Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Birgir Olgeirsson skrifar 2. október 2026 14:20 Hér má sjá útisvæði við Lækjargötu þar sem bílastæði koma í staðin, utan sumartímans að minnsta kosti. Já.is Fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur eru aftur komin í notkun eða verða opnuð á næstu dögum. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs fagnar breytingunni en fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins gagnrýna að útiborð og hjólabogar séu fjarlægð til að rýma fyrir bílum.
Málið var rætt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á miðvikudag, þar sem kynnt voru hvílustæði, götugögn á borð við blómapotta og bílastæði í miðborginni. Fyrir utan Pósthússtræti 9 endurheimtir borgarstjórn eitt bílastæði.Já.is Í sameiginlegri bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins segir að stæðin hafi meðal annars verið nýtt undir götugögn og tímabundna starfsemi yfir sumarmánuðina. „Með því nýtist borgarlandið betur yfir vetrarmánuðina, stæðin verða á ný tekjuaflandi fyrir borgina og um leið eykst aðgengi fyrir gesti sem vilja sækja verslun, veitingastaði, menningu og aðra fjölbreytta þjónustu í miðborginni.“ Útiveitingasvæðið fyrir framan Kalda á Klapparstíg verður fjarlægt og tvö bílastæði tekin aftur í notkun.Vísir/Egill Meirihlutinn telur mikilvægt að nýta þau bílastæði sem þegar eru til staðar þegar ekki er þörf fyrir þau undir aðra starfsemi. Stæðin á níu stöðum Samkvæmt yfirliti yfir stæðin sem hafa verið tekin aftur í notkun eða verða opnuð á allra næstu dögum eru þau á þessum stöðum: Tvö fyrir framan Kalda á Klapparstíg. Eitt fyrir framan Bad Mickey á Pósthússtræti. Tvö fyrir framan Café Babalú á Skólavörðustíg. Tvö fyrir framan Bingó á Skólavörðustíg. Fjögur fyrir framan Messann á Lækjargötu. Eitt við Ráðhúsið á Tjarnargötu. Eitt við Eimskipafélagshúsið í Hafnarstræti. Eitt við Gamla bíó í Ingólfsstræti. Eitt á Bergstaðastræti fyrir ofan Kaffibarinn. Útiveitingasvæði við Kalda, Café Babalú, Bingó og Messann verða fjarlægð. Í yfirlitinu kemur fram að svæðin við þrjá fyrstnefndu staðina séu þar yfir sumarið. Benda á vannýtt bílastæðahús Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að borgin sé á sama tíma að fara í átak til að auka nýtingu bílastæðahúsa í miðborginni. Þau séu vannýtt og því skjóti skökku við að fjarlægja útiborð og búnað fyrir reiðhjól til að endurheimta fimmtán bílastæði. „Fulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á því að hvílustæði og hjólastæði í miðborginni séu fyrst og fremst metin sem svæði sem eigi að færa aftur undir bílastæði. Miðborg Reykjavíkur á að vera lifandi og skemmtileg.“ Í bókun flokksins segir jafnframt að hjólabogar hafi verið fjarlægðir á nokkrum stöðum. Öruggir staðir til að geyma og læsa reiðhjólum séu nauðsynlegir og komi í veg fyrir að fólk læsi hjólum við ljósastaura eða umferðarmerki. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins gagnrýnir einnig breytinguna. Í bókun fulltrúans segir að verið sé að fjarlægja rými sem hafi lífgað upp á miðborgina og gefið fólki tækifæri til félagstengsla. Þar er varað við aukinni bílaumferð og sagt að brottnám hjólaboga sendi köld skilaboð til þeirra sem kjósi virka ferðamáta. „Þetta er gríðarleg afturför og hugmyndir þessara flokka um endurreisn Reykjavíkur sem bílaborgar stríða gegn allri þeirri framþróun og stefnu sem lífvænlegustu og bestu borgir heimsins hafa markað.“
Reykjavík Bílastæði Skipulagsmál Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira