðgangs að geimferðainnviðum ríkisins, í hvatningu til fjárfestinga í geimfyrirtækjum og samvinnu einkafyrirtækja og opinbera geirans í uppbyggingu innviða. SpaceX á í gífurlega miklum viðskiptum við bæði varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og Geimvísindastofnunina (NASA). Heiðraði leiðtoga tæknifyrirtækja Einn talsmanna Trumps sagði í yfirlýsingu til CNN að Trump kæmi með engum hætti að viðskiptum sem þessum. Þeim væri stýrt af utanaðkomandi aðilum og að Trump og fjölskylda hans hefðu ekki áhrif á það hvað væri keypt og hvað væri selt. Á sínu seinna kjörtímabili hefur Trump ítrekað kallað eftir því að reglur um bandarísk tæknifyrirtæki verði felldar niður eða forsvarsmönnum þeirra gert kleift að setja sínar eigin reglur. Fyrr í þessari viku tók hann á móti mörgum af leiðtogum þessara fyrirtækja, og þar á meðal Elon Musk forstjóra SpaceX, og heiðraði þá. Aðrir sem voru heiðraðir voru Jensen Huang forstjóri Nvidia, Satya Nadella forstjóri Microsoft og Michael Dell forstjóri Dell. Fyrri forsetar Bandaríkjanna hafa oftar en ekki selt sínar eigur þegar þeir taka við embætti og sett peninga sína í sérstakan sjóð sem þeir geta engin áhrif haft á. Það hefur Trump ekki gert. Síðan hann varð forseti Bandaríkjanna á nýjan leik hefur auður Trumps aukist til muna. Samkvæmt greiningu Forbes var hann til að mynda metinn á 2,6 milljarða dala árið 2023. Hann er nú metinn á sjö milljarða dala. Það samvarar um 856 milljörðum króna.
Bandaríkin Donald Trump SpaceX Meta Microsoft Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira