Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Freyja Þórisdóttir skrifar 18. september 2026 19:51 Donald Trump hefur ítrekað sett út á störf blaðamanna CNN og annarra miðla. Þar á meðal hefur hann sagt blaðakonuna Kaitlan Collins ekki nógu brosmilda. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tekið ákvörðun um að fjölmiðlunum CNN, Politico og MSNOW verði tafalaust bannaður aðgangur að Hvíta húsinu. Hann sakar blaðamenn miðlanna um að hafa ítrekað birt falsfréttir er varða ríkisstjórn hans, hann sjálfan sem og Bandaríkin. Með þessu bætast blaðamenn miðlanna í sístækkandi hóp þeirra sem mega ekki stíga fæti inn á blaðamannafundi forsetans.
Frá þessu er greint í færslu sem hann birti á miðlinum Truth Social en þar rökstyður hann, sem fyrr segir, ákvörðunina með því sem hann telur vera ítrekaða birtingu fjölmiðlanna á „falsfréttum“, án þess þó að koma með dæmi um það í færslunni. Áskriftin sé ólögleg og fáránleg „Fjölmiðlar ættu ekki að geta skrifað eða flutt skáldskap og lygar þegar þeir fjalla um forseta Bandaríkjanna, ríkisstjórn Trumps eða Bandaríkin,“ skrifar forsetinn. Þar snertir hann einnig á því sem hann kallar „ólöglega og fáránlega“ áskrift upp á átta milljónir dollara frá bandarískum yfirvöldum á valdatíma Joe Biden en í umfjöllun Verdens gang (VG) segir að peningarnir hafi hins vegar verið greiðsla fyrir áskriftir og aðgang að meðal annars Politico Pro – ekki fjárhagslegur stuðningur við fjölmiðilinn. Skjáskot af færslunni sem Donald Trump birti.Truth Social Trump hafi einnig áður takmarkað aðgang heilla fjölmiðla. Árið 2017 hafi meðal annars CNN, The New York Times og Politico verið meinaður aðgangur að blaðamannafundi í Hvíta húsinu, á meðan aðrir fjölmiðlar fengu að vera viðstaddir. Fleiri fjölmiðlar útilokaðir Árið 2025 hafi fréttastofan Associated Press (AP) verið útilokuð frá nokkrum viðburðum á vegum Trump og ríkisstjórnarinnar eftir að fréttastofan neitaði að kalla Mexíkóflóa „Gulf of America“ í stað „Gulf of Mexico“. Ríkisstjórn Trumps hafi síðar takmarkað aðgang AP, Reuters og Bloomberg með því að fjarlægja fast sæti þeirra í svokölluðum blaðamannahópi (e. press pool), þeim hópi blaðamanna sem fær að fylgjast með forsetanum á fundum og viðburðum þar sem pláss er takmarkað.
Bandaríkin Fjölmiðlar Donald Trump Mexíkó Tengdar fréttir Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki nóg og kallaði hann „hinn versta fréttamann“ eftir að hún spurði hann út í Epstein-skjölin. Á blaðamannafundi í skrifstofu forsetans í gær sagði hann, áður en hann hellti sér yfir Kaitlan Collins frá CNN, að þjóðin þyrfti að snúa sér að öðru en Epstein-skjölunum. 4. febrúar 2026 14:37 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Fleiri fréttir Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Sjá meira
Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki nóg og kallaði hann „hinn versta fréttamann“ eftir að hún spurði hann út í Epstein-skjölin. Á blaðamannafundi í skrifstofu forsetans í gær sagði hann, áður en hann hellti sér yfir Kaitlan Collins frá CNN, að þjóðin þyrfti að snúa sér að öðru en Epstein-skjölunum. 4. febrúar 2026 14:37