Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Áróra L Davíðsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 14:09 Inga Sæland er barna- og menntamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur hrint af stað breytingum á námsmati í grunnskólum með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari. Meðal áforma er að einkunnir verði birtar í tölustöfum í stað bókstafa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Breytingar verða gerðar á námsmati í grunnskólum „með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagið allt,“ segir í tilkynningunni. Breytingarnar á aðalnámskrá munu taka gildi í vetur. Einkunnir verði birtar í tölum í stað bókstafa en samkvæmt núverandi aðalnámskrá byggir námsmatið á bókstafakvarða sem tengdur er hæfniviðmiðum við lok fjórða, sjöunda og tíunda bekkjar. „Markmiðið er að tryggja að lokaeinkunn gefi skýrari og gagnsærri mynd af stöðu nemenda og að námsmat verði sambærilegra milli skóla,“ segir í tilkynningunni. Breytingarnar verði innleiddar í tveimur áföngum. Fyrsti áfanginn taki gildi vorið 2027 en hann nái til lokamats í tíunda bekk. Þá verði einkunnir við lok grunnskóla gefnar út í heilum tölum á bilinu einn til tíu. Annar áfanginn taki formlega gildi vorið 2028 en hann nái til lokamats í fjórða og sjöunda bekk. „Í þeim áfanga verði ráðist í frekari endurskoðun greinasviða aðalnámskrár með sérstaka áherslu á stærðfræði, náttúrufræði, íslensku og íslensku sem annað tungumál.“ Auk þess verði lögð áhersla á skýr miðlæg viðmið um þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur eigi að hafa náð á tilteknum skólastigum. Áfram verði lögð áhersla á fjölbreytt námsmat en tölukvarði komi ekki í stað faglegs mats kennara á hæfni og stöðu nemenda.
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grunnskólar Flokkur fólksins Börn og uppeldi Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Sjá meira