Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Kristján Már Unnarsson skrifar 13. ágúst 2026 21:20 Frá fyrsta reynslufluginu í gær. Plattsburgh-flugvöllur í baksýn. Heart Aerospace Stærsta rafmagnsflugvél heims til þessa, með rými fyrir þrjátíu farþega, hóf sig til flugs í fyrsta sinn í gær. Flugvélin gæti hentað innanlandsleiðum á Íslandi og hefur Icelandair skrifað sig fyrir fimm eintökum.
Í kvöldfréttum Sýnar voru sýndar myndir frá Plattsburgh í ofanverðu New York-ríki þegar tilraunaflugvélinni var ekið út á flugbraut í sitt fyrsta reynsluflug. Smíði flugvélarinnar er afrakstur þróunarstarfs sænska félagsins Heart Aerospace en það flutti höfuðstöðvar sínar í fyrra frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrsta flugið í morgunsólinni í gær. Aðeins einn flugmaður flaug henni.Heart Aerospace Þetta er sú flugvél sem núna þykir líklegust til að ryðja brautina í átt að sjálfbærum og arðbærum mengunarlausum flugsamgöngum. Aðeins einn flugmaður var um borð en mikil sjálfvirkni er sögð gera óþarft að hafa tvo flugmenn til að fljúga henni.Heart segir þetta fyrsta flug hafa heppnast vel. Það stóð yfir í 27 mínútur og fór vélin hæst 1.100 feta hæð. Fyrirtækið segir að í þessari nærri hálftíma flugferð hafi flugvélin notað rafmagn fyrir einungis fimm dollara, andvirði um 620 íslenskra króna. Fyrsta lendingin eftir nærri hálftíma reynsluflug. Flugvélin notaði rafmagn fyrir aðeins fimm dollara í flugferðinni.Heart Aerospace Heart segir rekstrarkostnað hennar verða meira en fjörutíu prósentum lægri en hefðbundinna flugvéla, vegna minni orku- og viðhaldskostnaðar, lengri rekstrartíma og meiri áreiðanleika.Við höfum áður sýnt tölvugert myndband af flugvélinni í litum Icelandair, sem hefur með viljayfirlýsingu skrifað sig fyrir fimm eintökum og verið í ráðgjafanefnd um þróun hennar. Miðað við tæknilýsingar ætti hún að geta hentað vel á innanlandsleiðum á Íslandi. ES-30 flugvélin í litum Icelandair.Heart Aerospace Tilraunaeintakið X1 flýgur eingöngu á rafmagni. Farþegaútgáfan ES-30 verður hins vegar tvinn-vél. Henni er ætlað að komast 200 kílómetra á rafmagni en sem hybrid fer flugdrægið upp í 800 kílómetra. Hleðslutími milli flugferða er áætlaður þrjátíu mínútur.Þessari fyrstu flugferð var vel fagnað af sænska frumkvöðlinum Anders Forslund og hans mönnum. Framundan eru viðamiklar flugprófanir á næstu árum, fyrst á tilraunaeintakinu en síðan á farþegaútgáfunni, sem bera á þrjátíu farþega. Fyrirtækið áætlar núna að hún verði komin í notkun flugfélaga árið 2031. Hér má sjá hana fljúga í fyrsta sinn:
Flug Icelandair Orkuskipti Loftslagsmál Umhverfismál Orkumál Rafmagn Bandaríkin Svíþjóð Tengdar fréttir Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur birt myndband af frumútgáfu ES-30 rafmagnsflugvélar sinnar í reynsluakstri á flugvellinum í Plattsburgh í norðurhluta New York-ríkis. Slíkar prófanir á jörðu niðri eru þýðingarmikill þáttur í undirbúningi fyrir fyrsta flugið. 7. júní 2026 07:57 Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. 1. apríl 2026 22:11 Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45 Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8. júlí 2022 22:33 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ Sjá meira
Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur birt myndband af frumútgáfu ES-30 rafmagnsflugvélar sinnar í reynsluakstri á flugvellinum í Plattsburgh í norðurhluta New York-ríkis. Slíkar prófanir á jörðu niðri eru þýðingarmikill þáttur í undirbúningi fyrir fyrsta flugið. 7. júní 2026 07:57
Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. 1. apríl 2026 22:11
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45
Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8. júlí 2022 22:33