Innlent

Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin

Birgir Olgeirsson skrifar
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hefur gagnrýnt áherslu Seðlabankans á launahækkanir sem skýringu á verðbólgu. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nóg að spyrja þá sem reka fyrirtæki og þurfa að borga launin hvaða áhrif þau hafi.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hefur gagnrýnt áherslu Seðlabankans á launahækkanir sem skýringu á verðbólgu. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nóg að spyrja þá sem reka fyrirtæki og þurfa að borga launin hvaða áhrif þau hafi. Vísir/Anton Brink

Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu.

Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlabankans í morgun.

Hann telur það ekki fara saman að halda fram ýtrustu launakröfum og ná fram þeim lækkunum verðbólgu og vaxta sem geti bætt lífskjör heimilanna.

Segir hægt að spyrja þá sem greiða launin

Halla hefur gagnrýnt þá skýringu að verðbólgu megi fyrst og fremst rekja til launahækkana. Í fundargerð aðalfundar VR frá 25. mars er haft eftir henni að verðbólguvandinn eigi rætur í húsnæðismálum, hagnaðardrifnum verðhækkunum og hækkunum opinberra gjalda. Þar er jafnframt haft eftir henni að það séu verðhækkanir sem auki verðbólgu, ekki laun.

Spurður hvað hann segði við fullyrðingum um að laun hefðu ekki áhrif á verðbólgu bendir Ásgeir á kostnað fyrirtækja.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hefur bent á húsnæðismál, hagnaðardrifnar verðhækkanir og hækkanir opinberra gjalda sem skýringar á verðbólgu og gagnrýnt áherslu á launahækkanir.Vísir/Anton Brink

„Þú getur bara spurt hvern sem er sem er að reka fyrirtæki og þarf að borga laun um hver mánaðamót, hvaða þýðingu það hefur.“

Hann segir launakostnað hafa áhrif á verð vöru og þjónustu. Að hans mati eru laun á Íslandi, að meðtöldum launatengdum gjöldum, líklega enn þau hæstu í Evrópu.

„Ég held að það sé svona tiltölulega augljóst.“

Launakostnaður hæstur í samanburði bankans

Í kynningu Seðlabankans í morgun var bent á að launahækkanir hefðu verið mun meiri hér á landi en í nágrannalöndunum undanfarna tvo áratugi.

Samkvæmt samanburði Seðlabankans hafa laun á vinnustund í framleiðslu hækkað meira á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum frá 2005, einnig þegar tekið er tillit til verðbólgu. Launakostnaður á unna stund var jafnframt hæstur hér á landi í samanburði bankans fyrir árið 2025, mældur í evrum.Seðlabankinn

Samkvæmt samanburði bankans á launakostnaði á unna stund árið 2025 var kostnaðurinn hæstur á Íslandi, eða um sextíu evrur á stund. Samanburðurinn er gerður í evrum.

Launakostnaður í Noregi nam 95 prósentum af þeim íslenska, í Danmörku 87 prósentum og í Svíþjóð 73 prósentum. Á evrusvæðinu í heild var hlutfallið 65 prósent, samkvæmt glærunni.

Meiri hækkanir þótt tekið sé tillit til verðbólgu

Bankinn bar einnig saman þróun launa á Norðurlöndunum frá fyrsta ársfjórðungi 2005 til annars ársfjórðungs í ár. Samanburðurinn á nafnlaunum miðast við laun á vinnustund í framleiðslu og sýnir að þau hafi rúmlega fjórfaldast hér á landi á tímabilinu.

Samkvæmt kynningunni hafi laun jafnframt hækkað meira á Íslandi þegar tekið sé tillit til verðbólgu í hverju landi.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir nú. Lægri verðbólga og lægri vextir séu það sem heimilin þurfi helst á að halda.Vísir/Anton Brink

Myndrit bankans sýnir að raunlaun hafi hækkað um tæplega helming hér á landi frá ársbyrjun 2005. Hækkunin hafi verið um fimmtungur til fjórðungur í Noregi, Danmörku og Svíþjóð en um tíu prósent í Finnlandi.

Bankinn byggir samanburðinn á gögnum frá Eurostat, Hagstofu Íslands, Macrobond, OECD og eigin gögnum.

Vonast til að samningar haldi

Ásgeir fagnar ákvörðunum stéttarfélaga um að láta gildandi kjarasamninga halda. Hann segir félögin sem upphaflega gerðu samningana hafa lagt áherslu á að þeir stuðluðu að lægri verðbólgu og vöxtum. Ánægjulegt sé að þau standi enn við þá áherslu.

„Og ég á bara von á því að þetta nái yfir allan vinnumarkaðinn.“

Seðlabankastjóri bindur vonir við að verðbólga fari að hjaðna eftir áramót, sérstaklega ef ró næst á vinnumarkaði og áform fjárlaga ganga eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×