Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2026 09:03 Jóhann Ingi Jónsson rekur Alpha Conteh af velli í leik Stjörnunnar og Keflavíkur. sýn sport Að mati sérfræðinga Stúkunnar var Alpha Conteh, leikmaður Keflavíkur, óheppinn að vera rekinn af velli í leiknum gegn Stjörnunni í Bestu deild karla á sunnudaginn var.
Keflavík lék manni færri síðustu 55 mínúturnar gegn Stjörnunni eftir að Conteh fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar tíu mínútur voru til hálfleiks. „Þetta hafði bara í rauninni öll áhrif á leikinn,“ sagði Baldur Sigurðsson um brottvísun Contehs. Klippa: Stúkan - rauða spjaldið á Alpha Conteh „Þótt það sé haldið í þig þarftu ekki að slá svona frá þér. Þetta er pirrandi en þú verður bara að halda áfram og fá brotið. Þannig að ég held að þetta sé alveg rétt,“ sagði Baldur í Stúkunni í gær en Conteh fékk fyrra gula spjaldið sitt fyrir að slæma hendi til Örvars Eggertssonar. Conteh fékk svo sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir brot á Benedikt Warén á miðjum vellinum. „Ég er samt ekki alveg sannfærður um þetta. Hann potar í boltann. Hann fer ekki í ökklann á honum. Hann fer í rauninni fram hjá honum. Mér finnst þetta bara vera mjög hart að gefa honum seinna gula og rautt fyrir þetta. Það er enginn háskaleikur í þessu,“ sagði Baldur. Bjarni Guðjónsson var á sama máli og Baldur en sagði að Conteh hefði ef til vill boðið hættunni heim með því að renna sér í Benedikt. „Skynsemin í því að vera á gulu spjaldi og henda sér niður. Þetta er bara rétt sem Baldur segir. Hér bara sparkar hann í boltann. Þetta er ekki gult spjald. Hann rennur á hann. Takkaskórnir fara ekki í leikmanninn,“ sagði Bjarni. Conteh kom upphaflega til Stjörnunnar um mitt síðasta tímabil. Í vor var hann lánaður til Keflavíkur sem keypti hann svo af Stjörnunni á dögunum. Conteh tekur út leikbann þegar Keflavík sækir nýliða Þórs heim á laugardaginn kemur. Keflavík er í 7. sæti Bestu deildarinnar með 22 stig eftir átján umferðir. Innslagið úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Keflavík ÍF Stjarnan Stúkan Tengdar fréttir „Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Haraldur Freyr Guðmundsson var augljóslega ekki sáttur við ákvörðun Jóhanns Inga Jónssonar um að vísa Alpha Conteh af velli með rauðu spjaldi í 1-0 tapi Keflavíkur gegn Stjörnunni í leik liðanna í Bestu-deild karla í fótbolta í Garðabænum í kvöld. 9. ágúst 2026 20:35 Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Bjarki Hauksson skoraði sigurmark Stjörnunnar þegar liðið vann 1-0 sigur gegn Keflavík í 18. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Stjarnan lék einum leikmanni fleiri frá því undir lok fyrri hálfleik þegar Alpha Conteh var vísað af velli með rauðu spjaldi. 9. ágúst 2026 19:54 Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira
„Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Haraldur Freyr Guðmundsson var augljóslega ekki sáttur við ákvörðun Jóhanns Inga Jónssonar um að vísa Alpha Conteh af velli með rauðu spjaldi í 1-0 tapi Keflavíkur gegn Stjörnunni í leik liðanna í Bestu-deild karla í fótbolta í Garðabænum í kvöld. 9. ágúst 2026 20:35
Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Bjarki Hauksson skoraði sigurmark Stjörnunnar þegar liðið vann 1-0 sigur gegn Keflavík í 18. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Stjarnan lék einum leikmanni fleiri frá því undir lok fyrri hálfleik þegar Alpha Conteh var vísað af velli með rauðu spjaldi. 9. ágúst 2026 19:54