Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. október 2026 09:02 Navanethem „Navi“ Pillay hlaut friðarverðlaunin. EPA Norska Nóbelsnefndin ákvað að Navanethem „Navi” Pillay skildi hljóta friðarverðlaun Nóbels. Hún er menntaður lögmaður og er í dag dómari við Alþjóðadómstólinn í máli Mjanmar.
Pillay hlaut verðlaunin fyrir viðleitni sína til að efla frið og alþjóðalög auk þess að hafa sýnt fram á mikið hugrekki. Hún hafi af miklum heilindum rutt brautina í átt að heildstæðari alþjóðlegri réttarskipan. „Verðlaunahafi ársins hefur átt lykilþátt í að tryggja að stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð séu sótt til saka,“ segir í tilkynningu nefndarinnar. Pillau er frá Suður-Afríku og fæddist inn í fjölskyldu af indversk-tamílskum uppruna á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Hún er menntaður lögmaður og tókst á við kerfislæga mismunun, aðskilnað og útilokun. Til að mynda starfaði hún við að verja Nelson Mandela og aðra sem risu gegn aðskilnaðarstefnunni. Hún hefur gegnt dómarastörfum við Hæstarétt í Suður-Afríku, Alþjóðlega stríðsglæpadómstólinn í málefnum Rúanda og Alþjóðlega sakamáladómstólinn . Hún var einnig mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna og fór fyrir óháðri alþjóðlegri rannsóknarnefnd SÞ um hernumdu palestínsku svæðin. „Þegar Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn fyrir Rúanda staðfesti að nauðgun og kynferðisofbeldi gætu talist glæpur gegn mannkyni – sem og þjóðarmorð – voru áhrif hennar veigamikill þáttur.“ Vísað er hér í þjóðarmorð sem áttu sér stað í Rúanda árið 1994. Á sama tíma átti Pillay lykilþátt í að ákæra sakborning fyrir að hvetja til þjóðarmorðs með útbreiðslu áróðurs. Réttarríkið sé undirstaða kerfis sem tryggir frið „Í sögulegum alþjóðlegum dómsmálum hefur hún sýnt að lagaleg úrræði geta stuðlað að því að koma í veg fyrir stríðsátök og ofbeldi. Navi Pillay hefur einnig lagt sitt af mörkum til að styrkja stofnanir alþjóðalaga. Sjálfstæði hennar, sérþekking og staðfesta hafa gert hana að einum virtasta alþjóðlega lögfræðingi okkar tíma,“ segir í tilkynningunni. Með því að veita Pillay verðlaunin vill norska Nóbelsnefndin minna heiminn á að réttarríkið sé undirstaða þess kerfis sem á að tryggja frið og leysa deilur án ofbeldis. „Sagan hefur sýnt að heimur án réttarríkis er óréttlátur, óskynsamlegur og ómannúðlegur.“ Með störfum sínum hafi Pillay látið ríki og þjóðarleiðtoga sæta ábyrgð auk þess að veita fórnarlömbum ofbeldis og átaka von. Ferill hennar minni heiminn á nauðsyn þess að styðja, styrkja og efla hið alþjóðlega réttarríki. Sýnt var beint frá blaðamannafundi þar sem verðlaunahafinn var tilkynntur. María Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar frá Venesúela, hlaut friðarverðlaun Nóbels í fyrra. Í rökstuðningi nefndarinnar sagði að hún fengi verðlaunin fyrir sleitulausa baráttu sína fyrir lýðræði í Venesúela og að tryggja friðsamleg umskipti til lýðræðis frá einræði í landinu. Hún endaði á að gefa Donald Trump Bandaríkjaforseta verðlaunapeninginn en hann hefur ítrekað sagst vilja fá verðlaunin. Fréttin hefur verið uppfærð.
Nóbelsverðlaun Noregur Suður-Afríka Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira