„Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ Árni Gísli Magnússon skrifar 9. ágúst 2026 21:43 Ísak Óli segir herslumuninn hafa skilað sér í dag. Vísir/Anton Brink Ísak Óli Ólafsson, leikmaður FH, skoraði eina mark leiksins þegar FH sótti gríðarlega mikilvægan útisigur gegn KA í átjándu umferð Bestu deildar karla.
FH hefur sætaskipti við KA sem fer niður í ellefta sæti úr því tíunda. Ísak var ánægður með sigurinn og markið og segir sigur tilfinninguna vera sæta. „Hún er virkilega sæt, ég ætla ekkert að ljúga því og mér fannst við eiga það skilið í dag og svona undanfarna leiki finnst mér við eiga, það vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag.“ Ísak skoraði sigurmark leiksins með skalla í seinni hálfleik. „Þetta er bara beint af æfingasvæðinu, maður bara keyrir á nær og flikkar honum inn. Þetta er búið að vera oft tæpt í sumar hjá okkur, við erum búnir að vera sterkir í föstum leikatriðum, bara geggjað að skora, bara gaman.“ FH hefur ekki tapað leik í níu umferðum í röð, eða síðan 29. maí, en þar af eru sjö jafntefli. Ísak segir ekkert sérstakt hafa breytt því að sigurinn kom í dag. „Nei nei, þetta er svo sem bara það sama hjá okkur sko, við erum bara búnir að vera ógeðslega þéttir og þetta er bara svo, línan er svo stutt á milli einhvern veginn og mér finnst við oft eiga það skilið og í dag bara datt þetta skilurðu, það er bara það. Við erum að leggja þvílíkt á okkur og baráttuandinn er rosalegur þannig ég bara held þetta sé ekkert eitthvað eitt sko.“ Hans Viktor Guðmundsson fékk færi á lokasekúndu leiksins en hitti boltann illa. Ísak viðurkennir að það hafi farið um sig þá. „Já það hefði verið svona ekta, alveg einhvern veginn, þeir líka skalla hann í einhvern og til hans og hann fær þarna bara eiginlega frítt skot en lukkudísirnar voru með okkur og hann kiksaði boltann en einmitt maður fær mark á sig í leikjum og við erum með þarna einhvern múr í markinu þarna, ég hugsa að hann hefði örugglega bara varið þetta sko“, sagði Ísak og á þar við Jökul Andrésson liðsfélaga sinn og markmann liðsins. FH lyftir sér upp í tíunda sæti deildarinnar og skilur KA eftir ásamt Þór í fallsætunum en stutt er á milli liða í neðri hlutanum. „Við erum búnir að vera reyna, þetta er svo ógeðslega leiðinlegt svar, en við erum búnir að vera reyna hugsa bara um sjálfa okkur, ekkert endilega að horfa á töfluna. Auðvitað veit maður af henni en skilurðu við erum það þéttir og búnir að styrkja okkur það vel að við erum bara að hugsa um okkur og ætlum bara að stefna upp á við skilurðu, eðlilega, en þetta er svakalega þéttur pakki, einn sigur til og frá þá er maður kominn eitthvað aðeins frá þessu en svo eitt tap frá þá er maður kominn aftur í þetta. Þannig þetta er það þétt að maður getur einhvern veginn ekki verið að hugsa of mikið um þetta.“ Sigur, hreint lak og mark hjá þér. Þú hlýtur að fara kampakátur í rútuna? „Jú jú, skemmtilegir fimm tímar, það er leiðinlegt að rútubílstjórinn þarf að stoppa í 45 mínútur einhversstaðar að hvíla sig sko en nei nei það verður gaman í rútunni“, sagði Ísak léttur í bragði að lokum og rölti í átt að rútunni góðu.
FH Besta deild karla KA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira