Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Kristján Már Unnarsson skrifar 30. september 2026 15:25 Icelandair skrifaði fyrir fjórum árum undir viljayfirlýsingu við Heart Aerospace um kaup á fimm 30 sæta tvinn-rafmagnsflugvélum, sem kallast ES-30. Icelandair skoðar núna að uppfæra ósk sína og skrá sig fyrir stærri flugvélinni ES-36. Heart Aerospace „Icelandair hefur átt í góðu samstarfi við Heart Aerospace og fylgst grannt með framvindu verkefna félagsins undanfarin ár,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, spurður um stöðu mála félagsins gagnvart Heart Aerospace.
Tilefnið er tilkynning Heart fyrir helgi um að það hefði ákveðið að stefna að smíði stærri tvinn-rafmagnsflugvélar en áður var áformað. Hún verði 36 sæta í stað 30 sæta og með tuttugu prósentum meiri burðargetu. Þannig verður hún komin í sömu stærð og Dash 8 Q200-vélarnar, minni gerðin sem Icelandair notar á innanlandsleiðum. Icelandair skrifaði árið 2022 undir viljayfirlýsingu um kaup á fimm eintökum af 30 sæta flugvélinni, sem kallast ES-30. Jafnframt var Icelandair í ráðgjafarnefnd um þróun hennar. Teikning af ES-36 tvinn-rafmagnsflugvél Heart Aerospace. Hún verður með tveimur hreyflum.Heart Aerospace Nýja flugvélin er nefnd ES-36 og hefur Anders Forslund, hinn sænski stofnandi og forstjóri Heart Aerospace, sagt að hann búist við að viðskiptavinir uppfæri óskir sínar úr ES-30 yfir í ES-36, þar á meðal United Airlines og Air Canada. En hvað með Icelandair? „Viljayfirlýsing milli félaganna er enn í gildi og til skoðunar er að uppfæra hana til að taka mið af þróun verkefnisins og breytingunni frá upprunalegu ES-30 yfir í ES-36,“ segir Guðni. Tilraunaútgáfa þrjátíu sæta flugvélar Heart, sem kallast X1, flaug í fyrsta sinn þann 12. ágúst síðastliðinn. Hún varð þar með stærsta rafknúna flugvél heims til þessa og hefur hún þótt einna líklegust til að ryðja braut orkuskipta í arðbæru farþegaflugi. Sjá mátti fyrsta reynsluflugið í þessari sjónvarpsfrétt Sýnar: Heart segir núna stefnt að því að ES-36 flugvélin fari í sitt fyrsta reynsluflug árið 2028 og verði komin í þjónustu flugfélaga árið 2031. „Það hefur verið áhugavert að fylgjast með framgangi Heart Aerospace og þær breytingar sem félagið hefur nýlega kynnt á hönnun vélarinnar eru athyglisverðar,“ segir Guðni. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.Egill Aðalsteinsson Viljayfirlýsing Icelandair um kaup á fimm eintökum frá Heart Aerospace felur hvorki í sér kauprétt né skuldbindingu um kaup á flugvélum. Er til skoðunar hjá Icelandair að stíga slík skref? „Jú, það er rétt varðandi viljayfirlýsinguna. Það sem er verið að skoða núna er að uppfæra viljayfirlýsinguna en ekkert hefur verið ákveðið varðandi að stíga fleiri skref,“ svarar upplýsingafulltrúi Icelandair.
Flug Icelandair Orkuskipti Rafmagn Umhverfismál Loftslagsmál Tengdar fréttir Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Heart Aerospace, fyrirtæki sænska frumkvöðulsins Anders Forslund, hefur kynnt breytta hönnun tvinn-rafmagnsflugvélar sinnar. Núna er fyrirhugað að hún verði með 36 farþegasæti og tuttugu prósentum meiri burðargetu en hin 30 sæta ES-30 flugvél sem áður var stefnt að og Icelandair hafði skráð sig fyrir. 26. september 2026 22:33 Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða. 16. ágúst 2026 10:10 Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Stærsta rafmagnsflugvél heims til þessa, með rými fyrir þrjátíu farþega, hóf sig til flugs í fyrsta sinn í gær. Flugvélin gæti hentað innanlandsleiðum á Íslandi og hefur Icelandair skrifað sig fyrir fimm eintökum. 13. ágúst 2026 21:20 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Sjá meira
Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Heart Aerospace, fyrirtæki sænska frumkvöðulsins Anders Forslund, hefur kynnt breytta hönnun tvinn-rafmagnsflugvélar sinnar. Núna er fyrirhugað að hún verði með 36 farþegasæti og tuttugu prósentum meiri burðargetu en hin 30 sæta ES-30 flugvél sem áður var stefnt að og Icelandair hafði skráð sig fyrir. 26. september 2026 22:33
Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða. 16. ágúst 2026 10:10
Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Stærsta rafmagnsflugvél heims til þessa, með rými fyrir þrjátíu farþega, hóf sig til flugs í fyrsta sinn í gær. Flugvélin gæti hentað innanlandsleiðum á Íslandi og hefur Icelandair skrifað sig fyrir fimm eintökum. 13. ágúst 2026 21:20