Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Jón Þór Stefánsson skrifar 4. ágúst 2026 14:03 Gabríel Douane Boama við aðalmeðferð í héraðsdómi 2023. Framburður vitna í fimm ára gömlu líkamsárásarmáli var ruglingslegur og misvísandi á marga vegu. Þess vegna var það mat Héraðsdóms Reykjavíkur að ákæruvaldið hafi ekki axlað sönnunarbyrgðina sem á því hvílir. Þess vegna voru sex menn sýknaðir í málinu, þar á meðal Gabríel Douane Boama, sem ítrekað hefur komist í kast við lögin undanfarin ár.
Þetta kemur fram í dómnum, sem fréttastofa hefur undir höndum, en greint var frá niðurstöðu hans í síðustu viku. Í honum kemur fram að ríkið muni þurfa að borga samanlagðar átján milljónir króna í lögmannskostnað. Mennirnir sex voru ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Þeim var gefið að sök að hafa aðfaranótt laugardags í september 2021 ruðst í heimildarleysi inn í íbúð í húsi við Holtagerði í Kópavogi og veist þar með ofbeldi að fjórum mönnum sem þar voru staddir. Sexmenningarnir hafi slegið og sparkað í höfuð hinna fjögurra víðs vegar um líkama þeirra og einnig veist að þeim með hættulegum vopnum og bareflum, þar á meðal hömrum og hnífum. Þar að auki, sagði í ákærunni, hafi þeir valdið tjóni á húsnæðinu, meðal annars með því að brjóta gler í útidyrahurð, þannig að glerbrot féllu yfir og slösuðu þá sem fyrir innan voru, og skemmdu innihurð. Samkvæmt ákærunni hlutu þeir fjórir, sem áttu að hafa orðið fyrir meintu árásinni, ýmsa áverka. Ruglingur og misskilningur Atvikin sem málið varðar áttu sér stað í heimahúsi Holtagerði í Kópavogi, þar sem ungmenni voru samankomin. Lýsingar á málavöxtum voru á þá leið að einn sakborninganna hafi verið vísað úr partíinu, en hann komið aftur ásamt fleiri mönnum og þeir ráðist á einhverja sem fyrir voru í teitinu. „Framburður þeirra vitna sem voru á vettvangi hefur verið talsvert misvísandi. Þá bera framburðir vitnanna þess merki að langt er liðið frá atburðinum og að mati dómsins veikir þetta sönnunarstöðu málsins og leiðir til hættu á ruglingi og misskilningi,“ segir í dómnum, en nánari lýsingar á atvikunum voru mjög á reyki, og var það þrátt fyrir að sakborningarnir hafi tjáð sig lítið um málavextina. Til dæmis var fjöldi meintra árásarmanna mjög óljós, allt frá fjórum til fimm, upp í tíu til fimmtán. Einnig virðist sem ekkert vitnanna eða brotaþola hafi minnst á nöfn sumra sakborninganna sem ákærðir voru. Þá var haft eftir vitni á vettvangi að þau teldu að áðurnefndur Gabríel Douane hafi þarna verið þátttakandi, en ekki verið hundrað prósent viss um það. Viðstaddir áttu semsagt erfitt með að fullyrða hverjir höfðu framið umrædda árás. Ofan á þetta var einn maður nafngreindur af brotaþolunum, sem var þó ekki ákærður í málinu. Þá kom fram í lögregluskýrslu, að sést hafi til enn eins manns hlaupa af vettvangi, en ekki liggur fyrir hver sá maður er. Þar að auki voru mismunandi lýsingar á vopnum meintra árásarmanna. Hvort þeir hefðu verið með hamar, eða margra hamra, eða hníf, flösku eða jafnvel skæri var ekki skýrt. Það var því mat dómsins að ekki væri hægt að sakfella mennina, þar sem umræddir atburðir væru alltof óljósir. Ekki væri næg sönnun fyrir sekt mannanna sex.
Dómsmál Lögreglumál Vopnaburður barna og ungmenna Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira