Upp­gjörið: ÍA - Breiða­blik 4-1 | Skítlétt á Skaganum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Viktor skoraði tvö í dag og hefði getað sett fleiri.
Viktor skoraði tvö í dag og hefði getað sett fleiri. Vísir/Anton Brink

ÍA vann öruggan 4-1 sigur á Breiðabliki á Akranesi í 24. umferð Bestu deildar karla. Sigurinn var síst of stór en með honum jafnaði Skaginn Blika að stigum.

Fátt var faktískt undir hjá liðunum tveimur þar sem fjórða sæti deildarinnar veitir ekki sæti í Evrópu. Breiðablik var í fjórða sæti fyrir leikinn, þremur stigum á undan ÍA sem var sæti neðar.

Það einkenndi leikinn framan af að liðin hafa ekki að miklu að keppa í deildinni. Ákefðin var ekkert stórkostleg og færin létu á sér standa í tíðindalitlum leik.

Það dró hins vegar til tíðinda eftir tæplega hálftímaleik þegar Viktor Örn Margeirsson gerði sig sekan um slæm mistök og gaf boltann á andstæðing sinn Gísla Eyjólfsson innan teigs. Gísli þakkaði pent fyrir sig og kom boltanum í netið gegn uppeldisfélaginu.

Skaginn fékk sitt annað færi í leiknum undir lok fyrri hálfleiks þegar Blikar töpuðu boltanum aftur á slæmum stað. Anton Logi Lúðvíksson var sá seki í það skiptið, Gísli Eyjólfsson tók á sprett og gaf á Hauk Andra Haraldsson á hægri kantinum.

Haukur átti glimrandi fína fyrirgjöf sem fann höfuðið á Viktori Jónssyni sem skallaði boltann í netið.

ÍA leiddi því 2-0 í hléi.

Viktor Jónsson setti annað skallamark sitt og þriðja mark ÍA eftir aukaspyrnu Böðvars Böðvarssonar snemma í síðari hálfleik og Markús Páll Ellertsson gerði fjórða markið með góðu skoti eftir laglegan sprett um miðjan hálfleikinn.

Varnarleikur Breiðabliks var ekki til útflutnings í mörkunum og í almennt ákefðarlitlum leik var hún nánast engin hjá Blikaliði sem virtist hafa farið degi of snemma í frí.

Mótstaða gestanna var engin og þetta var í raun skítlétt hjá Skagamönnum í dag.

17 ára gamall Birkir Þorsteinsson skoraði þó sárabótamark í uppbótartíma og lokatölur 4-1.

ÍA jafnar Blika að stigum og Skagamenn fara glaðir í frí á meðan gestirnir þurfa að melta þetta tap næstu þrjár vikurnar.

Atvik leiksins

Fyrsta markið. Agaleg mistök hjá Viktori Erni sem gefur Gísla Eyjólfssyni mark gegn uppeldisfélaginu. Ekkert kjaftæði í Gísla sem fagnaði markinu vel og innilega.

Stjörnur og skúrkar

Viktor Jónsson stjarnan með tvö mörk. Gísli Eyjólfs frábær einnig líkt og Erik Sandberg og Böðvar Böðvars sem voru flottir.

Það var enginn í liði Breiðabliks sem átti góðan leik í dag. Viktor Örn Margeirsson fær skúrkinn.

Dómarinn

Jóhann Ingi Jónsson átti að dæma en meiddist fyrir leik og var þess í stað á skiltinu. Gunnar Freyr Róbertsson tók við flautunni og stóð sig fínt. Ekki krefjandi leikur að dæma.

Stemning og umgjörð

Gleði og gaman á Skaganum. Sólin skein fyrir leik, kalt á dælunni, plötusnúður þeytti skífum og hoppukastali fyrir börnin. Frítt inn í dag og 903 áhorfendur létu sjá sig.

Viðtöl

Ólafur Ingi: Skrefinu á eftir út um allt

Ólafur Ingi var niðurlútur í leikslok.vísir / guðmundur

Tap Breiðabliks í dag var þungt og Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var að vonum svekktur eftir leik.

„Bara ekki nærri nógu gott. Þeir kannski örlítið betri en mér fannst við skapa kannski tvö fyrstu góðu færin. Svo fáum við á okkur þetta klaufalega mark og mark númer tvö líka þar sem við erum ekki nógu grimmir í návígum og mér fannst dagurinn litast svolítið af því að við vorum bara skrefinu á eftir út um allt,“ segir Ólafur og bætir við:

„Leikurinn ber þess merki að við erum að spila hérna þriðja leikinn á níu dögum og pínu þungir og þreyttir.“

Það er líka þriggja vikna pása núna fram undan, hundleiðinlegt að fara í svona langa pásu að tapi en voru menn bara komnir degi of snemma í frí?

