Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Samúel Karl Ólason skrifar 28. september 2026 12:19 Lögreglan er enn með mikinn viðbúnað á svæðinu og hefur fólki þorps nærri herstöðinni ekki verið hleypt aftur heim. AP/Alastair Grant Mennirnir fimm sem handteknir voru vegna gruns um að þeir væru að skipuleggja hryðjuverkaárás á breska herstöð á sunnudaginn eru allir breskir ríkisborgarar. Þeir búa allir í mismunandi hlutum Lundúna og eru á bilinu 23 til 25 ára gamlir.
Í yfirlýsingu frá hryðjuverkalögreglu Bretlands segir að rannsókn málsins sé gífurlega umfangsmikil. Þá kemur fram að hvað mönnunum gekk til liggi ekki enn fyrir. Áður hefur komið í ljóst að verið sé að skoða hvort þeir tengist yfirvöldum í Íran með einhverjum hætti. Eftir að þeir voru handteknir gaf lögreglan út að þeir væru grunaðir um brot á lögum um sprengiefni en seinna meir var bætt við grun um skipulagningu hryðjuverks. Þeir voru handteknir nærri breskri herstöð sem hýsir einnig bandarískar sprengjuflugvélar sem notaðar hafa verið til árása í Íran á undanförnum mánuðum. Mennirnir voru á þremur sendiferðabílum og var róbóti notaður til að skoða inn í bílana á sunnudaginn. Sjá einnig: Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Vegna hættunnar var stór hluti bæjarins Whelford rýmdur en til stendur að skoða seinna í dag hvort hleypa eigi fólkinu aftur til síns heima. Segist hafa séð allt að tíu menn Mennirnir voru handteknir eftir að tilkynning barst frá bónda á svæðinu um grunsamlega menn á ferðinni á sendiferðabílum. Þá hafði bóndinn séð mennina í lambhúshettum við bílana og reyndu einhverjir þeirra að fela sig þegar hún ók fram hjá þeim. BBC hefur eftir konunni að hún sé handviss um að hún hafi séð fleiri en fimm menn. Þeir hafi ekki verið færri en átta og allt að tíu. Einhverjir þeirra hafi hlaupið út í skóg þegar þeir sáu hana. Sjá einnig: Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Hún segist hafa áhyggjur af því að þessir menn séu enn á vappi um svæðið og var undrandi á því að enginn hafi sett sig í samband við hana til að ræða betur við hana um hvað hún sá þarna um nóttina. Í frétt Guardian segir að Wes Streeting, varnarmálaráðherra, hafi sagt að umrædd kona hafi ekki yfirsýn yfir málið, eftir að hún gagnrýndi yfirvöld vegna mannanna. Hún svaraði ráðherranum í morgun og sagði að það eina sem hún vissi væri að hún hefði séð þrjá grunsamlega sendiferðabíla í miðju þorpi þeirra og hóp óþekktra manna á hlaupum. „Ég veit ekki hvernig hann veit hvaða ásýnd ég er með, ég hef aldrei hitt hann.“ Hún var einnig spurð út í ummæli Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, um að mennirnir hefðu verið undir eftirliti yfirvalda. „Það er frábært en kannski hefðu þeir þurft að fylgjast aðeins betur með þeim,“ sagði bóndinn. Enn sem komið er hefur enginn nema Trump sagt að mennirnir hafi verið undir eftirliti. Það þykir skrítið að mönnunum hafi verið leyft að keyra þremur sendiferðabílum með sprengjum innanborðs inn í þorpið nærri herstöðinni, ef fylgst var með ferðum þeirra. Íbúar hafa þó sagt frá því að fyrir handtökurnar á sunnudaginn hafi lögregluþjónar verið á ferðinni í þorpinu.
England Bretland Hryðjuverkastarfsemi Hernaður Bandaríkin Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira