Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Kristján Már Unnarsson skrifar 26. september 2026 22:33 Tölvugerð mynd af ES-36 tvinn-rafmagnsflugvél Heart Aerospace. Stefnt er að því að hún verði komin í þjónustu flugfélaga árið 2031. Heart Aerospace Heart Aerospace, fyrirtæki sænska frumkvöðulsins Anders Forslund, hefur kynnt breytta hönnun tvinn-rafmagnsflugvélar sinnar. Núna er fyrirhugað að hún verði með 36 farþegasæti og tuttugu prósentum meiri burðargetu en hin 30 sæta ES-30 flugvél sem áður var stefnt að og Icelandair hafði skráð sig fyrir.
Jafnframt verður önnur grundvallarbreyting á flugvélinni. Í stað fjögurra hreyfla er núna ætlunin að hún verði með tveimur hreyflum. Þannig verður þessi stækkaða gerð mjög lík hinni 37 sæta Dash 8 Q200, bæði í útliti og stærð, minni gerðinni sem Icelandair notar núna á innanlandsleiðum. Dash 8 Q200 vél Icelandair í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli. ES-36 flugvél Heart Aerospace verður mjög lík henni og álíka stór.Vilhelm Gunnarsson Tilraunaútgáfa þrjátíu sæta flugvélar Heart, sem kallast X1, flaug í fyrsta sinn þann 12. ágúst síðastliðinn. Hún varð þar með stærsta rafknúna flugvél heims til þessa og hefur hún þótt líklegust til að ryðja braut orkuskipta í flugsamgöngum. Sjá mátti fyrsta reynsluflugið í þessari sjónvarpsfrétt Sýnar: Í fréttatilkynningu segir Heart Aerospace ES-36 flugvélina geta flogið allt að 200 kílómetra eingöngu á rafmagni en allt að 1.200 kílómetra á tvinnstillingu. Um þrjátíu mínútur taki að hlaða hana rafmagni á milli ferða. Stefnt er að fyrsta flugi þessarar stærri gerðar á seinni hluta ársins 2028 og að vélin fari í þjónustu flugfélaga árið 2031. Gert er ráð fyrir tveimur hreyflum á ES-36 flugvélinni, í stað fjögurra á ES-30.Heart Aerospace Í tilkynningu Heart kemur fram að bandaríska innanlandsflugfélagið JSX hafi skuldbundið sig til að kaupa 50 eintök. JSX, sem er með höfuðstöðvar í Dallas í Texas, hafi auk þess tryggt sér kauprétt á 50 vélum til viðbótar. Anders Forslund, forstjóri Heart, sagði í samtali við Reuters að búist væri við að núverandi flugfélög í hópi viðskiptavina, þar á meðal United Airlines og Air Canada, myndu uppfæra pantanir sínar úr ES-30 yfir í ES-36. ES-30 flugvélin með fjóra hreyfla teiknuð í litum Icelandair.Heart Aerospace Icelandair skrifaði árið 2022 undir viljayfirlýsingu um kaup á fimm eintökum af ES-30 flugvélinni. Jafnframt var Icelandair í ráðgjafarnefnd um þróun hennar. Upphafleg hugmynd Anders Forslund var að smíða rafknúna flugvél fyrir norrænan heimamarkað sem gæti þjónað stuttum flugleiðum og fámennum stöðum með arðbærum hætti. Með flutningi félagsins í fyrra frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu var stefnan hins vegar sett á alheimsmarkað. Heart Aerospace hefur sagt hagkvæmni flugvélarinnar verða til þess að endurvekja flug til fámennari áfangastaða. Á þessari mynd eru sýndir tveir flugmenn um borð.Heart Aerospace Heart segir rekstrarkostnað flugvélarinnar verða meira en fjörutíu prósentum lægri en hefðbundinna olíuknúinna flugvéla. Búast megi við enn meiri hagkvæmni eftir því sem tækninni fleygi fram. Engin losun koltvísýrings verði frá henni í rekstri á leiðum sem flognar eru eingöngu á rafmagni og verulega minni losun í tvinnstillingu. Í fyrsta reynsluflugi X1-tilraunavélarinnar í New York-ríki í síðasta mánuði vakti athygli að aðeins einn flugmaður flaug henni. Ennfremur að raforkan sem notuð var í fluginu, sem stóð í 27 mínútur, kostaði aðeins um fimm bandaríkjadali. Myndband Heart af fluginu má sjá hér:
Flug Orkuskipti Rafmagn Umhverfismál Loftslagsmál Nýsköpun Icelandair Samgöngumál Svíþjóð Bandaríkin Tækni Vísindi Tengdar fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða. 16. ágúst 2026 10:10 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira
Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða. 16. ágúst 2026 10:10