Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Lovísa Arnardóttir skrifar 28. september 2026 06:45 Lögregla er vopnuð við vegartálma. Vísir/AP Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian.
Í frétt Guardian segir fyrstu niðurstöður rannsakenda á efninu sem fannst í bílunum bendi til þess að um heimatilbúnar sprengjur sé að ræða. Í yfirlýsingu sagði hryðjuverkalögreglan: „Um klukkan 12.45 í nótt, sunnudaginn 27. september, barst lögreglu tilkynning vegna þriggja grunsamlegra ökutækja sem virtust vera á leið að flugherstöðinni. Vopnaðir lögreglumenn brugðust við og fimm menn voru handteknir á Whelford-svæðinu vegna gruns um brot gegn lögum um sprengiefni. Þeir voru síðar handteknir á ný vegna gruns um undirbúning hryðjuverka, samkvæmt 5. grein hryðjuverkalaganna.“ Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverka í Bretlandi er áfram „mikið“, sem er næsthæsta stigið og þýðir að árás sé talin mjög líkleg. Í myndum sem eru í dreifingu af handtöku mannanna má sjá fimm menn bera að ofan á sveitavegi í handjárnum. Greint var frá því í gær að lögregla hefði verið kölluð út vegna tilkynninga um þrjá grunsamlega sendibíla sem virtust vera á leið að herstöðinni. Bóndi hringdi í neyðarlínuna þegar hún varð var við óvenjulega hegðun hóps manna úti í sveit seint um kvöld á laugardag. Í viðtali við BBC segir hún að það virðist sem „einhver hafi klúðrað málunum“ með því að leyfa hinum grunuðu og ökutækjum þeirra að komast svona nálægt íbúðarhúsum. Þurfi að geta treyst yfirvöldum Hún sagði við BBC að sendibílarnir þrír hefðu verið lagðir aðeins nokkrum metrum frá heimilum nágrannanna. „Við þurfum að geta treyst því að viðeigandi yfirvöld geri viðeigandi ráðstafanir til að fylgjast með og bregðast við ógnum gagnvart samfélögunum sem búa og starfa í nálægð við herstöðina,“ sagði hún. Sprengjuflugvél sem lenti á flugvellinum í sumar. Vísir/EPA „Það ætti ekki að vera nauðsynlegt fyrir einhvern eins og mig að láta RAF Fairford vita af þremur stórum, grunsamlegum ökutækjum og hópi grímuklæddra manna.“ Fram kemur í frétt BBC að 85 íbúar Whelford í Cotswolds-héraði sem þurftu að rýma heimili sín hafi enn ekki komist heim. Íbúarnir voru fluttir með hraði í íþrótta- og frístundamiðstöð í Cirencester og 400 metra öryggissvæði sett upp í kringum hvítu sendibílana. Vélmenni úr sprengjusveit breska hersins voru notuð við rannsókn á bílunum. Að minnsta kosti einn sendibíll bar merki eldsneytisfyrirtækis og símanúmer þar sem einn tölustaf vantaði. Fyrirtækið hefur hafnað tengslum við atvikið og sagði: „Við höfum miklar áhyggjur af því að nafn fyrirtækisins okkar hafi verið notað án vitundar okkar eða leyfis.“ Fyrirtækið sagði að það væri í samstarfi við yfirvöld. Rannsaka mögulegt tilefni Í frétt Guardian segir að hryðjuverkalögreglan og öryggisþjónustur rannsaki nú hvert tilefni árásarinnar gæti hafa verið. Aðstæður við handtökurnar nærri herstöðinni og fyrri viðvaranir frá stjórnvöldum í Teheran vegna notkunar herstöðvarinnar í aðgerðum Bandaríkjanna í Íran gefi tilefni til að ætla að Íran gæti staðið að baki þeim. Í frétt Guardian segir að heimildarmenn þeirra vari þó við því að ekkert sé útilokað og að einhver annar geti staðið að baki þessu. Hvort önnur erlend ríki hafi komið að málinu sé einnig til rannsóknar. Í frétt Guardian segir að yrðu staðfest tengsl við Íran myndi það fela í sér verulega stigmögnun átaka milli Bretlands og stjórnvalda í Teheran. Fylgst með þeim lengi Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist hafa fylgst með hinum grunuðu „lengi“ og hélt því fram að mennirnir „hefðu ætlað sér að valda miklum skaða“. Í frétt Guardian segir að þeirra heimildir bendi til þess að aðgerðin hafi ekki byggst á upplýsingum frá leyniþjónustu, sem bendir til þess að rannsakendur hafi ekki vitað fyrirfram af mögulegum áformum. „Þetta var frábært. Að vinna með Bretum, þetta var ótrúlega vel gert,“ sagði Trump. Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands sagði málið „afar áhyggjuefni“ og að stjórnvöld myndu „alltaf grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana“ til að vernda almenning. Löng flugbraut Í frétt Guardian segir að á herstöðinni sé að finna sérstaklega langa flugbraut, nærri þriggja kílómetra langa. Hún sé styrkt til að taka á móti þungum sprengjuflugvélum á borð við B-1 og B-52, sem hafa verið notaðar í árásum á Íran. Flugvélarnar geta borið mikið magn af sprengjum, þar á meðal svokallaðar „bunker buster“-sprengjur sem eru hannaðar til að komast í gegnum varnarmannvirki. Mikill viðbúnaður var við herstöðina vegn málsins. Vísir/AP Í mars á þessu ári, eftir að þáverandi forsætisráðherra, Sir Keir Starmer, veitti Bandaríkjunum heimild til „varnar“aðgerða gegn eldflaugastöðvum Írans frá breskum herstöðvum, lentu fjórar bandarískar sprengjuflugvélar á RAF Fairford og Bandaríkjaher hóf að nota breskar herstöðvar í „tilteknum varnaraðgerðum“. US Air Force B-52 sprengjuflugvél á herstöðinni í vor. Vísir/EPA Mótmæli hafa verið haldin undanfarna mánuði vegna ákvörðunar breskra stjórnvalda um að leyfa Bandaríkjaher að nota RAF Fairford til að gera árásir á eldflaugastöðvar Írans sem ráðast á skip á Hormússundi. Íranir sendu Bretum viðvörun vegna þess í júlí. Í frétt Guardian segir að við það tilefni hafi talsmaður breskra stjórnvalda sagt Bretland ávallt tilbúið til að verja sig fyrir hvers kyns árásum.
Bretland Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Stjórnvöld í Íran segja að deilan við Bandaríkin og Ísrael verði aðeins leyst með diplómatískum leiðum. Þetta kom fram í máli Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í gær, degi eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hafi hafnað tillögu Írana um að opna Hormússund og binda enda á átökin. 28. september 2026 06:40 „Ég hafna samningi þeirra“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi hafnað tillögu Írana sem fólst í því að opnað yrði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á ný. Hann segir tillöguna „óásættanlega“. 26. september 2026 21:30 Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Íranir lögðu fram tillögu að samkomulagi við Bandaríkin um opnun Hormússunds innan við viku með milligöngu Katar. Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað tillögunni. 26. september 2026 08:33 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sjá meira
Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Stjórnvöld í Íran segja að deilan við Bandaríkin og Ísrael verði aðeins leyst með diplómatískum leiðum. Þetta kom fram í máli Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í gær, degi eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hafi hafnað tillögu Írana um að opna Hormússund og binda enda á átökin. 28. september 2026 06:40
„Ég hafna samningi þeirra“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi hafnað tillögu Írana sem fólst í því að opnað yrði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á ný. Hann segir tillöguna „óásættanlega“. 26. september 2026 21:30
Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Íranir lögðu fram tillögu að samkomulagi við Bandaríkin um opnun Hormússunds innan við viku með milligöngu Katar. Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað tillögunni. 26. september 2026 08:33