„Nei, nei, ég meina, það kemur enginn hérna upp á Skaga og heldur að þeir eigi eftir að eiga auðveldan dag. Menn eru alveg að leggja sig fram en við erum skrefinu á eftir út um allt og þá gliðnar þetta og verður mjög erfitt og þeir eru auðvitað bara mjög þétt lið og sterkir í návígum og seinni boltum og við lendum bara undir þarna í því og þeir áttu góðan leik og við áttum slæman leik,“ segir Ólafur Ingi.

Varnarleikurinn var nú ekki beint til útflutnings í þessum mörkum Skagamanna.

„Nei, nei, þú veist, eins frábær og varnarleikurinn var á móti Fram þá var hann ekki góður í dag. Við erum svo sem búnir að fara margoft yfir það hérna að Viktor lúrir á fjær. En þetta bara gerist og Skaginn gerir vel, þeirra hrós skilið fyrir sína frammistöðu og eins og ég sagði, við bara því miður vorum ekki klárir í dag. Og það er bara staðreynd málsins.“

Stöðugleiki hefur verið það sem Breiðablik hefur vantað í sumar og liðið verið upp og niður, bæði á milli leikja og innan þeirra.

En af hverju er svona erfitt að ná stöðugleika með þetta lið í sumar?

„Það er bara góð spurning. Auðvitað er búið að vera mikið um meiðsl hjá okkur. Við erum búnir að þurfa að rótera mikið á liðinu svo það getur verið einn hluti af því. Þannig að þetta eru bara hlutir sem að við þurfum að skoða og bæta og við höfum líka verið eins og þú segir réttilega, þú veist, góðir í hálfleik, slæmir í hinum hálfleiknum og þannig að þetta eru allt svona spurningar sem að við erum að reyna að ná utan um,“ segir Ólafur og bætir við:

„Við áttum mjög góðan leik á móti Fram í síðustu umferð og maður var svona að vona að við myndum byggja á því. En svo aftur, þá hérna, þá fannst mér bara, ég ætla ekki, ég set þetta ekki á strákana. Mér fannst þeir vera að reyna í dag en mér fannst við bara orkustigið ekki til staðar til þess að ná að knýja fram eitthvað hérna í dag. Ég myndi svolítið mikið bara setja einmitt á það að menn eru bara pínu þreyttir. Þannig að það er staðan. Við fáum núna kærkomið frí.“

Lárus Orri: Nú er ég farinn í frí

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA.Vísir/Einar

„Ég er mjög kátur og mjög ánægður með hugsunarháttinn í leikmönnum, hvernig þeir nálgast þennan leik og maður fann það í vikunni að menn voru svekktir eftir síðasta leik og menn voru staðráðnir í að sýna það að við erum alls ekkert hættir,“ segir Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, eftir leik dagsins.

„Þó að þetta sé kannski skrýtinn staður í mótinu þá erum við alls ekki hættir og við ætlum að klára þetta mót á fullri ferð og ég held við höfum sýnt það í dag þó að leikurinn hafi kannski verið pínu skrýtinn á tímabili þá vorum við sérstaklega í fyrri hálfleik algjörir yfirburðir og sigldum þessu bara vel heim í lokin og þetta var sanngjarnt og síst of stór sigur,“ segir Lárus enn fremur og bætir við:

„Við erum í rauninni búin að vera betri aðilinn í öllum þremur leikjunum við Blika en þeir eru búnir að vinna okkur tvisvar þannig að þetta er á allan hátt alveg gríðarlega gott og nú er ég farinn í frí.“

Lárus Orri sagði eftir 5-1 tap fyrir KR í síðasta leik að mótið væri í raun búið þar sem Skagamenn hafa ekki fyrir litlu að spila öðru en að ná fjórða sætinu. Það var ekki að sjá að Skagamenn væru búnir.

„Nei, sko, ég er nú búinn að fá smá stick fyrir þetta sko að segja þetta því að það sem ég var að segja þar var það að mótið er í rauninni búið. Þú getur ekkert farið inn til leikmanna og sagt: „Heyrðu, við erum að berjast, berjast. Skiptir öllu máli að við náum þessu fjórða sæti.“ Þú veist, auðvitað er frábært að ná fjórða sætinu. Auðvitað viljum við klára þetta vel út af því að menn eru að berjast fyrir stoltinu, fyrir Skagann, fyrir plássinu sínu í liðinu, það er hellingur að spila fyrir. En mótið er samt í rauninni búið, skilurðu?“

Þá skiptir Skagamenn máli að fara með sigurtilfinninguna inn í langa landsleikjapásu.

„Það skiptir mjög miklu máli og svo verðum við líka að athuga það að ég held síðan í lok júlí, séum við búnir að tapa einum leik af níu, eitthvað svoleiðis. Þannig að við erum búnir að vera á alveg heljarinnar ferð og við ætlum bara að taka okkur gott frí núna, koma svo lítið til baka og klára síðustu leikina eins og menn.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira