Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2026 21:30 José Mourinho ræðir við Carlos Espí sem reyndist örlagavaldurinn í leik Espanyol og Real Madrid. getty/David Ramos José Mourinho stýrði Real Madrid í fyrsta sinn í keppnisleik í þrettán ár þegar liðið mætti Espanyol á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Einn af nýju leikmönnum Real Madrid skoraði sigurmark liðsins undir blálokin, 1-2. Real Madrid hefur farið mikinn á félagaskiptamarkaðnum í sumar en fáir veittu eflaust kaupunum á Carlos Espí mikla athygli. Real Madrid keypti þennan 21 árs hávaxna framherja frá Levante og hann var einn þriggja leikmanna sem Mourinho skipti inn á þegar tíu mínútur voru eftir í leiknum í kvöld. Á lokamínútunni barst boltinn til Espís inni í vítateig Espanyol og hann kom honum í netið og tryggði Real Madrid stigin þrjú, 1-2. Strákarnir hans Mourinhos náðu forystunni á 9. mínútu þegar Jude Bellingham skallaði aukaspyrnu Ardas Güler í netið. Á 30. mínútu jafnaði Álex Calatrava fyrir Espanyol og heimamenn sáu stig í hillingu. En Espí gerði þær vonir þeirra að engu. Real Madrid CF Spænski boltinn