Tíu tékkar réðu ekki við Eng­lendinga

Aron Guðmundsson skrifar
Harry Kane gulltryggði sigur Englands í kvöld.
Harry Kane gulltryggði sigur Englands í kvöld. Vísir/Getty

Heimamenn í landsliði Tékklands urðu fyrir áfalli á 23. mínútu er Pavel Sulc fékk að líta rauða spjaldið fyrir ljótt brot. Erfitt verkefni orðið enn erfiðara fyrir Tékkland. 

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en snemma í þeim seinni kom Anthony Gordon Englendingum yfir með marki eftir stoðsendingu frá Trent Alexander-Arnold. 

Harry Kane tvöfaldaði svo forystu Englendinga með öðru marki liðsins á 69. mínútu.

Reyndist það lokamark leiksins. 2-0 sigur Englendinga staðreynd. Frábært svar gestanna eftir tap gegn ríkjandi heimsmeisturum Spánar í fyrstu umferð. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira